Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1999, Qupperneq 1
Sætur
sigur
Man. Utd
Bls. 22
Gummi til Spanar
- semur nær örugglega við Valencia til tveggja ára
„Þetta var eflaust minn síðasti
leikur með Val, í bili að minnsta
kosti. Ég hef átt í viðræðum við
spænska liðið Valencia og samn-
ingar eru að takast,“ sagði Guð-
mundur Hrafnkelsson, markvörður
Vals og landsliðsmarkvörður í
handknattleik, í samtali við DV í
gærkvöld.
Guðmundur fékk fyrir nokkru
tilboð frá Valencia sem leikur í B-
deildinni á Spáni. Liðið er taplaust
í vetur og stefnir hraðbyri upp í
efstu deild. Með liðinu leika tveir
spánskir unglingalandsliðsmenn
og til stendur að styrkja liðið fyrir
komandi átök.
„Forráðamenn Valencia höfðu
samband við mig á miðju leiktíma-
bilinu en þá kom auðvitað ekki til
greina að fara til Spánar. Ég svar-
aði tilboöi þeirra með gagntilboði
og met stöðuna þannig að ég fari
nær örugglega til Spánar. Það á að-
eins eftir að ganga frá smáatriðum
og fínpússa þetta,“ sagði Guðmund-
ur.
Forráðamenn Valencia vilja
skrifa undir tveggja ára samning
við Guðmund og hann reiknar með
að fara til Spánar í sumar. Guð-
mundur hefur um langt árabil ver-
ið besti markvörður landsins og á
að baki tæplega 300 landsleiki.
Verður mikill sjónarsviptir að
þessum snjalla markverði.
„Ég get ekki neitað því að mér
hefur oft verið hugsað til atvinnu-
mennskunnar og í raun má segja
að þetta hafi verið minn draumur
lengi. Nú hef ég tækifæri til að æfa
sem atvinnumaður í stað þess að
vinna fullan vinnudag og æfa að
auki sem atvinnumaður eins og ég
hef í raun og veru gert hér heima
undanfarin ár. Þetta verða mikil
viðbrigði en verke&iið er spenn-
andi.“
Og missir Valsmanna er mikill:
„Ég heföi helst af öllu viljað skilja
betur við Val en hver veit nema
maður komi aftur síðar til Vals.
Við áttum fyrir löngu að vera bún-
ir að tryggja veru okkar í úrslita-
keppninni. Ég hef ekki frekar en
aðrir skýringar á slöku gengi okk-
ar eftir áramótin. Ég þarf að skoða
þetta betur áður en ég get komið
fram með einhverjar skýringar á
því að við fengum aðeins 3 stig út
úr síðari umferðinni," sagði Guð-
mundur.
Þess má geta að lið Valencia hét
áður Alzira og með því léku á sin-
um tíma Geir Sveinsson og Júlíus
Jónasson.
Þegar er farið að ræða um eftir-
mann Guðmundar í marki Vals.
Samkvæmt heimildum DV hafa
Valsmenn sett sig í samband við
Sigurgeir Höskuldsson, markvörð
Gróttu/KR, og er talið mjög líklegt
að hann gangi til liðs við Vals-
menn.
-SK
KR vann
Rússana
KR sigraði rússneska A-deildar-
liðið Krylya Sovetov í fyrstu um-
ferðinni á alþjóðlegu knattspymu-
móti á Kýpur í gær.
Rússamir komust í 2-0 og 3-1 en
Björgvin Vilhjálmsson jafnaði, 3-3,
á lokamínútu leiksins. Áður höfðu
Andri Sigþórsson og Sigþór Júlíus-
son skorað fyrir KR.
I vítaspymukeppni sigraði KR
síðan, 5-4, og varði Kristján Finn-
bogason tvær af spyrnum Rúss-
anna.
Mikil harka var í leiknum. Björn
Jakobsson nefbrotnaði og Árni Ingi
Pjetursson meiddist og fór af velli.
Atli Eðvaldsson, þjálfari KR, leysti
hann af hólmi síðustu 25 sekúndur
leiksins.
KR mætir Flora Tallinn frá Eist-
landi í undanúrslitum á fostudag en
þar er Teitur Þórðarson við stjóm-
völinn. Flora vann Elfsborg frá Sví-
þjóð, lið Haraldar Ingólfssonar, 3-2,
í hörkuleik í gær.
Þórður Þórðarson lék vel í marki
Norrköping frá Svíþjóð sem tapaði
fyrir Haka frá Finnlandi í víta-
spymukeppni eftir 1-1 jafntefli.
Hammarby frá Svíþjóð vann
landslið Azerbaijan, 1-0, og mætir
Haka í undanúrslitunum." Pétur
Bjöm Jónsson lék ekki með Hamm-
arby.
-VS
Nýr Júgóslavi
til Víðis
Víðismenn fá til liðs við sig nýjan
júgóslavneskan knattspyrnumann
fyrir 1. deildar keppnina í sumar.
Hann heitir Nedelko Drobnjakovic,
28 ára vamarmaður frá B-deildar
liðinu Javor Ivanica, og er væntan-
legur í Garðinn í byrjun maí. Landi
hans Goran Lukic mun leika áfram
með Víði eins og tvö undanfarin ár.
-VS
Jóhanní KR
Jóhann Þórhallsson, knattspyrnu-
maður úr Þór á Akureyri, er geng-
inn til liðs við KR. Jóhann, sem er
19 ára unglingalandsliðsmaður, var
annar markahæsti leikmaður Þórs í
1. deildinni í fyrra. Hann fór ekki
með KR á alþjóðlega mótið á Kýpur
þar sem hann gekkst undir aðgerð á
hné fyrir nokkmm dögum.
-VS
- - i
y
*
Treysti frænda fullkomlega
„Eg treysti frænda mínum fullkomlega þama í lokin. Hann skil-
aði þessu glæsilega í markið enda eins gott fyrir hann. Hann hefði
ekki fengiö að koma í jólaboð í fjölskyldunni á næstunni ef hann
hefði klikkað,“ sagði Sigurður Valur Sveinsson, þjálfari og leikmað-
ur HK, eftir að HK hafði í fyrsta skipti tryggt sér rétt til að leika í
úrslitakeppni á meðal þeirra bestu um íslandsmeistaratitilinn eftir
sigur að Hlíðarenda gegn Val, 18-19. Sjá bls. 20-21 -SK
Sigurvin eftirsóttur
- þó ólíklegt sé að hann leiki knattspyrnu í sumar
Sigurvin Ólafsson, knattspyrnu-
maður úr Vestmannaeyjum, er eft-
irsóttur þessa dagana, enda þótt
litlar líkur séu á að hann geti spil-
að knattspyrnu í sumar. Sam-
kvæmt heimOdum DV vilja bæði
Fram og KR fá hann í sínar raðir.
Sigurvin, sem er 22 ára miðju-
maður og var einn besti leikmaður
íslandsmótsins 1997, lék aðeins
fjóra fyrstu leiki Eyjamanna í úr-
valsdeildinni í fyrra. Þá meiddist
hann en um það leyti sem hann var
að verða leikfær á ný fótbrotnaði
hann illa, bæði á sköflungi og rist,
við lundaveiðar í Eyjum. Langan
tima tekur að jafna sig á slíku og
ekki eru taldar miklar likur á að
hann geti spilað í sumar.
Samt sem áður hafa Framarar
gert Sigurvin tilboð um þriggja ára
samning, og KR-ingar hafa sýnt
honum mikinn áhuga. Sigurvin er
með lausan samning en Eyjamenn
hafa hug á að halda honum og
munu ræða við hann um nýjan
samning á næstu dögum,
-VS
Jón er
hættur
með Val
Miklar breytingar verða innan
vallar sem utan hjá Valsmönnum í
handknattleiknum fyrir næstu leik-
tíð.
Jón Kristjánsson verður ekki
áfram þjálfari Vals í handknattleik
samkvæmt heimildum DV. Undir
hans stjóm síðustu fjögur ár hafa
Valsmenn náð mjög góðum árangri
þótt ekki hafi allt gengið að óskum
á þessu ári.
Samkvæmt sömu heimildum DV
verður Guðni Haraldsson ekki
áfram formaður handknattleiks-
deildar. Nafn Bjama Ákasonar hef-
ur verið nefnt þegar rætt hefur ver-
ið um arftaka Guðna en heimildar-
menn innan handknattleiksdeildar
Vals sögðu DV í gærkvöld að ekki
hefði ríkt eining innan deildarinnar
með störf Guðna. Þá er búist við
miklum breytingum á skipan stjóm-
ar handknattleiksdeildar fyrir
næsta tímabil.
Líklegt er að einhverjir aðrir leik-
menn en Guðmundur Hrafnkelsson
munu hætta með Val. Ekki er þó
loku fyrir það skotið að Jón Krist-
jánsson verði áfram leikmaður með
Val ef hann ákveður ekki að leggja
skóna á hilluna. -SK
Enn mark
frá Þórði
Þórður
Guðjónsson
skoraði
þriðja mark
Genk með
skalla þegar
liðið lagði
Kortrijk, 1-3,
á útivelli í
belgísku A-
deildinni í knattspymu í gærkvöld.
Strupar og Oulare, hinar tvær
stjörnur Genk, skoruðu hin mörkin.
Genk er þar með komið með fjög-
urra stiga forystu í deildinni og
stefnir hraðbyri á meistaratitilinn.
Bjami Guðjónsson var meðal
varamanna Genk en Jóhannes Karl
Guðjónsson var ekki í leikmanna-
hópnum.
Lokeren vann Westerlo, 3-0, og
lék Amar Viðarsson siðustu 7 mín-
útumar með Lokeren.
-KB/VS