Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1999, Side 28
32
FIMMTUDAGUR 18. MARS 1999
Sviðsljós
Var barin af
föður sínum
Kvikmyndadísin fræga, Eliza-
beth Taylor, segir í viðtali við
bandarísku sjónvarpskonuna Bar-
böru Walters, sem sjónvarpaö verð-
ur á sunnudagskvöld, að faðir henn-
ar hafi barið hana þegar hún var
bamastjarna. Hún hafi hins vegar
fyrirgefið honum fyrir löngu.
„Ég ræði þetta ekki. En þegar ég
var lítil varð faðir minn ofbeldisfull-
ur þegar hann drakk og hann virtist
hafa gaman af því að lemja mig,“
segir Elizabeth í viðtalinu.
„Ég ásaka hann ekki. Ég veit að
hann var drukkinn þegar hann
gerði það. Ég veit að hann ætlaði
ekki að gera það. Hann vissi ekki
hvað hann var að gera,“ sagði Eliza-
beth um föður sinn sem var lista-
verkasali.
Elizabeth telur að það hafi verið
erfitt fyrir föður hennar þegar hún
varð kvikmyndastjama aðeins 9 ára
gömul og fór að græða meiri pen-
inga en hann. Hún segir að hún hafi
lagað samskiptin við föðurinn þegar
hún var orðin ung kona.
íviðtalinu talar Elizabeth hlý-
lega um leikarann Rod Steiger sem
hún segir hafa stutt hana þegar hún
Elizabeth Taylor. Símamynd Reuter
þjáðist af þunglyndi. Hún neitar því
að samband þeima sé rómantískt.
„Við erum vinir. Við elskum
hvort annað en á platónskan hátt.“
Kvikmyndastjarnan kveðst
gjarnan geta hugsað sér að leika í
kvikmynd. Hún fái hins vegar engin
tilboð þar sem enginn þori að
tryggja hana.
Leikkonan Frances Fisher kom með unga dóttur sína til frumsýningar nýj-
ustu myndar ofurhetjunnar Clints Eastwoods, True Crime. Ekki að ósekju,
þar sem sú litla, Francesca heitir hún, er dóttir Clints og það sem meira er,
hún leikur dóttur hans í myndinni.
0 J með tvífara kommnar
OJ Simpson er ekki af baki dott-
inn en sennilega hefur hann þó
dottið á höfuðið. Hvað annað er
hægt að segja um þennan fyrrver-
andi ruðningskappa sem var sýkn-
aður af ákæru um að hafa myrt
Nicole eiginkonu sína og elskhuga
hennar á hroðalegan hátt fyrir
nokkrum árum? Já, hvað getur
maöur annað sagt þegar kappinn
sýnir sig á almannafæri og lætur
birta af sér myndir með nýju
kærustunni og hún reynist vera
tvífari látinnar eiginkonunnar?
Nýja kærastan heitir Christie
Prody og hún hefur það sér til
málsbóta að vera aðeins 23 ára.
„Þetta var óhuggulegt,“ segir
einn af vinum Nicole við breska
æsiblaðið Sunday Mirror. „Christie
er alveg eins og Nicole þegar hún
var yngri. Og sumir taktarnir eru
alveg eins.“
Christie ku vera öskuill yflr að
vera borin saman við hina myrtu
og segist ekki vera neinn draugur.