Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1999, Side 1

Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1999, Side 1
MÁNUDAGUR 22. FEBRÚAR 1999 DV, Belgíu: Arnar Þ6r Viðarsson var í sviðsljósinu með liði sínu Lokeren, sem vann Westerlo, 3-0, í átta liða úrslitum belgísku bikarkeppninnar í knatt- spymu. Undir lok fyrri hálfleiks hrækti Toni Brogno, leikmaður Westerlo, í andlitið á Amari. Að- stoðardómari sá atvikið og Brogno fékk að líta rauða spjaldið. „Hlutirnir höfðu ekki gengið upp hjá hon- um og ég sendi honum koss út í loftið. Hann missti stjórn á skapi sínu og hrækti hreinlega upp í mig,“ sagði Amar um at- vikið. Guðjón Þórðarson landsliðsþjálfari var á meðal áhorfenda í Lokeren og sá Arnar spila ágætlega á miðjunni. Hann var sívinnandi og bjargaði einu sinni á marklínu. „Það var mjög athyglisvert að fylgjast með Amari, hann er að gera mjög góða hluti með Lokeren," sagði Guðjón við DV. -KB mmtm Miglena Apostolova, búlgarski leikmaðurinn hjá ÍS, lyftir bikarnum eftir sigur Stúdína á Víkingi og fyrirlið- inn, Ingibjörg Gunnarsdóttir, fylgist ánægð með. DV-mynd ÞÖK Ólafur skoraði 12 Bls. 24 „Hrækti hreinlega upp í mig“ flugi Vala Flosadóttir náði sinum langbesta árangri á tíma- bilinu í gær þegar hún stökk 4,40 metra í stangarstökki á alþjóðlegu innanhússmóti í Lievin í Frakklandi. Vala, sem hafði best náð 4,26 í vetur, varð önnur á mót- inu, en Zsuzsa Szabo frá Ungverjalandi sigraði, stökk 4,40 metra. Þriðja varð síðan Elmarie Gerryts frá Suður-Afr- íku sem stökk 4,30 metra. Mótið var það þriðja af fjórum í Ricoh-mótaröðinni en Vala varð í 5. sæti á öðru mótinu, sem fram fór í Gent í Belgíu á föstudag, með 4,10 metra. Szabo sigraði einnig þá, stökk 4,30 metra, og Anzhela Balakhonova varð önnur með 4,20. Hún slasaðist hins vegar þegar hún lenti út af dýnunni og var ekki með í Frakklandi i gær. Lokamótið í röðinni verður i Stokkhólmi á fimmtudag. Szabo þarf aðeins 5. sætið þar til að tryggja sér sigur í heildarkeppninni í stangar- stökkinu. Balakhonova er sú eina sem get- ur náð henni, er með 9,5 stig en Szabo 18,5. Þær Vala og Gerryts eru síðan í 3.-^4. sæti með 8 stig og síðan kemur Nicole Humbert frá Þýskalandi með 7 stig. Heildarsigurvegarinn fær 1,4 milljónir króna í sigurlaun. Annað sætið 'gefur 700 þúsund og þriðja sætið 350 þúsund krónur. -VS Helga meö til- boð frá Sola Helga Torfadóttir, landsliðsmarkvörður í handknattleik, sem leikur með norska B-deildarliðinu Bryne, hefur fengið tilhoð frá A-deildar- liðinu Sola um að leika með því á kom andi leiktíð. Helga fékk fréttir af tilboðinu frá blaða- manni DV í Króatíu á laugardag. Hún brást þegar við og hringdi í þjálfara sinn hjá Bryne, Einar Guðmundsson, sem stað festi tíðindin. „Ég ræddi um þetta mál við Einar og get svo sem ekkert um það sagt fyrr en ég fæ tilboðið í hendur. Ég hitti forráðamenn Sola um næstu helgi og þá mun þetta væntanlega skýr- ast,“ sagði Helga Torfadóttir í við- tali við DV. Aðalmarkvördur Sola er fjórði markvörður norska landsliðsins og því má gera ráð fyrir því að Sola sé að leita sér að varamarkverði með því að leita til Helgu Torfadóttur. Sola er í sjöunda sæti af tólf lið- um í norsku A-deildinni. Halla María Helgadóttir lék með liðinu fyrir tveimur árum, en þá féll það úr deildinni og kom síð- an aftur upp fyrir þetta timabil. -ih/VS Lottó: 6 18 20 23 33 B: 24 Enski boltinn: 221 xlx 212 12x1 ir- Brons Örn Amarson, sundmaðurinn knái úr Hafnarfiði og iþróttamaður ársins, heldur áfram að gera góða hluti í sundlauginni. Öm keppti á heimsbikarmóti i París um helgina og vann til bronsveröalauna í 100 metra baksundi. Örn kom í mark á 54,32 sekúndum, en Frakkinn Franck Esposito sigraði á 53,63 sek- úndum. Öm hugðist svo keppa í 200 metra bak- sundinu í gær, en vegna eymsla í öxl hætti hann við frekari þátttöku. Lára Hrund Bjargardóttir komst i úrslit í 100 metra fjórsundi. Þar hafnaði hún í 7. sæti á 1:05,86 mínútu. Elín Sigurðardóttir úr SH náði sínum næst besta tíma í 50 metra skriðsundi, 26,30, en það dugði ekki í úrslitin því hún hafnaði í 9. sæti í undanrásunum. Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir lenti einnig í 9. sæti í undanrásunum í 50 metra baksundi, á tímanum 30,14 sekúndum. Kolbrún setti svo nýtt stúlknamet í gær í 100 metra fjórsundi. Tími hennar var 1:05,61 mínúta sem dugði henni í 10. sætið í undanrásunum. -GH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.