Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1999, Síða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1999, Síða 23
FIMMTUDAGUR 18. MARS 1999 27 I>V Fréttir Kirkjubæjarklaustur: Ráðstefna um kristni og klaustursögu DV Klaustri: Haldin var nýverið Kirkjubæjar- klaustri ráðstefna um kristni og klausturssögu. Kirkjubæjarstofa á Klaustri stóð að ráðstefnunni og markar með henni inngang hátiðar- halda í prófastdæminu í tilefni 1000 ára kristnitökuafmæhsins. Fjölmarg- ir fyrirlesarar fluttu erindi á ráðstefn- unni sem snertu menningar- og sögu- arfleið kirkju og kristni. „Þetta er mjög skemmtilegur upp- taktur að kristnitökuafinælinu og hér er safnað saman fræðimönnum á ýmsum sviðum sem varpa ljósi á ýmsa fleti í kristni og klaustrasögu þessa héraðs, sú saga er gríðarlega auðug. Hér eru tveir stórmerkir stað- ir, Kirkjubær og Þykkvibær, og hér eru persónur sem rísa óvenjuhátt í okkar kristnisögu. Það eru Þorlákur helgi, Brandur ábóti Jónsson í Þykkvabæ, Jón Steingrímsson og Gissur Einarsson sem var tímamóta- maður á siðbótaöld. Hann er héðan runninn og þannig mætti lengi telja,“ sagði Karl Sigurbjömsson, biskup fs- lands, en hann var meðal gesta á ráð- stefhunni. „Saga kristnitöktmnar á einnig rætur í Skaftafellssýslu. Þangbrandur var hér á ferðinni og þessi staður hér á Klaustri - sem um var sagt að hér mætti aldrei heiðinn maður búa - helgur staður," sagði Karl. Jón Helgason í Seglbúðum, forseti kirkjuþings, var eirrn að aðstandend- um ráðstefnunnar. „Við erum með þessari ráðstefnu að reyna að draga fram merka atburði úr sögu kristninnar og klaustranna í tilefni af kristnitökuafmælinu og við erum líka að hafa í huga hlutverk Kirkjubæjarstofu að miðla menningu Hermann Pálsson flutti fyrirlestur um Brand ábóta í Þykkvabæ á ráð- stefnunni. DV-myndir Njörður Frá sýningu Menntaskóians á Laugarvatni á Svartri kómedíu. DV-mynd Njörður Mikill leiklistaráhugi á Laugarvatni: Svört kómedía sýnd víöa DV.Vík: „Við erum þetta áriö að sýna Svarta kómedíu eftir Peter Shaffer í þýöingu Vígdísar Finnbogadóttur og í leikstjóm Skúla Gautasonar. Við erum í leikferð með verkið, sýn- um í Hveragerði 18. mars og Hafnar- firði 19. mars. Lokasýning verður svo á Laugarvatni þann 20. mars. Þar verðum við líka með opinn stjómmálafund þar sem helstu for- menn allra flokka verða í íþrótta- húsinu hjá okkur og við ætlum að halda lokasýninguna eftir þann fund,“ sagði Hulda Hallgrimsdóttir sem er í árshátíðamefhd mennt- skælinga á Laugarvatni. Hún vildi ekki segja til um hvort leikritið yrði betra - þeirra eða póli- tíkusanna en Stöð 2 yrði með beina útsendingu frá stjórnmálaumræð- unum. Fyrir krakka sem eru í kröfuhörðu framhaldsskólanámi hlýtur það að vera mikið átak að drífa upp svona sýningu. Á Laugar- vatni hafa nemendur gert þetta á hverju ári öll þau ár sem skólinn hefúr starfað. „Við byrjum alltaf fyrir áramót á því að fá leikstjórann til okkar sem þá heldur leiklistarnámskeið og strax eftir áramót byrjum við að æfa verkin sem á að sýna. í fyrra vorum við með Djöflaeyjuna og i hittifyrra Kabarett. Þetta er náttúr- lega mjög tímafrekt en þetta er of- boðslega gaman. Það eru um 30 manns sem starfa að þessu og það er alltaf eftirsóknarvert að fá að taka þátt í leikritinu," sagði Hulda. Menningarlif hefur alltaf skipað stóran sess í skólastarfi á Laugar- vatni. Leiklist og kórstarf er öflugt þar og Hulda segir að ekki skipti minnstu máli hve mikilf stuðningur og áhugi skólastjórnenda sé á þeim málum. -NH Meðal gesta á ráðstefnunni voru hjónin Jón Helgason, fyrrum ráð- herra, Guðrún Þorkelsdóttir og biskupinn, Karl Sigurbjörnsson. og sögu héraðsins til sem flestra. Við vonumst til að út úr þessari ráðstefnu komi mjög fróðlegt og mikið efhi sem við ætlum að koma á framfæri. Það verður gefið út vonandi síðar á þessu ári þannig að aðgengilegt verði að lesa það en líka fyrir þá sem vilja segja til vegar í héraðinu að þá hafi þeir þessar heimildir tiltækar," sagði Jón Helgason. -NH 50 ÁRA AFMÆLI ATLANTSHAFSBANDALAGSINS HÁTIÐARFUNDUR Föstudaginn 19. mars 1999 verður haldinn hátíðarfundur á vegum utanríkisráðuneytisins í tilefni af 50 ára afmæli Atlantshafsbandalagsins. Fundurinn verður haldinn í Listasafni íslands og hefst kl.17.15. Kl. 17.15 Kl. 17.25 Kl. 18.45 DAGSKRA Opnunarræða utanríkisráðherra, Halldórs Ásgrímssonar Breyttir tímar Hjálmar W. Hannesson, sendiherra og skrifstofustjóri alþjóðaskrifstofu uianríkisráðuneytisins. Samstarf Landhelgisgæslunnar og varnarliðsins Hafsteinn Hafsteinsson, forstjóri Landhelgisgæslunnar. Almannavarnir og NAT0 Sólveig Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Almannavarna ríkisins. Friðargæsla í Bosníu-Hersegóvínu Emilía Petra Jóhannsdóttir hjúkrunarfræðingur og Sólveig Dóra Magnúsdóttir læknir. Samstarf á vegum NAT0 milli hernaðarlegs og borgaralegs flugs Hallgrímur Sigurðsson, forstöðumaður rekstrardeildar flugumferðarsviðs Flugmálastjórnar. Hin hliðin á NAT0 - umhverfis- og þjóðfélagsmál Sigurður M. Magnússon, forstöðumaður Geislavarna ríkisins. Vísipdi í þágu friðar Dr. Ágúst Valfells kjarnorkueðlisfræðingur. Upplýsingastarfsemi NAT0 Dagný Erna Lárusdóttir, upplýsingafulltrúi NAT0 á íslandi. Fundarstjóri verður Gréta Gunnarsdóttir sendiráðunautur. Fundi slitið AEGrf UPPÞVOTTAVEL - FAVORIT 3430 W Frístandandi H-85, B-45, D-60 Ryðfrí. Fjórfalt vatnsöryggiskerfi o. fl. 49.900 kr. AEG ELDAVÉL - C0MPETENCE 5012 V-W Frístandandi H-85, B-60, D60 Keramik-helluborð, auðvelt að þrifa Ofn 51 lítra, blástur og grill, ofninn er mjög auðvelt að þrífa Verð áður 59.900 kr. L sm ■ ! '^UJJJDJJ ú B Husqvarna HELLUBORÐ - P04R2 Keramikborð með snerti takkar VEGGOFN - QCE 351 Undirog yfirhiti, grill, blástur. Grill með blæstri o. fl. verö adur T1 4>índesit Þvottavél WG 935 Tekur 5,0 kg„ 15 þvottakerfi, stiglaus hitastillir, 500 - 900 sn/mín vinduhraði, ryðfrí tromla o. fl. Mál: H-85 B-60 D-60 sm 39.900 kr. © Husqvarna indesi^ B R Æ Ð U R N I R Lágmúla 8 • Sími 533 2800

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.