Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1999, Qupperneq 4
18
FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1999
íþróttir
Kfl ENGLAND
Ian Wright, framherji West Ham,
leikur ekki fleiri leiki með landslið-
inu. Eftir brottrekstur Glenn Hoddle
úr starfl landsliðsþjálfara segir
Wright að sinn timi með landsliðinu
sé liðinn. „Ég ætla nú að einbeita
mér að West Ham og hjálpa liðinu til
að komast í Evrópukeppnina," segir
Wright sem lék 33 landsleiki fyrir
England. Hann er einn fárra leik-
manna sem hafa skorað 4 mörk í
landsleik en það gerði hann i leik
gegn San Marínó.
Kevin Keegan, stjóri Fulham, á sér
marga stuðningsmenn sem vilja að
hann taki við enska landsliðinu.
Sjálfur segist Keegan ekki hafa áhuga
enda sé hann í mjög skemmtilegu
verkefni hjá Fulham. Keegan viil fá
Hollendinginn Johan Cruyff sem
landsliðsþjálfara. Hann segir að Cru-
yff hafi mikið vit á knattspyrnunni
og sé stórt nafn sem menn beri mikla
virðingu fyrir.
Garry Kelly, bakvörður Leeds
United og landsliðsmaður íra, leikur
ekki meira með á þessari leiktíð.
Kelly gekkst undir aðgerö á báðum
sköflungum síðastliðið sumar og
þessi meiðsli hafa reynst mjög þrálát.
Þau hafa tekið sig upp aftur og aftur
og ljóst er að hann verður að hvíla
lengur. Varnarmennirnir hjá Leeds
hafa verið mjög óheppnir með
meiðsli á leiktíðinni en bæði Martin
Hiden og Robert Molenaar eru úr
leik þetta tímabil vegna meiðsla.
David Weir, varnarmaður skoska A-
deildar liðsins Hearts, er orðaður við
Liverpool. Forráðamenn Liverpooi
hafa óskað eftir viðræðum við Weir
sem er metinn á 60 milljónir króna.
Andy Goram, fyrrum markvörður
skoska landsliðsins og nú markvörð-
ur Motherwell, hefur gefið til kynna
að hann vilji spila með landsliðinu á
nýjan leik en eins og frægt er yfirgaf
hann landsliöið rétt fyrir HM i
Frakklandi i sumar. Craig Brown,
landsliðsþjálfari Skota, hefur rætt við
Goram og segir að verði Goram í
góðu formi sé ekkert til fyrirstöðu að
velja hann í leikinn gegn Bosniu-
mönnum í mars.
Ruud Gullit, knattspyrnustjóri New-
castle, keypti i gær Silvio Maric, 24
ára króatískan landsliðsmann frá
Croatia Zagreb. Gullit greiðir 450
milljónir fyrir leikmanninn sem leik-
ið hefur lykilhlutverk á miðjunni
með liði Croatia Zagreb á leiktíðinni.
Dennis Wise, fyrirliði Chelsea, á yfir
höfði sér fjögurra leikja bann en
kappinn fékk að líta sitt Qórða rauða
spjald á leiktíðinni gegn Oxford í
fyrrakvöld. Þegar Wise hefur tekið út
sína refsingu verða leikirnir orönir
14 talsins sem hann hefur misst úr
vegna banna á tímabilinu.
-GH
Bland í poka
Dzemaludin Mosovic sagði i gær
starfi sinu lausu sem þjálfari lands-
liðs Bosníu í knattspymu. Ástæðan
er 2-1 tap gegn Möltu í vináttulands-
leik 1 síðustu viku en eftir þann leik
var þess krafist að hann segði af sér.
Líklegur eftirmaður hans er Ivica
Osim, fyrrum landsliðsþjálfari Júgó-
slaviu, sem þjálfar nú lið Sturm Graz
í Austurríki.
Ólympiunefnd Mali hefur gefið út
yfirlýsingu þess efnis að hún standi
heils hugar að baki Lamine Keita,
formanni nefndarinnar, sem er einn
af sexmenningunum sem Samaranch
„tók af lífi“ á blaðamannafundinum
fræga á dögunum. Keita hefur viður-
kennt að sonur hans hafi fengið
greiddan skólastyrk frá undirbún-
ingsnefnd vetrarleikanna í Salt Lake
City, og að hann sjái bara ekkert at-
hugavert við það.
Yfirvöld i Japan hafa ákveöið að
draga timabundið úr stuðningi sínum
viö þá aðila sem kunna að sækja um
að fá að halda Ólympíuleika í fram-
tiðinni. Ástæðan er auðvitað iðandi
spilling í tengslum við i Nagano í
fyrra. Er yfirvöldum í Japan farið að
ofbjóða framganga fulltrúa Nagano.
Fyrsta japanska borgin til að líða
fyrir þessar aðgerðir stjómvalda í
Japan verður Osaka, önnur stærsta
borg Japans, en borgin sækist eftir
smnarleikunum árið 2008.
í DV i gœr misritaðist upphæð gisti-
kostnaðar vegna vem Samaranch,
forseta IOC, í 30 daga í Nagano í fyrra
meðan leikarnir fóru þar fram.
Heildarkostnaður var 6,3 milljónir
króna. „T.
DV
Lyfjaráðstefna IOC í Lausanne skilaði nánast engum árangri:
Samaranch hafnað
- engin samstaða um hertar aðgerðir gegn lyíjaáti íþróttamanna
Lyijaráðstefna Alþjóða Ólympíu-
nefndarinnar, IOC, í Lausanne í
Sviss skilaði litlum sem engum ár-
angri en henni lauk í gær. Niður-
staðan er mikið áfall fyrir IOC og
ekki síst Juan Antonio Samaranch,
forseta nefndarinnar, sem smátt og
smátt virðist vera að glata trausti
neftidarmanna og þö fyrr hefði ver-
ið að margra mati.
Fyrir ráðstefnuna var það yfir-
lýst markmið IOC og Samaranch
að reyna að fá samstöðu um að
dæma íþróttamenn skilyrðislaust í
tveggja ára bann stæðust þeir ekki
lyfjapróf. Ef íþróttamenn væru
öðru smni staðnir að lyfjaáti yrði
dómurinn lífstíðarbann. Samstaða
um þetta náðist ekki. Alþjóða
knattspymusambandið og Hjól-
reiðasambandið treystu sér ekki til
að samþykkja þessar
reglur. Eftir ráð-
stefnuna stendur það
eftir að lyfjamálin og
túlkanir á reglum
þeim tengdum eru í
sama ólestri og áður.
Emi ljósi punktur-
mn við ráðstefnuna,
ef hægt er að tala um
ljósa punkta tengda
IOC þessa dagana,
var að ákveðið var
að koma á fót sjálf-
stæðri lyfjaeftirlits-
stofnun. Framtíð
hennar er mjög óljós
en fullyrt er þó að
Samaranch hafi ekk-
ert traust lengur til
að stýra slíkri stofn-
Juan Antonio Samaranch, for-
seti Alþjóða Ólympíunefndar-
innar, reið ekki feitum hesti frá
lyfjaráðstefnunni í Lausanne.
Reuter
un. Ráðherrar
iþróttamála í Bret-
landi og Hollandi
hafa sagt að Sam-
aranch eða lið
hans í IOC eigi
alls ekki að koma
nálægt slíkri
stofnun.
Fjarar undan
Samaranch
Vandræðagang-
urinn á lyfjaráð-
stefnunni í Laus-
anne er talinn
gríðarlegt áfall
fyrir Samaranch.
Hefði útkoman
verið sterk og yfir-
lýsingin í lokin
endurspeglað undantekningar-
lausa samstöðu hefði það hugsan-
lega getað lagað stöðu Spánverjans
örlitið. Samaranch hefur lýst því
yfir að hann vilji að fámenn nefnd
meðlima IOC sjái í framtiðimii um
að velja keppnisstaði fyrir Ólymp-
íuleika. Þessi hugmynd á ekki
miklu fylgi að fagna enda myndi
slík nefnd í engu bæta ástandið.
Margir tugir meðlima IOC lýstu
því yfir um helgma að þeir væru
mjög á móti þessari hugmynd Sam-
aranch og slík breytmg kæmi ekki
til greina. Það þykja merki um
versnandi stöðu Samaranch að al-
mennir meðlimir IOC skuli ekki
lengur sitja og standa eins og for-
setinn segir heldur loksins þora að
hafa skoðun á ágreiningsmáli.
-SK
Kristján Arason lék í vörninni með lærisveinum sínum í FH gegn IBV í gærkvöld og hafði góð áhrif á liðið. Hér leggur
hann sínum mönnum línurnar en Hálfdán Þórðarson virðist vera að fylgjast með einhverju öðru. FH vann öruggan
sigur og á enn ágæta möguleika á að komast í úrslitakeppnina. DV-mynd ÞÖK
Eyjagrýlan enn
við góða heilsu
BKand í poka
Sjónvarpsstöðin Sýn mun sýna þrjá
leiki íslenska karlalandsliðsins í
knattspyrnu i beinni útsendingu í
mars. íýrsti leikurinn er vináttuleik-
ur íslendinga og Lúxemborgara sem
fram fer í Lúxemborg 10. mars. Þá
verða sýndir báðir leikir landsliðsins
í undankeppni EM. Sá fyrri er gegn
Andorra laugardaginn 27. mars og sá
síðari gegn Úkraínu miðvikudaginn
31. mars. Báðir þessir leikir eru ytra.
íslandsmótiö í badminton fer fram
um helgina. Mótið hefst i fyrramálið.
Klukkan 10 á sunnudagsmorgun fara
fram leikir í undanúrslitum í einliða-
leik karla og kvenna og úrslitaleikim-
ir eru á dagskrá eftir hádegi á sunnu-
dag.
Guðmundur Guðmundsson, þjálfari
1. deildar liðs Fram í handknattleik,
hefur fengið tilboð um að taka við
þýska B-deildar liðinu Dormagen fyr-
ir næsta tímabil.
Bjarni Þorsteinsson úr KR lék allan
leikinn með varaliði enska knatt-
spyrnufélagsins Watford i fyrrakvöld
þegar það sigraði Southampton, 2-0.
Þetta var annar leikur Bjarna meö
varaliðinu á þremur dögum en Sig-
urður Örn Jónsson var ekki með að
þessu sinni. í liði Watford voru 8 leik-
menn sem hafa spilað með félaginu i
B-deildinni í vetur, þar á meðal
Jóhann B. Guðmundsson.
Barcelona vann sólarstrandarliðið
Benidorm, 3-0, í spænsku bikar-
keppninni í knattspymu í gærkvöld,
og þar með samanlagt 4-0. Frank de
Boer, Sergi Barjuan og Giovanni
gerðu mörkin.
Argentína vann Venesúela, 2-0, á úti-
velli í vináttulandsleik í knattspyrnu
í fyrrinótt. Walter Samuel og Marcelo
Gallardo skoruöu mörkin.
Ajax vann ömggan útisigur á Roda,
3-0, i hollensku bikarkeppninni i
knattspymu í gærkvöld, og Feyen-
oordvannUtrecht,2-l.GH/SK/vs
- enn tapar ÍBV á útivelli, nú fyrir FH, 25-19
Útivallargrýlan heldur áfram að
hrella Eyjaliðið í handknattleik og í
gærkvöld urðu þeir fórnarlömb FH-
inga í Kaplakrika. Lokatölur urðu,
25-19, þar sem FH-ingar höfðu tögl
og hagldir. Heimamenn halda þar
með enn í vonina um að tryggja sér
sæti í úrslitakeppninni en Eyja-
menn, sem enn hafa ekki unnið úti-
leik í vetur, misstu af möguleika á
að komast upp í þriðja sæti deildar-
innar.
Lykillinn að sigri FH-inga var
frábær markvarsla Magnúsar Árna-
sonar en hann skellti marki sínu í
lás oft i leiknum. Þá var vöm Hafn-
firðinganna mjög sterk þar sem
gamla kempan Kristján Arason var
tveggja manna maki. Innkoma hans
í lið FH hefur breytt mjög miklu og
leikmenn FH hafa öðlast sjálfs-
traustið að nýju. FH-liðið var ann-
ars mjög jafnt, liðsheildin vann vel
saman og það er ávallt vænlegt til
árangurs.
1. DEIID KARIA
Afturelding 18 13 2 3 481-434 28
Stjaman 18 11 1 6 445442 23
Fram 18 11 0 7 472—441 22
KA 18 10 0 8 465450 20
ÍBV 18 9 2 7 424-411 20
Haukar 18 8 2 8 486472 18
Valur 18 8 1 9 406-395 17
ÍR 18 8 1 9 447-466 17
FH 18 7 2 9 437-438 16
HK 18 5 5 8 431-452 15
Grótta/KR 18 3 4 11 424-464 10
Selfoss 18 4 2 12 426-480 10
„Það er góð einbeiting í liðinu.
Vörnin var góð og Maggi var fráhær
i markinu. Við voram búnir að fara
vel yfir leik ÍBV og náðum að loka á
þeirra sterkasta vopn sem Guðfinn-
ur er. Það kemur ekkert annað til
greina en að fara í úrslitin," sagði
Láras Long, FH-ingur, eftir leikinn.
Það er alveg ljóst að Eyjamenn
vinna ekki leiki með frammistöðu
eins og í gær. Þeir voru baráttulaus-
ir og höfðu enga trú á þvi sem þeir
voru að gera. FH-ingar náðu að loka
Guðfinn vel af og þar með var mátt-
urinn dreginn úr Eyjaliðinu.
„Þetta var ákaflega lélegt og það
er engu líkara en að menn séu sátt-
ir við stöðu sína í deildinni. Við
misnotuðum mörg dauðafæri og það
vantar allt hungur í að vinna þessa
leiki á útivelli,“ sagði Guðfinnur
Kristmannsson.
-GH
FH (11) 25
ÍBV (9)19
0-1, 1-3, 3-4, 7-4, 9-6, (11-9), 11-10,
15-14, 19-15, 22-17, 25-19.
Mörk FH: Valur Amarson 6/1,
Guðjón Ámason 4, Guömundur Ped-
ersen 4/1, Hálfdán Þórðarson 2, Knút-
ur Sigurðsson 2, Láras Long 2, Gunn-
ar N. Gunnarsson 1, Hjörtur Hinriks-
son 1, Sigurgeir Ægisson 1, Gunnar
Beinteinsson 1, Sigurstein Amdal 1.
Varin skot: Magnús Árnason 27.
Mörk ÍBV: Valgarð Thoroddsen
9/7, Daði Pálsson 3, Guðfinnur Krist-
mansson 3, Sigurður Bragason 2,
Svavar Vignisson 1, Haraldur Hann-
esson 1.
Varin skot: Sigmar Þ. Óskarsson
14.
Brottvisanir: FH 14 mín, ÍBV 2
mín.
Dómarar: Guðjón L. Sigurðsson
og Ólafur Haraldsson, mistækir.
Áhorfendur: Um 500.
Maður leiksins: Magnús Áma-
son, FH.