Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.1999, Page 10
Spurningin
Er vorið komið á
Vestfjörðum?
(Spurt á ísafirði)
Torfi Einarsson, starfsmaður Sjó-
vá Almennra: Já, það er ekki
spuming.
Rósa Magnúsdóttir, starfsmaður
Básafells hf.: Já, vorið er komið.
Bernharð Hjaltalln matreiðslu-
maður: Það er alveg öruggt, þvi
þingmennimir eru farnir að koma.
Edda Marine Einarsdóttir nemi:
Já, ömgglega.
Ólafur Sverrisson nemi: Já, ég er
alveg ákveðin í því.
Sveinn Ingvi Valgeirsson nemi:
Nei, ekki alveg.
Lesendur
Gangan langa
Jón skrifar:
Það er vonandi að
þeir fimm einstak-
lingar sem gengu
Keflavíkurgönguna í
páskavikunni hafi
skemmt sér. Þeir
áttu a.m.k. ekki mik-
inn þátt í að
skemmta öðrum,
nema þá fréttastofu
Ríkisútvarpsins sem
flutti linnulausar
fréttir af göngunni
daginn inn og daginn
út. En hverju voru
göngugarparnir að
mótmæla? Jú, því að
ísland hafði verið að-
ili að NATÓ í 50 ár.
Því að vera varnar-
liðsins hér á landi
hafi átt þátt í að
skapa þúsundir
starfa á ári hverju
fyrir þá sem búa í
Keflavík og ná-
grenni. Og því er
mótmælt að NATÓ
hefur greitt fyrir
veru sína á Miðneðs-
heiði hundruð miflj-
óna með þvi að taka
þátt í uppbyggingu flugbrauta og
viðhaldi. Kostnaði sem ekki verður
séð að íslendingar hefðu með
nokkru móti getað lagt út fyrir.
En það átti að mótmæla með
göngu þetta árið. Fimm manns
gengu fylktu liði og talsmaðurinn
sagði ástæðuna fyrir fjöldanum þá
Fimm einstaklingar í Keflavíkurgöngu á dögunum.
ekki meiri en það að fimm manns nenntu í gönguna
að einn maður gengi fyrir hvert ár
sem ísland hefði verið aðili að
NATÓ. M.ö.o. er andúðin á veru
vamarliðsins ekki meiri en það að
fimm manns nenntu í gönguna
löngu.
Og misskilningurinn er byggður
á því sama og andúðin gegn Dönum
M.ö.o. er andúðin á veru varnarliðsins
löngu,“ segir bréfritari m.a.
fyrr á öldinni. Það var þjóðin sem
sendi okkur skemmt mjöl og kúgaði
á allan hátt. Staðreyndimar tala
sínu máli í dag, á svipaðan hátt og
þær hafa gert fyrir þá sem voru á
móti varnarliðinu hér á landi fyrir
50 árum. Hinir átta sig vonandi á
því síðar.
Fylgi Sjálfstæðisflokksins
Hafliði Helgason skrifar:
Fylgi stjórnmálaflokka birtist í
DV 1.4. sl. Þar kemur fram að fylgi
Sjálfstæðisflokksins hefur farið úr
39,9 prósentum í 50,1 prósent. Hvað
er eiginlega að fólki? Er þetta ekki
fólkið sem var fyrir utan Laugar-
dalshöllina þegar landsfundurinn
var að byrja til að minna Davíð for-
mann á að það lifði ekki á sultarbót-
um sínum? Davíð hefur engan skiln-
ing á því og hugsar bara að þetta
fólk sé að gera að gamni sínu. Trú-
lega er þetta ekki launafólkið sem
er að þræla sem gefur Sjálfstæðis-
flokknum atkvæði sitt. Trúlega er
þetta ekki fólk sem er félagar í ASÍ
og heldur ekki aðstandendur fólks
sem hefur lent í klóm eiturlyfjanna
þar sem Sjáifstæðisflokkurinn stýr-
ir dómum á hendur sölumönnum
dauðans.
Hverjir eru það sem gefa Sjálf-
stæðisflokknum þessa einkunn?
Góðæri Davíðs Oddssonar er í hönd-
um hvíflibba en ekki hins almenna
launamanns.
Tæknilegir örðugleikar í 118
Ólafur Þ. Stephensen, forstöðu-
maður upplýsingasviðs Lands-
símans, skrifar:
Guðlaug Jónsdóttir gagnrýndi í
lesendabréfi 31. mars að upplýsinga-
þjónusta Landssímans í síma 118
hefði versnað að undanfömu og
löng bið væri eftir svari. Þetta er
vandamál sem Landssíminn kann-
ast vel við og gerir sitt ýtrasta til að
leysa. Svartími hefur lengst að und-
anförnu. Því miður eru dæmi þess
að viðskiptavinir hafi skeytt skapi
sínu á starfsfólki 118 vegna þessa.
Það á starfsfólkið síst skilið, enda
leggur það sig allt fram um að veita
sem besta þjónustu og kemur ævin-
lega mjög vel út úr þjónustukönnun-
Vandamálið er tæknilegs eðlis og
felst í því að óvæntir erfiðleikar
komu upp við uppsetningu nýs af-
greiðslukerfis í 118. Erfiðleikamir
hafa haft í fór með sér að hluti
tölvubúnaðar svarþjónustunnar,
bæði á ísaflrði og á Akureyri, hefur
orðið óvirkur og því hefur ekki ver-
ið hægt að hafa jafnmargt starfsfólk
við að svara og gert var ráð fyrir.
[L1§1K0[d)^\ þjónusta
allan sólarhringinn*:
Lesendur geta sent mynd af
sér með bréfum sínum sem
birt verða á lesendasíðu
Frá höfuöstöðvum 118. - „Erfiðleikarnir hafa haft í för með sér að hluti
tölvubúnaöar svarþjónustunnar, bæði á ísafirði og á Akureyri, hefur orðið
óvirkur og því hefur ekki verið hægt að hafa jafnmargt starfsfólk að svara og
gert var ráð fyrir.“
Nú er unnið að því að flnna lausn
á því tæknilega vandamáli sem upp
er komið og vonir standa til að það
leysist á allra næstu dögum. Þegar
nýja afgreiðslukerfið verður síðan
komið í gagnið mun það auðvelda
afgreiðslu símtala í 118 og stytta bið-
tíma enn frekar.
Margir notfæra sér nú síma-
skrána á Internetinu, www.sima-
skra.is, þar sem finna má allar sömu
upplýsingar og í 118. Þá stendur
prentaða símaskráin auðvitað fyrir
sínu. Guðlaugu finnst hún þykk og
óþjál. Allt upplag nýju símaskrár-
innar, sem væntanleg er í næsta
mánuði, verður í tveimur bindum;
höfuðborgarsvæðið annars vegar og
landsbyggðin hins vegar. Þannig
verður hvort bindi um sig meðfæri-
legra. Auk þess verður notað nýtt
letur sem að dómi svarenda í könn-
un sem Landssíminn gerði er skýr-
ara og læsilegra en það gamla.
FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 1999
I>V
Hagnaður hjá RÚV?
Hafliði Helgason skrifar:
í DV 1.4. kemur fram að íslenska út-
varpsfélagið hf. - Stöð 2 og Bylgjan -
hafi skilað rúmlega 113 milijóna króna
tapi í lok síðasta árs. Þetta er eins og
flestir vita áskriftarfjölmiðill sem
menn geta valið hvort þeir gerist
áskrifendur að eöa ekki. Það væri í
ljósi þessarar reksúarafkomu fróðlegt
að vita hvemig staðan er hjá Ríkisút-
varpinu-Sjónvarpi þar sem menn eru
skyldaðir til að gerast áskrifendur
hvort sem þeim líkar betur eða verr.
Miðað við dagskrána sem boðið er upp
á hlýtur stofnunin að vera í góðum
málum. Landsmenn biða spenntir eft-
ir fyrstu tölum.
Gjöfin frá Póllandi
Hannes hringdi:
Ég tek undir með Konráði sem
skrifaði lesendabréf á þriðjudaginn.
Hann var að velta fyrir sér hvar Prins
pólóið væri sem forsetinn fékk að gjöf
í opinberri heimsókn sinni til Pól-
lands fyrir nokkru. Ef það er rétt sem
fram kom að forsetanum ásamt ríkis-
stjórn og alþingismönnum hafi verið
færð nokkur súkkulaðistykki að gjöf
hlýtur það að vera skylda forsetans að
færa þingmönnunum þetta. Ég held að
Pólverjar hafi vart verið að gera þetta
að gamni sínu enda hefur þjóðin átt í
farsælum viðskiptum við ísland í
súkkulaðisölu. Ég kref forsetann, Ólaf
Ragnar Grímsson, um svör hvort
súkkulaðinu hafl verið komið til
réttra aðila.
Prófkjör skárri
kostur
Sjálfstæðismaður hringdi:
Flestir sjáifstæðismenn hljóta að
fagna nýjustu skoðanakönnun sem
Vísir.is birti á dögunum en vonbrigði
hljóta engu að síður að vera til staðar
hjá Reykvíkingum sem styðja flokk-
inn. Sjálfstæðisflokkurinn hefur inn-
an við helmings fylgi í höfuðborginni
meðan flokkurinn í Reykjanesi fagnar
55,7 prósenta fylgi og bætir við sig
tveimur þingmönnum. Ástæðan er
einfóld að mínu viti. Reyknesingar
völdu sína fulltrúa í lýðræðislegu
prófkjöri og gátu þar með hafnað að
vild þeim sem ekki höfðu staðið sig
eða hampað þeim til æðstu metorða
sem höfðu staðið sig vel. Reykvískir
sjálfstæöismenn gátu gert hvorugt.
Það hefur orðið flokknum tO minn-
kunnar að ákveða framboðslistann
meö þessum hætti í Reykjavík og hvað
þá að troða ellidauðum pólitíkusum
fram fyrir hæfari menn.
Gott leikrit á rás 2
Bjöm skrifar:
Ég tel ástæöu til að óska Hávari
Sigurjónssyni til hamingju með saka-
málaleikritið hans, Opin augu, sem
flutt hefur verið á rás 2 að undan-
fómu. Hver þáttur hefur verið hæfl-
lega stuttur og spennan haldist vel út
í gegn. Frammistaða leikaranna hef-
ur einnig verið með ágætum, ekki
síst hjá Ólafi Darra sem leikið hefur
Kjartan Ólafsson, forvitinn blaða-
mann sem kafar niður í undirheima
borgarinnar. Það er einnig ástæða tU
að hrósa forráðamönnum rásar 2 fyr-
ir þá nýbreytni að útvarpa leikriti á
þessum tíma dags þegar íjölskyldan
er oftast saman komin við eldavélina
eða matarborðið.
Framkoma Konráðs
Garðbæingur skrifar:
Þvi er nú ver og miður að við
Stjörnumenn skulum vera dottnir
út úr úrslitakeppninni í handbolta.
FH-ingar gjörsigruðu okkur í
Garðabænum þar sem við lékum
ömurlega. Ég get hins vegar ekki
orða bundist yfir framkomu eins
leikmanns í liði Stjömunnar, Kon-
ráðs Olavssonar, í þessum um-
rædda leik. AUan liðlangan leikinn
skammaði Konráð rússneskan leik-
mann í liði Stjörnunnar eins og lít-
in hvolp. Öskraði á hann með því-
líkum látum að nærstöddum brá.
Þaö geta ekki aUir verið sigurveg-
arar og menn verða að geta tekið
því þegar Ula gengur, en auðvitað
má benda mönnum á mistök sem
þeir gera i hita leiksins. Þess vegna
hefði Konráð kannski átt að
skamma sjálfan sig en ekki besta
leikmann liðsins í umræddum leik.