Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1999, Blaðsíða 15
* * *
FIMMTUDAGUR 18. MARS 1999
¦
Gera nánast allt sjálf fyrir fermingarveisluna:
hagsýni
15
. Veiða sjálf lax-
inn í veisluna
9
Það verður sankölluð fjölskyldu-
veisla hjá fermingarbörnunum og
frændsystkinunum Sigrúnu Ásu
Magnúsdóttur, Martin Davíð Jen-
sen og Birgi Smára Ársælssyni á
pálmasunnudag en þá efna þau til
sameiginlegrar veislu. Enda þótt
þau fermist ekki öll í sömu kirkj-
unni fannst foreldrum þeirra tilval-
ið að halda eina stóra veislu og ekki
skemmir fyrir að nánast allur mat-
urinn er búinn til í eldhúsinu
heima.
„ Já, okkur fannst alveg tilvalið að
gera allt hérna heima," segja for-
eldrar fermingarbarnanna,
systurnar Olga og Auður
Gunnarsdæt-
ur og mág-
kona
þeirra,
Kristín
Kristins-
dóttir.
„Það er
heimilis-
legra að
gera
þetta
svona, en við reynum að gera sem
aUra mest sjálfar og svo spörum við
líka mikið á því. T.d. bjóðum við
upp á reyktan og grafinn lax í veisl-
unni en bróðir systranna og maður
Kristinar veiðir laxinn sjálfur. „Svo
bjóðum við upp á laxapaté,
kjúkling, roast beef, hamborgar-
hrygg, rækjuhlaup o.fl. Við reyndar
veiðum ekki meira en laxinn," segja
þær og hlæja og bæta því að rækj-
urnar séu reyndar keyptar til þess
að styrkja gott málefni.
Börnin fermast 10.30 og 11 á
pálmasunnudag en veislan sjálf
verður haldin um 16.30
í safnaðarheim
ili Árbæjar-
kirkju,
enda ekk-
ert grín að
bjóða tæplega hundrað gestum í
heimahús. Páskarnir verða aðalefni
veislunnar og allur matur og skreyt-
ingar eiga að minna á páskana.
„Við verðum með egg úr súkkulaði,
hálf egg og í þeim hitt og þetta góð-
gæti. M.a. ferska ávexti og svo
kransakökubita." Kransakakan
verður gerð úr Rice Krispies, alls
átján hringja kaka. Og hvað er hœgt
að spara mikid með því aö gera kbk-
una sjálfur? „Ég hugsa að hún kosti
svona 2.000 krónur gerð heima. í
búð kostar hún um 10.000 krónur,"
segja þær. Og þær
telja
að sparnaðurinn viö að gera allan
mat sjálfur sé ótrúlegur. Það kosti
a.m.k. helmingi minna að halda
slika veislu en að kaupa matinn
utan úr bæ. Þær bjuggu til boðskort-
in sjálfar og tengdamóðir Auðar
gerir fermingarfötin á fermingar-
barn hennar. „En það er ekki hægt
að gera allt og við létum t.d. Kar-
melsystur í Hafnarfirði gera kerti
fyrir okkur með nöfnum barnanna
og fermingardegi, það tilheyrir deg-
inum." Það hefur verið nóg að gera
hjá þeim Olgu, Auði og Kristínu en
þær vilja ekki alveg tileinka sér
heiðurinn af öllu saman. „Það eru
systur, mágkonur og fleiri sem
koma að þessu. Þetta er búið að
vera gaman en er þó ekki lokið því
mesta fjörið er eftir," segja þær.
-hb
Mæður með fermingar-
börnum. F.v. Auður
Gunnarsdóttir, Sigrún
Ása Magnúsdóttir,
Kristín Kristinsdótt-
ir, Martln Davíð
Jensen og Olga
Gunnarsdóttir.
Fremstur er Birgir
Smári Ársæls-
son.
DV-mynd E.ÓI.
Sparn-
Til að þvo sjálfa þvottavélina
er ráð að fylla vélina af heitu
vatni og fjórum lítrum af eimuðu
ediki. Látið vélina fara allan
hringinn. Edikið hreinsar leiðsl-
urnar og leysir upp sápuskán úr
þeim.
Hringur á
kraganum
Notið lítinn málningarpensil
og burstið sjampói í óhreina
skyrtukraga áður en þeir fara í
þvottavélina. Sjampóið leysir upp
líkamsoliuna sem loðir við krag-
ann. Annað ráð er að nudda kalki
vel á kragann. Kalkið dregur í sig
olíuna og þegar olían er fjarlægð
losna önnur óhreinindi auðveld-
lega. Þessa meðferð þarf kannski
að endurtaka nokkrum sinnum,
sérstaklega ef gula línan á krag-
anum hefur verið lengi á honum.
Einnig má bera deig úr matar-
sóda og ediki á kragann. Nuddið
því á og þvoið eins og venjulega.
Þessi aðferð leysir upp óhrein-
indi og myglu.
Ekki meiri ló
Til aö fjarlægja ló úr riffluðu
Qaueli skaltu þvo flíkina og láta
hana þorna hægt. Meðan flíkin er
enn rök skaltu bursta hana með
fatabursta. Öll lóin fer af, en
mundu að flíkin verður að vera
rök.
Þú minnkar hættu á lómyndun
með því að setja einn bolla af
hvítu ediki í síðasta skol-
vatnið.
Eða setjið einn metra af
nælonneti 1
þurrkar-
ann
Hnetur og kjúklingabitar
Meðan beðið er eftir matnum má
gjarnan bera fram hnetur eða annað
nasl til þess að seðja mésta hungrið.
Piparnasl
Til eru margar tegundur af góð-
um hnetum sem bera má fram til að
narta í. Prófið að gera bragðið svo-
lítið ákveðnara og sterkara.
Kasjúhnetur, möndlur, jaröhnetur
og afhýdd sólblómafrœ
belgipiparkrydd ("chiliduft")
kajennpipar
gróft salt
Hitið pönnu. Setjið hneturnar á
hana, gjarnan margar tegundir, og
ristið þær. Hrærið stöðugt í á með-
an og látið þær ekki brenna. Stráið
kryddi og salti á hneturnar og ristið
þær áfram stundarkorn. Athugið
hvort þær eru nógu sterkar á bragð-
ið.
Gómsætir bitar
Þessir bitar (sjá mynd) eru afar
góðir þegar á að bera fram eitthvað
heitt og gott áður en sest er að borð-
um, eitfhvað smálegt sem í senn sef-
ar sárasta hungrið og eykur matar-
lystina.
12 bitar '
2frystar smjördeigsplötur
1 dl soöið kjúklingakjót
1 dl soöin jasmínhrísgrjón
2 msk. sýrður rjómi, 36prósent
1/2 ml salt
1-2 tsk. rautt taílenskt karrí
1/2 msk. karrí, gjarnan sterkt
1 msk. hunang
1 fínsaxað hvítlauksrif
legg
Hitið ofninn í 250 gráður. Látið
smjördeigsplöturnar þiðna á borð-
inu í 15 mínútur og fletjið þær síð-
an dálítið. Skerið hverja plötu í sex
ílanga bita, 3x7 cm. Blandið saman
kjúklingakjöti, hrísgrjónum, sýrð-
um rjóma og kryddi. Setjið fylling-
una á smjördeigsbitana. Brjótið þá
saman og þrýstið brúnunum saman
með gaffli. Berið egg á bitana og
bakið þá neðarlega í ofhinum í 8
mínútur.
Uppskriftin er fengin úr bókinni
Gott og sterkt
með rök-
um fötum. Netið
fiskar lóna.
Ef lóin við þurrkaraopið
eða í ristinni virðist rök
þýðir það að útblástursbark-
inn er stíflaöur. Eins gott að
hreinsa hann áður en kviknar í
þurrkaranum!
Fiðurkoddar
þvegnir
Athugið hvort einhver göt eru
á koddanum eða lausir saumar.
Setjið koddann í koddaver. Þvoið
tvo kodda í ¦--------j^—
einu svo jafn-
vægi haldist í
vélinni, eða
setjið nokkur
handklæði í
sama tilgangi.
Látið volgt
vatn renna í
þvottavélina
og þrýstið
koddunum í vatnið áður en vélin
fer af stað. Stöðviö vélina þegar
þvotturinn er háimaður og snúið
koddanum við. Þegar koddarnir
eru þurrkaðir er best að setja þá
i þurrkara og hreina strigaskó
með. Þurrkun tekur allt að
tveimur timum.
Of mikil froða
Þegar freyðir úr þvottavélinni
skaltu setja örlítið mýkingarefni
í hana. Þá hverfur froðan. -GLM