Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1999, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1999, Blaðsíða 11
FIMMTUDAGUR 18. MARS 1999 lennmg 11 S p e s s i á fullum tanki „Hvemig á að mynda þig fyrir þetta spjall?“ spyr um- sjónarmaður Spessa ljós- myndara þar sem hann stendur, eilítið svefdrakkinn að sjá, og horfir yfir myndir sínar af íslenskum bensín- stöðvmn sem verið er að hengja upp að Kjarvalsstöð- um. „Svona,“ segir Spessi og stillir sér upp eins og mynda- stytta og horfir þráðbeint fram fyrir sig. Alveg óvart eru þær líka svona, bensín- stöðvamar sem hann hefur verið að mynda á ferðum sín- um um landið; ótilhafðar, framsæjar, grafkyrrar, syfju- legar, jafavel eilítið um- komulausar að sjá. En af hverju bensínstöðv- ar? „Sko, ég var að keyra um í Þýskalandi og var dálítið að stúdera bensínstöðvamar þar. Þá skynjaði ég hve bens- ínstöðvarnar heima eru skemmtilega „íslenskar". Fyrir utan það hvað mér finnast þær fallegar. Það er allt annað að sjá þær en stöðvamar í Þýskalandi. Bensinstöðvarnar á íslandi eru einhvern veginn óhannaðar, þær virðast vaxa eins og af sjálfu sér og síðan er ekkert verið að flikka neitt mikið upp á þær. Þær fá að drabbast niður í friði. Þannig varðveita þær stundum i sér 30 ára sögu íslands. Það fannst mér spennandi, að geta sýnt þessa sögu í einni ljósmynd." En hvers vegna þessi mörgu tilbrigöi um stefið? „Finnst þér myndimar of margar?“ svarar Spessi. Og er verulega áhyggjufullur á svipinn. „Ég tók raunar einar 200 myndir af bensínstöðvum. Mig langaði að kort- leggja þær gjörvallar, rétt eins og Kári Stef- ánsson er að kortleggja genin. Það var konseptið. Ég hefði ekki getað gert það sama úti í Þýskalandi. Svo valdi ég úr þess- ar 30-40 sem við sjáum hér. Það gefur auga leið að ein eða tvær myndir hefðu ekki haft sömu áhrif. Þetta er eins og í músikinni; það þarf fleiri en tvær eða þrjár nótur til að tónverk gangi upp.“ Spessi: „Vil sýna þrjátíu ár í einni Ijósmynd!" Jafnt á nóttu sem degi Nú er Spessi þekktastur fyrir svart/hvitar ljósmyndir sínar. Hvers vegna fór hann að mynda þessar bensínstöðvar í litum? „Mér fannst það bara hæfa þeim. Svart/hvita ljósmyndin er orðin svo klassísk; hún upphefúr öll viðfangsefin og gerir þau tímalaus. Þú veist að virðulegustu manna- myndimar era alltaf svart/hvítar. Litljósmynd- in staðsetur mótifin kyrfilega i tíma, hún segir að svona hafi þessi bensindæla litið út, akkúrat á hádegi þennan ákveðna dag í ágúst 1998. Ég myndaði þær nákvæmlega eins og ég rakst á þær, jafnt í rigningu sem sól, á nóttu sem degi. Það er lóðið. Það var útlit þeirra á tilteknu augnabliki sem ég var að dókúmentera og ekk- ert annað.“ „Nú talar þú um dókumentasjón, en ert að fara að sýna á listasafni," segir umsjónarmað- ur. „Hverju mundirðu svara þeim sem spyrja þig um hið „listræna" í ljósmyndum þínum?“ „Fólk heldur einhvern veginn að ljósmynd DV-mynd Einar Ól. sé ekki listræn - „artí“ - fyrr en búið er að taka hana út úr fókus, láta trukk keyra yfir hana eða hræra í henni með einhverjum öðrum hætti. Mér finnst að hið listræna, hvað sem það nú er, búi í dókúmentasjóninni. Það er sterkasta elementið í ljósmyndinni. Allt veltur þetta á ásetningi þess sem tekur mynd- imar. Ég tel mig vera myndlistarmann vegna þess að ég vinn verkefni út frá ákveðnum listrænum forsendum. Iðn- aðarljósmyndari sem tekur nákvæm- lega eins myndir af bensínstöðvum fyr- ir Olíufélagið eða Skeljung vinnur út frá allt öðrum forsendum. Hans mynd- ir geta verið alveg jafn „góðar“ eða „vondar" og mínar. Forsendur okkar era bara ólíkar. Það er allt og sumt.“ Sýning Spessa, sem nefnist einfald- lega Bensín, hefst að Kjarvalsstöðum i kvöld kl. 20, en í tilefni hennar kemur út stór bók meö ljósmyndum hans, sem vænt- anlega gefst tækifæri til að segja frá hér á síð- unni innan tíðar. -AI Töfrar tangódansins Koma íslendingar enn saman á myrkum vetr- arkvöldum til að dansa ástríðuheitan tangó? Það er að minnsta kosti ekki langt síðan það var í tísku. Og þeir sem komið hafa til Finnlands, vita að þar hafa menn þróað alveg sérstakt fmnskt, það er hægferðugt og tregablandið, afbrigði af þessum dansi, sem sumir hafa líkt við forleik í ástum. Það er, ef hann er vel dansaður. Annars segja mér sérfræðingar að tangó sé afskaplega misskilinn dans eða „ritúal". Til skamms tíma vissi undirritaður ekki að tO er tvenns konar tangó. Annars vegar er um að ræða samkvæm- isdansinn, salon tango, sem dansaður er á sömu forsendum og aðrir slíkir dansar, til dæmis polkar, rælar og valsar, þar sem sérhver dansari leggur fijálslega út af tónlistinni og freistar þess um leið að stilla sig inn á óskir dansfélaga síns. Hins vegar er sviðstangó, sýningaratriði sér- staklega samin til opinbers flutnings. Um nokkurt skeið hefúr undirritaður verið með undir höndum ýmiss konar tangótónlist á geislaplötum, sem til samans gefa ágæta hug- mynd um mikilvægi hennar fyrir tónlistarmenn nútimans. Tangó er umfram allt argentisk upp- fmning; spratt upp úr fátækrahverfúm Buenos Aires-borgar um miðja 19. öld. Það var ekki fyrr en upp úr seinni heimstyrjöld að dansinn komst í tísku meðal argentiskra broddborgara; og það má fyrst og fremst þakka harmoníkkuleikaran- um og tónskáldinu Astor Piazzola. Hann tók til brúks fremur fiumstæða alþýðutónlistina sem notuð hafði verið til undirleiks dansinum og þróaði upp úr henni eins konar kammertónlist, sem bæði hentaði til dans og sjálfstæðs flutn- ings. Nú er varla tekin upp geislaplata með tang- ótónlist að tónsmíðir. Piazzolas komi ekki við sögu. Plata sellóleikarans Yo Yo Ma, The Soul of the Tango (Sony), er til dæmis ein allsheijar hylling til hins argentínska snillings. Það er ekki einasta að Ma noti sömu tónlistarmenn og léku með Piazzola (sem lést 1992), heldur leikur hann „með“ honum, það er hann spilar inn á ókláraðar upptökur með bandóneónleik Pi- Tónlist/geislaplötur Aðalsteinn Ingólfsson azzolas. Platan er einstaklega vel heppnuð; hent- ar bæði til dansa og gaumgæfilegrar hlustunar. Af gengnum tangósnillingum Vilji menn fá keiminn af „upprunalegum" tangóstíl Piazzollas, ættu menn hins vegar að kynna sér plötuna Astor Piazzola - Tango (harmonia mundi), þar sem argentíski tónlistar- maðurinn Pablo Mainetti leikur konsert hans fyrir bandóneón og hljómsveit. Þessi tónlist er út af fyrir sig afbragð, uppfull af tregablöndnum gáska og ljóðrænni innlifún. Einhverjir kannast við sérkennilega kvik- mynd sem breski leikstjórinn Sally Potter gerði um tangó og nefnist The Tango Lesson. Hún seg- ir frá breskri konu, nefnilega Sally sjálfri, sem fer til Buenos Aires til að búa til kvikmynd um tangó, og verður svo gagntekinn af dansinum að hún vill ólm læra hann. í staðinn býðst hún til að gera dansfélaga sinn Pablo frægan með kvik- mynd sinni. Geislaplata (Sony) var gefin út í tengslum við kvikmyndina, og er auðvitað sneisafull af tangó. Helsti kostur plötunnar er að á henni er að finna gamlar upptökur með gengn- um tangósnillingum, eins og Carlos Gardel og Piazzola sjálfum, en einnig ýmsan tangósam- setning eftir Potter sjálfa, sem ekki er eins áheyrilegur. Loks langar mig að nefna spánnýja geisla- plötu frá sænsku útgáfúnni Caprice, sem neftiist Café 1930. Á henni era upptökur með flautuleik- aranum Tobias Carron og gítarleikaranum Per Skareng, ekki aðeins tangótónlist (Piazzola, Dyens og Pujol), heldur suður-amerísk og „íber- ísk“ tónlist af ýmsu tagi, til dæmis eftir Rodrigo og Villa Lobos. Hér er um að ræða einstaklega smekklegar og vel leiknar útsetningar sem und- irritaður þreytist ekki á að hlusta á. Safnahúsið í Borgamesi til fyrir- myndar Oft kvarta myndlistarmenn yfir kostnaðinum sem fylgir því að halda sýningar, ekki síst þegar markaðurinn er í lamasessi eins og nú. Þaö er ekki síst kostnaðurinn sem fælir marga listamenn frá _því að sýna verk sín úti á landi, því þar _er hagnaraðvonin jafn- vel enn minni en á höfúðborgarsvæðinu. Safrta- húsið í Borgamesi verðskuldar því sérstakt hrós fyrir þjónustuna sem það veitir listamönnum sem sýna á vegum þess. Þeir fá greidd ýmis útgjöld sem fylgja sýningarhaldinu, auk þess sem Safna- húsið sér um flutning á verkum, prentun og dreif- ingu á boðskorti, tölvuprentaða sýningarskrá, veit- ingar á opnun og yfirsetu á sýningunni en þessir liðir hafa reynst mörgum listamanni þungir í skauti. Guömundur Guðmarsson, forstöðumaður Saftiahússins, segir að búið sé að skipuleggja sýn- ingar í húsinu fram á haustið; um páskana sýni Guðmundur Sigurðsson málverk, en þar næst sé á dagskrá sýning frá Myndlista-og handíðaskóla ís- lands. í júni sýnir Kristján Jónsson málverk i Safhahúsinu en í kjölfariö fylgir sýning á grafik eftir Pál Heimi og loks sýning á ljósmyndum. Full- yrti Guðmundur að heimsóknir Reykvíkinga í Safnahúsið hefðu aukist til muna eftir að Hval- fjarðargöngin vora opnuð. Þýsk hrifning yfir íslenskum skáldsögum Ekkert lát er á velgengni íslenskra bókmennta úti í hinni stóra Evrópu. Áður hefur verið minnst á viðbrögð ítalskra og spænskra gagnrýnenda við bók Einars Más Guðmundssonar, Englum alheims- ins, en nú berast tíðindi af hrifningu þýskra gagn- rýnenda yfir Svaninum eftir Guðberg Bergsson og Meðan nóttin líður eftir Fríðu Á. Sigurðardóttur. í bókmenntaþætti í norðurþýska útvarpinu kallaði Andreas Wang Svaninn „bókmenntalega sálarferð fulla af undrum og ævintýrum". í bókmenntaþætti á Bayerischer Rundfúnk er Svan- urinn sögð „meinháðsk og bama- leg i seim og nýtir sér sagnahefð íslands sem táknmynd fyrir sam- band sitt við heiminn....stórfeng- leg og leyndardómsfúll bók“. í Berliner Morgenpost segir gagn- rýnandinn Júrgen Israel um Svaninn: „Blandan af kaldhæðni og einfeldni, þunglyndi og fiar- lægð og enn fremur þéttleiki and- rúmsloftsins skapa stemningu sem á engan sinn lika og upphefia þessa sögu og gera hana að lista- verki." Um Meðan nóttin líóur segir gagnrýnand- inn Erika Dingeldey: „Fríða Á. Sigurðardóttir vek- ur sex kynslóðir íslenskra kvenna til lífsins í þess- ari fiölskyldusögu. Og hún gerir það með því skrautleysi sem okkur virðist hæfa þessu landi sem er okkur svo fiarlægt og framandi. Tungutak höfúndarins er þurrlegt, hart og kalt, já, næstum grimmdarlegt, en fúllt af fomeskjulegri fegurð og óvenjulegum krafti." í útvarpsþætti í Bayerische Rundfúnk fiallaði Ruth Fúhner siðan um bók Fríðu og sagði m.a...þar hvíslar allt, ólgar og hvín eins og i stormbyijum...Setningamar i sögu Fríöu Á. Sigurðardóttur era oft frumlagslausar og mynda slíka hringiðu að lesandinn stendur bein- línis á öndinni." Og kalla Þjóðveijar þó ekki allt ömmu sína þegar setningaskipan er annars vegar. Bókin um Benóný Þrir ágætir skákmenn, þeir Bragi Halldórsson, Helgi Ólafsson og Jón Torfason hafa gefið út bók um Benóný Bene- diktsson sem lengi var í fremstu röö íslenskra skákmanna. Benóný var aukinheldur sér- stæður persónuleiki og varð nánast þjóðsagna- persóna í lifanda lífi, sífefid uppspretta eftir- herma og hvers kyns gamanmála. í bókinni segja ýmsir samferðamenn Benónýs ffá kynnum sinum af honum, auk þess sem fiallað er um skákferil hans og kveðskap, en Benóný var ágætlega hagmæltur. Um ákveðinn blaðamann hafði hann eftirfarandi að segja: Lygi og sannleik saman blandar,/svívirðing og hrósi um leiójefni og málfar illa vandar/anar kjafta-gönu- skeió. Umsjón Aðalsteinn Ingólfsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.