Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1999, Side 15
FIMMTUDAGUR 4. FEBRUAR 1999
15
Þeir dagar eru liðnir
sem kynlíf var slíkt
feimnismál að þunguð
kona mátti helst ekki
láta sjá sig á almanna-
færi! Það var algjört
bannsvæði. Jafnvel
fermingarstúlkur urðu
ofsahræddar þegar þær
fengu mánaðarlegar
blæðingar í fyrsta sinn
og höfðu ekki hugmynd
mn hvað var að gerast.
Þýddar bækur um sam-
líf hjóna fóru að birtast
á þriðja áratugnum en
oftast þótti þýðendum
tryggara að fela sig bak
við dulnefiii. Og þegar
erindi Katrínar
Thoroddsen læknis um
takmarkanir bameigna
var birt á prenti 1931 ætlaði alit vit-
laust að verða. Ábyrgir aðilar ótt-
uðust hörmulegar afleiðingar á sál-
arlíf unglinga. Ungum stúlkum var
jafnvel bannað að lesa Sölku Völku
þegar hún kom út fyrst.
Nú er öldin önnur og við komin
út í hinar öfgamar, sjáum og heyr-
Kjallarinn
Inga Huld
Hákonardóttir
sagnfræðingur
„Það hvarflaði að mér að skelf-
ing hefði Clinton verið óheppinn
með þetta bjánalega tuð sitt við
Pálu og Moniku. Hann hefði átt
að fara beint í Þórskaffí, þá hefð■
um við losnað við óendanlegt
magn af upplýsingabulli. “
um miklu meira um kynlíf en við
höfum nokkuð við að gera. Eins og
Foucault orðaði þaö: með þessu (yf-
irborðs) frjálslyndi erum við að
tala ástina i hel, bæla óravíddir
okkar eigin tilfinninga. Við erum
öll orðin kíkjarar.
Ekki snerta, bara horfa
I sjónvarpsþættinum Titringi
(RÚV) þann 19. janúar leyfðu Sús-
anna og Þórhallur okkur að
skyggnast inn á gráa svæðið milli
velsæmis og vændis. Þau kynntu
okkur nýjustu til-
brigðin, eymamök
og augnamök. Fyrst
hringdu þau í eró-
tiska spjallrás til að
heyra kynæsandi
lýsingu. Þeim þótti
hún illa leikin og
allt of dýr, heilar
500 krónur.
Fyrir mér rifjaðist
upp atvik úr mynd
eftir Robert Altman,
tekið á hinum enda
línunnar. Húsmóðir
fróaði sér í sófa í
dagstofu sinni og
reyndi hvað hún gat
að lýsa athöfhinni
með tilþrifum i sima
með bömin allt í
kringum sig og
þunglyndan atvinnulausan eigin-
mann ráfandi um gólfið. Síðan lá
leiðin í Þórskaffi. Þangað geturðu
farið með kærustuna þina - eða
kærastann - og keypt einkadans á
afherbergi og dansar þá sýningar-
stúlkan - eða sýningarkarlinn -
nærbuxnalaus. Áhorfendur mega þó
------------1 hvorki snerta
dansarann né hafa
uppi ósiðlega til-
burði við sjálfa sig.
Varðmaður á gang-
inum sér um að
banninu sé hlýtt.
Sumir viðskipta-
vinir koma raun-
ar mest til að tala
við stúíkumar og
léttaafhjartasínu
þeirri þimgu byrði
sem stundum fylgir hlutverki góðs
eiginmanns og heimOisfoður.
Kampavínið flóir, og seðlamir
fjúka. Áreiðanlega þúsundum sam-
an. Starfsfólkið kom vel fyrir og
lýsingin á staðnum var svo fjöl-
skylduvæn að Eiríkur á Brúnum
hefði ekki gert betur, en hann lýsti
dönskum portkonum eins og greið-
viknum prófastsdætrum í sveit.
Hið Ijúfa líf - eða hvað?
Þó var ýmislegt gott um Titrings-
þáttinn að segja. Hann hefur trú-
„Sumir viðskiptavinir koma raunar mest til að tala við stúlkurnar og létta
af hjarta sínu þeirri þungu byrði sem stundum fylgir hlutverki góðs eigin-
manns og heimilisföður. Kampavihið flóir og seðlarnir fjúka."
lega orðið kveikja að fréttaumræðu
á Stöð 2 kvöldið eftir, þar sem borg-
arstjóri og kvennaathvarf lýstu
áhyggjum sínum af þróun mála.
Umræða er af hinu góða. Fyrir
fáum misserum sagði erlend nekt-
ardansmær við tímaritið Séð og
heyrt að hér á landi væru eigendur
dansstaðanna, lögreglan og blöðin
samtaka rnn að reisa þagnarmúr
kringum allt sem aflaga kynni að
fara á þeim bæjum. Um svipað
leyti kærði íslensk stúlka á einum
þeirra atvinnurekanda sinn.
Málið fór til lögreglu. Það varð
fjaðrafok í fjölmiölum í tvo daga
en áhugi þeirra datt niður mjög
snögglega og eru afdrif stúlkunnar
ókunn. í annan stað var merkilegt
hvemig strangt innra eftirlit í
Þórskaffi miðaði að því að ekki
yrði farið út fyrir augnmökin. Það
hvarflaði að mér að skelfing hefði
Clinton verið óheppinn með þetta
bjánalega tuð sitt við Pálu og Mon-
iku. Hann hefði átt að fara beint í
Þórskaffi, þá hefðum við losnað
við óendanlegt magn af upplýs-
ingabulli.
PS. Til hamingju með afmælið,
Spaugstofúmenn, og þökk fyrir
stripparann. - Hún reif af sér föt-
in, síðan húðina og holdið þangað
til ekki var annað eflir en beina-
grindin!
Inga Huld Hákonardóttir
Æ, því fór Clinton ekki
heldur í Þórskaffi?
Obærilegur fáránleiki samverunnar
Nú fékk Kvikmyndasjóður ís-
lands örlítið meira af almannafé
frá ríkinu í jólagjöf. En í úthlutun-
inni 15 jcmúar sl. byrjaði úthlutun-
amefnd á því að henda 10 milljón-
um kr. út um gluggann á Hallveig-
arstöðum. Tilgangur sjóðsins má
hafa verið sá að bregðast við
þeirri kröfu að sjóðurinn leggi fé
til mynda á erlendri tungu, (það er
þetta tiltekna verkefiii sem um er
rætt og fékk 10 m. framlag). Það
hefur verið arðsemiskrafa, ef t.d.
skýrsla Aflvaka er rétt skilin. Ég
hef líka rökstutt þá kröfú á prenti
og enginn hreyft mótbámm.
Pólitísk hugsunarvilla
En í þessu tilfelli var þetta póli-
tísk hugsunarvilla hjá úthlutunar-
nefnd og í röksemd framkvæmda-
stjóra kom líka i ljós að hér em
menn strax komnir inn á villigöt-
ur, því að tilgangurinn með að
setja fé í myndir á erlendum
tungmnálum á að vera að efla ís-
lenskan kvikmyndaiðnað og gera
hann samkeppnishæfan. Kvik-
myndir teknar á íslandi á öðrum
tungumálum, sérstaklega ensku,
flytja inn nýja reynslu fýrir fram-
leiðendur og fagfólk og skapa
vinnu og ný tækifæri fyrir inn-
lenda (og erlenda) leikara.
Þetta umrædda framlag er fyrir
mynd tekna á Norðurlöndum og
nær litlu jarð-
sambandi hér.
Þetta fé kemur
ekki til með að
laða meira fjár-
magn inn í land-
ið. Þetta fé er 1,2
% af kostnaði
umrasdds verk-
efnis, það er ekki
til kjaftur sem
heldur að þetta
verkefni hafi
þurft á þessu að
halda, varla upp
f nös á dönskum
ketti og hefði
ekki breytt neinu fyrir það.
Mörg verkefni sem fyrir lágu
hjá sjóðnum, (þar af nokkur á
ensku, hvað þá íslensku), hefðu
með þessu framlagi getað marg-
faldað aurinn hér heima. Verkefn-
ið sem fékk framlagið úppfyllir
ekkert af þessu, það er snobbið
sem stendur eftir sem
haldbær skýring á
þessu. Nema þá þekk-
ingarleysi. En hvorki
úthlutunamefndimar
né framkvæmdastjóri
hafa reynslu af Qár-
mögnun, framleiðslu,
framkvæmd og gerð
kvikmynda eða kvik-
myndahandrita. Hvað
þá haldbæra menntun
í faginu eða nasasjón
af erlendri framleiðslu
og fjármögnun. Sömu
sögu er reyndar að
segja um flesta sem
sitja í opinberum
nefiidum og ráðum
sem fjalla um kvik-
myndagerð. Það er
eins og að setja garð-
yrkjubændur í sjávarútvegsnefnd.
Skandaló.
Gamla kerfið
Það aukaframlag sem kom frá
ríki sl. ár var sett inn í gamalt
kerfi sem nýtir féð illa vegna úr-
eltrar reglugerðar. í Bretlandi eiga
menn ágætan leiðarvísir um hvað
skuli teljast ensk mynd, t.d. að
ekki séu teknar meira en 7,5 mín-
útur af tjaldtíma (screentime) utan
Bretlands, ekki minna en 80% af
launakostnaði (labour cost) renni
til heimamanna og að 50% tækja
við að gera myndina séu innlend.
Til að taka skref i átt að raunveru-
legri atvinnu-
mennsku í faginu
hér á landi þarf
reglugerð í þessa
átt. Menn verða að
vinna heimavinn-
una sína, það er lít-
ið mál.
Það var reynt á
Bretlandi að setja
aukið fé í gamalt
kerfi. Þar hefúr
fjöldi framleiddra
mynda aukist vegna
opninbers stuðnings
en gæðin lítið skán-
að. Ástæðan fyrir
því er m.a. sú að
það eru „Lees-
ing“fyrirtæki sem
fá 100% skattaaf-
slátt ef þau
kaupa/leigja negatvíu af kvik-
myndaframleiðanda. Skattafslátt-
urinn þýðir að „The Lessor" getur
borgað hærra verð. En „Lees-
ing“fyrirtæki hafa lítið vit á kvik-
myndum, þetta er „bissniss".
Þau íslensku verkefiii sem
fengu stuðning eru vel að honum
komin og spennandi að sjá hvað
kemur út úr þeim. En þegar kem-
m- að því að ætla taka skref í átt
að alþjóðavæðingu, þá byrja mis-
tökin. Því þetta er vont fordæmi,
og fyrir annað eins hafa menn
lækkað i tign og orðið labba hest-
lausir út úr höllinni.
Einar Þór Gunnlaugsson
„Mörg verkefni sem fyrir lágu hjá
sjóðnum, (þar af nokkur á ensku,
hvað þá íslensku), hefðu með
þessu framlagi getað margfaldað
aurinn hér heima. Verkefnið sem
fékk framlagið uppfyllir ekkert af
þessu, það er snobbið sem stend-
ur eftir sem haldbær skýring á
þessu. Nema þá þekkingar!eysi.u
Kjallarinn
Einar Þór
Gunnlaugsson
kvikmyndaframleiðandi
Með og
á móti
Tekst mönnum að gera NBA-
deikfina spennandi eftir altt
sem á undan er gengið
kórfuboHtaspeking
ur númer ettt.
Stutt en
skemmtilegt
tímabil
„Auðvitað kemur enginn fyrir
Michael Jord-
an alveg eins
og það verður
aldrei neinn
annar Pele í
knattspym-
unni. Menn
verða að gera
sér grein fyrir
því að það er
fúllt af stór-
kostlegum leik-
mönnum eftir í deildinni. Það
eru ungar stjömur eins og Kobe
Bryant , Damon Stoudamire og
ég tala nú ekki um Grant Hill,
sem hefúr verið talinn arftaki
Jordans, sem fá nú að láta ljós
sitt skína. Þessir menn hafa
aldrei komist að og bafa verið í
skugganum á Jordan. Ég er ekki
í nokkrum vafa um að það eiga
eftir að koma dúndrandi stór-
stjömur fram í vetur. Það kemur
alltaf maöur í manns staö og
verður ekki í
að
Fólk er orðið hungrað í að sjá lið-
in eftir þetta langa hlé og það
hafa orðið miklar breytingar á
liðunum. Timabilið er það stutt
núna að það er ekkert um það að
ræða að menn megi slappa af.
Leikmenn verða á fullu fram að
úrslitakeppninni enda mun
þreyta ekki angra mannskapinn.
Hver leikur kemur til með að
skipta máli og þess vegna held ég
að deildin verði mjög skemmtileg
í vetur."
NBA leikir
leiðinlegir á
að horfa
„NBA hefúr verið sýnt á Stöð 2
og á sjónvarpstöðinni Sýn í
nokkur ár og hefur þá einungis
verið sýnt
beint frá úr-
slitakeppninni
og svo bestu
tilþrif vikunn-
ar, sem eins
væri hægt að
sýna úr DHL-
deildinni ef
sjónvarps-
stöðvamar
sinntu þvi aö «* W*1**"1 j?**:
taka upp alla
leiki og klippa.
Mér persónulega finnst NBA
leikir leiðinlegir á að horfa og
hef frekar viljað að sjónvarps-
stöðvamar sýndu háskólabolt-
ann. Flest lið í NBA spila mjög
einhæfan „centers" bolta. Und-
antekning á þessu var lið
Chicago. NBA getur verið
skemmtilegt þegar kemur að úr-
slitakeppninni en fram að þvi
era þetta frekar bragðdaufir leik-
ir þar sem eitt og eitt tilþrif gleð-
ur augað og nægir í „NBA Act-
ion“. Persónudýrkun í íþróttum
er oft mikil en hvergi eins og í
NBA deildinni. Nú er hætta á því
að þessi persónudýrkun eigi eftir
að dvína til muna því allir era
löngu búnir að fá sig fullsadda á
fégræðgi stóra nafiianna í deild-
inni. Ekki hjálpar heldur til að
kongurinn er búinn að leggja
skóna á hilluna í annað skiptiö
og allir muna eftir úrslitaviður-
eign New York og Houston er
Jordan var í kylfufríi, sem ekki
voru upp á marga fiska, Það má
því má búast við annarri
„centers" viðureign á milli
Shaquile og Rick Smith í ár“.
-GH