Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1999, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1999, Blaðsíða 15
14 -I- íþróttir ÚRVALSDEILDIN Keflavík 20 18 2 1899-1625 36 Njarövík 20 16 4 1837-1514 32 KR 20 14 6 1707-1607 28 Grindavík 20 14 6 1806-1650 28 KFÍ 19 12 7 1597-1575 24 Tindastóll 20 10 10 1690-1670 20 SnæfeU 20 9 11 1551-1641 18 Haukar 20 8 12 1568-1685 16 ÍA 20 8 12 1563-1646 16 Þór A. 20 4 16 1504-1737 8 Skallagr. 20 4 16 1569-1737 8 Valur 19 2 17 1466-1670 4 1. DEILD KARLA ÍS-fR 73-72 Þór Þ. 17 16 1 1532-1273 32 ÍR 18 13 5 1555-1334 26 Stjarnan 17 12 5 1455-1285 24 ÍS 18 12 6 1390-1336 24 Breiðablik 17 11 6 1447-1270 22 Hamar 17 11 6 1423-1268 22 Stafholtst. 17 5 12 1218-1432 10 Selfoss 17 3 14 1311-1504 6 Fylkir 17 2 15 1272-1487 4 Höttur 17 1 16 1076-1490 2 í lokaumferðinni um helgina mæt- ast Stafholtstungur-Breiðablik, Ham- ar-Þór Þ., Höttur-Selfoss og Fylkir- Stjaman. ÍS vann góðan sigur á fR í gærkvöld en á samt mjög litla möguleika á að komast í úrslitakeppnina. TU þess þurfa bæði Breiðablik og Hamar að tapa sínum leikjum. Breióablik á mesta möguleika á að ná fjórða sætinu og dugar að sigra Stafholtstungur. Tapi Blikar, fer Hamar í úrslit með þvi að vinna Þór, annars verður það ÍS. ÍR mcetir Stjörnunni í undanúrslit- um og Þór Þ. mætir liði númer fjögur. NBA-DEILDIN Úrslitin í nótt: Cleveland-Denver...........84-99 Anderson 16, Kemp 15, Henderson 14, Person 9, Ferry 8 - HUl 28, Dumars 21, Hunter 18, Stackhouse 11, Dele 7. Miami-Denver ..............95-87 Mouming 27, Hardaway 18, Porter 16, Majerle 9, Weatherspoon 8 - WiUiams 21, McDyess 20, Fortson 18, Van Exel 15, Alexander 11. New Jersey-Charlotte......82-96 Van Hom 28, Kittles 17, Overton 13, BurreU 10, Evans 3, Jones 3. Atlanta-Toronto............77-86 Henderson 18, EUis 15, Smith 13, Blaylock 11, - Brown 16, Carter 14, Oakley 14, Christie 11. Houston-LA Clippers.......96-77 Barkley 21, Dickerson 20, Olajuwon 17, Mobley 13, Harrington 10 - Smith 16, Taylor 14, Nesby 11, Murray 11. DaUas-SA Spurs.............79-95 Trent 14, Nowitzki 11, Finley 11, Walker 10, Pack 9 - Duncan 26, Robinson 20, Jackson 16. Seattle-Phoenix ..........93-101 Schrempf 22, Baker 15, EUis 15, Hawkins 14 - Chapman 23, Gugliotta 18, McCloud 15, Manning 13, Robinson 13. Vancouver-Minnesota . . . 93-102 Rahim 22, Massenburg 15 - Garnett 23, Smith 19, Marbury 16, Peeler 14. Staðan, sigrar/töp: AusturdeUd: Orlando 12/4, Indiana 11/4, Miami 10/4, Philadelphia 10/5, Detroit 9/6, New York 9/6, Milwaukee 8/5, Atlanta 8/7, Boston 6/7, Cleveland 6/7, Washington 5/9, Toronto 4/9, New Jersey 4/11, Chicago 4/12, Charlotte 3/10. Vesturdeild: Utah 12/3, Portland 11/3, Seattle 9/4, Minnesota 9/5, LA Lakers 11/6, Houston 8/7, Phoenix 8/7, SA Spurs 7/8, Golden State 6/7, Sacramento 7/9, DaUas 6/10, Denver 5/10, Vancouver 4/11, LA Clippers 0/13. -SK FÖSTUDAGUR 5. MARS 1999 FÖSTUDAGUR 5. MARS I>V DV Tindastóll (54) 98 Kefíavík (59) 109 6-6, 12-17, 15-24, 26-36, 34-38, 40-46, (54-59), 56-66, 72-76, 76-81, 76-86, 82-96, 87-98, 98-109. Stig Tindastóls: John Woods 46, Amar Kárason 19, Ómar Sigmarsson 11, Valur Ingimundarson 8, Svavar Birgisson 6, Lárus D. Pálsson 3, Sverr- ir Sverrisson 3, ísak Einarsson 2. Stig Keflavíkur: Damon Johnson 39, Falur Harðarson 34, Guðjón Skúlason 13, Birgir Öm Birgisson 8, Hjörtur Harðarson 6, Fannar Ólafs- son 4, Gunnar Einarsson 4, Sæmund- ur Oddsson 1. 3ja stiga körfur: TindastóU 15/6, KeUavík 20/9. Fráköst: TindastóU 26, Keflavik 27. Vitahittni: TindastóU 31/20, KeUa- vík 27/20. Dómarar: Sæmundur Herbertsson og Rögnvaldur Hreiðarsson, þokka- legir. Áhorfendur: Um 300. Maður leiksins: Falur Harðar- son, KeUavik. Njarövík (59) 111 ÍA (47) 87 8-4, 12-9, 23-10, 36-15, 42-17, 42-29, 50-36, (59-47), 66-59, 70-61, 78-63, 87-65, 98-72, 106-77, 106-87, 111-87. Stig Njarðvíkur: Brenton Birm- ingham 32, Teitur Örlygsson 31, Frið- rik Ragnarsson 19, PáU Kristinsson 17, Guðjón Gylfason 5, Hermann Hauksson 4, Örvar Kristjánsson 2, Friðrik Stefánsson 1. Stig ÍA: Kurk Lee 37, Dagur Þóris- son 23, Alexander Ermolinski 11, Brynjar Sigurðsson 6, Trausti Jóns- son 5, Guöjón Jónsson 2, Jón Þór Þórðarson 2. Fráköst: Njarðvík 30, ÍA 34. 3ja stiga körfur: Njarðvík 10/23, ÍA 11/27. Vítanýting: Njarðvík 18/27, ÍA 14/18. Dómarar: Einar Skarphéðinsson og Einar Einarsson, slappir. Áhorfendur: Um 150. Maður leiksins: Brenton Birm- ingham, Njarðvík. Snæfell (37) 64 Gríndavík (38) 73 9-5, 9-9, 11-20, 16-25, 24-30, 35-30, (37-38), 37-44, 48-48, 54-59, 60-66, 64-73. Stig Snæfells: Athanasias Spyropoulos 24, Rob WUson 24, Bárður Eyþórsson 12, Baldur Þor- leifsson 2, Ólafur Guömundsson 2. Stig Grindavlkur: Herbert Amar- son 29, Warren Peebles 19, PáU Axel VUbergsson 11, Guðlaugur Eyjólfs- son 7, Pétur Guðmundsson 7, Helgi Már Helgason 1. Fráköst: SnæfeU 41, Grindavík 25. Vítanýting: SnæfeU 6/6, Grindavík 16/9. Þriggja stiga körfur: SnæfeU 17/2, Grindavík 30/11. Dómarar: Leifur Garðarsson og Kristinn Albertsson, mjög góðir. Áhorfendur: 50. Maður leiksins: Herbert Amar- son, Grindavlk. KR (38) 83 Skallagr. (42)74 0-4, 4-6, 11-13, 19-16, 27-20, 32-29, 32-35, (38-42), 53-46, 63-54, 73-66, 79-74, 83-74. Stig KR: Keith WasseU 42, Eggert Garðarsson 12, Eiríkur Önundarson 12, Lijah Perkins 6, Marel Guðlaugs- son 3, Ingvaldur Magni Hafsteinsson 2, Jesper Sörensen 2, Steinar Kaldal 2, Atli Freyr Einarsson 2. Stig Skallagríms: Erik Franson 26, Kristinn Friðriksson 20, Sigmar EgUsson 13, Tómas Holton 8, Finnur Jónsson 7. Fráköst: KR 50, SkaUagrímur 25. Vítahittni: KR 18/14, SkaUagrím- ur 26-17. 3ja stiga körfur: KR 4, SkaUa- grímur 6. Dómarar: Bergur Steingrímsson og Björgvin Rúnarsson, ágætir. Áhorfendur: Um 100. Maður leiksins: Keith Wassell, KR. ÞórA. (31)61 Haukar (37) 68 0-9, 11-15, 20-20, 26-32, 28-34, (31-37), 38-39, 39-47, 47-53, 55-55, 59-58, 59-60, 61-61, 61-68. Stig Þórs: Brian Reese 20, Magnús Helgason 11, Óðinn Ásgeirsson 9, Ein- ar Aðalsteinsson 9, Hafsteinn Lúð- víksson 4, Davíð Guðlaugsson 4, Sig- urður Sigurðsson 2, Konráö Óaksrs- son 2. Stig Hauka: Bragi Magnússon 18, Roy Hairston 17, Ingvar Guðjónsson 14, Daníel Ámason 9, Róbert Leifsson 8, Óskar F. Kristjánsson 2. Fráköst: Þór 31, Haukar 28. 3ja stiga körfur: Þór 25/6, Haukar 11/2. Dómarar: Jón Bender og Erlingur Erlingsson, sluppu vel frá leiknum. Áhorfendur: Um 100. Maður leiksins: Bragi Magnús- son, Haukum. Fimm leikir í úrvalsdeildinni í körfuknattleik í gærkvöld: Spenna fram undan - Haukar unnu mikilvægan sigur á Akureyri og baráttan eykst um sæti í úrslitakeppninni Keflvíkingar eru einum sigri frá deildarmeistaratitlinum í úrvals- deild karla eftir góðan sigur á Sauð- árkróki í gærkvöld. Þeir ættu að ná honum gegn Þór á heimavelli á sunnudaginn. Haukar styrktu stöðu sína í baráttunni við SnæfeO og ÍA um tvö sæti í úrslitakeppninni en þar stendur nú ÍA verst að vígi. Keflvíkingar náðu snemma góðri forystu gegn Tindastóli og heimamenn gerðu sig seka um mörg mistök í sókninni og gest- imir refsuðu með hraða- upphlaupum. Tindastóls- menn gáfust samt ekki upp með John Woods fremstan í flokki. Bæði lið hittu vel í síðari hluta fyrri hálfleiks og fin tilþrif sáust hjá báð- um liðum. Þó hefði varnar- leikurinn getað verið betri hjá báðum liðum. Baráttan hélt áfram í síðari hálf- leik. Falur Harðarson fór fyrir Kefl- víkingum og John Woods fyrir heimamönnum. Báðir röðuðu þeir niður þriggja stiga körfum. Keflvík- ingar sigu hægt og bítandi fram úr og unnu nokkuð öruggan sigur. Falur var sjóðandi heitur og best- ur Keflvíkinga. Hann skoraði sex þriggja stiga körfur í síðari hálfleik. Þá var Damon Johnson góður að vanda. John Woods var frábær í liði heimamanna og Amar Kárason átti góða spretti. Auðvelt hjá Njarðvík Njarðvíkingar sigruðu Skaga- menn mjög örugglega í Njarðvík og urðu lokatölur 111-87 eftir að Njarð- vík hafði leitt í hálfleik, 59-47. Heimamenn byrjuðu af miklum krafti og voru komnir með 25 stiga forskot eftir 10 mínútur en slökuðu verulega á eftir það. Kurk Lee hjá ÍA nýtti sér það á þessum kafla og skoraði grimmt á einbeit- ingarlaust Njarðvíkurlið- ið. Leikmenn Njarðvíkur hafa fengið góða ræðu í leikhléi frá þjálfaranum, Friðriki Rúnarssyni, því þeir spiluðu aftur af full- um krafti í seinni hálfleik. Eftir það voru úrslitin aldrei spuming. Skaga- menn voru mjög ósáttir við dómara leiksins og höfðu mikið til síns máls. Brenton Birmingham og Teitur Örlygsson áttu báð- ir stórleik fyrir Njarðvík en hjá Skagamönnum voru Kurk Lee og Dagur Þórisson bestir. Dagur verðskuldar meiri athygli Jóns Kr. Gíslasonar landsliðsþjáif- ara. „Betra að vinna illa en tapa glæsilega" „Þetta var erfiður leikur og lið Snæfells er sterkt og hefur oft verið stórlega vanmetið. Þrátt fyrir að við hefðum ekki spilað vel höfðum við sigur og það er fyrir mestu og það er betra að vinna illa en tapa glæsi- lega,“ sagði Einar Einarsson, þjálf- ari Grindavikur, í lok leiks Snæfells og Grindvíkinga í Hólminum í gær- kvöldi. Óhætt er að taka undir það með Einari að leikurinn hafi verið leik- ur hinna mörgu mistaka í sókninni en vamarleikurinn var hins vegar prýðilega spilaður og þá sérstaklega af hálfu Snæfells sem sýndi að þrátt fyrir sterka vöm þarf ekki að fá mikið af villum en allur fyrri hálf- leikurinn leið án þess að liðið fengi dæmda á sig eina einustu villu og er það sennilega íslandsmet. Að vísu hjálpuðu Grindvíkingar mikið með því að sækja lítið inn í teiginn og í raun var þetta leikur tveggja ólikra liða. Snæfeli sótti mikið inn í teig og þar var gríðarlega sterkur Rob Wil- son og áttu Grindvíkingar í hinu mesta basli með hann, þá sérstak- lega i fyrri hálfleik. Hins vegar skutu Grindvíkingar mikið fyrir utan enda ekki með mann til að berjast við Wilson. Leikurinn var allan tímann spennandi og ekki munaði miklu á liðunum en reynsla Grindvíkinga réð miklu í lokin og þeir náðu að tryggja sér sigur. Leik- menn Snæfells áttu hins vegar möguleika á að ná upp muninum en góðum dómumm leiksins urðu á mistök er Bárði Eyþórssyni var ýtt út af vellinum þegar um mínúta var eftir og dæmdu Grindvíkingum boltann og Grindvíkingar slökktu vonir Snæfells endanlega með því að skora í næstu sókn. Bestu menn Snæfells í leiknum vora Rob Wilson og Spyropoulos og tók Wilson m.a. 21 frákast. Einnig er aðdáunarverð barátta þeirra Baldurs Þorleifssonar og Mark Ramos í vörninni. Hjá Grindvíkingum var Herbert yfirburðamaður og Warren Peebles tók góðan sprett í lok leiksins. Hins vegar var hinn sterki leikmaður Pétur Guðmundsson óvenju mis- tækur þó auðvitað ætti hann góöan leik í vörninni eins og venjulega. Hörð mótspyrna Skallagríms Borgnesingar veittu KR- ingum harða mótspymu í Hagaskóla í gærkvöld. Þeir voru lengstum yfir í fymi hálfleik fyrir utan smákafla og fór Erik Fran- son fyrir sínum mönnum. Hann skoraði alls 19 stig í hátfleiknum og vann auk þess eins og hestur í vöm- inni. KR-ingar léku illa en það átti eftir að breytast í síð- ari hálfleik. Þá batnaði vömin hjá þeim og þeir tóku leikinn smám saman í sínar hendur. Keith Wassell fór þá á kost- um og geta KR-ingar öðru fremur þakkað honum sigurinn. í herbúðir KR-inga var kominn nýr leikmaður, danski landsliðs- maðurinn Jesper Sörensen. Hann lék með BK Amager í dönsku 1. deildinni í vetur en liðið féll um síð- ustu helgi í 2. deild. Hann var stiga- hæsti danski leikmaðurinn í vetur og á örugglega eftir að styrkja KR- liðið i komandi átökum. Haukasigur nyrðra Þórsarar ætluðu að gera út um leikinn strax á upphafsmínútum þegar þeir mættu Haukum í gærkvöldi. Þórsarar reyndu 5 eða 6 þriggja stiga körfur strax í byrjun og engin þeirra fór rétta leiö. Haukamenn vom baráttuglaðir og hleyptu Þórsuram aldrei fram úr sér. Þeir heldu taktinum í fymi hálf- leik og vora með sex stiga forskot í leikhléi. Eitthvað hefur Ágúst, þjálfari Þórsara, sagt við sína menn í leik- hléi því þá fyrst fóru þeir að spila vöm. Það gekk allt upp á tímabili og komust Þórsarar yflr. Vendipunkt- urinn í leiknum var þegar Brian Reese fékk flmmtu villu sína þegar Þórsarar voru í sókn í stöðunni 61-61. Þórsarar reyndu hvað þeir gátu til að jafna svo metin en ekkert gekk. Geta Þórsarar ekki kennt neinum en sér um það hvemig leikurinn fór. Þeir vora að missa boltann á mikilvæg- um punktum í leiknum og vora að fá á sig klaufalegar villur. Bestu menn Þórs vora Einar Að- alsteinsson og Magnús Helgason en Brian Reese virkaði ekki sannfær- andi í leiknum. Hjá Haukum var Bragi Magnús- son og Roy Hairston bestir. Þórsai’- ar höfðu bragðið á það ráð að hafa frítt á leikinn til að fá fólk til að hvetja liðiö og var leiðinlegt að sjá hve fáir voru á bekkjunum því stuðningur getur skipt gríðarlegu máli í leik eins og þessum. -AG/BG/KS// JKS/JJ/SK/VS Damon Johnson skoraði 38 stig fyrir Keflavík á Króknum. Herbert Arnarson skoraði 28 stig fyrir Grindavík í Hólminum. Evrópukeppni bikarhafa: „Erum ekki komnir áfram enn þá“ Lazio, Chelsea og Lokomotiv Moskva virðast eiga greiða leið í undanúrslit Evrópukeppni bikar- hafa í knattspymu eftir örugga sigra i fyrri leikjum sínum í gær- kvöld. Staða Lazio er öruggust eftir 0-4 sigur á Panionios í Grikklandi. Marcelo Salas var í aðalhlutverki hjá Lazio þó hann skoraði ekki sjálf- ur, en reyndar knúði hann fram sjálfsmark frá grískum vamar- manni. Chelsea fer með 3-0 forskot til Noregs eftir öraggan sigur á Váler- enga á Stamford Bridge. „Þetta var betra en í fyrri leikjum okkar í keppninni en við eram ekki komnir áfram enn,“ sagði Gianluca Vialli, framkvæmdastjóri Chelsea, sem lék allan leikinn sjálfur. Zaza Dzhanashia skoraði þrennu fyrir Lokomotiv Moskva i 3-0 sigri á Maccabi Haifa frá ísrael. Aðeins viðureign Varteks og Real Mallorca er spennandi eftir 0-0 jafn- tefli liðanna í Króatíu. Spánverjam- ir era þó öllu sigurstranglegri. Marijan Mrmic átti þar stórleik í marki Varteks. -VS EVRÓPUKEPPNI BIKARHAFA 8-liða úrslit - fyrri leikir Chelsea-Válerenga.....3-0 1-0 Babayaro (9.), 2-0 Zola (30.), 3-0 Wise (85.) Lok. Moskva-Maccabi Haifa . 3-0 1-0 Dzhanashia (47.), 2-0 Dzhanashia (77.), 3-0 Dzhanashia (89.) Varteks-Real Mallorca.......0-0 Panionios-Lazio.............0-4 0-1 Stankovic (3.), 0-2 sjálfsmark (14.), 0-3 Stankovic (60.), 04 Nedved (63.) John Carew, 19 ára sóknarmaður Válerenga, var undir smásjá margra liða í gærkvöld. Hann lét oft vamar- menn Chelsea hafa fyrir hlutunum og þessi hávaxni og kröftugi norski strákur viröist eiga mikla framtíð fyrir sér. Gunnar leigður til Venlo Gunnar Einarsson knattspymumaður var í gær leigður frá hollenska A-deildarliðinu Roda til WV Venlo, sem er efst í B-deildinni þar i landi. Gunnar, sem er 22 ára og lék sinn fyrsta A-landsleik síðasta sumar, gekk til liðs við Roda í ársbyrjun 1997 og var strax leigður til MVV Maastricht. Hann kom þaðan nú eftir áramótin en ljóst þótti að hann fengi ekki tækifæri í aðalliði Roda, sem er í toppbaráttunni í Hollandi, og var því leigður til Venlo. -KB/VS Óskiljanleg myndataka Þeir íslensku áhugamenn um frjálsar íþróttir, sem lögðu það á sig að vaka sl. nótt og fylgjast með útsendingu RÚV frá heimsmeistaramótinu í frjálsum íþróttum í Japan, urðu fyrir miklum vonbrigðum. Nær ekkert var sýnt frá keppninni í stangarstökkinu. Þeir sem stjómuðu útsendingunni ættu að fá sér aðra vinnu. Sýnt var látlaust frá ómerkilegum hlaupum í undam-ásum sem litlu máli skiptu á meðan verið var að keppa til úrslita í stangarstökki. Þórey Edda sást aldrei stökkva og Vala stökk einu sinni i beinni útsendingu. -SK 4, 4 19 íþróttir Vala Flosadóttir einbeitt á svip í nótt eftir að hafa stokkið yfir 4,45 metra og sett íslands- og Norðuriandamet. Vala varð í öðru sæti og vann til silfurverðlauna. Reuter Heimsmeistaramótið í frjálsum í Japan - Vala Flosadóttir í öðru sæti í stangarstökki á nýju íslands- og Norðurlandameti, 4,45 m. Þórey Edda í 9.-10. sæti Vala Flosadóttir, ÍR, vann til silfur- verðlauna í nótt í stangarstökki kvenna á heimsmeistaramótinu í frjálsum íþróttum innanhúss í Japan. Vala stökk 4,45 metra, setti íslandsmet og Norðurlandamet, og var hársbreidd frá því að tryggja sér heimsmeistaratit- ilinn. Stökk Völu er fjórða hæsta stökk ársins i greininni. Þórey Edda Elisdótt- ir, FH, stóð sig mjög vel. Hún stökk 4,20 metra og hafnaði í 9.-10. sæti. Vala sýndi gríðarlega keppnishörku í Japan í nótt. Hún byrjaði frekar illa. Stökk yflr 3,85 metra i fyrstu tilraun, 4,05 metra, einnig í fyrstu tilraun, felldi 4,20 metra í fyrstu tilraun en fór yfir í þeirri næstu, felldi síðan 4,35 metra tvívegis en fór yfir í þriðju til- raun. Vala tryggði sér síðan silfurverð- launin með því að stökkva yfir 4,45 metra í fyrstu tilraun. Undir lok stang- arstökkskeppninnar átti hún í mikilli baráttu við þýsku stúlkuna Nastja Rys- hich. Síðasta hæðin var 4,50 metrar. Vala felldi þrívegis en Ryshich fór yfir í síðustu tilrauninni og tryggði sér þar með heimsmeistaratitilinn. Þórey Edda bætti fyrri árangur sinn á stórmóti Árangur Þóreyjar Eddu er mjög góð- ur. Hún á enn nokkuð í land með að ná Völu hvað reynslu á stórmótum varð- ar. Þórey Edda bætti árangur sinn á stórmóti um 35 sentímetra og sú stað- reynd segir meira en mörg orð. Hér fer griðarlegt efni og Þórey Edda á áður en langt um líður eftir að láta verulega að sér kveða á stórmótum. Keppendur í stangarstökkinu voru 24 og tók keppnin fjórar klukkustund- ir. 15 keppendur stukku yfir 4,20 metra. Jafhar í 3.-4. sæti urðu þær Nicole Rieger-Humbert frá Þýskalandi, sem setti heimsmet á dögunum er hún stökk 4,56 metra, og Zsuzsa Szabo frá Ungverjalandi. Báðar stukku þær 4,35 metra. Melissa Muller frá Bandaríkj- unum varð i 4. sæti og Emma George frá Ástralíu varð í 5. sæti. Þær stukku einnig 4,35 metra. Allar stærstu stjömumar voru mættar til leiks ef þær Bartova og Balanhkonova era undanskildar en þær era meiddar. Byrjunarhæðin var 3,85 metrar, þá var ráin hækkuð í 4,05 metra, næst í 4,20 metra, þá 4,35 metra, svo í 4,45 metra og að síðustu í 4,50 metra. Þetta er óvenjulega ör hækkun. Þjóðverji vann þrístökkið Úrslit réðust í einni grein fyrir utan stangarstökk kvenna í nótt. Þjóðverj- inn Charles Michael Friedek gerði sér lítið fyrir og sigraði í þrístökki karla. Hann stökk 17,18 metra. í öðra sæti varð Búlgarinn Rostislav Dimitrov með 17,05 metra og þriðji Bandaríkja- maðurinn LaMark Carter en hann stökk 16,98 metra. -SK Bland i poka Richard Gougli, fyrrum leikmaöur Glasgow Rangers og skoska landsliðs- ins í knattspyrnu, er á leið til enska A-deildarliðsins Nottingham Forest. Gough lék með San Jose Clash i bandarisku atvinnumannadeildinni en er nú laus allra mála. Forest situr á botni A-deildarinnar og þarf nauð- synlega á liðsstyrk að halda ætli liðið að forðast fall. Stan Collymore, leikmað- ur Aston Villa, er til sölu _ fyrir 230 milljónir króna. „3p'í«| Þetta er 530 milljónum ™ krónum lægri upphæð en Aston Villa keypti hann á frá Liverpool fyrir tveim- ur árum. Collymore er bú- inn að vera i tómum vand- ræðum hjá Villa og á ekki lengur sæti i byijunarliðinu. Norski skiðakappinn Lasse Kjus er búinn að ná sér að lungnabólgu sem hetjað hefur á hann upp á síðkastið. Kjus hefur ekki keppt á síðustu mót- um í heimsbikamum en hann keppir á ný um helgina þegar keppt verður í bruni og i risasvigi í Hvítfjalli í Nor- egi. Lasse Kjus, Kjetil Andre Aamodt og Hermann Maier berjast um heimsbikarinn i samanlögðum greinum. Aamodt er efstur meö 1130 stig, Maier er með 1103 stig og Kjus er í þriðja sæti með 1089 stig. Áhugamenn um kapp- akstur blða spenntir eftir fyrsta móti keppnistima- bilsins í Formúlu 1 sem fram fer í Melbourne í Ástralíu um helgina. Keppnin fer fram i Albert Park en þar hefur ekki jjj verið keppt i 40 ár eða árið 1956, sama ár og ólympíu- leikarnir fóru fram i Melbourne. Ómögulegt er að spá fyrir um úrslit- in en vist er að Finninn Mika Hakkinen, núverandi heimsmeistari, Þjóðverjinn Michael Schumacher, Bretinn David Coulthard og Frakk- inn Jacques Villeneuve verða að berjast um sigurinn. Andrei Kanchelskis knattspymu- kappi, sem leikur með Glasgow Rangers í Skotlandi, er mjög óhress með að hafa ekki veriö valinn í lands- liðshóp Rússa fyrir leikina gegn Armeníu og Andorra í undankeppni EMsem fram fara síðar í þessum mánuði. Kanchelskis hlaut ekki náð fyrir augum Oleg Romansevs lands- liðsþjálfara en skosk knattspyrna er ekki hátt skrifuð hjá honum. „Ég hef spilað bæði i rússnesku og skosku deildinni og sú siðarnefnda er miklu sterkari," segir Kanchelskis. Peter Schmeichel, markvörður Man- chester United, segist stefna að þvi að spila í tvö ár á Ítalíu áður en hann heldur heim til Danmerkur en kapp- inn hættir hjá United i vor. Roma og Udinese hafa sýnt Schmeichel áhuga og nýjustu fregnir herma að AC Mil- an sé meö Danann stóra og stæðilega í sigtinu en Sebastiano Rossi er ósáttur í herbúðum félagsins. Alex Ferguson, stjóri United, leitar enn arftaka Schmeichels og ekki er loku fyrir það skotið að Gianluca Buffon, markvörður Parma, sé mark- vörðurinn sem Ferguson ætlar að ná i. Eiöur Smúri Guðjohnsen skoraði 2 mörk fyrir varalið Bolton i fyrrakvöld þegar liðið sigraði varalið Wolves á útivelli, 3-1. Eiöur hefur leikið vel með varaliðinu og það hlýtur að styttast í að hann fái tækifæri með aðalliðinu sem tapaö hef- ur tveimur síðustu leikj- um sinum i B-deildinni. Guðni Bergsson lék með varaliðinu gegn Wolves og var það fyrsti leikur hans í tæpa fjóra mán- uði. Guðni hefur þurft að fara í tvær aðgerðir vegna nárameiðsla en svo virðist sem martröð hans sé nú á enda. Colin Todd, stjóri Bolton, fagnar endurkomu Guðna og ekki er útilok- að að hann tefli Guðna fram i leiknum gegn Swindon um helgina. Jiu Jitsufélag Garðabœjar verður með árlegar æfmgabúðir sinar um helgina. Æftngamar verða haldnar að Austurbergi 3 laugardaginn frá 11.36-15.30 og á sunnudaginn frá klukkan 10-13. Allan Campbell, landsliðsþjálfari Englendinga i þessari einu elstu bardagalist í heim- inum, mun kenna á námskeiðinu. -GH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.