Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1999, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1999, Blaðsíða 30
34 FIMMTUDAGUR 18. MARS 1999 Afmæli_________________ Jón Guðbrandsson Jón Guðbrandsson, héraðsdýra- læknir á Selfossi, Reynivöllum 12, Selfossi, er sjötugur í dag. Starfsferill Jón fæddist í Finnbogahúsi í Reykjavik. Hann lauk stúdentsprófi frá MR 1950 og námi i dýralækning- um í Dýralæknaháskólanum í Kaupmannahöfn í ársbyrjun 1957. Jón var aðstoðardýralæknir í Bredsten á Jótlandi til ársloka 1957, starfaði á rannsóknarstofu Mjólkur- samsölunnar í Reykjavík 1958-61 og hefur verið héraðsdýralæknir á Sel- fossi frá því í ársbyrjun 1962. Jón var ritari Dýralæknafélags ís- lands 1964-75 og formaður þess 1979-82, formaður sjáifstæðisfélags- ins Óðins á Selfossi 1969-71 og 1973-74, formaður fulltrúaráðs sjálf- stæðisfélaganna í Árnessýslu 1971-75, í stjóm fiskvinnslufyrir- tækisins Straumness á Selfossi 1970- 78 og formaður 1978, situr í sauðfjár- sjúkdómanefnd frá 1970 og var for- maður nefndarinnar 1970-73, sat í hreppsnefnd Selfoss 1974-78 og var formaður Hitaveitu og Rafveitu Sel- foss 1974-78. Fjölskylda Jón kvæntist 31.8. 1951 Þórunni Einarsdóttur, f. 15.5. 1931, húsmóð- ur. Hún er dóttir Einars Ólafssonar, bónda í Lækjarhvammi í Reykjavík, og k.h., Bertu Á. Sveinsdóttur húsmóð- ur. Börn Jóns og Þórunriar eru Berta Sigrún, f. 22.5. 1953, sjúkraliði í Reykja- vík, gift Pétri Guðjóns- syni, verkfræðingi og framkvæmdastjóra hjá Marel, og eiga þau sex böm; Sigríður, f. 5.1.1955, bóndi á Fossi i Hruna- mannahreppi, gift Hjör- leifi Ólafssyni bónda og eiga þau fimm böm og tvö bama- börn; Einar, f. 28.1. 1958, húsasmið- ur á Selfossi, kvæntur Elínu Einars- dóttur húsmóður, og eiga þau þrjú börn saman, auk þess sem Einar á son frá því áður; Ragnhildur, f. 8.3. 1961, starfsmaður við sambýli, bú- sett á Selfossi, gift Antoni Hart- mannssyni kjötiðnaðarmanni og eiga þau þrjú böm; Guðbrandur, f. 28.2. 1962, húsasmiður á Selfossi, kvæntur Guðrúnu Eddu Haralds- dóttur, hárskera og starfsmanni við Sjúkrahús Suðurlands, og eiga þau þrjú börn; Ingólfur Rúnar, f. 29.9. 1963, landfræðingur hjá Reykjavík- urborg, búsettur í Kópavogi, kvænt- ur Svanborgu Þráinsdóttur rönt- gentækni, og eiga þau eina dóttur; Sveinn Þórarinn, f. 10.9. 1965, iðn- verkamaður á Selfossi, kvæntur Selmu Sigur- jónsdóttur húsmóður, og eiga þau eina dóttur; Brynhildur, f. 8.7. 1969, starfsmaður við sambýli, búsett á Selfossi, maður hennar er Guðjón Kjart- ansson símvirki og eiga þau þrjú börn; Matthild- ur, f. 11.1. 1976, nemi við Bændaskólann á Hólum. Systkini Jóns era Bjami, f. 17.11. 1932, pípulagn- ingameistari í Reykjavík; Logi, f. 29.9. 1937, héraðsdómari á Egilsstöðum; Ingi Steinar, f. 23.8. 1942, vélvirki í Reykjavik. Hálfsystur Jóns, samfeðra: Krist- ín, d. 1936; Ragnheiður Guðbrands- dóttir Guðjohnsen, húsmóðir í Reykjavík. Foreldrar Jóns vora Guðbrandur Jónsson, f. 30.9. 1888, d. 5.7. 1953, prófessor og rithöfundur í Reykja- vík, og Sigríður Bjarnadóttir, f. 23.1. 1911, húsmóðir, búsett i Reykjavík Ætt Guðbrandur var sonur Jóns þjóð- skjalavarðar Þorkelsson, pr. á Staðastað, Eyjólfssonar. Móðir Þor- kels var Guðrún Jónsdóttir, pr. og skálds á Bægisá, Þorlákssonar. Móðir Jóns Þorkelssonar var Ragn- heiður Pálsdóttir, prófasts í Hörgs- dal, Pálssonar, og f.k.h., Matthildar Teitsdóttur. Móðir Guðbrands var Karólína Jónsdóttir, b. á Finnastöð- um i Hrafnagilshreppi í Eyjafirði, Jóhannessonar. Sigríður var dóttir Bjarna, steinsmiðs í Reykjavík, Sverrisson- ar, b. í Klauf í Meðallandi, Magnús- sonar. Móðir Bjama var Gróa Jóns- dóttir, b. á Eystra-Hrauni í Land- broti, Galdra-Árasonar, Jónssonar, pr. á Skinnastað, Einarssonar. Móð- ir Sigríðar var Ingibjörg Steinunn Brynjólfsdóttir, vinnumanns í Hleiðargarði 1 Eyjafirði, Ólafssonar, og Rannveigar Kristjönu, vinnu- konu í Reykjavík, móður Sveins Eg- ilssonar forstjóra. Rannveig var dóttir Þorkels, vinnumanns í Sauða- gerði í Reykjavík, Magnússonar, b. á Ketilsstöðum á Kjalamesi, Run- ólfssonar, b. á Ketilsstöðum, bróður Magnúsar, langafa Áma Eiríksson- ar leikara, afa Styrmis Gunnarsson- ar ritstjóra. Runólfur var sonur Magnúsar, b. á Bakka á Kjalamesi, Hallgrímssonar, b. á Bakka, Þor- leifssonar. Móðir Hcillgríms var Guðrún Eyjólfsdóttir, b. á Ferstiklu, Hallgrímssonar, prests og skálds i Saurbæ, Péturssonar. Jón er að heiman á afmælisdag- inn. Jón Guðbrandsson. Björn S. Guðmundsson Björn Stefán Guðmundsson, kennari og fyrrv. skólastjóri, Sunnubraut 15, Búðardal, er sextug- ur í dag. Starfsferill Björn fæddist á Reynikeldu á Skarðsströnd og ólst þar upp. Hann var í farskóla skamma hríð í sinni sveit, einn vetur í Laugamesskólan- um í Reykjavík, lauk gagnfræða- prófi frá Héraðsskólanum á Laugar- vatni 1954 og kennaraprófi frá KÍ 1973. Þá hefur hann sótt námskeið á vegum KHÍ. Björn var bóndi á Reynikeldu 1955-64 og verslunarstjóri við útibú Kaupfélags Stykkishólms í Skarðs- stöð 1958-63. Hann hóf kennslu sem farkennari á Skarðsströnd 1959 og hefur kennt nánast óslitið síðan við skólana að Laugum og i Búðardal. Björn var skólastjóri Barnaskóla Búðardals 1964-69, hefur verið stundakennari við Tónlistarskóla Dalasýslu og starfaði við Barna- skóla Húsavíkur 1991-92. Bjöm var formaður ungmennafé- lagsins Vöku i Skarðshreppi 1954-64, formaður Ungmennasam- bands Dalamanna i nokkur ár og ritari þess 1964-68, hefur sungið í kirkjukór frá unga aldri, var kór- stjóri bamakóra um fimmtán ára skeið, formaður kirkjukórsins 1954-64, var formaður Karlakórs og söngfélagsins Vorboðinn í Laxárdal, var einn af stofnendum Tónlistar- skóla Dalasýslu, sat í fyrstu skóla- stjóm hans, og sat í skattanefnd Skarðshrepps 1955-60. Bjöm hóf ungur hljóðfæraleik á dansleikjum í Dölum og nærsveit- um. Þá hefur hann lengi samið og farið með vísur og annað gamanmál á þorrablótum og öðrum skemmtun- um, en ljóð, lausavísur og smásögur hafa birst eftir hann í blöðum, tima- ritum og á hljómplötum. Björn var einn af stofnendum unglingavinnu í Laxárdal og var stjómandi hennar í sjö sumur. Þá kenndi hann bömum og unglingum undirstöðuatriði í hestamennsku. Fjölskylda Björn kvæntist 16.12. 1962 Auði Tryggvadóttur, f. 31.7. 1943, húsmóð- ur. Hún er dóttir Tryggva Gunnars- sonar, f. 12.12. 1884, d. 16.8. 1954, bónda í Arnarbæli á Fellsströnd, og Kristínar Guðmundu Elísabetar Þór- ólfsdóttur, f. 20.11. 1917, húsfreyju þar. Böm Bjöms og Auðar eru helgi Guðmundur, f. 8.4. 1961, iðnrekstrar- fræðingur og skrifstofustjóri við Búnaðarbanka Islands á Akureyri, kvæntur Kristínu Emilsdóttur skrif- stofúmanni, og era böm þeirra Hlyn- ur, f. 22.3. 1991, og Heiðrún, f. 25.7. 1992; Guðbjörg, f. 4.7. 1962, kennari á Reykhólum, gift Haraldi Guðna Bragasyni, skóla- stjóra Tónlistarskólans á Reykhólum, og eru böm þeirra Auðunn, f. 26.5. 1990, og Helga, f. 30.7.1992; Elísabet Björg, f. 16.8. 1963, starfsmaður við leik- skóla á Akureyri, og er sonur hennar og Rögn- valdar Pálmasonar raf- virkjameistara Pálmi, f. 10.8. 1980, en sonur Elísa- betar og Jóns Skúla Sigur- geirssonar er Stefán Geir Jónsson, f. 15.8. 1990. Systkini Bjöms voru Eiríkur, f. 23.7. 1933, d. 8.1. 1944; Margrét Krist- ín, f. 1.11. 1940, d. 23.12. 1988, sjúkra- liði í Reykjavík. Foreldrar Björns vora Guðmundur Jóhannesson, f. 23.1.1906, d. 1.2.1986, bóndi á Reynikeldu, og k.h., Helga Björnsdóttir, f. 29.12.1896, d. 6.9.1949, húsfreyja þar. Ætt Guðmundur var sonur Jóhannes- ar, b. á Hellu á Fellsströnd, bróður Sigurbjargar, ömmu Friðjóns Þórð- arsonar, fyrrv. ráðherra, föður Þórðar ráðuneytisstjóra. Sigurbjörg var einnig langamma Svavars Gestssonar sendiherra og Þorgeirs Ástvaldssonar fjölmiðlamanns. Jó- hannes var sonur Jóns, vinnu- manns á Skógum Jóns- sonar, b. á Hallsstöðum, Jónssonar. Móðir Jóns vinnumanns var Ingveld- ur Þorkelsdóttir, b. í Knarrarhöfn, Þorkelsson- ar. Móðir Jóhannesar var Salome Þorsteinsdóttir. Móðir Guðmundar var Margrét Guðmundsdótt- ir, b. á Ketilsstöðum, Pantaleonssonar, og Guð- rúnar, systur Jóns vinnu- manns. Helga var dóttir Björns, b. á Reynikeldu, bróður Bjarna, afa Braga Jósefssonar prófessors. Háif- bróðir Bjöms, samfeðra, var Eyjólf- ur frá Dröngum, sem um er sjálfsævisagan Kaldur á köflum, afi dr. Bjama á Möðruvöllum og Krist- ínar trúboða, Guðleifsbama. Hálf- systir Bjöms var Jóhanna, langamma Þorvalds Inga Jónssonar, framkvæmdastjóra í Rvík. Björn var sonur Stefáns, b. á Reynikeldu, Sveinssonar, og Guðrúnar Bjöms- dóttur. Móðir Helgu var Stefanía Eiríks- dóttir, b. á Reynikeldu, Sigurðsson- ar, b. á Langeyjamesi, Bjarnasonar. Móðir Eiríks var Jófríður Einars- dóttir, talin laundóttir Skúla Magn- ússonar, sýslumanns á Skarði. Móð- ir Stefaníu var Sigríður Jónsdóttir frá Efri-Langey. Björn S. Guðmundsson. Sæmundur Ástmundsson Sæmundur Ástmunds- son, bóndi að Eystri- Grand við Stokkseyri, er fimmtugur í dag. Starfsferill Sæmundur fæddist á Eystri-Grand og ólst þar upp í foreldrahúsum við öll almenn sveitastörf. Hann var í Barnaskólan- um á Stokkseyri og stundaði síðan búskap að Eystri-Grand ásamt for- eldrum sínum til 1985 er Sæmundur Ástmundsson. þau bragðu búi og fluttu til Stokkseyrar. Sæmundur var búsettm- á Stokkseyri í nokkur ár en hóf síðan uppbygg- ingu á Eystri-Grand 1994, ásamt bróður sínum, Sævari. Þeir byggðu þar upp nýtt fjós, hlöðu og mjólkurhús og hafa stundað þar búskap síð- an. Hefur Sæmundur einkum séð um skepnu- hirðingar og annan dag- legan rekstur búsins. Fjölskylda Systkini Sæmundar era Ástríður Ástmundsdóttir, f. 25.7. 1938, versl- unarmaður við Kaupfélag Ámes- inga í Þorlákshöfh, gift Ársæli Guð- mundssyni netagerðarmanni og eiga þau fjögur börn; Magnea Ragn- heiður Ástmundsdóttir, f. 19.2.1945, bóndakona í Andrésfiósum á Skeið- um, gift Ingimar Þorbjömssyni, bónda þar, og eiga þau tvö börn; Sigríður Ástmundsdóttir, f. 16.1. 1954, verslunarmaður hjá Kaupfé- lagi Árnesinga á Selfossi, gift Sig- mari Eiríkssyni verkamanni, og eiga þau fiögur börn; Sævar Ást- mundsson, f. 20.2.1961, bóndi og sjó- maður á Stokkseyri, kvæntur Önnu Guðnýju Gunnarsdóttur, kennara á Stokkseyri, og eiga þau þrjú böm. Foreldrar Sæmundar: Ástmund- ur Sæmundsson frá Baldurshaga á Stokkseyri, f. 23.10. 1910, d. 1985, bóndi á Eystri-Grand, og k.h., Ingi- björg Magnúsdóttir frá Meðalholt- um í Gaulverjabæjarhreppi, f. 20.7. 1923, fyrrv. húsfreyja að Eystri- Grund, nú búsett á Stokkseyri. Sæmundur tekur á móti gestum í samkomuhúsinu Gimli á Stokks- eyri á skírdag, fimmudaginn 1.4. nk., eftir kl. 20.00. E>V Til hamingju með afmælið 18. mars 85 ára Jórunn Hrólfsdótdr, Eyrarvegi 29, Akureyri. Mikkalína Alexandersdóttir, dvalarh. Höfða, Akranesi. Sveinbjörn Þorsteinsson, Skálholtsstig 2, Reykjavík. 75 ára Einar Gíslason, Sóleyjargötu 15, Reykjavík. Kristján Bjarnason, Borgarbraut 65, Reykjavík. Ragnheiður Guðmundsdóttir, Stigahlíð 41, Reykjavík. Sigríður B. Eiríksdóttir, Hraunbæ 103, Reykjavík. Steinunn Guðjónsdóttir, Ægissíðu 13, Grenivík. 70 ára Valgeir Sigurðsson, Kirkjuvegi 1 D, Keflavík. 60 ára Árni Jón Ámason, Stangarholti 12, Reykjavik. Ásdís Gunnlaugsdóttir, Laugarvegi 15, Siglufirði. Fríða Dóra Jóhannsdóttir, Kirkjuvegi 67, Vestmeyjum. Guðrún Friðriksdóttir, Seylugranda 8, Reykjavik. Ottó Tulinius, Birkilundi 17, Akureyri. Sesselja Friðriksdóttir, Seilugranda 2, Reykjavík. Viöar Guðmundsson, Brúnalandi 15, Reykjavík. 50 ára Antoníus Þ. Svavarsson, Sævarlandi 18, Reykjavík. Guðrún Ásgrímsdóttir, Sporhömram 12, Reykjavík. Sigríður Albertsdóttir, Klausturhv. 1, Hafnarfirði. Þröstur Kristjánsson, Blikastíg 13, Bessastaðahr. 40 ára Aðalbjörg K. Helgadóttir, Reyrengi 27, Reykjavík. Elísabet Stefánsdóttir, Heiðarholti 8 C, Keflavík. Guðrún Á. Sigurðardóttir, Hvassaleiti 6, Reykjavík. Guðrún Sigtryggsdóttir, Víðihlíð 5, Sauðárkróki. Herdis Rossouw, Stekkjarbergi 8, Hafnarfirði. Hrafnhildur Ragnarsdóttir, Skaftahlíð 9, Reykjavík. Jón Kristján Ólason, Boðagerði 10, Kópaskeri. Kristján Óskarsson, Fannafold 123 A, Reykjavík. Linda Rós Benediktsdóttir, Hlíðarstræti 10, Bolungarvík. Margrét Inga Bjamadóttir, Goðalandi 3, Reykjavík. Martti Juhani Heikkila, Austurbrún 2, Reykjavík. Níels Atli Hjálmarsson, Marbakka 10, Neskaupstað. Sergio Enricoso Rivera, Egilsgötu 6, Borgamesi. Sjöfn Pálsdóttir, Ránargötu 33, Reykjavík. Stefán Hallgrímsson, Brimnesi, Dalvík.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.