Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1999, Blaðsíða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1999, Blaðsíða 37
X>V FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 1999 Hljómsveitarstjórinn En Shao. Orgelkonsert Jóns Leifs Sinfóníutónleikar verða í Hall- grímskirkju í kvöld kl. 20. Ástæð- an fyrir því að tónleikamir eru ekki í Háskólabíói eins og ávallt, er að fluttur verður Orgelkonsert eftir Jón Leifs og er notast við hið mikla orgel kirkjunnar. Önnur verk á tónleikunum eru Requiem og Sinfónía nr. 6 eftir Anton Bruckner. Einleikari á tónleikun- um er Björn Steinar Sólbergsson, en hann er organisti og kórstjóri við Akureyrarkirkju og hefur haldið einleikstónleika víða er- lendis og hér á landi. Auk þess kemur fram Mótettukór Hall- grímskirkju sem Hörður Áskels- son stjómar. Orgelkonsert Jóns Leifs er nú Sýningar fluttur í fyrsta sinn á íslandi, tæp- um 70 ámm eftir að hann var saminn. Konsertinn er fyrsti ein- leikskonsert íslenskrar tónlistar- sögu og að stofni til ein fyrsta tón- smíð Jóns Leifs. Konsertinn á ræt- ur sínar að rekja til tónsmíðaæf- inga Jóns við tónlistarháskólann í Leipzig 1917, þegar Jón var aðeins 18 ára gamall, en fullgerð radd- skrá verksins varð til 1930. Hljómsveitarstjórinn En Shao hefur áður stjómað Sinfóníunni. Síðast var hann hér í september við hljóðritanir á verkum Jóns Leifs. Að tónleikunum loknum mun hann vinna með hljómsveit- inni að frekari hljóðritunum á verkum Jóns. Ljóðaupplestur í Gerðarsafni í dag verður upplestur í Lista- safni Kópavogs, Gerðarsafni, á veg- um Ritlistarhóps Kópavogs. Að þessu sinni mun Baldur Óskarsson, rithöfundm- og fyrrverandi út- Baldur varpsmaður, lesa Óskarsson. úr ljóðverkum sín- um. Dagskráin stendur frá kl. 17-18. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Fjölgum konum á Alþingi Opinn fundur verður haldinn í Hafnarfirði í kvöld kl. 20.30 á Gafl- inum, 2. hæð. Umræðuefni: Mikil- vægi þess að auka hiut kvenna á Al- þingi og staða kvenna í kjördæm- inu. Til fundarins hafa verið boðað- ar framboðskonur stjómmálaafl- anna. Allir velkomnir. Samkomur Stúdentakvöld Röskvu Menningarkvöld háskólanema á vegum Röskvu undir yfirskriftinni Stúdentalíf verður haldið á Sóloni íslandus í kvöld kl. 22.30. Skáldin stíga á stokk og skilgreina „stúd- entaliT. Fram koma: Auður Jóns- dóttir, Guðmundur Andri Thorsson o.fl. Allir velkomnir. Félag kennara á eftirlaunum í dag hittist bókmenntahópurinn kl. 14 og kóræfing verður kl. 16 í Kennarahúsinu við Laufásveg. Gaukur á Stöng: Will Oldham ásamt Sigurós og KK Það verða örugglega marg- ir sem leggja leið sína á Gauk á Stöng í kvöld en þar kemur fram einn sérstæðasti tónlist- armaður Bandaríkjanna, Will Oldham, sem kemur með nýja hljómsveit með sér sem hann kallar Bonnie Prince Willy. Ásamt henni koma fram á tónleikunum Sigurós og EiK, tvær af skrautfjörðum íslenskrar popptónlistar, þannig að enginn verður svikinn af Gauksferð í kvöld. Will Oldham á ættir að Skemmtanir Hljómsveitin Sigurós hitar upp fyrir Will Goldham (á innfelldu myndinni) á Gauknum í kvöld. rekja tU hinnar gróskuríku tónlistar Kentuckys. Áður en hann sneri sér að tónlistinni starfaði hann sem leikari og lék meðal annars eitt aðal- hlutverkið í kvikmynd John Sayles, Matewan. í dag er WiU fyrst og fremst tónlistarmaður þótt hann fikti við margt annað, meðal annars ljósmyndun, og sem tónlistarmaður hefur hann haft áhrif. Textar hans þykja berorðir og sannir, tónlistin einfold og lítiUát en samt risavaxin. Fyrsta plata WiUs Goldmans kom út 1993 og síðan þá liggur að baki glæsilegur bunki af breiðskífum og smáskifum sem komið hafa út und- ir mismunandi nöfnum því WiU er mikið fyrir það að stuða fólk og koma því á óvart. Tónleikamir hefj- ast kl. 22. Veturliði Snær Myndarlegi drengurinn á myndinni, sem fengið hefur nafniö Vetm-liði Snær, fæddist á fæðingar- deUd Landspítalans 18. nóvember síðastliðinn. Bam dagsins Hann var við fæðingu 3105 grömm að þyngd og 51,2 sentímetrar. Foreldr- ar hans eru Sóley Vetur- liðadóttir og Gylfi Þ. Gíslason og býr fjölskyld- an á ísafirði. Veturliði Snær á eina hálfsystm-, Elsu Rut Gylfadóttur, sem er 10 ára. Veðríð í dag Léttir til smám saman Skammt norðaustur af Homi er 968 mb lægð sem hreyfist allhratt austur og önnur álíka lægð er fyrir austan landið. Langt suðvestur í hafi er vaxandi hæðarhryggur sem þokast norðaustur. Gengur i norðvestanstorm eöa rok með snjókomu og éljagangi á Norður- og Austurlandi en allhvasst eða hvasst og él sunnan- og vestan- lands og léttir smám saman tU. Dregur úr vindi undir kvöld, fyrst vestan tU, en áfram él á Norður- landi og talsvert frost um land aUt. Á höfuðborgarsvæðinu verður norðvestan stinningskaldi eða aU- hvasst með hvössum éljum, en læg- ir og léttir tU siðdegis. Frost 4 tU 7 stig. Sólarlag í Reykjavík: 17.24 Sólarupprás á morgun: 09.57 Síðdegisflóð í Reykjavík: 21.10 Árdegisflóð á morgun: 09.25 Veðrið kl. 6 í morgun: Akureyri léttskýjaö -4 Bergsstaóir skýjaö 4 Bolungarvík snjðél -5 Egilsstaöir -4 Kirkjubœjarkl. léttskýjaö -5 Keflavíkurflv. snjóél -4 Raufarhöfn snjóél -4 Reykjavík snjóél -4 Stórhöföi snjóél -3 Bergen rigning og súld 7 Helsinki þokumóöa -3 Kaupmhöfn þokumóöa 6 Ósló þoka 1 Stokkhólmur 2 Þórshöfn skýjaö 2 Þrándheimur rigning 7 Algarve heiöskírt 6 Amsterdam alskýjaö 9 Barcelona léttskýjaö 5 Berlín súld 7 Chicago alskýjaö 5 Dublin súld á síö. kls. 10 Halifax alskýjaö 4 Frankfurt skýjaö 5 Glasgow rigning og súld 10 Hamborg rigning og súld 9 Jan Mayen alskýjaö 1 London alskýjaö 10 Lúxemborg súld á síö. kls. 5 Mallorca þokumóöa 0 Montreal léttskýjaö 1 Narssarssuaq snjókoma -11 New York skýjaö 5 Orlando hálfskýjaö 19 París súld 7 Róm heiðskírt 3 Vín rigning 3 Washington alskýjaö 6 Winnipeg heiðskírt -21 Víða hálka á vegum Skafrenningur hefur verið á HeUisheiði, Þrengsl- um og á fjallvegum á SnæfeUsnesi. Snjókoma og skafrenningur er á Holtavörðuheiði. Að öðm leyti eru aðalþjóðvegir greiðfærir en hálka er aUvíða. Á Færð á vegum heiðum á Vestíjörðum, Norður- og Austurlandi er snjór á vegum og sumar heiðar iUfærar og einstaka ófærar eða bara fyrir vel búna bUa að aka um þessi svæði. Ástand vega 4^ Skafrenningur E3 Steinkast E1 HSIka CD Ófært H Vegavinna-aögát @ Öxulþungatakmarkanir m Þungfært © Fært fjallabílum Gene Hack- man leikur gamal- reynd- an njósn- ara. Óvinur ríkisins Sam-bíóin sýna spennumynd- ina Enemy of the State. Um er að ræða nokkuö flókna og hraða mynd þar sem segir frá beUibrögð- inn ríkisstjómar tU að klína á sak- lausan mann morði á þingmanni. Sakleysinginn, sem er lögfræðing- urinn Robert Clayton Dean (WUl Smith), var á hraðri leið upp met- orðastigann þegar hann var á röngum stað á röngum tíma og verður því tUvalinn blórabögguU fyrir leyniþjónustustuforingjann Thomas Brian Reynolds (Jon Voight) sem þarf að fela eigin skít- verk. Eina von Claytons um að hreinsa nafii sitt liggur í hjálp frá dularfuUum y///////z Kvikmyndir manni sem gengur undir nafninu BrUl (Gene Hackman) og þekkir aUa leynilegu þræðina í Wash-ington. Auk þeirra WUl Smith, Gene Hackman og Jon Voight, sem eru í stærstu hlutverkunum, leikur flöldi þekktra leikara í myndinni. Má þar nefna Regina King, Loren Dean, Gabriel Byme, Tom Size- more, Lisa Bonet, Ian Hart og Jake Busey. Nýjar myndir í kvikmyndahúsum: Bíóhöllin: The Waterboy Bíóborgin: Ronin Háskólabíó: Elizabeth Háskólabió: Meet Joe Black Kringlubíó: Wishmaster Laugarásbíó: Rush Hour Regnboginn: The Siege Stjörnubió: Stjúpmamma Krossgátan 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18: 19 20 21 Lárétt: 1 byrja, 6 hvað, 8 hræðsla, 9 fantur, 10 fugl, 11 töm, 13 stika, 15 ragur, 18 slotar, 20 pípa, 21 gabba. Lóðrétt: 1 rólegt, 2 eUegar, 3 seUa, 4 mm, 5 framleiðsluvörur, 6 ketU- krókur, 7 bylgja, 12 drykkurinn, 14 óánægja, 15 svip, 16 kvenmanns- nafn, 17 sefa, 19 nafnlaus. Lausn á síðustu krossgátu: Lárétt: 1 fés, 4 horf, 8 eUefu, 9 stál, 11 ský, 12 tolla, 14 ká, 16 ama, 17 unað, 19 ám, 20 króna, 22 sakni, 23 an. Lóðrétt: 1 festa, 2 él, 3 slá, 4 heUur, 5 ofsa, 6 rakka, 7 flý, 10 tomma, 13 lakk, 15 aðan, 18 nói, 19 ás, 21 na. Gengið Almennt gengi LÍ 04. 02. 1999 kl. 9.15 Eining Kaup Sala Tollqenqi Dollar 70,270 70,630 69,930 Pund 115,180 115,770 115,370 Kan. dollar 46,530 46,820 46,010 Dönsk kr. 10,6510 10,7090 10,7660 Norsk kr 9,1620 9,2120 9,3690 Sænsk kr. 8,8940 8,9430 9,0120 Fi. mark 13,3210 13,4010 13,4680 Fra. franki 12,0750 12,1470 12,2080 Belg. franki 1,9634 1,9752 1,9850 Sviss. franki 49,4200 49,7000 49,6400 Holl. gyllini 35,9400 36,1600 36,3400 Þýskt mark 40,5000 40,7400 40,9500 lt. lira 0,040910 0,04115 0,041360 Aust. sch. 5,7560 5,7910 5,8190 Port. escudo 0,3951 0,3974 0,3994 Spá. peseti 0,4760 0,4789 0,4813 Jap. yen 0,617400 0,62110 0,605200 írskt pund 100,570 101,170 101,670 SDR 97,640000 98,23000 97,480000 ECU 79,2100 79,6800 80,0800 Simsvari vegna gengisskráningar: 562 3270

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.