Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1999, Side 32

Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1999, Side 32
36 FIMMTUDAGUR 18. MARS 1999 I>V nn Ummæli Fermingar- dagurinn „Þaö voru flestir stressaðir fyrir athöfnina. Við fífluðumst , og flissuðum lát- laust, svona eins og unglingar geta , látið. Það leið yfir, frænku mína um morgumnn, sennilega af spenningi." I Margrét Rós Gunn- arsdóttir sjónvarpsþula, í DV. Afsögn framkvæmda- stjórnarinnar „Þetta er mikið áfali fyrir Evrópusambandið eins og það er áfall fyrir einstök ríki þegar heil ríkisstjórn segir af sér.“ Halldór Ásgrímsson utanrik- isráöherra, í Morgunblaðinu. Engar aðstæður „Það er stórmál að skipta um flokk, hvaö þá að taka að sér kjördæmi norður 1 landi. Ég bý í höfuðborg- inni og rek hér tvö fyrirtæki, þannig að ég met j það svo að ég hafi ekki að- stæður til þess að gera ; þetta.“ Arnþrúður Karlsdóttir, í Degi. Þarf átak „Ég skora á stjórnvöld að taka nú til höndinni og gera al- j mennilegt átak í skólamálum á I nýjum 2000 aldar forsendum!“ | Jakob Bragi Hannesson, í mastersnámi í sérkennslu- fræðum, í Morgunblaðinu. Skóli á Korpúlfs- stöðum „Helstu rökin fyrir þessari ráðstöfun er fjárhagsleg. En ef menn skoða þær J forsendur sem gefn- . ar eru fyrir þeim spamaði sem R- listinn talar um að ná þá virðist5 ávinningurinn af - þessari ráðstöfun ekki verða mik- f m, ef hann er þá einhver." Guðlaugur Þór Þórðarson borgarfulltrúi, í DV J Eru öfundaðir „Við íslenskir bíómenn erum reyndar öfundaðir af er- lendum kollegum okkar með gestafjölda, sem er um það bil f 8-9 faldur ibúafjöldinn á Reykjavíkursvæðinu. Sam- bærileg tala í Danmörku og víðar er í kringum 2-faldur íbúafjöldi." Einar S. Valdimarsson, for- stjóri Háskólabíós, í Degi. Sundlaug upaleið Þórey Edda Elísdóttir stangarstökkvari: Snerpa, styrkur og fimi Hún er 1,80 m á hæð og í fyrra- kvöld stökk hún 4,37 m í stangar- stökki á Stökkmóti ÍR sem haldið var í Laugardalshöll. Er það per- sónulegt met hjá Þóreyju og það hæsta sem íslensk stúlka hefur náð að stökkva hér á landi. Þórey Edda Elísdóttir er 21 árs og stúdent af eðlisfræði-, náttúru- fræði- og íþróttabraut frá Fjöl- brautaskólanum i Garðabæ. „Þetta -------------—----------------- kom mér á óvart R/laOUr dagSIUS Eg var þreytt og ________________________________ eftir lélegan ár- rosalega skemmtilegt og ég fæ mikla útrás í þessu.“ Ekki er langt síðan Þórey Edda fór að æfa stangarstökk, en það var haustið 1996. „Ég var í fimleikum í 11 ár hjá fimleikafélaginu Björk í Hafnarfirði og hafði heyrt að stang- arstökk væri góð grein fyrir fimleikastelpur. Mig hafði alltaf langað til að prófa angur á stökkmótinu á Akureyri um helgina hafði ég bara stefnt á að gera betur og miðaði við 4,10 m. Ég bjóst aldrei við að geta bætt mig. Ég hitti svona hrikalega vel á þetta. Ég komst í stuð, og stundum þegar það gerist gengur manni vel.“ Undanfarna mánuði hefur Þórey Edda búið í Malmö í Svíþjóð þar sem hún einbeitir sér að æftngum í stangarstökki. Hún er orðin at- vinnumaður í íþróttagreininni. „Stanley, þjálfari Völu Flosadótt- ur, bauð mér að koma að æfa með þeim og ég ákvað að slá tiL“ Hún segir að undanfarnir mánuðir séu búnir að vera erfiðir en árangurs- rikir. „Það er náttúrlega erfítt að vera bara að æfa og vera svo ein heima og horfa á sjónvarpið þegar ég er ekki á æfingum." Fyrir áramót æfði Þórey Edda fjóra til fimm tíma á dag. „Þar sem keppnir hafa verið eftir áramót hef ég æft um tvo til þrjá tíma á dag. Það geri ég alla daga vikunnar. Þórey Edda Elísdóttir. Mér frnnst þetta DV-mynd Teitur frjálsar Iþróttir þannig að ég ákvað bara að skella mér.“ Þórey Edda var orðin of stór til að stunda fimleika. „Ég þurfti að breyta til.“ Stang arstökkið gleypti við henni þegar hún var komin með stöng- ina í hendurnar. Hvað varðar eiginleika sem góður stangar- stökkvari þarf að hafa nefnir Þórey Edda snerpu, mjög mikinn styrk og fimi. „Þá á ég við fimi í loftinu - þegar mað- ur smeyg- ir sér yfir rána.“ Ekki er loft- hræðslu fyrir að fara hjá Þóreyju Eddu. Hún kynntist náttúrlega loft- fimleikum á sínum tima hvað tví- slána áhrærir. Hún segir að takmarkið sé að bæta sig enn meira. Hún stefnir á að fara á næstu Ólympíu- leika. í haust ætlar Þórey Edda að hefja nám í umhverfisverk- fræði við háskól- ann í Lundi. Stutt verður á æfing- ar, þar sem það tekur einungis um 20 mínútur að ferðast á milli Lundar og Malmö. -SJ Karlakórinn Heimir. Karlakórinn Heimir Karlakórinn Heimir úr Skagafirði heldur á næstunni tónleika í Reykjavík og ná- grenni. Fyrstu tónleikar kórs- ins verða í Fjölbrautaskólanum á Akranesi í Sýningar kvöld ^ J 20.30. Tón- leikar verða í Grafarvogskirkju fóstudaginn 19. mars kl. 20.30 og í Yri-Njarðvíkurkirkju laugar- daginn 20. mars kl. 14. Stjómandi kórsins er Stefán R. Gíslason. Undirleikarar eru Thomas Higgerson og Jón St. Gíslason. Einsöngvarar eru Einar Halldórsson og Álftagerð- isbræðumir Óskar Pétursson, Pétur Pétursson og Sigfús Pét- ursson. Laugardagskvöldið 20. mars verður kórinn með skagfirskt kvöld á Broadway. Fyrir sunnan og vestan í kvöld mun hljómsveitin Á móti sól halda uppi íjörinu á Gauki á stöng. Það verður líka Sör á næstunni fyrir vestan því hljómsveitin Sóldögg leikur í Sjallanum á ísafirði fóstudags- og laugardagskvöld. Myndlist Sigurðar Örlygssonar. Verk Sigurðar Örlygssonar Nú stendur yflr sýning á verk- um Sigurðar Örlygssonar í útibúi Sparisjóðs Reykjavíkur og ná- grennis að Álfabakka 14a í Mjódd. Sigurður nam við Myndlista- og handíðaskóla íslands, Den Kong- elige danske kunstakademie, hjá Richard Mortensen og við Art Stu- dents League of New York. Hann hefur haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í mörgum samsýningum. Sýningar Sigurður hefúr kennt við Mynd- lista- og handíðaskóla íslands, hann hefur verið í ýmsum nefnd- arstörfúm hjá FÍM og formaður þess í ár. Hann hefur starfað í op- inberum dómnefndum vegna list- skreytinga. Sigurður hlaut Menn- ingarverðlaun Dagblaðsins 1988 og hann hefúr unnið við uppsetningu um 50 myndlistarsýninga fyrir aðra aðila, m.a. á Kjarvalsstöðum og í Listasafni Kópavogs. Bridge Þegar vömin missteig sig i þessu spili í undanúrslitum landsliðs- keppninnar i Bandaríkjunum lét Bob Hamman tækifærið ekki fram- hjá sér fara. Spilið kom fyrir í leik sveita Nickels og Shwartz sem lauk með næsta öraggum sigri sveitar Nickels. Norður var gjafari og NS á hættu: 4 K95 «4 K10843 ■f 2 * D654 Norður Austur Suður Vestur Soloway Schw. Hamm. Lair Pass pass 14 3 ♦ pass pass 3 •* pass 4 4 p/h Soloway gat ekki tekið undir spaðalit Hammans í fyrstu, þar sem opnunin gat verið á flórlit. Útlitið var ekki bjart og lega spilanna benti til þess að sagnhafi yrði að sætta sig við að gefa a.m.k. 4 slagi. Lair spil- aði út hjartadrottningunni í upphafi sem Hamman drap á ásinn heima. Hann spilaði nú laufi á kónginn, sem var ekki slæm byrjun, og síðan hjarta úr blindum. Shwartz setti lít- ið spil og Lair trompaði á spaðasjöu. Lair spilaði nú undan laufásnum, Shwartz fékk slag- inn á drottninguna og hefði nú átt að spila aftur hjarta. Hann spilaði hins vegar einspili sínu í tígli og Hamman hagnýtti sér þetta tækifæri til fulln- ustu. Hann trompaði lauf heima (og felldi ás vesturs), lagði niður spaða- ás og sá gosann koma í hjá vestri. Hjarta var trompað í blindum, lauf- tian tekin og hjarta hent heima. Tig- ull var nú trompaður heim og síð- asta hjartað trompað í blindum. Þrátt fyrir að Hamman væri kom- inn niður á blanka spaðadrottningu og Shwartz ætti K9 í trompinu hlaut spaðadrottningin að verða tíundi slagurinn þegar tígli var spilað úr blindum. ísak Örn Sigurðsson 4 G7 •* D ♦ KG107654 * Á87

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.