Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1999, Side 32

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1999, Side 32
LAUGARDAGUR 13. MARS 1999 44 trimm Laugavegur milli Landmannalauga og Þórsmerkur: Jákvæð reynsla erlendra hlaupara Hópur 79 þreyttra en ánægðra hlaupara að loknu Laugavegshlaupinu milli Landmannalauga og Þórsmerkur síðast- liðið sumar. Ken Monks má sjá til hægri á myndinni, með dökk sólgleraugu, til móts við stöngina. héldu sig vera að æfa fyrir aðstæð- ur sem væru svipaðar og á Lauga- veginum, þ.e. í hæðóttu landslagi. Hins vegar komust þeir félagarnir að því að hæðótt landslag táknaði eitthvað allt annað á íslandi en sú merking sem lögð var i orðið (“roll- ing hills“) i Bandaríkjunum. Á mánuðunum fyrir hlaupið afl- aði Monks sér upplýsinga um að- stæður og tilgreinir þar sérstaklega Gísla Ásgeirsson og Ágúst Þor- steinsson sem hann segir að hafi Umsjón Isak Om Sigurðsson verið sér sérlega hjálplegir. Gísli var reyndar svo vinsamlegur að bjóðast til að vera með honum og Matriccino í sveit, en eins og kunn- ugt er, þá er Laugavegurinn bæði einstaklings- og sveitakeppni. Monks komst fljótlega að því að hlaupiö var miklu erfiðara en hann hafði gert sér í hugarlund. „Strax á fyrstu mílunni gerðum við okkur grein fyrir því að það voru fjölmörg atriði í keppninni sem komu okkur á óvart. í fyrsta lagi, að landslagið var mun mishæðóttara en við gerð- um okkur í hugarlund og í öðru lagi að það var örugglega jafn fallegt og við bjuggumst við.“ Monks og Mat- riccino voru ekki í jafn góðu formi og Gísli Ásgeirsson. Gísli lauk hlaupinu á 6:15 klst., og endaði í 18. sæti keppenda. Monks og Mat- riccino voru 8:07 klst. á leiðinni og höfnuðu í 53. sæti en sveit þeirra fé- laga varð í 12. sæti af 18. Monks klykkir út með jákvæðum orðum um landið. „Þegar allt er meðtalið, þá er Laugavegurinn ánægjulegasta hlaupareynsla lífs míns og ég naut hverrar mínútu. Ég er nú gjörsamlega orðinn háður hlaupum af þessari tegund og það kæmi mér ekki á óvart, ef ég kæmi aftur til íslands að 10 árum liðnum til að bæta tíma minn á Laugavegin- um.“ Jákvæð orð af þessu tagi sem sett- ar eru á fjölsóttar heimasíður eru líklegar til að auka aðsókn erlendra hlaupara í Laugavegshlaupið. Ágúst Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Reykjavíkur maraþons segir að mikill áhugi virðist vera fyrir hlaupinu í ár, sem fram fer laugar- daginn 24. júlí. „Nú þegar hafa 25 manns frá ÍR skráð sig í hlaupið og um 20 manns frá Hreyfmgu (áður Mætti). Rúmlega 50 manns eru þeg- ar komin á lista og mun fleiri vænt- anlegir. Ég hef fengið fjölda fyrir- spuma erlendis frá. Erlendir kepp- endur voru 7 í fyrra, en verða ör- ugglega fleiri í ár. Hlaup eins og Laugavegurinn, sem teljast til „ultra maraþons", eru sérlega vin- sæl um þessar mundir. Það kæmi mér ekki á óvart þó tala þátttak- enda kæmist yfir 100 í ár,“ segir Ágúst. Hvað þýða * Fyrsta formlega Laugavegshlaup- ið á vegum Reykjavikur maraþons fór fram sumarið 1997, en þá voru þátttakendur 49 talsins. Strax á næsta ári varð umtalsverð fjölgun, 79 hlupu þessa 55 km erfíðu en fal- legu vegalengd í fyrra, þar af 7 er- lendir hlauparar. Víðavangshlaup sem þessi njóta sífellt meiri vin- sælda um allan heim. Það er trú pistlahöfundar að á næstu árum muni keppendum fjölga mjög í Laugavegshlaupinu og muni fjölg- uninn ekki hvað sist verða í hópi er- lendra þátttakenda. Á síðasta ári fóru tveir Banda- ríkjamenn í Laugavegshlaupið, Ken Monks og mágur hans, Mario Mat- riccino. Ken Monks hefur tekið þátt í fjölda almenningshlaupa í heima- landi sínu, en ekki áður farið í víða- vangshlaup af þessu tagi. Monks hefur haldið úti heimasíðu á Netinu þar sem hann greinir frá hlaupa- reynslu sinni. Hann skrifaði ítar- lega lýsingu um Laugavegshlaupið á heimasíðuna. Öll er greinin á vinsamlegri nót- unum þar sem náttúrufegurð ís- lands og vinsamlegt viðmót lands- manna er tíundað. Heimasíðu Ken Monks er auðveldast að nálgast í gegnum heimasíðu Félags maraþon- hlaupara ( http://rvik.is- mennt.is/-gisasg). Það þarf ekki að fjölyrða um hvert gildi slík auglýs- ing hefur út á við og verður eflaust til þess að fleiri erlendir gestir fá áhuga á því að taka þátt í þessu skemmtilega hlaupi. Hér á eftir er gripið niður í grein Monks um hlaupið í lauslegri þýðingu. „Á ein- angruðum hluta hins faUega heim- skautalands liggur fáfarin leið sem gengur undir heitinu Laugavegur. Þessi hlaupaleið mælist vera um 55 km að lengd og liggur um fjölbreyti- legar óbyggðir sem skarta ótrúlegri fegurð. Þann 25. júlí 1998 lagði hóp- ur 79 sálna af stað á þessari leið til að reyna þrek sitt á leiðinni. Ég naut þeirra forréttinda að vera einn af þessum 79,“ segir Monks í grein- inni. Aðstæður komu á óvart Ken Monks æfði stift fyrir þetta hlaup með mági sínum Mario Mat- riccino í heimaríki sínu, Pennsyl- vaníu. Þeir félagamir hlupu helst ekki minna en 90-100 km á viku, lengst rúmlega 40 km í einu og þeir Fjöldi stjama segir til um staðal sem við- komandi hlaup uppfyllir: (Ath.: Ef hlaup er ekki með stjömu er ekki um keppnishlaup að ræða.) *** • Mæling á stöðluðum vega- lengdum, s.s. 5 km, 10 km, hálfmaraþon og maraþon. Æskilegt undirlag malbik. Aðili frá mótshaldara sem er ábyrgur gagnvart mælingunni. • Sjúkragæsla á hlaupaleið og við endamark. • Marksvæði lokað fyrir umferð. • Brautarvarsla á hlaupaleið. • Drykkjarstöðvar á hveijum 4-5 km og viö endamark. • Tímataka. • Aldursflokkaskipting. • Verðlaun fyrir alla þátttakendur. • Aukaverðlaun, s.s. útdráttarverðlaun. ** • Sjúkragæsla við endamark. • Marksvæði lokað fyrir umferð. • Brautarvarsla á viðsjárverðum stöðum. • Drykkjarstöðvar. • Tímataka. • Aldursflokkaskipting. • Verðlaun fyrir a.m.k. þrjá fyrstu í mark í karla og kvennaflokki og e.t.v. fleiri þátttakendur. * • Sjúkragæsla við endamark. • Brautarvarsla á viðsjárverðum stöðum. • Drykkjarstöðvar. • Timataka á a.m.k. fimm fyrstu körlum og konum i mark. • Verðlaun fyrir a.m.k. þrjá fyrstu í mark í karla og kvennaflokki. Fram undan... Mars: ■ 27. Marsmaraþon (***) Hefst kl. 10:00 og 11:00 við Ægisiðu, Reykjavík (fyrri tínia- setningin er fyrir þá sem ætla | sér að vera yfír 4:15 tíma að | hlaupa vegalengdina). Vega- lengd: maraþon með tímatöku. Ailir sem ljúka keppni fá verð- launapening. Paraboðhlaup þar | sem hvor aðili fyrir sig (verður að vera kona og karl) hleypur hálfmaraþon. Upplýsingar Pét- í ur I. Frantzson í sima 551 4096 og símboða 846 1756. Apríl: 3. Flóahlaup UMF Samhygðar (**) Hefst kl. 14:00 við Félagslund, Gaulverjabæjarhreppi. Vega- lengdir: 3 km, 5 km og 10 km með tímatöku. Flokkaskipting, bæði kyn: 14 ára og yngri (3 km), konur 39 ára og yngri, 40 íj ára og eldri (5 km), opinn flokk- ur kvenna (10 km), karlar 39 1 ára og yngri, 40-49 ára, 50 ára og eldri (10 km), opinn flokkur karla (5 km). Verðlaun fyrir | þrjá fyrstu í hverjum flokki. | Upplýsingar veitir Markús 1 ívarsson í síma 486 3318. | 22. Víðavangshlaup ÍR og Elkó (***) Hefst kl. 13:00 við Ráðhús Reykjavíkur. Vegalengd: 5 km ; með tímatöku. Flokkaskipting, bæði kyn: 12 ára og yngri, 13-15 Iára, 16-18 ára, 19-39 ára, 40-49 ára, 50-59 ára, 60 ára og eldri. Keppnisflokkar í sveitakeppni eru íþróttafélög, skokkklúbbar og opinn flokkur. Allir sem ljúka keppni fá verðlaunapen- ing. Verðlaun fyrir 1. sæti í hverjum aldursflokki. Boðið verður upp á kaðlhlaðborð eftir hlaup. Skráning í Ráðhúsinu frá kl. 11:00. Upplýsingar Kjart- 1 an Árnason í síma 587 2361 og 1 Gunnar Páll Jóakimsson í síma j 565 6228. 22. Víðavangshlaup Hafnarfjarðar (**) Hefst kl. 13:00 á Víðistaðatúni í Hafnarfirði. Vegalengdir: 1 í km, 1,4 km og 2 km með tíma- töku og flokkaskiptingu bæði j kyn: 5 ára og yngri (200 m), 6-7 ára (300 m), 8-9 ára (400 m), 10-12 ára (1 km), 13-14 ára (1,4 km), 15-18 ára, 19-29 ára, konur jí 30 ára og eldri, karlar 30-39 ára, | 40 ára og eldri (2 km). Sigurveg- ari í hverjum flokki fær farand- bikar. Upplýsingar: Sigurður ; Haraldsson í síma 565 1114. 22.Víðavangshlaup Vöku (* *) Upplýsingar: Fanney Ólafs- dóttir í síma 486 3317. 22. Víðavangshlaup Skeiðamanna (*) Upplýsingar: Valgerður Auð- unsdóttir í síma 486 5530. 24. ísfuglshlaup UMFA (**) Hefst við íþróttahúsið að Varmá, Mosfellsbæ. Skráning | og búningsaðstaða við sundlaug | Varmár frá kl. 11:30. Vegalengd- ir: 3 km án tímatöku, hefst kl. 13:00 og 8 km með tímatöku og 5 sveitakeppni hefst kl. 12:45. Sveitakeppni: Opinn flokkur 3 eða 5 i hverri sveit. Allir sem ljúka keppni fá verðlaunapen- ing. Útdráttarverðlaun. Upplýs- ingar: Kristin Egilsdóttir í síma | 566 7261. Maí: 1.1. maíhaup UFA (**) Hefst kl. 13:00 við Sportver. Vegalengdir: 4 km og 10 km með timatöku og flokkaskipt- ingu bæði kyn: 6 ára og yngri (1 km), 7-9 ára, 10-12 ára, 13-14 ára, 15-16 ára (2 km), 17-39 ára, | 40 ára og eldri (4 km eða 10 km). Verðlaun fyrir þrjá fyrstu í öll- um flokkum og allir sem ljúka keppni fá verðlaunapening. Út- dráttarverðlaun. Skólakeppni. Upplýsingar UFA, pósthólf 385, 602 Ákureyri. Tilkynning Hagstofu íslands um verðtryggingu húsaleigu Hagstofa íslands Með lögum nr. 168/1998 eru lög um húsaleigu sem fylgir breytingum vísitölu húsnæðiskostnaðar nr. 62/1984, felld úr gildi 1. apríl nk. Hagstofa íslands hefur því hætt að reikna og birta svonefnda verðbótahækkun húsaleigu og gilti síðasta tilkynning hennar fyrir tímabilið janúar/mars 1999. Hagstofan vill vekja athygli á því að ekki er lengur unnt að nota áðumefnda verðbótahækkun til að verðtryggja húsaleigu. Þess háttar ákvæði skal því ekki taka upp í nýja húsaleigu-samninga. Leigusalar og leigutakar sem hafa slík ákvæði í leigusamningum sínum verða nú að semja að nýju um hvað skuli leysa þau af hólmi ffá 1. apríl nk. Nánari upplýsingar er að finna í fréttatilkynningu Hagstofunnar frá 11. mars 1998 og á heimasíðu Hagstofunnar http://www.hagstofa.is. Upplýsingar eru einnig veittar á Hagstofunni í símum 560 9831, 560 9832 og 560 9834 eða á netfangi: rosmundur.gudnason@hagstofa.is rosmundur.gudnason@hagstofa.is. Reykjavík, 11. mars 1999 Hagstofa íslands

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.