Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.1999, Side 7
FIMMTUDAGUR 8. APRIL 1999
7
Fréttir
Erfiðleikar Silfurstjörnunnar í Öxarfirði:
Nýir aðilar til
bjargar
DV, Akureyri:
„Það hefur verið rætt um að við
komum þarna inn ásamt heima-
mönnum til endurreisnar fyrirtæk-
isins,“ segir Jóhann A. Jónsson,
framkvæmdastjóri Hraðfrystistöðv-
ar Þórshafnar, um þau áform að
Hraðfrystistöðin komi inn í endur-
skipulagningu fiskeldisfyrirtækis-
ins Silfurstjörnunnar í Öxarfirði.
Silfurstjcirnan hefur átt í fjárhags-
legum erfiðleikum að undanfórnu
og farið í nauðasamninga. Þannig
mun Byggðastofnun tilbúin að af-
skrifa rúmar 200 milljónir af um 300
milljóna króna skuldum félagsins
og aðrir aðilar helming. Áformað er
að afskrifa allt núverandi hlutafé,
sem nemur á annað hundrað millj-
ónum króna, og að Hraðfrystistöð
Þórshafnar og Seljalax, sem er félag
heimamanna, komi inn með nýtt
hlutafé, 20 milljónir hvor aðili.
Að sögn Jóhanns A. Jónssonar
hafa menn trú á að hægt sé að
styrkja rekstur Silfurstjörnunnar
með þessum aðgerðum en endanleg
ákvörðun í málinu verður væntan-
lega tekin á aðalfundi Silfurstjörn-
unnar sem haldinn verður í þessum
mánuði eða í maí. -gk
Von er til þess að brátt rofi til í rekstri Silfurstjörnunnar hf.
Húsnæði Rafveitu Akureyrar við Þórsstíg.
DV-mynd gk
AKO-plast vill kaupa húsnæði Rafveitu Akureyrar:
Tilboðin ganga á víxl
DV, Akureyri:
Svo virðist sem samningar muni
takast milli fyrirtækisins AKO-
plasts og bæjaryfirvalda um kaup
AKO-plasts á húsnæði Rafveitu Ak-
ureyrar við Þórsstlg.
Þegar eigendur AKO-plasts á Ak-
ureyri höfðu keypt fyrirtækið
Plastos í Garðabæ var farið að
huga að húsnæði fyrir sameinað
fyrirtæki á Akureyri en sameina á
alla starfsemi AKO-plasts og Plast-
os á einum stað á Akureyri. Augu
AKO-manna beindust að húsi Raf-
veitunnar viðÞórsstíg og var bæn-
um gert 70 milljóna króna tilboð í
húsiö. Því svaraði Akureyrarbær
með 100 milljóna króna gagntilboði
og í gær hugðust eigendur AKO-
plasts leggja annað gagntilboð fyr-
ir Akureyrarbæ.
Daniel Ámason, framkvæmda-
stjóri AKO-plasts, segir að tími sé
til kominn að botn fáist í þetta mál
og hann segist bjartsýnn á að svo
verði áður en langt um líður. Dan-
íel segir að svo hafi verið litið á að
það væri nokkur akkur í því fyrir
atvinnulífið á Akureyri að fá inn í
bæinn stórt fyrirtæki sem skapaöi
mörg störf en svo hefði virst að
undanförnu sem einhver andstaða
væri við það í bænum.
Starfsfólk AKO-plasts hefur
skrifað bæjaryfirvöldum opið bréf
þar sem þess var krafist að bærinn
tæki strax afstöðu til kauptilboðs
AKO-plasts í húsnæði Rafveitunn-
ar. Það hafi verið yfirlýst markmið
við sameiningu AKO og Plastos að
færa alla starfsemi fyrirtækjanna
saman á einn stað og ef frekari
dráttur yrði á því að Akureyrar-
bær semdi við AKO-plast væri
hætta á að því að öll starfsemi fyr-
irtækjanna yrði í Garðabæ þar
sem húsnæði væri fyrir hendi.
Svanbjörn Sigurðsson, rafveitu-
stjóri á Akureyri, hefur sagt það
vekja furðu sína að ef flytja eigi
fyrirtæki til bæjarins skuli það
þykja sjálfsagður hlutur að einu af
fyrirtækjum bæjarins skuli kastað
út úr húsnæði sínu. Verði af kaup-
um AKO-plasts á húsnæði Rafveit-
unnar er áformað að Rafveitan
flytji að Rangárvöllum þar sem
starfsemi Hitaveita Akureyrar er
til húsa. -gk
1 ní&Nv!*