Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1999, Síða 60

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1999, Síða 60
''W.^ Sjálfstæðismenn af öllu landinu sitja nú landsfund í Laugardalshöll. Ekki er mikið um átök á fundinum, enda ríkir víðtæk sátt um Davíð Oddsson formann. Helst má merkja titring vegna varafor- mannskjörs þar sem Geir Haarde og Sólveig Pétursdóttir takast á. Hér sitja ráðherrar flokksins fyrir svörum. Frá vinstri: Geir Haarde, Þorsteinn Pálsson, Halldór Blöndal, Björn Bjarnason og Davíð Oddsson. DV-mynd Hilmar Þór Landsfundur: Heimdallur hnykkir á Heimdallur, félag ungra sjálf- stæðismanna, er síður en svo sam- mála ályktunartillögum sem liggja fyrir landsfundi flokksins. Þetta má sjá af þeim breytingartillögum sem ungliðamir hafa lagt fram. í ályktunartillögu um fjölskyldu- mál er hvatt til stórátaks stjórn- valda til að stöðva innflutning á vímuefnum. Heimdaflur leggur til að þessi grein verði felld á brott. í greinargerð segir að átak í stöðvun innflutnings hækki verð vímuefna. Hærra verð hvetji til aukins fram- hoðs að utan og þar með myndist vítahringur sem ómögulegt sé að skera á. Þá telur Heimdallur frá- leitt að herða löggæslu og refsingar við fikniefnabrotum. Sjá nánar á bls. 4. -SÁ Fjölskylduharmleikur vegna bílavinnings í skafmiðahappdrætti: Ristir djúp sár - segir Mogens Löve Markússon sem fékk dæmdan helming í bíl MERKILEGA MERKIVELIN brother PT-550 ný vél tengjanleg við tölvu 8 leturgerðir, 8 stærðir, 15 leturútlit úrval strikamerkja 6 til 36 mm borðar prentar í 7 línur Nýbýlavegi 28 Slmi 554 4443 Veffanq: www.if.is/rafport Sanpellegrino „Þetta hefur skapað mikla misklíð í fjölskyldunni og rist djúp sár sem seint gróa,“ sagði Mogens Löve Mark- ússon, verslunarmaður í reiðhjóla- verslun Fálkans, eftir að hann vann mál gegn svila sínum í Héraðsdómi vegna skafmiðavinnings. Málavextir voru þeir að Mogens Löve og Elías Rúnar Reynisson ákváðu að halda sameiginlega upp á fertugsafmæli sín 11. apríl siðastlið- inn. Mogens og Elías eru svilar en Dagbjört Þorsteinsdóttir, eiginkona Mogens, og Rúna Þorsteinsdóttir, sambýliskona Elíasar, eru systur. Tóku svilamir veislusal Flugleiða við Síðumúla á leigu vegna fagnaðarins og komu sér saman um sameiginleg innkaup vegna veislunnar. í þeim til- gangi var haldið í Bónus í Holtagörð- um og keypt veislufóng fyrir 11.752 krónur. í innkaupakörfunni voru meðal annars tvær kippur af kóki og var farið með vaminginn upp í Síðu- múla þar sem halda átti veisluna. Elí- as tók að sér að skera plastið utan af kókkippunum og komu þá í Ijós tveir skafmiðar. Elías gaf Láru Björk, dóttur sinni, annan miðann en hinn fékk Brynjólfur, sonur Mogens. Brynjólfur skóf fyrst og vann lítið leikfang. En þegar Lára Björk hafði skafið af sínum miða kom í jljós að hún hafði unnið bifreið, Mitshubishi Carisma sem kostar hálfa aðra millj- ón. Varð uppi fótur og fit og mikill fógnuður í eldhúsinu í Síðumúla og segir fátt meira af því. Sameiginlegt fertugsafmæli svilanna var haldið á tilsettum tíma og friður var með öll- um. Eftir afmælisveisluna fóm Mogens og eiginkona hans að gera kröfu til helmings vinningsins enda höfðu Eli- as og frú hans sótt glæsibifreiðina og óku nú um bæinn alsæl með dóttur- ina í aftursætinu. í upphafi taldi Elías ekki fráleitt að vinningnum yrði skipt en neitaði siðar alfarið að sinna ósk- um svila síns. Seldi hann bílinn á 1200 þúsund og keypti sér annan ódýrari. Mismuninn lagði hann inn á tékka- Mitsubishi Carisma GLX, skafmiðavinningur sem sundraði fjölskyldu. reikning sinn og eyddi. Varð Mogens þá að orði: „Nú reynir á vinskapinn, svili." Málið endaði fyrir dómstólum og í gær var dómur upp kveðinn. Elí- asi ber að greiða Mogens helming af andvirði vinningsins, eða 782.500 krónur með dráttarvöxtum. „Þetta er fjölskylduharmleikur; fólk er alveg hætt að talast við,“ sagði Mogens eftir dómsuppkvaðninguna og bíður nú eftir því að Elías, svili hans, reiði fram féð. Elías er hins vegar bú- inn að eyða því. -EIR Upplýslngar frá Ve&uratofu íslands Sunnudagur Mánudagur Veðriö á morgun: Hægviðri víðast hvar Veðrið á mánudag: Él norðan til A morgun, sunnudag, verður allhvöss norðanátt og snjókoma eða él á A mánudag verður norðan- og norðvestankaldi, él noröan til en skýjað Vesturlandi en annars hægviðri og skýjað með köflum. Vægt frost verð- með köflum og úrkomulítið sunnanlands. Frost verður á bilinu 0 til 6 ur víðast hvar en hiti nálægt frostmarki allra austast. stig. Veðrið í dag er á bls. 65. 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.