Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.1999, Side 4
4
FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 1999
Fréttir
Konurnar sem útskrifuðust „of snemma“ af spítala:
Greiðslur felldar niður
Kristján Sigurðsson, sviðsstjóri
kvenlækningasviðs Landspítalans,
hefur tekið ákvörðun um að fella
niður greiðslur tveggja kvenna
sem urðu hvor um sig að greiða 22
þúsund krónur fyrir læknisverk,
þar sem þær dvöldu skemur en 24
klukkustundir á Landspltalanum.
DV fjallaöi um þetta mál fyrir
skömmu og í kjölfar þess skrifuðu
konurnar stjórnendum Landspital-
ans bréf, þar sem þær mótmæltu
þessum greiðslum. Kristján sagði
við DV að niðurfellingin væri per-
sónuleg ákvörðun hans, en hann
ætti eftir að bera hana undir
stjórnendur spítalans til sam-
þykktar.
„í báðum þessum tilvikum eiga
þær rétt á niðurfellingu á greiðslu,
- í kjölfar umQöllunar DV
Knmur t*tm fí>ru í aOgetð ð KvmuvukrM Ijmawivrttmz.
Greiddu 22 þúsui
fyrlr að sofa heima^
iyritm stoppid y>0 tí*t> }>ví nA ttj/öu nótt» mtaitmmn
gaagg
nejmn
Frétt DV sem birtist í síðasta mánuði varð til þess að hætt er við að rukka
konurnar.
þar sem ekki var staðið rétt að því
að upplýsa þær,“ sagði Kristján.
„Þær voru lagðar inn á þeirri for-
sendu að þær væru að fara í lengri
aðgerð, en voru síðan skrifaðar út
fyrr en fyrirhugað hafði verið. „
Kristján sagði að stundum væri
erfitt að dæma um það fyrir fram
hvort aðgerð falli undir svokölluð
ferliverk. Ekki væri hægt að segja
á stundinni hvort kona sem t.d.
þurfi að fara í kviðspeglun verði
komin út af sjúkrahúsinu innan 24
stimda. í umræddum tveimur til-
vikum hefði láðst að segja konun-
um að þær þyrftu að greiða háar
upphæðir ef þær yrðu komnar út
af sjúkrahúsinu innan 24 klukku-
stunda.
-JSS
Dökkt er fram undan í rekstri Loöskinns hf. á Sauðárkróki.
Uppsagnir hjá
Loðskinni
DV, Akureyri:
Öllum starfsmönnum skinnaiðn-
aðarfyrirtækisins Loðskinns á
Sauðárkróki, um tuttugu talsins,
hefur verið sagt upp störfum og
virðist ekki annað fyrirsjáanlegt en
að rekstur fyrirtækisins leggist af i
lok maimánuðar.
Sveitarfélagið Skagafjörður og
Búnaðarbankinn, sem eru
langstærstu hluthafar í Loðskinni,
með samtals um 70% hlutafjár,
ákváöu um áramót að setja aukið
hlutafé inn í reksturinn og freista
þess að koma fyrirtækinu á réttan
kjöl en Loðskinn hefur átt í fjár-
hagslegum erfiðleikum um árabil.
Markaðir fyrir afurðir fyrirtækis-
ins erlendis hafa nánast hrunið að
undanfórnu og er fátt sem bendir til
að á þeim verði breyting á næst-
unni.
-gk
Fegurðarsamkeppni Suðurlands:
Drottningin
frá Selfossi
DV, Hveragerði:
Fegurðarsamkeppni
sunnlenskra stúlkna fór
fram á Hótel Örk í Hvera-
gerði nýverið og varð 19 ára
snót frá Selfossi, Linda
Björk Sigmundsdóttir, sig-
urvegari og fegurðardrottn-
ing Suðurlands. Fjöldi gesta
var á keppninni og var
kvöldið, auk fegurðar-
keppninnar, helgað Spáni í
mat og dansi. í öðru sæti í
keppninni varð Halla Rós
Arnardóttir, tvítug stúlka
úr Laugardalshreppi, og
þriðja sætið hlaut Guð-
munda Á. Geirsdóttir, 19
ára úr Ölfushreppi. Vin-
sælasta stúlkan í keppninni
var valin Sif Gunnarsdóttir
frá Hveragerði, 19 ára, og
Elin Steindórsdóttir, 18 ára
stúlka frá Selfossi, var val-
in besta ljósmyndafyrirsæt-
an. -EH
Sigurvegarinn, Linda Björk Sigmundsdóttir.
DV-mynd Eva
Ekkert með kosningar
mm
Af hverju eru ekki
kosningar á hverju
ári? Á hverjum degi,
bæði fyrir og eftir
páska, hafa ráðherr-
amir i ríkisstjórninni
kappkostað að lagfæra
ýmislegt það sem
aflaga hefúr farið á
undanförnum árum.
Halldór Blöndal er bú-
inn að lýsa yflr vOja
sínum til að grafa
göng á milli Siglufjarð-
ar og Eyjafjarðar og er
búinn að úthluta
nokkrum milljörðum
til vegalagningar hér
og hvar um landið.
Nánast hvar sem er.
Bjöm menntamálaráð-
herra er búinn að lag-
færa námslánin og
lofa menningarhöllum
á einum sex stöðum
úti á landsbyggðinni. Davíð og Halldór Ás-
grímsson hafa báðir lofað bót og betran í kvóta-
málum og Ingibjörg Pálmadóttir hefur bætt kjör
aldraðra og öryrkja og nú síðast felit niður gjöld
fyrir sjúkrahúsvist, hafi sjúklingur legið styttra
á spítalanum en sem nemur einum sólarhring.
Þetta framtak ráðherranna hefur auðvitað
ekkert með kosningar að gera, eins og þeir hafa
sjálfir tekið fram, en allt kemur þetta sér vel
fyrir sauðsvartan almúgann sem á að kjósa í
vor, án þess þó að verið sé að gera þetta fyrir al-
múgann vegna þess að það eigi að kjósa í vor.
Aðgerðir ráðherranna hafa ekkert með kosn-
ingamar að gera vegna þess að þetta eru að-
gerðir sem þeir voru fyrir löngu búnir að
ákveða að gera einmitt núna á þessum vikum
og algjörlega án tillits til þess hvort kjósa skyldi
í vor eða ekki. Raunar voru sumir ráðherranna
meira að segja búnir að gleyma því að það ætti
að kjósa í vor, enda er ríkisstjómin svo föst í
sessi að kosningar breyta engu til eða frá og
hafa ekkert með aögerðir ríkisstjómarinnar að
gera, frekar en aðgerðir hennar hafa með kosn-
ingarnar að gera.
Þetta era þá miklu frekar aðgerðir og ákvarð-
anir sem ráðherrarnir vilja koma í verk áður
en kjörtímabilinu lýkur og þess vegna er Dag-
fari þeirrar skoðunar að það gæti komið sér vel,
bæði fyrir kjósendur og ráðherra, að kjósa til
dæmis á hverju ári til að flýta fyrir þeim
ákvörðunum og aðgerðum sem koma þarf í verk
á hverju kjörtimabili. Eftir því sem kjörtímabil-
in styttast því meiru koma þeir í verk.
Ekki það að þetta hafi neitt með kosningar að
gera þótt göng séu grafln og vegir byggðir og
gjöld afnumin og hallir reistar og námsmönn-
um bættur skaðinn heldur hitt að ráðherrum er
í mun að skapa þjóðarsátt um ríkisstjómina og
að kjósendur lifi í sátt við ráðherrana og allt
hafði þetta dregist vegna þess að það var svo
mikið að gera áður en þeir komu þessu í verk.
Að öðra leyti er þetta kosningunum algjör-
lega óviðkomandi. Og svo er þetta ekki borgað
fyrr en eftir kosningar sem sýnir að þetta hefur
ekkert með kosningarnar að gera.
Dagfari
sandkorn
Pólskar veitingar
Barátta stjórnmálamanna um at-
hygli almennings er nú í hámarki.
Ráðherrar eru daglega með blaða-
mannafundi þar sem þeir kynna þau
hjartans mál sem lík-
leg þykja til að gefa at-
hygli. Misjafhlega hef-
ur þó gengið að draga
fjölmiðla á vettvang.
Einna best tókst
Páli Péturssyni fé-
lagsmálaráðherra
upp þar sem hann
boðaði með aridköfum tO slíks
fundar. í fundarboði var tilkynnt um
þann stórviðburð að pólsk-íslensk
orðabók væri að koma út. Þá var
skráð með stórum stöfum á fundar-
boð að PÓLSKAR VEITENGAR yrðu
í boði. Flestir fjölmiðlar mættu á
svæðið og heimildir herma að ein-
hverjir hafi séð fyrir sér hlaðborð
pólskra þjóðarrétta sem kannski
væri toppað með pólskum vodka.
Það datt andlitið af einhverjum þeg-
ar á fundinn kom og við blasti risa-
stór karfa fuO af Prins Pólói...
Áran borgar
Nú er í tísku aOs kyns heilun og
skyld starfsemi. Sú gamansaga geng-
ur að Guðmundur Rafn Geirdal,
fyrrum forsetaframbjóðandi og nudd-
ari, haíi tekið við konu
nokkurri í slíka með-
ferð. Konan ku hafa
lagst á bekk þar sem
nuddarinn hófst
handa með aOs kyns
handahreyfmgum án
þess að snerta þá
sjúku. Eftir nokkra
hríð þá lýsti hann því að þessu væri
lokið og hún mætti standa upp.
„Hvað gerðirðu eiginlega?" á konan
að hafa spurt, undrandi, vegna snert-
ingarleysis nuddarans. „Ég nuddaði
árana,“ á svarið að hafa verið.
„Jæja, þú skalt þá líka rakka áruna,“
sagði konan þá og fór án þess að
borga...
í boði Baðhúss
Þátturinn Titringur í Sjónvarpinu
oOi nokkrum titringi. Þau Súsanna
Svavarsdóttir og Þórhallur Gunn-
arsson ræddu í vikunni ítarlega við
hina íturvöxnu Lindu
Pétursdóttur um
Baðhús hennar og
fleiri landsins gagn og
nauðsynjar. Þótti ein-
hverjum sem aðeins
vantaði að þátturinn
væri kynntur „í
boði Baðhússins".
Skondið var þegar ÞórhaOur spurði
hvort ekki væra bara fegurðardísir í
Baðhúsinu. Linda leit á Súsönnu,
sem þykir blómi annarra kvenna, og
sagði svo ekki vera. Þarna væru kon-
ur eins og Súsanna. Fremur þótti
Súsanna brúnaþung eftir svarið...
Jón sterkur
Þótt margir setji fyrirvara varð-
andi niðurstöður skoðanakönnunar
á fylgi stjómmálaflokkanna á Norð-
urlandi vestra, sem birtist nýlega,
fer ekki hjá því að nið-
urstöðurnar hafi ýtt
við mörgum. Það sem
vakti mesta athygli
var að Vinstri hreyf-
ingin - grænt fram-
boð fékk 14,3% sem
er meira en kannan-
ir hafa sýnt í „höfuðvíginú' a
Norðurlandi eystra þar sem Stein-
grímur formaður Sigfússon fer
fram. Á Norðurlandi vestra er Jón
Bjarnason, skólastjóri á Hólum, í
efsta sæti. Samkvæmt niðurstöðunni
myndi Jón feOa annan mann Fram-
sóknar út af þingi en þar situr nú
Ámi Gunnarsson, fyrrverandi að-
stoðarmaður Páls Péturssonar i fé-
lagsmálaráðuneytinu. Ámi verður í
forsvari fyrir framsóknarmenn í
kosningabaráttunni þar sem ráð-
herrann á við veikindi að stríða og
verður fróðlegt að sjá hvort Árna
tekst að halda sætinu...
Umsjón Reynir Traustason
Netfang: sandkom @ff. is