Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1999, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1999, Qupperneq 14
14 FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 1999 Útgáfufélag: FRJÁIS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaöur og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON Ritstjóran JÓNAS KRISTJÁNSSON og ÓU BJÖRN KÁRASON Aöstoöarritsqóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjóri: PÁLL ÞORSTEINSSON Ritstjóm, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaöaafgreiösla, áskrift ÞVERHOLTI11,105 RVÍK, SÍMI: 550 5000 FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aörar deildir: 550 5999 GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/ Vísir, netútgáfa Frjálsrar fjölmiölunar: http://www.visir.is Ritstjórn: dvritst@ff.is - Auglýsingar: auglysingar@ff.is. - Dreifing: dvdreif@ff.is AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaöam.: 462 6613, fax: 4611605 Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Filmu- og plötugerð: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF. Áskriftarverö á mánuði 1900 kr. m. vsk. Lausasöluverö 170 kr. m. vsk., Helgarblaö 230 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til aö birta aösent efni blaösins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Verðbólgan er hafin að nýju Verðbólga má ekki vera meiri hér en í helztu við- skiptalöndum okkar. Umframverðbólga veldur slakari samkeppnisstöðu atvinnuvega og þrýstir upp vöxtum, sem spilla samkeppnisstöðunni enn frekar, svo að úr verður vítahringur ótraustra efnahagsmála. Um þessar mundir er verðbólga lítil í umheiminum, innan við 2% í viðskiptalöndum okkar. Annars vegar er lítil verðbólga hefðbundin í Bandaríkjunum og hins veg- ar hefur Vestur-Evrópa náð verðbólgu niður með mark- vissum aðgerðum til að koma á fót evrunni. Við höfum ekki agann af evrunni og erum þar á ofan að sigla inn í kosningaár með tiiheyrandi losi á brems- um stjómvalda. Verðbólga verður hér örugglega yfir 3% á árinu og getur hæglega farið yfir 5%. Þetta kemur fram í spám ýmissa stoöiana, erlendra sem innlendra. Að venju em Þjóðhagsstofnun og Seðlabanki hús- bóndahollar stofnanir, sem ekki vilja valda ríkisstjóm- inni hugarangri. Þær hafa látið frá sér fara allt of lágar verðbólguspár út í hött og framkalla þannig beinlínis verðbólgu með því að svæfa stjómvöld á verðinum. Það er sérstaklega ámælisvert, að íslenzki Seðlabank- inn skuli ekki haga sér eins og óháður seðlabanki, svo sem hefúr verið í Bandaríkjunum og Þýzkalandi og nú síðast í Bretlandi, eftir að Tony Blair komst til valda. Háður seðlabanki er hættulegur seðlabanki. Þenslan er orðin svo mikil hér á landi, að vaxtastigið er orðið óraunhæft. Nauðsynlegt að hækka vexti sem allra fyrst og það verulega, en skaða má þjóðina enn frek- ar með því að fresta hækkuninni fram yfir kosningar til þess að valda ekki óróa á viðkvæmum tíma. Verðbólgan á íslandi stafar af ýmsum ástæðum. Einna veigamest er sveiflan af velgengni sjávarútvegs, sem bylgjast um allt þjóðfélagið. Kvótasölu-gróðakerfið magn- ar sveifluna enn frekar með því að draga peninga til verðbólguhvetjandi fjárfestingar af ýmsu tagi. Stóriðjudraumar ríkisstjómarinnar stuðla að óhófleg- um athaftiavilja. Bjartsýnir slá lán til framkvæmda og vélakaupa. Þeir reikna með að fýrirhuguð stóriðju- og stórvirkjanavelta fleyti sér út úr skuldunum. Almenning- ur smitast af þessu og sukkar meira en ella. Margt fleira leggst á sömu sveif. Hagkerfið er lokaðra en vestræn hagkerfi og býður upp á óhagkvæma spill- ingu. Þannig kemst Eimskip upp með að niðurgreiða pappír fyrir Skeljung í símaskrána og Landssíminn með að afhenda prentsmiðjunni Odda verkið án útboðs. í skjóli ríkisrekstrar og innflutningshafta hefúr land- búnaðinum tekizt að hækka afurðir sínar í vetur og stuðla þannig að verðbólgu. Þetta fyrirkomulag getur eitt út af fyrir sig komið í veg fyrir, að ísland taki sæti með alvöruríkjum verðfestu og trausts eftiahags. Ríkisstjómin hefur ekki hagað málum sjávarútvegs og landbúnaðar á þann hátt, að þaðan komi ekki verðbólga inn í þjóðfélagið. Hún hefur klúðrað ýmsum þáttum einkavæðingar á þann hátt, að einokun hefúr haldizt og verðlag einkavinavæðingar hefúr hækkað. Ríkisstjómin er uppiskroppa með ýmsar aðrar verð- bólgubremsur, sem hafa gefizt henni vel á undanfomum árum. Hún bilar núna, þegar röðin ætti að koma að frjálsræðisaðgerðum í sjávarútvegi og landbúnaði og málefnum, sem varða hagsmuni kolkrabbans. í slíkri stöðu er afleitt, að helztu stoftianir efiiahags- mála skuli vera svo vanþróaðar, að þær taka tillitssemi við ríkisstjóm fram yfir heiðarlegar efnahagsspár. Jónas Kristjánsson ' "1 Wiittrail1 iiíyiifTi'' „Mengun frá Kólaskaga getur ógnað öllu lífi í hafinu ef ilia færi og ekkert gert til þess að sporna gegn því ac kjarnorkuúrgangur mengi höfin." Norðurlanda- samstarfið - styrkir stöðu okkar innan Evrópu Kjallarínn Sturla Böðvarsson alþingismaður og á sæti í Norðurlandaráði svæðanna sem varða okkur vissulega meö einum eöa öðrum hætti. Engum getur dulist að Eystrasaltsríkin og Rússland koma með brotið samfélag frá Sov- ét-tíðinni. Það er skylda okkar Norðurlandaþjóð- anna að styðja og styrkja þessar þjóðir með öllum tiltækum ráðum og stuðla að lýð- ræðisþróun og auknum mannréttindum borgar- anna. Erfiðustu viðfangsefni nærsvæðanna eru trú- lega mengun og mikil félagsleg VEmdamál. Með auknu starfi nær- „Það er mikilvægt verkefni okk- ar íslendinga innan Norðurlanda- samstarfsins að styrkja stöðu okkar meðal Evrópuþjóðanna og gæta þess að nýta styrk okkar sem samhentur hópur, jafnt gagnvart Evrópuþjóðunum sem á alþjóðavettvangi. “ Norrænt sam- starf á sér langa sögu þrátt fyrir að Norðurlandaráð sé lítið eitt yngra en íslenska lýðveldið. Samstarf Norður- landa hefur að minu áliti mikla þýðingu á mörgum sviðum. Samstarf á sviði menningar- mála er mikilvæg undirstaða hins norræna samstarfs. Norrænt samstarf styrkir Norður- löndin sem eina menningarlega heild með meginá- herslu á lýðræðis- hefð, samhug og skyldleika þjóð- anna sem hafa sterka norræna vitund. Hið nýja skipulag Norður- Iandaráðs gerir ráð fyrir að starfið falli í fastmótaðar leiðir sem auðvitað miða að því að styrkja stöðu Norðurland- anna inn á við og ekki síður á vett- vangi þjóðanna og í samstarfi við þjóðir Evrópu, og þá ekki síst nærsvæöanna. Erfiðustu verkefnin Á þessu kjörtímabili hef ég starfað á vettvangi Norðurlanda- ráðs. Verkefui mín innan Norður- landaráðs hafa einkum verið á vettvEmgi nærsvæðEmefndar. Ég hef fengið tækifæri til þess að kynnast viðfangsefhum grann- svæðanefndEtr eiga Norðurlanda- þjóðimar að geta orðið að liði og stuðlað að æskilegum breyting- um, ekki síst hjá Eystrasaltsríkj- vmum. Mengunarhætta Þess er að vænta að Norður- landasamstarfið auki öryggi í norðurhluta álfunnar, tryggi sjálf- bæra þróim og geti orðið til þess að auðvelda aðgerðir gegn meng un hafanna og um leið auðlindun hafsins. Fyrir okkur íslendinga e ástæða til þess að vekja athygli; þeirri hættu sem mengun, m.a. fr; Kólaskaganum, getur haft í fo með sér, ekki síst fyrir Norður löndin og þær þjóðir sem eig; mikið undir auðlindum hafsins. Vissulega ber nokkum skugg; á þar sem em deilur Norðmann; og okkar íslendinga um veiðar o; nýtingu fiskimiða sem báðar þjóf imar telja sig eiga tilkall til Frændur okkar, Norðmenn, virf ast fremm- beina spjótum sínur að okkur íslendingum vegn, veiða nokkurra skipa í Smugunn en þeirri mengunarhættu seu stafar frá kjamorkuúrgangi á o við Kólaskagann. Mengun fr. Kólaskaga getur ógnað öllu lífi hafinu ef illa færi og ekkert ger til þess að spoma gegn því a kjamorkuúrgangur mengi höfin. Norrænt gildismat Norðurlöndin tengjast öll Evr ópusambandinu sterkum böndur þrátt fyrir sérstöðu íslendinga o Norðmanna. Það er mikilvæg verkefni okkar íslendinga inna Norðurlandasamstarfsins a styrkja stöðu okkar meðEd Evr ópuþjóðanna og gæta þess að nýt styrk okkar sem SEunhentur hó{ ur, jafnt gagnvart Evrópuþjóður um sem á alþjóðavettvangi. Við eigum að SEuneinast um a halda í heiðri norrænt gildisms um leið og Norðurlandaþjóðima em hver með sínu lagi öflugi þátttakendur í því að styrkj stöðu Evrópuþjóðanna og stuðl þannig að framforum, auknur mannréttindum, velferð og friði. Sturla Böðvarssoi Skoðanir annarra Hin földu laun „Kaup embættismanna og þingmanna er miklu bet- ur falið en niðurgreiöslur Félags viðskiptafræðinga og hagfræðinga. Þegar starfsmanni launþegasamtaka datt seint og um síðir að fara að athuga hvemig það lið allt sækir sér hnefa í sjóði ríkis og banka kemur í ljós hvílíkar viðbótartekjur þetta fólk tekur sér og lýgur svo til um lágu launin og fátækt sína. Við þetta hefúr frjálshyggjEm ekkert að athuga ... Grófleg risna og margföld lífeyrisréttindi kjaraaðalsins era greidd af skattborgurum, sem aldrei hafa vit á að fylgjast með hvemig þeir em hlunnfamir. Og gestir í morg- unverði hagfiæðingannna munu heldur aldrei velta fyrir sér af hverju þeir em ójafhari en aðrir.“ Oddur Ólafsson í Degi 3. febr. Landsbyggðin og skattarnir „Sú snjalla hugmynd hefur nú komið upp hjá fram- kvæmdastjóra nokkrum úti á landsbyggðinni að ekki greiði allir landsmenn sama tekjuskattshlutfall. Framkvæmdastjórinn telur sem sé að þeir sem búa á landsbyggðinni ættu að greiða lægri skatta og réttlæt- ir hann þessa hugmynd með þvi að þetta geti dregið úr sókn fólks til suðvesturhomsins. En hver borgar brúsann, eða er þetta eitt af hinum ókeypis ráðum vinstri manna? Nei, þetta er langt í frá ókeypis og þeir sem myndu borga fyrir þessa lægri skatta em vitaskuld þeir sem búa í þéttbýlinu. Framkvæmda- stjórinn bendir aðeins á björtu hliðina á málinu, en lét þess ekki getið að afleiðingar þess að fölk i dreif- býli myndi hEifa hærri ráðstöfunartekjur vegna þessa en nú er, væm þær að fólk í þéttbýli hefði lægri ráð- stöfunartekjur." Úr 29. tbl. Vef-Þjóðviljans. Vandi Alþjóðaólympíunefndarinnar „Til þessa hafa forystumenn íþróttamála á íslandi staðið hjá þegar átök hafa átt sér stað um skipulag Al- þjóðaólympíunefhdarinnar. En nú bregður öðmvísi við því fyrir nokkrum dögum ritaði forseti ÍSÍ, Ellert B. Schram, forseta Alþjóðaólympíunefhdarinnar bréf þar sem hann hvetur til róttækrar uppstokkunar á nefhdinnni ... Það verður sannarlega forvitnilegt að sjá hvaða viðtökur tillögur Ellerts fá úti í hinum stóra heimi. Allténd er þetta í fyrsta sinn sem íslend- ingur hefur eitthvað til málanna að leggja í þessum efnum.“ Ingimar Jónsson í Mbl. 3. febr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.