Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.1999, Síða 6
6
FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 1999
Viðskipti_________________________________________________________________________________________________ðv
Þetta helst: .. .Rólegt á Verðbréfaþingi, viðskipti aðeins 557 m.kr. ... Ávöxtunarkrafa húsbréfa lækkar ...
Hlutabréfaviðskipti 109 m. kr. ... Mest viðskipti með Flugleiði sem lækka ... Tæknival hækkar mest ... Sól-Víking
með 84 m.kr. í hagnað ... Opin kerfi kaupa 90% í Computer 2000 á íslandi ...
Viðskiptahalli mesti
hagstjórnarvandinn
- að mati seðlabankastjóra
I ræðu sinni á ársfundi Seðla-
bankans í síðustu viku sagði Birg-
ir ísleifur Gunnarsson seðla-
bankastjóri að helsta verkefni 1
hagstjóm á íslandi væri að koma
böndum á viðskiptahallann. Á síð-
asta ári nam hallinn 33,4 milljörð-
um, eða um 5,7% af landsfram-
leiðslu, og I ár er þvi spáð að hann
nemi 28 milljörðum, eða 4,4%. í
ræðu Birgis kom fram að um 40%
af þessum halla mætti rekja til
tímabundinna aðstæðna, svo sem
stóriðju- og virkjanaframkvæmda.
Eftir standa þá um 20 milljarðar
sem koma verður böndum á til að
Vöruskiptajöfnuður
19.411
-25.505
langtímajafn-
vægi í þjóðar-
búskapnum
raskist ekki.
Ástæðu
þessa halla
má fyrst og
fremst rekja
til mikús
halla á vöru-
skiptajöfnuði.
Sá halli nam
25 milljörðum
árið 1998 og
er þar aðal-
lega um
venjulegar neysluvörur að ræða.
Leiðir til að ná tökum á þessum
halla eru fyrst og fremst fólgnar í
auknum sparnaði. Þar er bæði átt
við einkaspamað og spamað hins
opinbera. Aukin ríkisútgjöld,
skattahækkanir á einstaklinga og
hækkaður fjármagnstekjuskattur
eru því allt dæmi um aðgerðir sem
auka á hallann. Aðgerðir stjóm-
valda ættu því að miðast að því að
hvetja til sparnaðar og spara sjálf.
Þannig verður best tryggt að jafn-
vægi í þjóðarbúskapnum raskist
ekki.
-BMG
Góð af-
koma hjá
Glitni
Bjartar horfur í
atvinnumálum
Atvinnuleysi á íslandi 1988-1999
1988 1989 1990 1991 1992 1993 1994 1995 1996 1997 1998 1999*
Helmlld: Þjóöhagsstofnun *spá |
Hagnaður Glitnis hf. árið 1998
var 202.384.000 krónur, saman-
boriö við 161.559.000 kr. hagnað
árið 1997. Glitnir er dótturfyrir-
tæki íslandsbanka sem skilaði
líka mjög góðri afkomu á síðasta
ári en hagnaður var 1,4 milljarð-
ar. Hluthafar Islandsbanka
gleðjast eflaust yfir þessum frétt-
um en þessi góða afkoma kemur
vel fram í gengi bréfa íslands-
banka sem hefur hækkað um
11% frá áramótmn.
f > GKS
Gúmmívinnnstofaii ehf.
Réttarhálsi 2, sími: 587 5588
Skipholti 35, simi: 553 1055
Þjónustnaðilai um land allt.
Á síðasta ári voru að jafnaði 3.788
atvinnulausir á íslandi en það sam-
svarar 2,8% af heildarvinnuafli. Spá
Þjóðhagsstofnunar gerir ráð fyrir að
atvinnuleysi á þessu ári verði 2,5%
og fari enn minnkandi. Á síðasta ári
minnkaði atvinnuleysi í öllum lands-
hlutum en hlutfallslega mest á Vest-
urlandi og Vestfjörðum, eða um 41%,
en minnst á Norðurlandi vestra, eða
9%. Atvinnuleysi meðal karla er
töluvert minna en hjá konum, eða
1,8% á móti 4,1%.
í alþjóðlegum samanburði stönd-
um við mjög vel. Atvinnuleysi hér á
landi er með því lægsta sem gerirst í
heiminum og meðal Evrópuþjóða er
þjónustunet þeirra. Þessi þroim hef-
ur skilað neytendum betri þjónustu
Bandaríkjamenn lýstu í gær yfir
sigri í bananastríðinu svokallaða.
Heimsviðskiptastofnunin, WTO, úr-
skurðaði i gær Bandaríkjamönnum
í vil að þeirra mati en þessi úr-
skurður hefur ekki verið staðfestur.
Upphaf þessarar deilu má rekja til
þess að Evrópusambandið lagði
háa tolla á banana frá öðrum lönd-
Lúxemborg eina landið með minna
atvinnuleysi en við. Víða í Evrópu er
atvinnuleysi kerfisbundinn vandi og
og meiri samkeppni. Fækkun fyrir-
tækja í landflutningum hefur styrkt
fyrirtækin. Helsti samkeppnisaðil-
inn, Vöruflutningamiðstöðin, dótt-
um en fyrrum nýlendum sínum í
Afríku. Þetta sættu bandarísk ban-
anasölufyrirtæki sig ekki við og
fengu stjómvöld í lið með sér. Þau
hótuðu að setja á 100% vemdartoll
á evrópsk fyrirtæki og viðskipta-
strið var í uppsiglingu. Ástæða
þess að þetta mál hefur vakið svo
mikla athygli sem raun ber vitni
er gjarnan um 12% af
vinnuaflsfæru fólki. Meðal-
atvinnuleysi innan OECD-
landa er hins vegar um
7,1%.
Horfur í atvinnumálum
hér á landi era bjartar.
Þrátt fyrir að mörgum stór-
um vinnuaflsfrekum að-
gerðum sé lokið hér á landi
gerir Þjóðhagsstofnun ráð
fyrir að eftirspurn eftir
vinnuafli muni halda
áfram að aukast. Það er
einkum í þjónustu og tæknigreinum
þar sem áframhaldandi þörf er á
vinnuafli. -BMG
urfyrirtæki Eimskips, hefur líka
verið að efla þjónustu sína og stutt
er síðan ný flutningamiðstöð var
opnuð við Sundahöfn. -BMG
er sú að þetta er prófmál á það
hvort WTO sé starfi sínu vaxin og
geti leyst alþjóðleg ágreiningsefni.
Þó er líklegt að sama hver niður-
staðan verði þá verði enginn sátt-
m-. Hins vegar vill enginn við-
skiptastríð milli Evrópu og Banda-
ríkjanna og því er brýnt að farsæl
lausn náist.
Landflutningar-Samskip eflast
Landflutningar-
Samskip hafa tekið
yfir rekstur bif-
reiðadeildar Kaup-
félags Borgfirðinga.
Opnuð hefur verið
afgreiðsla nýs fyrir-
tækis sem hlotið
hefur nafnið Flutn-
ingamiðstöð Vestur-
lands (FVL). FVL
mun verða hluti af
umfangsmiklu þjón-
ustuneti Landflutn-
inga-Samskipa og
mun aðallega starfa
á Vesturlandi. Staða
Landflutninga
styrkist enn við
þessa yfirtöku en VFL er sjötta
flutningamiðstöðin sem bætist inn í
Bandaríkjamenn lýsa sigri I bananastríðinu
Evrópa tekur
við sér
Hlutabréfaverð hækkaði mikið
í gær í kauphöllum í London og
víðar í Evrópu. Ástæðan er öðra
fremur sú að yfirvofandi vaxta-
lækkun Englandsbanka og Seðla-
banka Evrópu eykur mönnum
bjartsýni. Þó era markaðsaðilar
ekki sammála um hvort af þessum
vaxtalækkunum verði. Hækkun
hlutabréfaverðs er þó vísbending
um að svo verði. DV greindi frá
þessum vaxtalækkunum í gær og
viðbrögðin létu svo sannarlega
ekki á sér standa.
Þessum verðhækkimum ber þó
að taka með varúð því evran er
enn veik. Hún styrktist reyndar
lítillega í gær eftir að fréttir bárust
af sáttarvilja Milosevics, forseta
Júgóslavíu, en ástandið í Kosovo
er hins vegar enn ótryggt. Margir
sérfræðingar telja því að þessar
aðgerðir dugi aðeins í skamman
tíma.
Hækkanir í Asíu
Mikil verðhækkun varð á hluta-
bréfamörkuðum í Asíu í gær.
Mest hækkun varð í Hong Kong
þar sem Seng-vísitalan hækkaði
um 4%. Einnig varð hækkun á
mörkuðum í Singapúr, Suður-
Kóreu, á Filippseyjum og í
Indónesíu. Engar breytingar urðu
hins vegar í Japan. Hækkanir á
hlutabréfaverði má túlka sem svo
að efhahagur Asíulanda sé aðeins
að rétta úr kútnum eftir mikla
efiiahagsdýfu imdanfarin ár. Þó
verður timinn að leiða í ljós hvort
sú verður raunin á en þessar
hækkanir auka bjartsýni.
Mazda og
Mitsubishi í
eina sæng
Japönsku bilaframleiðendumir
Mazda og Mitsubishi hafa lýst yfir
að viðræður séu í gangi um víð-
tæka samvinnu eða jafhvel samein-
ingu. Rekstur þessara fyrirtækja
hefúr ekki gengið vel og sala hefur
fallið á síðustu misserum. Þessar
fréttir eru áhugaverðar í ljósi þess
að stærsti eigandi Mazda er banda-
ríski bílaframleiðandin Ford
Motor. Mikil samvinnu- og samein-
ingarhrina hefur gengið yfir bíla-
iðnaðinn að undanfómu. Benz og
Chrysler sameinuðust á síðasta ári
og Nissan og Renault eru í sam-
starfi, svo dæmi sé tekið. Sögu-
sagnir eru einnig um að í uppsigl-
ingu sé enn einn bilarisinn með
margar tegundir undir sínu þaki.
Veisla hjá
Sól-Víkingi
Hagnaður hjá Sól-Vikmgi hf.
var um 84 milljónir króna á síð-
asta ári. Velta jókst einnig um
30% og nam 1,3 milljörðum. Mikil
aukning var á sölu drykkjarvara
og vegur bjórscila þar þungt. Fyrir-
tækið byrjaði með nýjan bjór,
Carlsberg, og Thule sló rækilega í
gegn á árinu og Víking stendur
áfram fyrir sínu. Sala ávaxtasafa
var einnig góð og orkudrykkurinn
Magic hefur gengið vonum fram-
ar. Vel hefur verið staðið að mark-
aðs- og kynningarmálum hjá Sól-
Víkingi og fengu auglýsingar fyr-
irtækisins fjölmargar viðurkenn-
ingar á Ímark-hátíðinnni fyrir
skömmu.
Leiðrétting
Vegna mistaka vora veltutölur
á Verðbréfaþingi íslands, sem birt-
ust í DV í gær, rangar. Magntölur
tvöfólduðust en öll hlutfóll era
hins vegar rétt og fréttin heldur
sínu gildi. Beðist er velvirðingar á
þessum mistökum.