Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1999, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1999, Qupperneq 6
LAUGARDAGUR 13. MARS 1999 6 jjtlönd stuttar fréttir Minni olía Orkumálaráöherrar fimm stærstu olluframleiðsluríkja heims náðu í gær samkomulagi um að minnka olíuframleiðslu sína um 2 milljónir tunna á dag. Óhagganlegur Utanríkisráðherrar Rússlands og Grikklands sögðu í gær að Slobodon Milos- evic Júgóslavíu- forseti væri óhagganlegur í afstöðu sinni gegn eftirliti NATO í Kosovo. Yfirvöld í Júgó- slavíu segja að ná verði pólitískri lausn um Kosovo áður en hægt verði að ræða um hemaðaiiegan lið frið- arsamkomulagsins sem náðist í Frakklandi. Gripnir í kirkju Norska lögreglan sótti á fimmtudagskvöld króatísk- serbíska fjölskyldu í kirkju þar sem hún hafði leitað skjóls. Fjöl- skyldan verður flutt til Austur- Slóveníu í dag. Nýr forsætisráðherra Leiðtogar miðjuflokkanna þriggja sem sigruðu í kosningun- um í Eistlandi fyrir viku vilja Mart Laar i embætti forsætisráð- herra. Rússar óánægðir Rússnesk yfirvöld lýstu í gær yfir óánægju sinni með stækkun NATO í austur. Sögðu þau hana hættuleg mistök sem gætu skipt Evrópu á ný. Ráðherra ákærður Yfirvöld í Rúanda hafa ákært Rwigema forsætisráöherra vegna morða herskárra hútúa á nærri milljón tútsum og hófsömum hútúum árið 1994. Ástarsamband Tyrkneski herinn varaði i gær Grikki við og sagði að þeir yrðu að gjalda fyrir „ólöglegt ástar- samband“ við kúrdíska PKK-leið- togann Abdullah Öcalan. Menuhin látinn Hinn heimsfrægi fiðlusnilling- ur Yehudi Menuhin lést í Berlín í gær vegna hjartaáfalls. Menuhin, sem varð 82 ára, kom fyrst fram 7 ára gamall. Þegar hann var 13 ára hafði hann leikið á tónleikum í París, London, New York og Berlín. Menuhin fæddist í New York en gerðist breskur ríkisborgari 1985. Heimili Menuhins var í London en hann var stöðugt á feröalög- um um heiminn. Sérkennileg yfirlýsing Gores: Ég skóp Internetið A1 Gore, varaforseti Bandaríkj- anna, sagðist í sjónvarpsviðtali við CNN sl. þriðjudag hafa átt frum- kvæði að því að skapa Internetið meðan hann var þingmaöur. Þing- menn repúblikana hafa tekið þessari yfirlýsingu varaforsetans með háðs- glósum. Dick Armey frá Texas sagði við fréttamann Reuters aö sagnfræð- ingar myndu seint flokka varaforset- ann með uppfinningamönnum á borð við Thomas Edison. Mark Foley, þingmaður frá Flór- ída, sagði að fullyrðing varaforsetans væri álika fjarri lagi og ef hann sjálf- ur tæki að þakka sér fyrir að hafa skapað þjóðvegakerfi Bandaríkjanna. Það einasta sem A1 Gore hefði fundið upp í sambandi við Intemetið væri að leggja á það skatta. Upphaf Inter- netsins mætti rekja til rannsókna í tengslum við vamir Bandaríkjanna sem áttu sér stað á sjöunda áratugn- um þótt það hefði hins vegar ekki komist í almenna notkun fyrr en á þessum áratug. Eichel dansar eftir pípu Schröders „Hann dansar ekki eins og Fred Astaire og hann syngur ekki eins og Caruso,“ sagði Gerhard Schröder Þýskalandskansl- ari eitt sinn um Hans Eichel, nýútnefndan fjár- málaráðherra Þýskalands. Þar með var Schröder að leggja áherslu á styrk Eichels, reynslu hans, ná- kvæmni og heiðarleika. En Hans Eichel. stjómmálaskýrendur sögöu í gær að þó Eichel dansaði ekki eins og Fred Astaire myndi hann dansa eftir pípu Schröders. Eichel, sem er fráfarandi forsæt- isráðherra Hessens, er sagð- ur algjör andstaða Oskars Lafontaines, fyrrverandi fjár- málaráðherra, í flestum mál- efnum. Hann tilheyrir þeim minnihluta stjómmálamanna sem ekki vill vera í sviðsljós- inu. Eins og Lafontaine til- heyrir Eichel vinstri væng þýska jafnaðarmannaflokks- ins en er ekki læstur í hug- myndafræði, að því er stjóm- málaskýrendur segja. Hann hefur sérstaka hæfileika til að setja sig inn í öll smáatriði í hvaða efnahags- málum sem um er að ræða. Eichel er yfirvegaður og hefur fengið þá umsögn að hann sé með jafnmikla útgeislun og soðin makkaróna. Schröder samþykkti í gær að taka að sér formennsku í Jafnaðar- mannaflokknum og hyllti í leiðinni Lafontaine sem hann hafði átt í mikilli baráttu við um stjórnun í efnahagsmálum. Lafontaine svaraði engum símhringingum í gær, ekki heldur frá Schröder. Stjómmálaskýrendur sögðu í gær að jafnaðarmenn myndu flykkjast um Schröder jafnvel þó að vinsam- leg stefha hans í garð viðskiptalífs- ins stangist á við skoðanir manna á vinstri væng Jafhaðarmannaflokks- ins og verkalýðssamtaka. Oskar Lafontaine: Kom alltaf á óvart Rauði Oskar á þingi í síðustu viku. Valdaafsal hans á fimmtudaginn kom öllum í opna skjöldu. Símamynd Reuter Oskar Lafontaine, sem sagði af sér embætti fjármálaráðherra Þýskalands í fyrradag og for- mennsku i Jafnaðarmannaflokkn- um, hefur alltaf komið á óvart. Hann hefúr aldrei látið neitt stöðva sig, hvorki stórtap fyrir Helmut Kohl, fyrrverandi Þýskalandskansl- ara, né morðtilræði. Skoðanir manna á Lafontaine era fleiri og ólikari en á flestum öðram stjóm- málamönnum. Sumir líta á Lafontaine sem ræðuskörang. Aðrir segja að hann sé svalur og kænn stjórnandi. Það eina sem allir era sammála um er að Lafontaine kemur alltaf á óvart. Tilkynningin um afsögn hans kom eins og þruma úr heiðskíra lofti. Oskar Lafontaine fæddist árið 1943 í Saarbrúcken við frönsku landamærin. Hann er eðlisfræðing- ur að mennt og var hann látinn gjalda þess í starfi sínu sem fjár- málaráðherra. „Lafontaine heldur að efnahags- málum sé stjórnað af sams konar lögmálum og náttúravísindunum," sögðu gagnrýnendur um stefnu hans í fjármálum. Fjármálaráðherrann fyrrverandi gekk í þýska jafnaðarmannaflokk- inn er hann var 23 ára gamall. Frami hans í flokknum var skjótur. Níu áram seinna var hann orðinn bæjarstjóri í heimabæ sínum og fljótlega varð hann ríkisstjóri í Saarland. I fyrstu kosningunum eftir sam- einingu þýsku ríkjanna árið 1990 var Lafontaine kanslaraefni jafnað- armanna. Hann tapaði stórt fyrir Helmut Kohl. í kosningabaráttunni var Lafontaine stunginn með hnífi og hlaut hann hættulegt sár. Margir töldu að Lafontaine myndi gefa pólitískan frama upp á bátinn eftir tilræðið og ósigurinn. En árið 1995 komst hann í for- mannsstól í Jafnaðarmannaflokkn- um og tókst, mörgum til undranar, að sameina flokkinn sem mikil sundrang ríkti í. Þegar kosningabaráttan í fyrra nálgaðist kaus Lafontaine að hleypa Gerhard Schröder að sem kanslara- efni jafnaðarmanna. Ein af ástæð- unum voru vinsældir Schröders meðal kjósenda. Einnig þykir lík- legt að Lafontaine hafi vegna tilræð- isins ekki viljað vera á ný í fremstu víglinu í erfiðri kosningabaráttu. Það kom þó ekki í veg fyrir að hann væri í fararbroddi í samninga- viðræðunum við græningja eftir kosningasigurinn í september. Framganga hans þá var á þann veg að margir veltu því fyrir sér hvort Schröder eða Lafontaine væri aðal- maður stjórnarinnar. Lafontaine, sem krafðist pólitískrar stjórnunar á peninga- málum, tapaði í valdabaráttunni og dró sig í hlé. í nokkurra lína bréfi til flokksins óskaði Lafontaine hon- um góös gengis í baráttunni fyrir „frelsi, réttlæti og einingu". Hæðni þykir felast í kveðjunni þar sem fjármálaráðherrann vék eftir átök á ríkisstjómarfundinum á miðviku- daginn. Kauphallir og vöruverð erlendis nzn Fíkniefna- kóngur Evrópu handtekinn Einn af valdamestu fíkni- - efnakóngmn Evrópu, Princ ; Dobrocki, sem er frá Pec í I Kosovo, var nýlega handtekinn | i Tékklandi þrátt fyrir að hann hefði gengist undir milljóna króna aðgerð til að breyta út- ■ liti sínu. Um var að ræða sam- starf lögreglu í Svíþjóð, Noregi | og öðrum Evrópulöndum. Lög- | reglan telur að samtök Dobroc- is, sem er af albönskum upp- - runa, og önnur gengi Albana I standi á bak við 90 prósent af I öllum heróíninnflutningi til ‘í Skandinavíu. Heróínið er flutt | eftir svokallaðri Balkanleið til J Tékklands og þaðan til Norður- landa. Dobroci var dæmdur í fang- j elsi í Noregi en tókst að flýja 1996. Hann hefur verið eftir- j lýstur síðan. ítengslum við handtöku Dobrocis nú hafa 42 i til viðbótar verið handteknir i j Evrópu. Þeir eru allir grunaðir j um að tilheyra sömu samtök- Íum. Frá því að Dobroci flúði úr fangelsinu í Noregi hefur hann gert allt til þess að villa um fyrir lögreglunni. Hann rakaði af sér hárið og safnaði utan á 1 sig spiki auk þess sem hann j for í aðgerð hjá lýtalækni. Lögreglan telur að hagnaður I af heróínsölu Dobrocis renni j til hemaðar Frelsishers Albana í Kosovo. Ofurbaktería á sænskum sjúkrahúsum Heilbrigðisyfirvöld í Svíþjóð j hafa nú gefið út viðvörun : vegna ofurbakteríu sem breið- I ist út á sjúkrahúsum landsins. Um er ræða svokallaða MRSA- bakteríur sem era gulir | stafýlokokkar. Á vissum stofn- rnn hennar vinna engin lyf. Á S undanfómum árum hafa verið skráð um 50 tilfelli á ári í Sví- { þjóð en í fyrra voru tilfellin 185. Heilbrigðisyfirvöld í Sví- : þjóð óttast aö ekki verði ráðið { við útbreiðslu bakteríunnar og j að faraldur geti brotist út. Hundur ældi í neöri deild breska þingsins Það varð uppi fótur og fit í neðri deild breska þingsins á í fimmtudaginn þegar fylgdar- I hundi Davids Blunketts | menntamálaráðherra varð svo j mikið um árás á húsbónda sinn að hann ældi. Árásin kom frá David Willetts í skugga- I ráðuneyti íhaldsmanna. Fylgd- arhundurinn er svört labrador- tík sem gegnir nafninu Lucy. Talsmaður frjáslyndra demókrata í menntamálum, Don j Foster, sagði síðar í umræðun- um á þingi að hann skildi Lucy. „Mér verður líka óglatt þegar ég | heyri í honum,“ sagði Foster og Iátti þá við Willetts. Banvænn útblástur frá dísilbílum Talið er að um átta hundruð \ • Danir deyi árlega af útblæstri !frá dísilbílum. Skaðvaldurinn er sótagnir sem ekki brenna að fullu. Sótagnimar valda krabbameini og geta orsakað bólgu í lungum, að því er pró- fessor við Kaupmannahafnar- j háskóla, Steffen Loft, greinir frá. Hægt er að leysa vanda- málið með því að setja sérstaka | síu á farartækin sem fjarlægfr | 90 til 95 prósent af óhreinind- unum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.