Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.1999, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.1999, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 1999 Viðskipti_________________________________________________________________________________________________ðv Þetta helst: .. .Rólegt á Verðbréfaþingi, viðskipti aðeins 557 m.kr. ... Ávöxtunarkrafa húsbréfa lækkar ... Hlutabréfaviðskipti 109 m. kr. ... Mest viðskipti með Flugleiði sem lækka ... Tæknival hækkar mest ... Sól-Víking með 84 m.kr. í hagnað ... Opin kerfi kaupa 90% í Computer 2000 á íslandi ... Viðskiptahalli mesti hagstjórnarvandinn - að mati seðlabankastjóra I ræðu sinni á ársfundi Seðla- bankans í síðustu viku sagði Birg- ir ísleifur Gunnarsson seðla- bankastjóri að helsta verkefni 1 hagstjóm á íslandi væri að koma böndum á viðskiptahallann. Á síð- asta ári nam hallinn 33,4 milljörð- um, eða um 5,7% af landsfram- leiðslu, og I ár er þvi spáð að hann nemi 28 milljörðum, eða 4,4%. í ræðu Birgis kom fram að um 40% af þessum halla mætti rekja til tímabundinna aðstæðna, svo sem stóriðju- og virkjanaframkvæmda. Eftir standa þá um 20 milljarðar sem koma verður böndum á til að Vöruskiptajöfnuður 19.411 -25.505 langtímajafn- vægi í þjóðar- búskapnum raskist ekki. Ástæðu þessa halla má fyrst og fremst rekja til mikús halla á vöru- skiptajöfnuði. Sá halli nam 25 milljörðum árið 1998 og er þar aðal- lega um venjulegar neysluvörur að ræða. Leiðir til að ná tökum á þessum halla eru fyrst og fremst fólgnar í auknum sparnaði. Þar er bæði átt við einkaspamað og spamað hins opinbera. Aukin ríkisútgjöld, skattahækkanir á einstaklinga og hækkaður fjármagnstekjuskattur eru því allt dæmi um aðgerðir sem auka á hallann. Aðgerðir stjóm- valda ættu því að miðast að því að hvetja til sparnaðar og spara sjálf. Þannig verður best tryggt að jafn- vægi í þjóðarbúskapnum raskist ekki. -BMG Góð af- koma hjá Glitni Bjartar horfur í atvinnumálum Atvinnuleysi á íslandi 1988-1999 1988 1989 1990 1991 1992 1993 1994 1995 1996 1997 1998 1999* Helmlld: Þjóöhagsstofnun *spá | Hagnaður Glitnis hf. árið 1998 var 202.384.000 krónur, saman- boriö við 161.559.000 kr. hagnað árið 1997. Glitnir er dótturfyrir- tæki íslandsbanka sem skilaði líka mjög góðri afkomu á síðasta ári en hagnaður var 1,4 milljarð- ar. Hluthafar Islandsbanka gleðjast eflaust yfir þessum frétt- um en þessi góða afkoma kemur vel fram í gengi bréfa íslands- banka sem hefur hækkað um 11% frá áramótmn. f > GKS Gúmmívinnnstofaii ehf. Réttarhálsi 2, sími: 587 5588 Skipholti 35, simi: 553 1055 Þjónustnaðilai um land allt. Á síðasta ári voru að jafnaði 3.788 atvinnulausir á íslandi en það sam- svarar 2,8% af heildarvinnuafli. Spá Þjóðhagsstofnunar gerir ráð fyrir að atvinnuleysi á þessu ári verði 2,5% og fari enn minnkandi. Á síðasta ári minnkaði atvinnuleysi í öllum lands- hlutum en hlutfallslega mest á Vest- urlandi og Vestfjörðum, eða um 41%, en minnst á Norðurlandi vestra, eða 9%. Atvinnuleysi meðal karla er töluvert minna en hjá konum, eða 1,8% á móti 4,1%. í alþjóðlegum samanburði stönd- um við mjög vel. Atvinnuleysi hér á landi er með því lægsta sem gerirst í heiminum og meðal Evrópuþjóða er þjónustunet þeirra. Þessi þroim hef- ur skilað neytendum betri þjónustu Bandaríkjamenn lýstu í gær yfir sigri í bananastríðinu svokallaða. Heimsviðskiptastofnunin, WTO, úr- skurðaði i gær Bandaríkjamönnum í vil að þeirra mati en þessi úr- skurður hefur ekki verið staðfestur. Upphaf þessarar deilu má rekja til þess að Evrópusambandið lagði háa tolla á banana frá öðrum lönd- Lúxemborg eina landið með minna atvinnuleysi en við. Víða í Evrópu er atvinnuleysi kerfisbundinn vandi og og meiri samkeppni. Fækkun fyrir- tækja í landflutningum hefur styrkt fyrirtækin. Helsti samkeppnisaðil- inn, Vöruflutningamiðstöðin, dótt- um en fyrrum nýlendum sínum í Afríku. Þetta sættu bandarísk ban- anasölufyrirtæki sig ekki við og fengu stjómvöld í lið með sér. Þau hótuðu að setja á 100% vemdartoll á evrópsk fyrirtæki og viðskipta- strið var í uppsiglingu. Ástæða þess að þetta mál hefur vakið svo mikla athygli sem raun ber vitni er gjarnan um 12% af vinnuaflsfæru fólki. Meðal- atvinnuleysi innan OECD- landa er hins vegar um 7,1%. Horfur í atvinnumálum hér á landi era bjartar. Þrátt fyrir að mörgum stór- um vinnuaflsfrekum að- gerðum sé lokið hér á landi gerir Þjóðhagsstofnun ráð fyrir að eftirspurn eftir vinnuafli muni halda áfram að aukast. Það er einkum í þjónustu og tæknigreinum þar sem áframhaldandi þörf er á vinnuafli. -BMG urfyrirtæki Eimskips, hefur líka verið að efla þjónustu sína og stutt er síðan ný flutningamiðstöð var opnuð við Sundahöfn. -BMG er sú að þetta er prófmál á það hvort WTO sé starfi sínu vaxin og geti leyst alþjóðleg ágreiningsefni. Þó er líklegt að sama hver niður- staðan verði þá verði enginn sátt- m-. Hins vegar vill enginn við- skiptastríð milli Evrópu og Banda- ríkjanna og því er brýnt að farsæl lausn náist. Landflutningar-Samskip eflast Landflutningar- Samskip hafa tekið yfir rekstur bif- reiðadeildar Kaup- félags Borgfirðinga. Opnuð hefur verið afgreiðsla nýs fyrir- tækis sem hlotið hefur nafnið Flutn- ingamiðstöð Vestur- lands (FVL). FVL mun verða hluti af umfangsmiklu þjón- ustuneti Landflutn- inga-Samskipa og mun aðallega starfa á Vesturlandi. Staða Landflutninga styrkist enn við þessa yfirtöku en VFL er sjötta flutningamiðstöðin sem bætist inn í Bandaríkjamenn lýsa sigri I bananastríðinu Evrópa tekur við sér Hlutabréfaverð hækkaði mikið í gær í kauphöllum í London og víðar í Evrópu. Ástæðan er öðra fremur sú að yfirvofandi vaxta- lækkun Englandsbanka og Seðla- banka Evrópu eykur mönnum bjartsýni. Þó era markaðsaðilar ekki sammála um hvort af þessum vaxtalækkunum verði. Hækkun hlutabréfaverðs er þó vísbending um að svo verði. DV greindi frá þessum vaxtalækkunum í gær og viðbrögðin létu svo sannarlega ekki á sér standa. Þessum verðhækkimum ber þó að taka með varúð því evran er enn veik. Hún styrktist reyndar lítillega í gær eftir að fréttir bárust af sáttarvilja Milosevics, forseta Júgóslavíu, en ástandið í Kosovo er hins vegar enn ótryggt. Margir sérfræðingar telja því að þessar aðgerðir dugi aðeins í skamman tíma. Hækkanir í Asíu Mikil verðhækkun varð á hluta- bréfamörkuðum í Asíu í gær. Mest hækkun varð í Hong Kong þar sem Seng-vísitalan hækkaði um 4%. Einnig varð hækkun á mörkuðum í Singapúr, Suður- Kóreu, á Filippseyjum og í Indónesíu. Engar breytingar urðu hins vegar í Japan. Hækkanir á hlutabréfaverði má túlka sem svo að efhahagur Asíulanda sé aðeins að rétta úr kútnum eftir mikla efiiahagsdýfu imdanfarin ár. Þó verður timinn að leiða í ljós hvort sú verður raunin á en þessar hækkanir auka bjartsýni. Mazda og Mitsubishi í eina sæng Japönsku bilaframleiðendumir Mazda og Mitsubishi hafa lýst yfir að viðræður séu í gangi um víð- tæka samvinnu eða jafhvel samein- ingu. Rekstur þessara fyrirtækja hefúr ekki gengið vel og sala hefur fallið á síðustu misserum. Þessar fréttir eru áhugaverðar í ljósi þess að stærsti eigandi Mazda er banda- ríski bílaframleiðandin Ford Motor. Mikil samvinnu- og samein- ingarhrina hefur gengið yfir bíla- iðnaðinn að undanfómu. Benz og Chrysler sameinuðust á síðasta ári og Nissan og Renault eru í sam- starfi, svo dæmi sé tekið. Sögu- sagnir eru einnig um að í uppsigl- ingu sé enn einn bilarisinn með margar tegundir undir sínu þaki. Veisla hjá Sól-Víkingi Hagnaður hjá Sól-Vikmgi hf. var um 84 milljónir króna á síð- asta ári. Velta jókst einnig um 30% og nam 1,3 milljörðum. Mikil aukning var á sölu drykkjarvara og vegur bjórscila þar þungt. Fyrir- tækið byrjaði með nýjan bjór, Carlsberg, og Thule sló rækilega í gegn á árinu og Víking stendur áfram fyrir sínu. Sala ávaxtasafa var einnig góð og orkudrykkurinn Magic hefur gengið vonum fram- ar. Vel hefur verið staðið að mark- aðs- og kynningarmálum hjá Sól- Víkingi og fengu auglýsingar fyr- irtækisins fjölmargar viðurkenn- ingar á Ímark-hátíðinnni fyrir skömmu. Leiðrétting Vegna mistaka vora veltutölur á Verðbréfaþingi íslands, sem birt- ust í DV í gær, rangar. Magntölur tvöfólduðust en öll hlutfóll era hins vegar rétt og fréttin heldur sínu gildi. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.