Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1999, Síða 30
34
FIMMTUDAGUR 18. MARS 1999
Afmæli_________________
Jón Guðbrandsson
Jón Guðbrandsson, héraðsdýra-
læknir á Selfossi, Reynivöllum 12,
Selfossi, er sjötugur í dag.
Starfsferill
Jón fæddist í Finnbogahúsi í
Reykjavik. Hann lauk stúdentsprófi
frá MR 1950 og námi i dýralækning-
um í Dýralæknaháskólanum í
Kaupmannahöfn í ársbyrjun 1957.
Jón var aðstoðardýralæknir í
Bredsten á Jótlandi til ársloka 1957,
starfaði á rannsóknarstofu Mjólkur-
samsölunnar í Reykjavík 1958-61 og
hefur verið héraðsdýralæknir á Sel-
fossi frá því í ársbyrjun 1962.
Jón var ritari Dýralæknafélags ís-
lands 1964-75 og formaður þess
1979-82, formaður sjáifstæðisfélags-
ins Óðins á Selfossi 1969-71 og
1973-74, formaður fulltrúaráðs sjálf-
stæðisfélaganna í Árnessýslu
1971-75, í stjóm fiskvinnslufyrir-
tækisins Straumness á Selfossi 1970-
78 og formaður 1978, situr í sauðfjár-
sjúkdómanefnd frá 1970 og var for-
maður nefndarinnar 1970-73, sat í
hreppsnefnd Selfoss 1974-78 og var
formaður Hitaveitu og Rafveitu Sel-
foss 1974-78.
Fjölskylda
Jón kvæntist 31.8. 1951 Þórunni
Einarsdóttur, f. 15.5. 1931, húsmóð-
ur. Hún er dóttir Einars Ólafssonar,
bónda í Lækjarhvammi í
Reykjavík, og k.h., Bertu
Á. Sveinsdóttur húsmóð-
ur.
Börn Jóns og Þórunriar
eru Berta Sigrún, f. 22.5.
1953, sjúkraliði í Reykja-
vík, gift Pétri Guðjóns-
syni, verkfræðingi og
framkvæmdastjóra hjá
Marel, og eiga þau sex
böm; Sigríður, f. 5.1.1955,
bóndi á Fossi i Hruna-
mannahreppi, gift Hjör-
leifi Ólafssyni bónda og
eiga þau fimm böm og tvö bama-
börn; Einar, f. 28.1. 1958, húsasmið-
ur á Selfossi, kvæntur Elínu Einars-
dóttur húsmóður, og eiga þau þrjú
börn saman, auk þess sem Einar á
son frá því áður; Ragnhildur, f. 8.3.
1961, starfsmaður við sambýli, bú-
sett á Selfossi, gift Antoni Hart-
mannssyni kjötiðnaðarmanni og
eiga þau þrjú böm; Guðbrandur, f.
28.2. 1962, húsasmiður á Selfossi,
kvæntur Guðrúnu Eddu Haralds-
dóttur, hárskera og starfsmanni við
Sjúkrahús Suðurlands, og eiga þau
þrjú börn; Ingólfur Rúnar, f. 29.9.
1963, landfræðingur hjá Reykjavík-
urborg, búsettur í Kópavogi, kvænt-
ur Svanborgu Þráinsdóttur rönt-
gentækni, og eiga þau eina dóttur;
Sveinn Þórarinn, f. 10.9. 1965, iðn-
verkamaður á Selfossi,
kvæntur Selmu Sigur-
jónsdóttur húsmóður, og
eiga þau eina dóttur;
Brynhildur, f. 8.7. 1969,
starfsmaður við sambýli,
búsett á Selfossi, maður
hennar er Guðjón Kjart-
ansson símvirki og eiga
þau þrjú börn; Matthild-
ur, f. 11.1. 1976, nemi við
Bændaskólann á Hólum.
Systkini Jóns era Bjami,
f. 17.11. 1932, pípulagn-
ingameistari í Reykjavík;
Logi, f. 29.9. 1937, héraðsdómari á
Egilsstöðum; Ingi Steinar, f. 23.8.
1942, vélvirki í Reykjavik.
Hálfsystur Jóns, samfeðra: Krist-
ín, d. 1936; Ragnheiður Guðbrands-
dóttir Guðjohnsen, húsmóðir í
Reykjavík.
Foreldrar Jóns vora Guðbrandur
Jónsson, f. 30.9. 1888, d. 5.7. 1953,
prófessor og rithöfundur í Reykja-
vík, og Sigríður Bjarnadóttir, f. 23.1.
1911, húsmóðir, búsett i Reykjavík
Ætt
Guðbrandur var sonur Jóns þjóð-
skjalavarðar Þorkelsson, pr. á
Staðastað, Eyjólfssonar. Móðir Þor-
kels var Guðrún Jónsdóttir, pr. og
skálds á Bægisá, Þorlákssonar.
Móðir Jóns Þorkelssonar var Ragn-
heiður Pálsdóttir, prófasts í Hörgs-
dal, Pálssonar, og f.k.h., Matthildar
Teitsdóttur. Móðir Guðbrands var
Karólína Jónsdóttir, b. á Finnastöð-
um i Hrafnagilshreppi í Eyjafirði,
Jóhannessonar.
Sigríður var dóttir Bjarna,
steinsmiðs í Reykjavík, Sverrisson-
ar, b. í Klauf í Meðallandi, Magnús-
sonar. Móðir Bjama var Gróa Jóns-
dóttir, b. á Eystra-Hrauni í Land-
broti, Galdra-Árasonar, Jónssonar,
pr. á Skinnastað, Einarssonar. Móð-
ir Sigríðar var Ingibjörg Steinunn
Brynjólfsdóttir, vinnumanns í
Hleiðargarði 1 Eyjafirði, Ólafssonar,
og Rannveigar Kristjönu, vinnu-
konu í Reykjavík, móður Sveins Eg-
ilssonar forstjóra. Rannveig var
dóttir Þorkels, vinnumanns í Sauða-
gerði í Reykjavík, Magnússonar, b.
á Ketilsstöðum á Kjalamesi, Run-
ólfssonar, b. á Ketilsstöðum, bróður
Magnúsar, langafa Áma Eiríksson-
ar leikara, afa Styrmis Gunnarsson-
ar ritstjóra. Runólfur var sonur
Magnúsar, b. á Bakka á Kjalamesi,
Hallgrímssonar, b. á Bakka, Þor-
leifssonar. Móðir Hcillgríms var
Guðrún Eyjólfsdóttir, b. á Ferstiklu,
Hallgrímssonar, prests og skálds i
Saurbæ, Péturssonar.
Jón er að heiman á afmælisdag-
inn.
Jón Guðbrandsson.
Björn S. Guðmundsson
Björn Stefán Guðmundsson,
kennari og fyrrv. skólastjóri,
Sunnubraut 15, Búðardal, er sextug-
ur í dag.
Starfsferill
Björn fæddist á Reynikeldu á
Skarðsströnd og ólst þar upp. Hann
var í farskóla skamma hríð í sinni
sveit, einn vetur í Laugamesskólan-
um í Reykjavík, lauk gagnfræða-
prófi frá Héraðsskólanum á Laugar-
vatni 1954 og kennaraprófi frá KÍ
1973. Þá hefur hann sótt námskeið á
vegum KHÍ.
Björn var bóndi á Reynikeldu
1955-64 og verslunarstjóri við útibú
Kaupfélags Stykkishólms í Skarðs-
stöð 1958-63. Hann hóf kennslu sem
farkennari á Skarðsströnd 1959 og
hefur kennt nánast óslitið síðan við
skólana að Laugum og i Búðardal.
Björn var skólastjóri Barnaskóla
Búðardals 1964-69, hefur verið
stundakennari við Tónlistarskóla
Dalasýslu og starfaði við Barna-
skóla Húsavíkur 1991-92.
Bjöm var formaður ungmennafé-
lagsins Vöku i Skarðshreppi
1954-64, formaður Ungmennasam-
bands Dalamanna i nokkur ár og
ritari þess 1964-68, hefur sungið í
kirkjukór frá unga aldri, var kór-
stjóri bamakóra um fimmtán ára
skeið, formaður kirkjukórsins
1954-64, var formaður Karlakórs og
söngfélagsins Vorboðinn í Laxárdal,
var einn af stofnendum Tónlistar-
skóla Dalasýslu, sat í fyrstu skóla-
stjóm hans, og sat í skattanefnd
Skarðshrepps 1955-60.
Bjöm hóf ungur hljóðfæraleik á
dansleikjum í Dölum og nærsveit-
um. Þá hefur hann lengi samið og
farið með vísur og annað gamanmál
á þorrablótum og öðrum skemmtun-
um, en ljóð, lausavísur og smásögur
hafa birst eftir hann í blöðum, tima-
ritum og á hljómplötum.
Björn var einn af stofnendum
unglingavinnu í Laxárdal og var
stjómandi hennar í sjö sumur. Þá
kenndi hann bömum og unglingum
undirstöðuatriði í hestamennsku.
Fjölskylda
Björn kvæntist 16.12. 1962 Auði
Tryggvadóttur, f. 31.7. 1943, húsmóð-
ur. Hún er dóttir Tryggva Gunnars-
sonar, f. 12.12. 1884, d. 16.8. 1954,
bónda í Arnarbæli á Fellsströnd, og
Kristínar Guðmundu Elísabetar Þór-
ólfsdóttur, f. 20.11. 1917, húsfreyju
þar.
Böm Bjöms og Auðar eru helgi
Guðmundur, f. 8.4. 1961, iðnrekstrar-
fræðingur og skrifstofustjóri við
Búnaðarbanka Islands á Akureyri,
kvæntur Kristínu Emilsdóttur skrif-
stofúmanni, og era böm þeirra Hlyn-
ur, f. 22.3. 1991, og Heiðrún, f. 25.7.
1992; Guðbjörg, f. 4.7. 1962, kennari á
Reykhólum, gift Haraldi
Guðna Bragasyni, skóla-
stjóra Tónlistarskólans á
Reykhólum, og eru böm
þeirra Auðunn, f. 26.5.
1990, og Helga, f. 30.7.1992;
Elísabet Björg, f. 16.8.
1963, starfsmaður við leik-
skóla á Akureyri, og er
sonur hennar og Rögn-
valdar Pálmasonar raf-
virkjameistara Pálmi, f.
10.8. 1980, en sonur Elísa-
betar og Jóns Skúla Sigur-
geirssonar er Stefán Geir
Jónsson, f. 15.8. 1990.
Systkini Bjöms voru Eiríkur, f.
23.7. 1933, d. 8.1. 1944; Margrét Krist-
ín, f. 1.11. 1940, d. 23.12. 1988, sjúkra-
liði í Reykjavík.
Foreldrar Björns vora Guðmundur
Jóhannesson, f. 23.1.1906, d. 1.2.1986,
bóndi á Reynikeldu, og k.h., Helga
Björnsdóttir, f. 29.12.1896, d. 6.9.1949,
húsfreyja þar.
Ætt
Guðmundur var sonur Jóhannes-
ar, b. á Hellu á Fellsströnd, bróður
Sigurbjargar, ömmu Friðjóns Þórð-
arsonar, fyrrv. ráðherra, föður
Þórðar ráðuneytisstjóra. Sigurbjörg
var einnig langamma Svavars
Gestssonar sendiherra og Þorgeirs
Ástvaldssonar fjölmiðlamanns. Jó-
hannes var sonur Jóns, vinnu-
manns á Skógum Jóns-
sonar, b. á Hallsstöðum,
Jónssonar. Móðir Jóns
vinnumanns var Ingveld-
ur Þorkelsdóttir, b. í
Knarrarhöfn, Þorkelsson-
ar. Móðir Jóhannesar var
Salome Þorsteinsdóttir.
Móðir Guðmundar var
Margrét Guðmundsdótt-
ir, b. á Ketilsstöðum,
Pantaleonssonar, og Guð-
rúnar, systur Jóns vinnu-
manns.
Helga var dóttir Björns,
b. á Reynikeldu, bróður Bjarna, afa
Braga Jósefssonar prófessors. Háif-
bróðir Bjöms, samfeðra, var Eyjólf-
ur frá Dröngum, sem um er
sjálfsævisagan Kaldur á köflum, afi
dr. Bjama á Möðruvöllum og Krist-
ínar trúboða, Guðleifsbama. Hálf-
systir Bjöms var Jóhanna,
langamma Þorvalds Inga Jónssonar,
framkvæmdastjóra í Rvík. Björn
var sonur Stefáns, b. á Reynikeldu,
Sveinssonar, og Guðrúnar Bjöms-
dóttur.
Móðir Helgu var Stefanía Eiríks-
dóttir, b. á Reynikeldu, Sigurðsson-
ar, b. á Langeyjamesi, Bjarnasonar.
Móðir Eiríks var Jófríður Einars-
dóttir, talin laundóttir Skúla Magn-
ússonar, sýslumanns á Skarði. Móð-
ir Stefaníu var Sigríður Jónsdóttir
frá Efri-Langey.
Björn S.
Guðmundsson.
Sæmundur Ástmundsson
Sæmundur Ástmunds-
son, bóndi að Eystri-
Grand við Stokkseyri, er
fimmtugur í dag.
Starfsferill
Sæmundur fæddist á
Eystri-Grand og ólst þar
upp í foreldrahúsum við
öll almenn sveitastörf.
Hann var í Barnaskólan-
um á Stokkseyri og
stundaði síðan búskap að
Eystri-Grand ásamt for-
eldrum sínum til 1985 er
Sæmundur
Ástmundsson.
þau bragðu búi og fluttu
til Stokkseyrar.
Sæmundur var búsettm-
á Stokkseyri í nokkur ár
en hóf síðan uppbygg-
ingu á Eystri-Grand 1994,
ásamt bróður sínum,
Sævari. Þeir byggðu þar
upp nýtt fjós, hlöðu og
mjólkurhús og hafa
stundað þar búskap síð-
an. Hefur Sæmundur
einkum séð um skepnu-
hirðingar og annan dag-
legan rekstur búsins.
Fjölskylda
Systkini Sæmundar era Ástríður
Ástmundsdóttir, f. 25.7. 1938, versl-
unarmaður við Kaupfélag Ámes-
inga í Þorlákshöfh, gift Ársæli Guð-
mundssyni netagerðarmanni og
eiga þau fjögur börn; Magnea Ragn-
heiður Ástmundsdóttir, f. 19.2.1945,
bóndakona í Andrésfiósum á Skeið-
um, gift Ingimar Þorbjömssyni,
bónda þar, og eiga þau tvö börn;
Sigríður Ástmundsdóttir, f. 16.1.
1954, verslunarmaður hjá Kaupfé-
lagi Árnesinga á Selfossi, gift Sig-
mari Eiríkssyni verkamanni, og
eiga þau fiögur börn; Sævar Ást-
mundsson, f. 20.2.1961, bóndi og sjó-
maður á Stokkseyri, kvæntur Önnu
Guðnýju Gunnarsdóttur, kennara á
Stokkseyri, og eiga þau þrjú böm.
Foreldrar Sæmundar: Ástmund-
ur Sæmundsson frá Baldurshaga á
Stokkseyri, f. 23.10. 1910, d. 1985,
bóndi á Eystri-Grand, og k.h., Ingi-
björg Magnúsdóttir frá Meðalholt-
um í Gaulverjabæjarhreppi, f. 20.7.
1923, fyrrv. húsfreyja að Eystri-
Grund, nú búsett á Stokkseyri.
Sæmundur tekur á móti gestum í
samkomuhúsinu Gimli á Stokks-
eyri á skírdag, fimmudaginn 1.4.
nk., eftir kl. 20.00.
E>V
Til hamingju
með afmælið
18. mars
85 ára
Jórunn Hrólfsdótdr,
Eyrarvegi 29, Akureyri.
Mikkalína
Alexandersdóttir,
dvalarh. Höfða, Akranesi.
Sveinbjörn Þorsteinsson,
Skálholtsstig 2, Reykjavík.
75 ára
Einar Gíslason,
Sóleyjargötu 15, Reykjavík.
Kristján Bjarnason,
Borgarbraut 65, Reykjavík.
Ragnheiður
Guðmundsdóttir,
Stigahlíð 41, Reykjavík.
Sigríður B. Eiríksdóttir,
Hraunbæ 103, Reykjavík.
Steinunn Guðjónsdóttir,
Ægissíðu 13, Grenivík.
70 ára
Valgeir Sigurðsson,
Kirkjuvegi 1 D, Keflavík.
60 ára
Árni Jón Ámason,
Stangarholti 12, Reykjavik.
Ásdís Gunnlaugsdóttir,
Laugarvegi 15, Siglufirði.
Fríða Dóra Jóhannsdóttir,
Kirkjuvegi 67, Vestmeyjum.
Guðrún Friðriksdóttir,
Seylugranda 8, Reykjavik.
Ottó Tulinius,
Birkilundi 17, Akureyri.
Sesselja Friðriksdóttir,
Seilugranda 2, Reykjavík.
Viöar Guðmundsson,
Brúnalandi 15, Reykjavík.
50 ára
Antoníus Þ. Svavarsson,
Sævarlandi 18, Reykjavík.
Guðrún Ásgrímsdóttir,
Sporhömram 12, Reykjavík.
Sigríður Albertsdóttir,
Klausturhv. 1, Hafnarfirði.
Þröstur Kristjánsson,
Blikastíg 13, Bessastaðahr.
40 ára
Aðalbjörg K. Helgadóttir,
Reyrengi 27, Reykjavík.
Elísabet Stefánsdóttir,
Heiðarholti 8 C, Keflavík.
Guðrún Á. Sigurðardóttir,
Hvassaleiti 6, Reykjavík.
Guðrún Sigtryggsdóttir,
Víðihlíð 5, Sauðárkróki.
Herdis Rossouw,
Stekkjarbergi 8, Hafnarfirði.
Hrafnhildur Ragnarsdóttir,
Skaftahlíð 9, Reykjavík.
Jón Kristján Ólason,
Boðagerði 10, Kópaskeri.
Kristján Óskarsson,
Fannafold 123 A, Reykjavík.
Linda Rós Benediktsdóttir,
Hlíðarstræti 10, Bolungarvík.
Margrét Inga Bjamadóttir,
Goðalandi 3, Reykjavík.
Martti Juhani Heikkila,
Austurbrún 2, Reykjavík.
Níels Atli Hjálmarsson,
Marbakka 10, Neskaupstað.
Sergio Enricoso Rivera,
Egilsgötu 6, Borgamesi.
Sjöfn Pálsdóttir,
Ránargötu 33, Reykjavík.
Stefán Hallgrímsson,
Brimnesi, Dalvík.