Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1999, Qupperneq 29

Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1999, Qupperneq 29
DV LAUGARDAGUR 27. MARS 1999 37 viðtal li miðað við frammistöðu einstakra landa. Fulitrúarnir koma fram með sitt lag til að ptir ekki máli hvernig stigataflan stendur." „Við höfum reynt að syngja á íslensku í 12 ár og aldrei verið framarlega nema þegar Eitt lag enn fór í fjórða sæti. Eg er hlynnt því að prófa að syngja á ensku.“ textann í samstarfí við Sveinbjörn I. Baldvinsson. Við gerðum nokkrar út- gáfur og vorum svo öll sammála um þá síðustu." Hvernig fannst þér Eurovision áður en þú ákvaðst að taka þátt? „Þegar ísland byrjaði að taka þátt í keppninni var ég tólf ára. Þá fannst mér þetta alveg frábært og ég man eft- ir því að fyrstu tvö, þrjú árin var ekki hræða á ferli meðan sýnt var frá keppninni, og ekki einn bíll á götun- um. Þegar ísland varð alltaf í sext- ánda sæti aftur og aftur dvínaði áhug- inn. Á einhverjum tímapunkti fannst mér keppnin og allt í kringum hana alveg ofsalega hallærislegt, en horfði samt alltaf á hana. Þannig held ég að Þióðarsorgin yfir hrakför Gleðibankans Hvernig tónlist er það sem þú fílar? Eru einhverjir sérstakir áhrifavaldar? „Ég held að ég sé undir áhrifum frá mjög mörgum, án þess að gera mér grein fyrir því. Ég hlusta annars á allt nema kántrí. Ef hægt væri að tala um uppáhald hjá mér núna nefni ég Car- digans og Garbage, en ég er gamall U2-aðdáandi.“ Hvert er svo uppáhalds Eurovision- lagið þitt? „Það er All Kinds of Everything, sem Dana söng 1979 og Aba-e-bí-ó-ba-e- be sem ísrael var með i kringum 1980. Af íslensku lögunum finnst mér skemmtilegast lagið Nína, sem Eyjólf- ur Kristjánsson og Stefán Hilmarsson sungu.“ Manstu eftir mestu vonbrigðunum í tengslum við Eurovision? „Það hafa sennilega verið þau fyrstu, þegar Gleðibankinn fór flatt. Það var þjóðarsorg. Einnig vegna þess að veðbankarnir höfðu spáð okkur góðu gengi. Við tókum of mikið mark á þeim þar sem við vorum algerir byrjendur í keppninni. Ég man alveg eftir þessu kvöldi. Maður var svo stressaður, þetta var hrikalegt. Að sama skapi var maður glaður þegar Eitt lag enn komst í fjórða en þá varð maður svekktur yfir þvi að þau skyldu ekki vinna þar sem þau voru komin svo rosalega nálægt því.“ Hvernig tilfmning heldurðu að það sé að syngja fyrir alla heimsbyggðina? „Ég veit það ekki, það getur verið að ég verði rosalega stressuð, en það er bót í máli að tónleikahöllin er lítil. Maður sér þá sem eru inni í höllinni, 1500 manns, en ekki alla heimsbyggð- ina. Mér finnst frábært að syngja þetta lag og ég verð mjög vel æfð. Ég vona bara að ég verði ekki svo stressuð að ég hafi ekki gaman af þessu. Ferðalagið sjálft verður líka áreiðanlega mjög skemmtilegt. Við verðum í viku í Jerúsalem við æfing- ar og fréttamannafundi og þetta verð- ur algert ævintýri. Við ætlum að skoða okkur vel um, enda nóg að skoða 1 Jerúsalem." Langar að halda Islandi í keppninni Finnst þér ekkert að fólk sem hefur farið í Eurovision fái á sig Eurovision- stimpil? „Selma Júró? Nei, maður gerði þetta kannski til að byrja með, þegar nýir söngvarar komu fram í þessari keppni, en það er allt að breytast. Mað- ur hugsar til dæmis ekki um Pál Ósk- ar sem Eurovision-söngvara eingöngu. Ég held að ég sé þegar komin með stimpil sem söngleikjasöngkona og stimplamir sem maður hefur markast af því hvað maður er að gera hverju sinni. Ég ber kannski Eurovision- stimpilinn meðan það er að ganga yfir og svo kemur bara eitthvað annað." Þér finnst þetta ekki frábrugðið öðr- um verkefnum sem þú hefur tekið að þér? „Nei, í rauninni ekki. Ég hef horft á nokkrar keppnir til þess að koma mér í fílinginn og mér þykir þessi keppni vera „show“. Úrslitin hafa að mínu mati ekki skipt máli miðað við frammistöðu einstakra landa. Fulltrú- arnir koma fram með sitt lag til að kynna sitt land og það er gaman. Það skiptir ekki máli hvernig stigataflan stendur." Ætlarðu ekki að slá í gegn? „Um það ætla ég ekki að segja neitt. Ég vildi óska að ég gæti haldið íslandi inni í keppninni, en ég hef ekki heyrt eitt einasta lag og það væri fáránlegt að fara að spá sér i eitthvert sæti. Þess vegna gæti ég lent í botnsætinu, ég hef ekki hugmynd um það,“ segir Selma að lokum. -þhs kkt fyrir hlutverk sín Nú tekst hún á við lún hefur verið valin Eurovision-söngva- ind. þvi sé farið með mjög marga. Að þeim finnist keppnin hallærisleg en horfi samt á hana,“ segir Selma og hlær. Hún segir að henni þyki samt eins og síðustu tvö ár hafi keppnin verið að breytast og það sé ein ástæðan fyrir því að hún ákvað að taka þátt. „Keppendur eru ekki fimm árum á eftir í tísku og tónlistarstíl eins og þeir hafa alltaf verið. Þetta hefur ver- ið að fara svolítið út i þá tónlist sem ég fila og við Þorvaldur erum að búa til. Þá nefni ég sem dæmi Bretland og ísrael í fyrra og Pál Óskar í hitteð- fyrra.“ Selma við tökur á myndbandinu sem nú er fullklárað. Það verður frumsýnt í sjónvarpsþættinum Stutt í spunann þann níunda apríl. DV-myndir Hilmar Þór Ef til vill þekktasta hlutverk Selmu til þessa. Góða stelpan Sandy í söng- leiknum Grease.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.