Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1999, Síða 4
4
FIMMTUDAGUR 18. MARS 1999
Fréttir
Uppbótarkvóti sem veittur var aðkrepptum útgerðum á Bíldudal leigður burt:
Milljónir fyrir ríkiskvóta
- eins gott að senda þeim ávísun, segir verkalýðsfélagsformaður
Frá Bíldudal þar sem útgerðir dafna vel af sölu ríkiskvóta. Uppbótarkvótinn hefur gefið einstökum útgerðum allt að
milljón krónur.
Mikil óánægja er meðal Bílddæl-
inga vegna uppbótarkvóta trá Jöfiiun-
arsjóði sem úthlutað var á nokkra
báta á staðnum í upphafi fiskveiðiárs-
ins. Kvótanum var úthlutað á skip
undir 250 tonnum, en upphaflega hug-
myndafræðin að baki kvótanum var
sú að hann kæmi einnig til góða
byggðarlögum. Flestar útgerðimar á
staðnum höíðu þann hátt á að leigja
kvótann fyrir 95 tillOO krónur kílóið.
Þannig högnuðust eigendur bátanna á
ríkiskvótanum um allt að rúmlega
milljón krónur hver án þess að skila
svo mikið sem ugga á land til vinnslu.
Listi með nöfnum 6 báta sem leigt
hafa frá sér kvóta sinn gengur manna
á milli í héraði, þar sem reiknað er út
hversu mikið útgerðimar hafi hagn-
ast á kvótasölunni. Tilgreint er að
þrír bátar hafi fengið milljón krónur
hver fyrir þau 10 tonn sem þeim var
úthlutað af þorski undir merkjum
byggðastefnu og uppbóta. Aðrir þrír
hafi fengið á bilinu 500 þúsund til 750
þúsund krónur fyrir sín tonn. Allir
þessir bátar eiga sammerkt að hafa
leigt burt kvóta og þannig hagnast um
verulegar fjárhæðir. Rétt er að taka
fram að fleiri Bíldudalsbátar fengu
Jöfnunarsjóðskvóta sem þeir hafa
veitt upp í.
„Það er alveg eins gott að senda
mönnum ávísun í pósti eins og að
vera að úthluta þessum kvóta,“ segir
Haukur Már Kristinsson, formaður
Verkalýðsfélagsins Vamar á Bíldudal,
aðspm-ður hvort verkalýðsfélagið
hefði ekkert að athuga við það að út-
gerðir sætu einar að kvótanum sem
ætlaður var til að rétta hlut bág-
staddra. Hann segir mikið leigt af
kvóta til Bíldudals og þeir sjómenn
sem leggja þurfi út háar fjárhæðir í
því skyni séu reiðir.
„Þessi útfærsla á byggðakvótanum
er handónýt og þjónar engum til-
gangi,“ segir Haukur Már.
Hann segir að vísu aö sumir þeirra
báta sem fái þorskkvóta undir þessum
formerkjum veiði skiljanlega ekki
upp í hann.
„Þama er um að ræða rækjubáta
sem eðlilega skipta ekki um veiðar-
færi til að veiða þennan þorsk. Það
liggur beinast við að leigja burt kvót-
ann. Þá er ástandið ekki bundið við
Bildudal einan heldur er þetta svona
um allt land,“ segir hann.
Alls nemur umræddur ríkiskvóti 5
þúsund tonnum og er honum dreift
um landið. Lög um þennan kvóta
vom sett á sínum tíma til að tryggja
að atvinna héldist í byggðarlögum
sem ættu erfitt vegna kvótasamdrátt-
ar. Kvótinn, sem reyndar kallast Jöfn-
imarsjóðskvóti, varð m.a. á sínum
tíma til að tryggja stuðning þeirra
þingmanna sem ekki vildu samþykkja
kvótakerfið án þess að þessi vamagli
væri til staðar. Sjómenn sem DV
ræddi við lýstu málinu sem siðleysi
og hneyksli.
DV óskaði í síðustu viku eftir upp-
lýsingum frá Fiskistofú um viðskipti
umræddra báta á Kvótaþingi. Gísli
Rúnar Gíslason, lögfræðingur Fiski-
stofú, treysti sér þá ekki til að veita
upplýsingamar að svo stöddu. Því
boðsendi DV Fiskistofu bréf með ósk
um upplýsingamar með vísan til upp-
lýsingalaga. Fiskistofa svaraði síðan
spumingum DV, þar sem upplýst er
að Amfirðingur BA, sem fékk 10
tonna þorskkvóta frá ríkinu hefði
leigt frá sér 55 tonn af þorski á kvóta-
árinu fyrir 92 til 104 krónur kílóið. Á
móti leigði báturinn til sin 26 tonn af
þorski á tæplega 96 krónur. Brynjar
BA leigði frá sér rúmlega 30 tonn af
þorski fyrir 93-103 krónur kílóið en
ekkert tÚ sín. Veltan í þeim viðskipt-
um er langt á þriðju milljón króna.
Driffell BA leigði frá sér 6,2 tonn af
þorski fyrir 87 krónur kílóið en ekk-
ert til sín. Jörundur Bjarnason BA
leigði frá sér 7 tonn af þorski fyrir
tæplega 105 krónur kílóið. Pétur Þór
BA leigði frá sér rúmlega 36 tonn af
þorski á rúmlega 100 krónur kílóið.
Pflot BA leigði frá sér 44 tonn af
þorski fyrir 93-95 krónur hvert kíló
eða sem samsvarar hagnaði upp á 4,1
milljón króna.
Sjómannasamband íslands sendi
Fiskistofu bréf í ársbyrjun þar sem
farið var fram á að upplýsingar af
þessu tagi yrðu gefnar, en hafa enn
ekki fengið svar. Þá hafa útgerðar-
menn einnig krafist þess sama.
-rt
Ríkiskvóti til sölu
10.000 kg
*Miöaö er w'ð að verö á kg. þorskkvóta sé ÍOO krónur
Bönnum erótíkina
Fjölgun erótískra
dansstaða í Reykjavík
veldur stjórnvöldum
áhyggjum. Málið hefur
verið rætt meðal borg-
arstjóra og ráðuneyta.
Raunar hafði engin
tekið eftir þessari fjölg-
un nema blessaðir
ráðamennimir, sem
vaka og sofa yfir hags-
munum okkar og
heilsu. Svo ekki sé nú
talað um erótíkina.
Borgarstjóri og ráð-
herra geta bókstaflega
ekki sofið af áhyggjum
vegna fjölgunar eró-
tísku veitingastaðanna
og allri erótíkinni sem
fylgir þeim. íslending-
ar mega éta meira, þeir
mega ferðast meira,
þeir mega kaupa
meira, en þegar kernur
að ástarlífi og kynferðislega varhugaverðri lík-
amsstarfsemi, er mælirinn fúllur.
Auðvitað getað ábyrg stjómvöld ekki setið hjá
þegar kynmök eru örvuð og reknir eru sérstakir
staðir í Reykjavík, þar sem fram fer erótík, sem
er meiri en búið er að samþykkja og leyfa.
Þessa óheillaþróun verður að stöðva, og hafa
eftirlit með „hvort þessir staðir séu starfræktir,
hvar, hver fjöldi þeirra sé og fyrirkomulag starf-
seminnar vegna heildarásýndar borgarinnar“,
eins og segir i fréttatilkynningu borgarrráðs.
Skítt veri með einn og einn þótt hann falli fyrir
erótíknni. En það er heildarásýndin sem skiptir
máli, það setur blett á borgina og þjóðina og land-
ið ef of margir verða erótískir á veitingastöðun-
um. Borgin getur ekki leyft það.
Hún verður að hafa eftirlitsmenn á hverjum
stað, sem fylgist með því að erótíkin sé í hófi og
eftirlitsmennimir verða að hafa vald til að reka
þá út af þessum stöðum, sem eru orðnir of eró-
tískir. Eftirlitsmennimir verða að hafa með sér
hitamæla til að mæla erótíkina til að vernda
heildarásýnd borgarinnar og fjarlægja þá sem
skemma heildarásýndina.
Siðferði borgarinnar og stjómvalda er í veði.
Ef erótíkin heldur áfram að flæða yfir og almenn-
ingur sækir þessa staði og stúlkunum fiölgar sem
dansa nektardansa í erótískum stellingum, verða
siðgæðisverðir heildarásýndarinnar að gripa í
taumana. Fólk getur ekki leyft sér allt. Það verð-
ur að hafa vit fyrir því og hamla gegn erótík, sem
setur blett á þá heildarásýnd Reykjvíkurborgar,
þar sem allt er með felldu á yfirborðinu.
í raun og veru ættu borgarstjóri og ráðherrar í
framhaldinu að setja reglugerð um samfarir í
heimahúsum og hafa eftirlit með getnuðum, sem
allir eiga sér uppmna í erótískum stellingum
manns og konu, sem hlýtur að setja blett á heild-
arásýnd borgarinnar.
Það em takmörk fyrir því hvað fólk má og það
er borgarstjómar að halda uppi röð og reglu á
veitingastöðum sem kunna að stuðla að erótísku
háttemi, sem setur blett á ásýnd borgarinnar,
sem setur blett á borgarstjóm, sem setur blett á
hið flekklausa samfélag.
Dagfari
Stuttar fréttir r>v
Gómaður
Karlmaður um þritugt var í gær
handtekinn vegna gruns um að hafa
ásamt félaga sínum misþyrmt tæp-
lega fimmtugum manni aðfaranótt
sunnudags, þvingað manninn til að
afsala sér bfl sínum og numið hann
á brott frá heimili hans.
Enginn handbolti
Ríkissjónvarpið
mun ekki sýna
neina leiki frá yfir-
standandi heims-
bikarmóti í hand-
knattleik í Sviþjóð
og er skýringa að
leita í miklum
kostnaði, að sögn Ingólfs Hannesson-
ar, forstöðumanns iþróttadeildar
Sjónvarpsins við Netfréttir Morgun-
blaðsins.
Lögfræðingar til Kína
Lögfræðingafélag íslands efhir til
hópferðar til Kina 19. apríl til að
kynnast kinverskum dómsmálum
og kínverska dómskerfmu. Hópur-
inn mun 21. apríl heimsækja dóms-
málaráðuneytið, þingið og hæstarétt
landsins og snæða kvöldverð í boði
félags kinverska lögfræðingafélags-
ins. Vísir.is sagði frá.
Meira borað
Borgarráð hefur samþykkt að
semja við Jarðboranir hf. um borun
tveggja háhitahola árið 1999 á Nesja-
völlum fyrir 237,2 milljónir. Morgun-
blaðið sagði frá.
Ferðamönnum fjölgar
Erlendum ferðamönnum á ís-
landi, ekki síst breskum, Qölgaði um
2.800, eða um 31%, í febrúar frá
sama mánuði í fyrra en alls komu
11.659 ferðamenn til landsins í þeim
mánuði. Morgunblaðið sagði frá.
Ný heimasíða
Framsóknar-
flokkurinn á
Vesturlandi hefur
opnað heimasíðu.
Á síðunni gefur
að lita upplýsing-
ar um frambjóð-
endur Framsókn-
arflokksins á Vesturlandi auk
annars. í efsta sæti listans í kjör-
dæminu er Ingibjörg Pálmadóttir
heflbrigðisráðherra.
Urðu að flýja
Hópur íslendinga, sem staddur er á
Alþjóðlegu sjávarútvegssýningunni í
Boston, varð að yfirgefa hótel sitt með
hraði um miðjan dag í fyrradag þegar
eldur kom upp í þvottahúsi í kjallara
þess. Moigunblaðið sagði frá.
Margir vinna í Reykjavík
Akumesingum sem sækja vinnu
á höfuðborgarsvæðið hefur fiölgað
úr 1% af vinnuafli í bænum eða um
20 manns í 8% af vinnuaflinu (u.þ.b.
180 manns) frá þvi í október 1997.
Morgunblaðið sagði frá.
Gasleki í togara
Gasleka varð vart í portúgölskum
togara í Hafnarfiarðarhöfn í gær. ís-
ienskir löndunarmenn, sem voru að
landa úr togaranum, sluppu við eitr-
un heilir á húfi en portúgalskur skip-
veiji, sem andaði að sér gasinu í lok-
uðu rými, var fluttur á slysadefld i al-
varlegu ástandi. Vísir.is sagði ffá.
Krani féll
Byggingakrani féll niður á gang-
stétt við Vesturbæjarskólann í
Reykjavík í hádeginu í gær. Kran-
inn var mannlaus og sömuleiðis
gangstéttin. Enginn slasaðist. Frétta-
vefur Morgunblaðsins sagði frá.
Karlar langlífir
ísland er í 10.-11. sæti í heiminum
hvað varðar lifslikur kvenna og í
fiórða sæti hvað lífslíkur karla
áhrærir, að því er fram kemur í ný-
útkominni mannfræðiárbók Sam-
einuðu þjóðanna fyrir árið 1997.
Nýr formaður
Halldór Sævar
Guðbergsson var
kosinn formaður
Blindrafélagsins á
aðalfundi þess
þann 13. mars.
Halldór tekur við
starfmu af Helga
Hjörvar borgar-
fufltrúa, sem gaf ekki kost á sér tfl
endurkjörs. -SÁ