Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1999, Qupperneq 27
FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 1999
27
Fréttir
Það glæsilegasta
á landsbyggðinni
- segir Guðmundur J. Baldursson forstöðumaður
DV, Akureyri:
„Ég var búinn að heyra að húsið
væri stórt og mikið en mér datt
aldrei neitt þessu líkt í hug. Það
Frnnst ekkert hús á landsbyggðinni
sem hægt er að jafna við þetta hvað
glæsileik varðar,“ segir Guðmundur
J. Baldursson, forstöðumaður
íþróttamiðstöðvarinnar á Þórshöfn.
Guðmundur kom til Þórshafnar 4.
janúar og tók þá við starfinu, en
hann hefur áður gegnt sambærilegu
starfi bæði í íþróttamiðstöðinni við
Mývatn og á Flateyri.
Guðmundur segir að möguleikarn-
ir fyrir heimamenn séu ótalmargir
við nýtingu á húsinu og fólkið hafi
strax og opnað var tekið mjög vel við
sér. „Fyrstu gestirnir koma hingað í
húsið kl. 6.50 á morgnana og allan
daginn og langt fram á kvöld er ým-
islegt um að vera hér i öllu húsinu.
Það hefur ekki verið neitt sparað til
að gera þetta allt sem glæsilegast úr
garði, öll tæki eru t.d. af bestu og full-
komnustu gerð og er sama hvort er
horft á tækjasalinn eða á félagsmið-
stöðina i þvi sambandi. Það er altal-
að hér á Þórshöfn að húsið muni
gjörbreyta öllu mannlífi hér og mér
sýnist það þegar vera farið að ger-
ast,“ segir Guðmundur. -gk
Þetta er bylting
- segir skólastjóri Svalbarösskóla
DV, Akureyri:
„Við höfum lengst af
orðið að láta okkur
nægja að halda sund-
námskeið í eina viku á
vorin og að keyra til
Raufarhafhar inn 45 km
leið til að krakkamir
komist í sund. Nú er
vikulegt sund fyrir alla
krakka og þetta er bylt-
ing,“ segir Óskar Grét-
arsson, skólastjóri í
Svalbarðsskóla, en hann
kennir einnig nemend-
um skólans sund.
Óskar segir að skólinn
hafi ekki til þessa haft
neina íþróttaaðstöðu.
Við höfúm bara haft
pínulítinn sal sem var 0skar a bakkanum og bornin ur Svalbarðsskola i sundlauginm. DV-mynd gk
hugsaður fyrir sveitunga að hittast Þess í stað höfúm við reynt að legt hús hér, þar sem bæði er hægt
ef svo bæri undir og þar voru auð- stunda einhverja útiveru með að kenna íþróttir og sund, er stór-
vitað engin tæki til íþróttakennslu. krökkunum en aö hafa nú glæsi- kostlegt," segir Óskar. -gk
Þórarinn Þórisson ásamt hópi krakka sem voru að Ijúka knattspyrnuæfingu í nýja húsinu. DV-mynd gk
Viðbrigöin eru ólýsanleg
- segir Þórarinn Þórisson leiðbeinandi
DV, Akureyri:
„Nú er hægt að fara að kenna hér
íþróttir en til þessa hefur ekki verið
hægt að fylgja námskrá í íþróttum.
Við höfum t.d. bara haft sal í félags-
heimilinu sem er 125x8 metrar, eða
eins og badmintonvöllur, og sáralít-
ið verið hægt að gera þar,“ segir
Þórarinn Þórisson leiðbeinandi sem
sér um íþróttakennslu á Þórshöfn.
„Viðbrigðin eru ólýsanleg og
einnig breytingin á félagsaðstöðu
fyrir krakkana sem verður með til-
komu félagsmiðstöðvarinnar í hús-
inu sem er vægast sagt mikil.
Krakkamir eru líka með stjömur í
augunum, vilja helst vera hér allan
daginn og það liggur við að það sé
erfitt að koma þeim heim á kvöldin.
íþróttaaðstaðan breytist geysilega,
við höfum haft samskipti við Vopn-
firðinga og Raufarhafnarbúa og nú
getum við boðið þeim hingað til
keppni við bestu aðstæður. Þetta er
geysileg breyting fyrir alla hér,“
sagði Þórarinn. -gk
Guðmundur J. Baldursson við sundlaugina i fþróttamiðstöðinni DV-mynd gk t-
www visir is
Gamla sundlaugin á Þórshöfn, sem þjónað hefur í meira en hálfa öld, hefur til þessa verið eina íþróttamannvirkið á
staðnum. DV-mynd gk