Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1999, Blaðsíða 1
Boxster í
verðlaun
Bls.44
Opel Zafira er fjölhæfur bíll,
byggður á svipuðum grunni og
Opel Astra, með sæti fyrir sjö
farþega og hægt að breyta með
lítilli fyrirhöfn í tveggja sæta bíl
með mikla flutningsgetu, og það
án þess að fjarlægja sæti. Mynd
DV-bílar JR
Loft í dekkin
og Ijósin í lagi
- og svo þvo fram-
rúðuna að innan
Eflaust hyggja margir á
skemmtiferöir um bænadaga og
páska. Sumir nota sér almenn-
ingsfarartæki, flugvélar og hóp-
ferðabíla, en fjölmargir munu líka
feröast á eigin bílum - og svo sem
eigin vegum líka því vegir lands-
ins eru sameign þjóöarinnar.
DV-bilar vilja minna ferða-
langa dymbilviku og páska á aö
gæta að hjólböröum sinum; að
þeir séu svo sem dugar í þeirri
færð sem vænta má og ekki síður
að þeir séu með réttan loftþrýst-
ing. Það hefur ekki aðeins mikið
að segja upp á þægindin og end-
ingu dekkjanna heldur ekki síður
upp á öryggið í ferðinni. Of hörð
dekk gera bílinn hastan og hopp-
andi og þar með erfiðara að
stjórna með öryggi, meðan of lin
dekk gera hann of mjúkan og
dúandi, fyrir utan að bíll með of
lint í dekkjunum hefur tilhneig-
ingu til að rása og vera þar með
hættulegur.
í annan stað er rétt aö fá sér
gönguferð einn hring umhverfis
bílinn og ganga úr skugga um að
öll ljós séu eins og þau eiga að
vera. Eineygður bíll má ekki tapa
nema einu ljósi í viðbót til að
vera orðinn ljóslaus, auk þess
sem erfiðara er fyrir aðra umferð
að meta Qarlægð i eineygðan bíl
heldur en þann sem er rétt ljós-
um búinn.
Og svo eitt enn - mjög áríðandi
hvort sem menn ætla í langferðir
eða bara í bíó: Þvoið framrúð-
una að innan! Innan á hana
sest á skömmum tíma ósýnileg
brák sem í mótljósi, eins og t.d.
móti lágri sól, dregur mjög úr
útsýni og veldur óeðlilegum
glömpum. Margur sá sem seg-
ist hafa blindast af sól hefði
sennilega bjargast hefði hann
sinnt því að þvo framrúðuna
að innan nógu oft og rækilega.
Vegur miilistórra bíla hefur vax-
ið mikið í Evrópu á allra síðustu
árum. Bílar i þessum flokki eiga
stóran hluta markaðarins, einkum i
Norður-Evrópu og þar hafa bíla á
borð við VW Golf og Opel Astra ver-
ið nokkuð áberandi, enda er þessi
flokkur oftar en ekki nefndur Golf-
flokkurinn, einkum í heimalandinu
Þýskalandi.
Sú velgengni sem þessir bílar
hafa átt að fagna hefur ýtt undir
frekari þróun þeirra og þá sérstak-
lega í þeim flokki sem kallast
„compact van“ í bílaheiminum eða
fjölhæfir fólksbílar með mikla flutn-
ingsgetu í anda bandarísku „van-
bílanna", nema hvað þeir evrópsku
eru minni og liprari.
Nýjasti bíllinn í þessum flokki er
frá Opel, Zafira, en þennan bíl frum-
sýndi Opel á Edþjóðlegu bílasýning-
unni í París á liðnu hausti. Þessa
dagana er Opel að kynna þennan
nýja bíl fyrir fjölmiðlum í Algarve í
Portúgal, en fyrstu bílamir koma á
markað á næstu vikum.
Fram kom við kynninguna í
Portúgal að Opel hyggst framleiða
145.000 Zafira-bíla í verksmiðjunum
í Bochum í Þýskalandi á þessu ári
en framleiðslan verði komin í
200.000 bíla á næsta ári. Þeir reikna
einnig með að þessi gerð bíla eigi
eftir að sækja í sig veðrið á næst-
unni. Á árinu 1998 áttu þeir um 2%
markaðarins en reiknað er með því
að hlutdeild þeirra hafi aukist i 10%
á árinu 2005.
Við segjum i dag frá reynslu-
akstri á þessum fjölhæfa bíl frá
Sjá bls. 38
Einn þeirra sportlegu bíla sem komið hafa fram á sjónarsviðið á síðustu
mánuðum og vakið óskipta athygli, er hinn nýi Jaguar S. Það sem er sér-
stætt við þennan nýja bfl er að hann er minni en þeir Jaguar-bílar sem ver-
ið hafa á markaði á síðari árum og útlitið minnir mjög á glæsileika fyrri tíma.
Ekki er enn vitað hvort þessi bíll muni sjást á vegum hér á landi, en hann er
óneitanlega forvitnilegur og við gripum tækifærið og forvitnuðumst um bíl-
inn hjá norskum bílablaðamanni sem var á ferð hér nýlega og var nýkominn
frá því að reyna hann í Frakklandi.
Þróunolíuúrgerviefnum: ffá geílTlfefðUIIl tíl faíla
Á þessu ári eru liðin 25 ár frá því að
olia úr gerviefnum kom á markað.
Það er einn frumkvöðlanna, Mobil
Oil, sem einkum minnist þessara
tímamóta. Það mun að vísu hafa ver-
ið árið 1943 sem slík olía leit fyrst
dagsins ljós en þá aðeins í mjög litlum
mæli og kostaði líka sitt. Það voru
bandaríska geimferðastofnunin og
flugfélög sem urðu fyrst til að nota
slíka olíu.
Það var ekki fyrr en á árunum upp
úr 1970 sem slík olía kom almennt á
markað i Evrópu og það var ekki létt-
ur róður fyrir olíufélögin að koma
þeirri vöru á markað.
Það trúðu fáir á olíu sem var
þynnri en sú sem menn áttu að venj-
ast og þegar við bættist að hún var
líka Ijósari þyngdist róöurinn enn þar
sem það varð til þess að olían virtist
enn þynnri.
Það tókst þó að vinna þessum nýju
olíutegundum sess á þeim forsendum
að þær væru eldsneytissparandi. Sú
staðreynd, að þvi viðbættu að þessar
nýju olíur menga minna, gerir þær
enn raunhæfari kost í dag.
Einmitt nú eru þeir hjá Mobil Oil
tilbúnir með sjöundu kynslóð af þess-
um gerviefhaolíum.