Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1999, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1999, Side 2
2 FIMMTUDAGUR 18. MARS 1999 Fréttir 9 ára drengur úr Fellaskóla kominn úr sjaldgæfri krabbameinsaðgerð í Lundi í Svíþjóð: Læknar fjarlægðu 20 cm æxli úr Hirti Snæ - hné og nær allur lærleggurinn fjarlægður - fótleggur græddur við nára Hjörtur Snær Friðriksson, 9 ára nemandi í Fellaskóla í Breiðholti, gekkst á þriðjudag undir sjaldgæfa 7 klukkustunda aðgerð á Háskóla- sjúkrahúsinu í Lundi í Svíþjóð, þar sem lærleggur og hné var fjarlægt af vinstra fæti, þar sem hann hefúr ver- ið með æxli frá því á siðasta ári. Það sem eftir var af fætinum fyrir neðan hné var grætt við beinendann sem eft- ir var við nárann. Þannig snýr hæll- inn fram og mun í raun nýtast sem hné. DV náði sambandi við Guðlaugu Magnúsdóttur, móður drengsins, í gær. „Hjörtur Snær var að koma af gjör- gæsludeildinni. Að- gerðin gekk rosalega vel. Alla vega segjast sænsku læknamir mjög bjartsýnir á að hann geti gengið í framtíðinni með því að fá gervifót. Ég er mjög ánægð. Hjörtur Snær hrýtur núna í rúminu héma við hliðina á mér,“ sagði Guðlaug. Sáum hann ekki fyrr en um kvöldið Móðirin sagði að áður en Hjörtur Snær fór utan til Svíþjóðar hefði komið á daginn að æxlið hefði verið mun stærra en talið hefði verið i fyrstu - um 20 sentimetra langt, um og fyrir ofan hné. Engu að síður binda læknar hér heima sem ytra vonir við að drengurinn geti gengið með gervifót í framtíðinni og hann losni við krabbameinið. Nú hefur leggurinn verið grædd- ur við nárann og honum snúið við þannig að hællinn virkar í raun sem hné. Þetta mun gera drengnum auðveldara fyrir gagnvart gervifæti. „Læknarnir segja að þetta komi til með að gróa. Æxlið er alveg far- ið,“ sagði Guðlaug. „Drengurinn kemur alla vega til með að geta gengið á báðum fótum. Ef þessi að- ferð væri ekki komin í dag yrði hann bara með annan fótinn. Tækn- in hjá Svíunum hefur gengið rosa- lega vel,“ sagði móðirin, sem er með systur sinni Geirffíði á sjúkrahús- inu í Lundi: „Þetta var löng aðgerð. Við systurn- ar sáum Hjört Snæ síðast á þriðjudag klukkan hálf tólf. Síðan fengum við ekki að sjá hann fyrr en allt var búið, Guðlaug Magnúsdóttir með Hirti Snæ á Landspítalanum í janúar. Sænskir læknar í Lundi hafa hrifist af því hve íslenski drengurinn úr Breiðholtinu er hress, jafnt líkamlega sem andlega. DV-mynd Pjetur klukkan háif sjö um kvöldið. Lækn- amir hafa hælt drengnum og segja að svörun gagnvart taugunum gangi mjög vel. Þeim fmnst hann líka mjög duglegur. Allt hjúkrunarfólkið héma í Svíþjóð er reyndar stórkostlegt. Það gerir allt eins og ekkert sé, um leið og heðið er um eitthvað. Síðan er tals- vert af íslenskum læknum héma líka. Aðstæðumar hér em mjög góðar,“ sagði móðirin. Heim á Landspítalann eftir 10-13 daga Guðlaug er væntanleg með dreng- inn aftur heim á bamadeild Land- spítalans eftir 10-13 daga. „Ég bið rosalega vel að heilsa öil- um landsmönnum heima sem hafa stutt okkur og líka vinum og ættingj- um. Við biðjum líka fyrir sérstakar kveðjur til aUra heima á Landspítal- anum - það gengur allt mjög vel. DV ræddi við Gillian Holt, hjúkr- unarkonu á bamadeild Landspítal- ans, þegar þær fréttir lágu fyrir í gær að aðgerðin á Hirti Snæ hefði heppn- ast vel. „Við erum mjög ánægð að heyra þetta og hlökkum mikið til að sjá drenginn aftur. Ég get bara sagt að hjarta mitt gleðst yfir þessum fregn- um,“ sagði Gillian. -ótt Hafnarfj aröarhöfn: Þungt haldinn á gjörgæslu Gasleki varð í portúgalska frysti- togaranum Santa Cristina í Hafnar- fjarðarhöfn í gær. íslendingar unnu við löndun ásamt portúgölskum sjó- mönnum þegar óhappið varð. Skip- verjar urðu varir við einkennilega lykt og fóra að grennslast fyrir um félaga sina og fannst einn þeirra, portúgalskur rikisborgari, meðvit- undarlaus um borð. Var hann flutt- ur á gjörgæsludeild Sjúkrahúss Reykjavíkur ásamt öðrum skip- verja. Líkur era á að frystileiðsla hafa farið í sundur og gasið lekið úr henni. Skipinu var lokað í gær- kvöldi þar sem enn var mikið gas í því og var áætlað að hefja rannsókn á tildrögum óhappsins í morgun. Að sögn vakthafandi læknis á gjör- gæsludeild Sjúkrahúss Reykjavíkur í morgun er maðurirm enn í öndun- arvél og í lifshættu. -hb Portúgalinn fluttur frá borði í Hafnarfjarðarhöfn í gær. DV-mynd S Tilkynnt um eld úr flugvél Flugmaður er var á flugi í vél sinni yfir Selfossbæ fyrr í vikunni tilkynnti til neyðarlínunnar, 112, að eldur væri laus í sveitabæ vest- an við Eyrarbakkaveg. Starfsmenn neyðarlinunnar kölluðu þegar út slökkvilið Branavama Ámessýslu og lögreglu á svæðinu. Nánast allt lið slökkviliðsins lagði af stað f út- kallið en var fljótlega kallað heim aftur. Lögreglan, sem kom íyrst á staðinn, komst að því að um var að ræða eld í olíufati sem bóndinn á bænum Stekk- um í Sandvíkurhreppi var að brenna. „Það er afar slæmt þegar menn taka upp á þessum vinnubrögðum að kveikja elda án þess að tilkynna gjöminginn áður til réttra aðila,“ sagði Kristján Einarsson, slökkviliðs- stjóri Brunavama Ámessýslu. „Það má reyndar ekki kveikja elda af nokkra tagi nema með leyfi yfir- valda. í þessu tilfelli sá flugmaðurinn mikið bál og ályktaði að um eld í húsi væri að ræða, enda stóð fatið ekki langt frá einu húsinu á bænum. Með tilkomu farsimanna efldist nágranna- varslan og nú koma margar hringing- ar til vaktaðila þegar eldur sést laus. Þetta er hið besta mál en við gerum þá kröfu að fólk fái tilskilin leyfi áður en tendrað er á eldspýtunni. Þá vitum við af þessu og þurftun ekki að leggja í óþarfa kostnað vegna útkalls," sagði Kristján slökkviliðsstjóri. Stuttar fréttir dv Páll í hjartaaðgerð Páll Pétursson fé- lagsmálaráðherra verður frá störfum næstu vikumar þar sem hann þarf að fara í hjartaaðgerð. Til stóð að ráðherr- ann færi í kransæðablástur, en við nánari skoðun töldu læknar öraggara að hann færi í aðgerð. Dagur sagði frá. Uppsagnir í rækjunni Stjórn Fiskiðjusamlags Húsavíkur hf. ætlar að grípa til aðhaldsaðgerða í rekstri félagsins. Rækjuvinnsla á Kópaskeri verður stöðvuð og dregið mjög úr vinnslu á Húsavík og að auki verður nýlegur frystitogari fyrirtæk- isins, Húsvíkmgur ÞH 1, seldur. Ungliðar Samfylkingar Fyrsta félag ungra stuðnmgs- manna Samfylkingarinnar var stofnað með formlegum hætti í gær- kvöld, en það voru ungliðar í Norð- urlandskjördæmi vestra sem riðu á vaðið á stofhfundi á Sauðárkróki. Dagur sagði frá. Snjóflóðahætta Veðurstofa íslands ákvað í gær, að höfðu samráði við almanna- vamanefhd Bolungarvíkur, að rýma hús á tveimur svæðum í bænum vegna snjóflóðahættu. Það eru svo- kallaðir reitir A og E sem vom rýmdir. Þar eru alls átta hús, og í þeim búa 29 manns. Opið út í eitt Dómsmálaráðherra undirritaði í gær nýja reglugerð um hvenær vm- veitmgahús í Reykjavík mega hafa opið. Reglugerðin kveður á um að veitingahús á miðborgarsvæðinu og í hverfúm þar sem ekki er íbúðarbyggð geta haft opið frá fósmdagsrnorgni til sunnudagskvölds án þess að loka. Enginn skaði Margrét Frí- mannsdóttir, tals- maður Samíyiking- arinnar, segir við Dag að deilur um Sigbjöm Gunnars- son í efsta sæti lista Samfylkmgar á Norðurlandi eystra hafi ekki skaðað fylkmguna. Kjördæmisráðið og heimamenn verði sjálfir að leysa úr deilumálunum. Minna fylgi Samkvæmt nýrri könnun Gallups vilja nú aðeins 47% þátttakenda að Framsóknarflokkur og Sjálfstæðis- flokkur myndi ríkisstjóm eftir alþmg- iskosnmgamar í vor. Það er um 10% færri en í síðustu Gallupkönnun. Fjalla um gagnagrunninn Norræna læknaráðið hefur skrif- að alþjóðasamtökum lækna WMA og farið fram á formlegt álit samtak- anna á lögunum um miðlægan gagnagrunn á heilbrigðissviði. Fjall- að verður um málið á fundi stjómar WMA í næsta mánuði, að því er fram kemur í fréttatilkynnmgu frá Læknafélagi íslands. Lausir úr haldi Lögreglan hefur sleppt úr haldi tveimur mönnum sem kærðir hafa verið fyrir að ráðast á og misþyrma tæplega fimmtugum manni á heim- ili hans við Móabarð í Hafnarfirði aðfaranótt sunnudags. Dýr landkynning Um 415 milljóna viðbótarframlag verður veitt til markaðssetningar íslands á erlendum vettvangi næstu 4 árm. Viðbótarfram- lög til aukinna rannsókna og stórauknar samgöng- ur við Færeyjar eru meðal þess sem Halldór Blöndal tilkynnti um á fyrsta aðalfundi Samtaka ferðaþjón- ustunnar (SAF). Dagur sagði frá. Vélin ofhlaðin Rannsóknarnefnd flugslysa gerði margar og alvarlegar at- hugasemdir i nýrri skýrslu vegna flugslyss sem varð á Bakkaflug- velli í Landeyjum hinn 13. sept- ember sl. Vélin var ofhlaðin og allur undirbúningur og vinnu- brögð við flugið óvönduð. Morg- unblaðið sagði frá. -SÁ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.