Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1999, Síða 36
I Vinningstölur miðvikudaginn 10.03. ’99
'2 “ 30 W («1
I K I N <
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
VWW550 5555
FIMMTUDAGUR 18. MARS 1999
Stefnir biskupum
Hörður Ásbjörnsson, fyrrverandi
sóknarprestur, hefur stefnt fjórum
biskupum íslands og kirkjumálaráðu-
neytinu fyrir Héraðsdóm Reykjavík-
ur. Hér er um að ræða þá Sigurbjöm
Einarsson, Pétur Sigurgeirsson, Ólaf
Skúlason og Karl Sigurbjömsson.
Samkvæmt upplýsingum DV í
morgun hafa menn velt vöngum yfir
þvi hvers vegna Hörður er í raun að
stefna biskupunum fyrir dóm. Eftir
því sem mönnum hefur skilist fela
gögn málsins það hins vegar í sér að
stefnandinn telji sig hafa átt að njóta
launa hjá kirkjunni um árabil án þess
að hafa í raun verið í starfl. -Ótt
Fyrirsætur
framtíðarinnar
í Fókusi sem fylgir DV á morgun
verða birtar myndir af 34 stúlkum
sem aliar vilja verða Fordfyrirsætan
1999 en Fókus stendur að þessari
keppni í samvinnu við Eskimó mód-
els. Bryndís Guðmundsdóttir tal-
meinafræðingur segir hvers vegna
skrækróma fólk er skrækt og gefur
ráð til þeirra sem eiga í vandræðum
með röddina í sér. Þá eru fundnir
málgallar í röddum nokkurra kunnra
landsmanna. Rætt er við ungstirnin
Védísi Hervöru Árnadóttur og Svein
Rúnar Sigurðsson. Lífið eftir vinnu
fylgir Fókusi, leiðarvísir um skemmt-
ana- og menningarlífið.
Það er orka í þessum framsóknarmönnum á orkuþingi í gær, Hjálmari Árnasyni alþingismanni og Finni ingólfssyni iðnaðarráðherra. Umræðuefnið? Gettu
þrisvar! „Við vorum auðvitað að ræða um vetnið," sagði Finnur í morgun. „Vetnið er orka framtíðarinnar og mun stórlega draga úr losun gróðurhúsaloftteg-
unda,“ sagði hann. Þeir eru á því að í upphafi nýrrar aidar fari íslendingar að framleiða eigið eldsneyti á farartæki sín. DV-mynd E.ól.
Sumir greiða fyrir spítalavist en aðrir ekki:
Áríðandi að liggja
lengur en 24 tíma
- þeir sem liggja skemur greiða háar Qárhæðir
„Við förum eftir reglugerð sem
kveður á um að þeir sem liggja 24
tíma eða skemur eiga að greiða
fyrir aðgerðir. Það eru þó til und-
antekningar svo sem ef um er að
ræða fóstureyðingar, frjósemisað-
gerðir eða sjúkdóma á meðgöngu,"
segir Kristján Sigurðsson, sviðs-
stjóri kvenlækningasviðs Land-
spítalans, spurður um ástæður
þess að tvær konur urðu að greiða
22 þúsund krónur hvor, eftir að
hafa legið inni á kvennadeiid
Landspítalans einn dag. Svo sem
DV greindi frá útskrifuðust kon-
umar að kvöldi en var boðið að
sofa um nóttina á spítalanum.
Nokkru síðar fengu þær reikninga
fyrir spítalavistinni, sér til mikill-
ar undrunar. Margrét Héðinsdótt-
ir, önnur kvennanna, sagði við DV
að hún hefði ekki fengið neinar
viðvaranir um að reikningur
myndi berast fyrir aðgerðina,
hvorki áður en hún lagðist inn né
áður en hún útskrifaðist að eigin
ósk um kvöldið.
Kristján sviðsstjóri segir að gert
sé ráð fyrir því að fólk viti af því
fyrir innlögn hver kostnaðurinn
sé. í bréfl sem sjúklingar fái eigi að
tilgreina slíkt. Þá sé einnig gert
ráð fyrir að inni á deildum sé fólki
gerð grein fyrir málinu og því tvö-
falt upplýsingakerfi.
„Ég óska eftir því að konurnar
sendi mér bréf með greinargerð
um sín mál ef þær telja sig hafa
verið órétti beittar. Ég mun þá fara
í gegnum þetta og þá kemur i ljós
hvort eitthvað og þá hvað hefur
farið úrskeiðis," segir Kristján.
Hann segir að innheimta þjón-
ustugjalda fyrir ferliverk hafi byrj-
að á Kvennadeildinni um áramótin
1997/1998. Ástæða þess að gripið
var til þess hafi verið sú að annað
væri brot á samkeppnisreglum þar
sem um væri að ræða sömu verk
og unnin væru á sjálfstæðum stof-
um úti í bæ.
„Okkur er auðvitað ekkert sér-
staklega i mun að rukka inn þessi
gjöld en við verðum einfaldlega að
gera það reglum samkvæmt," segir
Kristján.
Hann segir alls ekkert einsdæmi
að kvennadeildin innheimti gjald-
ið. Sömu reglur gildi annars stað-
ar, svo sem á slysadeild. Sá sem
lendi í slysi og sé útskrifaður inn-
an sólarhrings verði að greiða fyr-
ir alla þjónustu sem spítalinn láti í
té. Liggi hann í 25 tíma eða lengur
þá falli kostnaðurinn ekki á sjúk-
linginn.
„Þegar um er að ræða slys gefst
ekki alltaf tími til að láta fólk vita
af kostnaði fyrir fram. Þetta er eitt-
hvað sem fólk á að vita,“ segir
Kristján.
-rt
Samherji skilaði
706 mHljónum
DV, Akureyri:
Rekstrarhagnaður Samherja hf. á
síðasta ári nam 706 milljónum
króna, en var 204 milljónir árið
áður. Reksturinn gekk vel, og öll
dótturfélögin erlendis voru rekin
með hagnaði. Mikil fjármunamynd-
un var í rekstrinum en veltufé frá
rekstri nam tæpum 1,4 milljörðum
króna.
Þorsteinn Már Baldvinsson fram-
kvæmdastjóri segist sáttur við af-
komuna. „Niðurstaðan er svipuð og
við gerðum ráð fyrir og ég er sér-
lega ánægður með hversu vel hefur
tekist að snúa við rekstri dótturfé-
laga Samherja erlendis, sem var eitt
af meginmarkmiðum okkar,“ segir
Þorsteinn Már. -gk
Hamrahlíðarskóli:
Reyndu að
brjótast inn
Reynt var að brjótast inn í nem-
endaaðstöðu Menntaskólans við
Hamrahlíð á fimmta tímanum í
nótt. Tveir aðilar reyndu að spenna
upp dyr við norðurgafl skólans en
innan við dymar er hraðbanki. Lög-
reglan fékk tilkynningu um verkn-
aðinn og þegar hún kom á staðinn
hlupu innbrotsþjófarnir á brott.
Lögreglan elti þá uppi og náðust
þeir og gistu fangageymslur lögregl-
unnar í nótt. -hb
Veðrið á morgun:
Kólnandi veður
og snjókoma
Á morgun er gert ráð fyrir all-
hvassri norðvestanátt og éljum
austast í fyrramálið, en annars
fremur hægri norðaustlægri átt
og úrkomulaust verður að
mestu. Síðdegis snýst í austan-
kalda suðvestanlands og búast
má við snjókomu undir kvöld.
Kólnandi veður, frost verður á
bilinu 5 til 10 stig á morgun.
Veðrið í dag er á bls. 37.
MERKILEGA MERKIVELIN
bfother pt:
fslenskir stafir
Taska fylgir
8 leturgeröir, 6 stasrðir
6, 9, 12, 18 mm borðar
Prentar í 4 línur
Aðeitts kr. 10.925
Nýbýlavegi 28 Simi 554 4443
Veffang: www.if.is/rafport
flHOBUJ
SOKKABUXUR