Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1999, Qupperneq 18

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1999, Qupperneq 18
i8 (Jieygarðshornið LAUGARDAGUR 13. MARS 1999 ÐV Þegar ég var lítill sá Gerður G. Bjarklind um Lög unga fólksins á föstudagskvöldum upp úr níu. Nú sér hún um Lög gamla fólksins á föstudagsmorgnum upp úr níu. Þá var ég ekki búinn að ná því al- veg að vera Unga fólkið - var meiri trítill en bítill, en hlustaði samt heillaður. Og nú er ég enn ekki búinn að ná því alveg að vera Gamla fólkið en hlusta samt heiUaður. Ég er aldrei alveg sam- ferða sjálfum mér. Sjálf er Gerður alltaf eins. Ég vil frekar hlusta á þetta en einhverja tvo fyndna, sem eru alls staðar á hinum stöðvunum. Gömul íslensk dægurlög eru svo sorgleg músík, svo einlæg, svo falleg í blygðunarlausri þung- lyndisdýrkun sinni og maður kemst einhvem veginn í betra skap á því að byrja daginn með sorglegri músík en tveimur fyndnum. Og stundum, þegar ég er heppinn og strætó er seinn, þá næ ég einu eða tveimur lögum í vasaútvarpinu mínu á leiðinni í vinnuna. Þá er dagurinn góður. í gær náði ég heilum tveimur lög- um; þau vom bæði mjög þung- lyndisleg. Fyrst kom Elsa Sigfúss að syngja eitthvert lag frá Hawaii, síðan karlakór sem ég heyrði ekki hver var því stundum eru svo miklar truflanir í vasaút- varpinu, nema þarna söng með þeim tenór sem þandi sig svo drengilega að tær og fölskvalaus rödd hans hóf sig upp yfir alla skruðningana. *** Ég ákvað með sjálfum mér að þetta hefði veriö karlakórinn Heimir og einhver Álftagerðis- bróðirinn að syngja einsöng. Mér fannst að svo hlyti að vera, senni- lega vegna þess að Elsa Sigfúss var að syngja lag frá Hawaii, eynni sem færði Skagfirðingum lagið Undir bláhimni. Ég fékk nýjasta diskinn lánaðan um daginn með þessum meginkarlakór landsins - ásamt disknum Rætur, sem Andri Snær Magnason tók saman úr safni Ámastofnunar á gömlum ís- lenskum söng. Er þetta tvímæla- laust skemmtilegasti diskur sið- asta árs. Sem er ekki síst að þakka fallegum útsetningum Didda fiðlu, sem gæðir lögin hátíðlegri reisn strengja án þess að blása þau út í eitthvað sem þau eru ekki, til dæmis Verdi. Yfirleitt er hvíld í því að fá að hlusta á dægurlög sem em ekki annað hvort þungbúið skrölt úr trommuvélum, svo að manni líður eins og mað- ur sé staddur einhvers staðar í álverinu - og strax kominn ósýnilegur hjálmur á haus- inn - eða þá hitt, sem nú ber sem mest á: tónlist í gæsa- löppum, safn af tilvitnunum með glotti út í annað, sniðug- heit þar sem ekkert er þannig meint, og þar með ekki á neinn hátt meint og þar með fullkomlega mein- ingarlaust. Það er eitthvað friskandi við að hlusta á menn sem hafa ekki frétt að maður eigi alltaf að gera eitt- hvað nýtt, eru ekki að reyna að gera neitt nýtt, heldur þvert á móti endurtaka það sem er gamalt, músík með einlægri laglínu, músík sem miðl- ar falsleysi, hrekkleysi, er mennsk. *** Hvað er svona skemmtilegt við að hlusta á karlakór? Þetta er karlamenning af því tagi sem verð- ur æ sjaldheyrðari. Hljómurinn er breiður og voldugur og karlmann- legur - og þegar farið er niður í pi- Guðmundur Andri Thorsson anissimo gefst ekkert betra tæki- færi til að heyra þrekvaxna karl- menn tjá viðkvæmustu kenndir sínar. Og þegar beljað er í fortis- simo skynjar maður ekki bara kraftinn sem býr í íslenskum karl- mönnum, heldur líka geðshræring- una sem þeir láta ógert að tjá alla jafnan, gleðina yfir bræðralaginu í söngnum, vinalegan keppnisand- ann í því hver geti öskrað sem óg- urlegast. Hér gefst óvænt innsýn í menningarkima karlaklósettsins, sem alveg eins mætti skrifa leikrit um líkt og kvennaklósettið. Á al- vöru dansleikjum á alvöru stöðum er karlaklósettið yfirleitt troðið af mönnum sem standa blásvartir í framan og öskra hver upp í annan ýmis valinkunn tenóranúmer, með gífurlegum handaslætti og annað skyrtulafið komið upp úr buxna- strengnum... Og bestir í þessu eru vitaskuld Skagfirðingamir, þetta fólk sem fær mann til aö trúa kenningunni um að íslendingar séu runnir frá Aserbaídsjan. Þegar ég heyri í karlakómiun Heimi skynja ég í mér hirðingjann. Heiðursverðlaunahafi íslensku tónlistarverðlaunanna: Semur eitt lag á dag Magnús Eiríksson tók á móti heiðursverðlaunum fyrir framlag sitt til íslenskrar tónlistar. Um helgina heldur hann tón- leika með KK fyrir Fjalla-Eyvind og Höllu. íslensku tónlistarverðlaunin vom afhent á fimmtudagskvöld og að venju voru veitt heiðursverðlun til tónlistarmanns sem viðurkenning fyrir framúrskarandi störf í þágu is- lensks tónlistarlífs. í fyrra var það Jón Múli Árnason sem hlaut verð- launin, en i ár var það Magnús Ei- ríksson. Gaman að fá klapp á bakið „Það er alltaf gaman að fá klapp á bakið,“ segir Magnús Eiríksson. „Það er ekki síst gott þegar klappið kemur frá stóra bróður, iðnaðar- og við- skiptaráðuneytinu." Var þetta sérstök tilfinning? „Þetta er kannski fyrst og fremst viðurkenning á því að ég hafi náð að snerta þjóðartaugina. Það er langt síð- an ég uppgötvaði að ég væri heims- frægur á íslandi. Maður veit það þeg- ar einhver flautar lag eftir mann snemma að morgni án þess að hafa hugmynd um það.“ Hvemig er að vera í þeirri aðstöðu? „Það er alveg dásamlegt. En svo verða menn stundum leiðir á börnun- um sínum ef þeir eru of mikið innan um þau og börnin leið á manni sjálf.“ Hefurðu beðið lengi eftir þessum verðlaunum? „Nei, ég bjóst nú ekki við að fá þau svona kornungur. Ég hélt að maður þyrfti að vera kominn í félag eldri borgara til að fá svona verðlaun." Er þetta þá ekki áfall fyrir þig? „Menn voru að spyrja hvort ég væri þá ekki hættur að semja.“ Ertu hættur? „Nei, ég sem lag á hverjum degi þótt ég noti þau ekki öll. Þau spretta ýmist fram í höfðinu eða þá að ég gríp eitthvert hljóðfæri og spila þau inn á segulband." Nokkur þúsund lög Magnús byrjaði frekar seint að semja lög, hann var rúmlega tvítugur. Hann hafði þó spilað lengi fyrir þann tima. „Textarnir hafa verið aðalhöfuð- verkurinn en ekki lagasmíðin." Það eru 365 dagar á ári þannig að þú hlýtur að vera kominn með nokk- ur þúsund lög? „Ég geymi þau því miður ekki öll nema á kassettum í misjöfnu ástandi. Þegar ég þarf á þeim að halda renni ég þeim í gegnum tækið og hirði það sem ég tel þess virði.“ Hvenær er næsta plata væntanleg? „Ég ætla að reyna að koma út plötu á þessu ári.“ Hverjir verða með þér á henni? „Ég hef fengið tækifæri til að vinna með fremstu tónlistarmönnum þjóðar- innar og ég mun halda því áfram.“ Tónleikar á Hveravöllum Magnús hefur leikið mikið með Kristjáni „KK“ Kristjánssyni og hafa þeir ferðast um landið. Er ein- hver munur á því að spila fyrir fólk á landsbyggðinni eða í Reykjavík? „Já, Reykvíkingar eru erfiðari. Þeir eru ekki endilega kröfuharðari, heldur örlitið lifsleiöari. Það er erfitt að koma þeim á óvart, en þeg- ar það tekst er það alveg frábært." Og það stendur mikiö til hjá Magnúsi. „Við Kristján erum að fara að spOa uppi á hálendi um helgina. Við höldum tónleika á Hveravöllum. DV-mynd E.ÓI Það eru 40 búnir að melda sig. Ey- vindur og Halla verða meö okkur í anda.“ -sm

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.