Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.1999, Blaðsíða 13
FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 1999
13
Samfylkingin
og Óli pressari
Ritstjóri DV, Óli Björn
Kárason, minnir mig oft
á Hauk heitinn pressara.
Hauknr pressari sagðist
vera algerlega ópólitísk-
ur i Landsmálafélaginu
Verði. Það er Óli Björn
Kárason líka, þegar
hann skrifar um stjóm-
mál á íslandi. Ópólitísk-
ur í Sjálfstæðisflokkn-
um. Alveg eins og Hauk-
ur pressari.
í leiðara DV 30. mars
sl. fjallar Óli Bjöm m.a.
um stefnumál Samfylk-
ingarinnar. Pressari seg-
ir, að Samfylkingin vilji
ekki minnast á utanríkis-
mál. Hún sé sundruð í
þeim málaflokki og sam-
kvæmt sérstökum úr-
skurði Margrétar Frí-
mannsdóttur séu utanríkismál
ekki á dagskrá í komandi kosning-
um. Kjósendur séu því engu nær
um stefnu Samfylkingarinnar í ut-
anríkismálum. Einmitt það!
Kosningastefnuskrá Samfylk-
ingarinnar, sem kynnt hefur ver-
ið, fjallar fyrst og fremst um þá
sex málaflokka, sem Samfylkingin
telur að verði mestu átakamál í
næstu kosningum. Þar á meðal
eru ekki utanríkismálin. Hvers
vegna ekki? Vegna þess, að Sam-
fylkingin telur þau ekki vera
ágreiningsmál, sem kjósa þarf um.
Hún telur ekki ástæðu til þess að
gera ágreining um meginatriðin í
íslenskri utanríkisstefnu.
Stefnan í utanríkismálum
Hver eru og hafa verið þessi
meginatriði? Þau hafa verið og eru
þátttaka íslands í starfi Samein-
uðu þjóðanna, aðild íslands að
norrænu samstarfi, vera landsins
Kjallarinn
Sighvatur
Björgvinsson
formaður
Alþýðuflokksins
í NATO og - nú
hin síðari ár -
þátttakan í Evr-
ópusamstarfinu
með aðild landsins
að EES. Samfylk-
ingin hyggst ekki
beita sér fyrir
breytingum hér á.
Þessi mál eru eng-
in kosningamál,
að hennar áliti.
Pressari álítur, að
Samfylkingin vilji
ekki minnast á ut-
anríkismál. Segir,
að kjósendur séu
engu nær um
stefnu hennar í ut-
anríkismálum.
Stefna Samfylk-
...... ingarinnar varð-
andi NATO og
varnarmálin kom skýrt fram í
nefndaráliti um tillögu Steingríms
Sigfússonar og fleiri um
brottför hersins, en sú til-
laga var til afgreiðslu á Al-
þingi skömmu fyrir þing-
lok. í nefndarálitinu, sem
undirritað var af þing-
mönnunum Össuri Skarp-
héðinssyni, Sighvati
Björgvinssyni og Margréti
Frímannsdóttur, segir svo
um NATO-aðildina: „Við
teljum ekki rétt að breyt-
ingar verði gerðar á aðild
íslands að NATO á næsta kjör-
tímabili en viljum stuðla að þeirri
þróun, að bandalagið eigi sem
mesta samleið með stofnunum svo
sem Sameinuðu þjóðunum og
ÖSE.“
Þessi stefna er skýr. Aðild ís-
lands að Atlandshafsbandalaginu
verður ekki kosningamál fyrir til-
stilli Samfylkingarinnar.
Hvað varðar varnarliðið á
Keflavíkurflugvelli bendir Sam-
fylkingin á í umræddu nefndará-
liti að miklar breytingar hafi átt
sér stað á undanförnum árum á
vamarviðbúnaði í Keflavík. „Her-
mönnum hefur fækkað um rúm-
lega þriðjung, kafbátaleitarflugvél-
um um meira en helming, ratsjár-
flugvélar horfið á braut og herþot-
um fækkað úr átján í fjórar. Dag-
legur rekstur og viðhald ratsjár-
loftvamakerfisins er komið í
hendur landsmanna sjálfra,” segir
í nefndarálitinu.
Engar breytingar á
grundvallarstefnu
ÍJm fyrirkomulag á vörnum
landsins, varnarviðbúnað á Kefla-
vikurvelli, var síðast samið með
bókun sem gerð var árið 1996 og
fellur úr gildi árið 2001. í þessari
bókun var gert ráð fyrir því, að
viðræður gætu hafist milli stjóm-
„Utanríkismátin verða ekki kosn-
ingamál í þingkosningunum í vor
að mati Samfylkingarinnar því
hún hyggst ekki beita sér fyrir
breytingum á grundvatiaratriðun-
um í utanríkisstefnu íslendinga
valda á íslandi og í Bandaríkjun-
um árið 2000 um hver varnarvið-
búnaðurinn skyldi vera að lokn-
um gildistíma þessarar bókunar.
Utanríkisráðherra, Halldór Ás-
grímsson, hefur sagt, að undirbún-
ingur undir þær viðræður af hálfu
íslenskra stjórnvalda sé þegar haf-
inn. Ráðherra hefur sjálfur sagt,
að í skoðun sé af íslands hálfu, að
íslendingar taki sjálfir að sér
suma þá þætti öryggismálanna,
sem bandaríski herinn hafi sinnt
til þessa, í skýrslu ráðherrans til
Alþingis um öryggis- og varnar-
mál íslands um næstu aldamót er
sagt, að ítarlega úttekt eigi nú að
gera um öryggismál landsins og í
framhaldi af þeirri úttekt eigi að
marka framtíðarstefnu um tilhög-
un öryggismála hér á landi.
í nefndaráliti samfylkingar-
manna er lýst stuðningi við þessa
stefnu. Samfylkingin telur að þá
úttekt, sem utanríkisráðherra seg-
ist vilja gera, eigi að gera í sam-
vinnu ríkisstjórnar og Alþingis,
en ekki bara á vegum ríkisstjórn-
arinnar einnar, og framtíðarstefn-
una eigi svo að móta á grundvelli
þeirrar úttektar, eins og utanríkis-
ráðherra segir. Er þetta alvarlegur
ágreiningur um stefnu í utanríkis-
málum? Er þetta óskýrt orðað?
Utanrikismálin verða ekki
kosningamál í þingkosn-
ingunum í vor að mati
Samfylkingarinnar því
hún hyggst ekki beita
sér fyrir breytingum á
grundvallaratriðunum í
utanríkisstefnu Islend-
inga. Samfylkingin hefur
vissulega stefnu í utan-
ríkismálum, en sá mála-
flokkur er einfaldlega
ekki átakamál í íslensk-
um stjómmálum nú að
hennar mati. Þess vegna er ekki
sérstaklega um utanríkismálin
Qallað í stefnuskrá Samfylkingar-
innar um kosningamálin á kom-
anda vori.
Jafnvel ópólitískir einstaklingar
í Landsmálafélaginu Verði hljóta
að skilja jafn einfalda hluti. Hinn
pressarinn hefði gert það.
Sighvatur Björgvinsson
Góð hönnun borgar sig
Það er staðreynd að Islendingar
leggja mikla fjármuni í húsbygg-
ingcir. Á síðasta ári vörðu þeir um
60 milljörðum kr. til byggingar-
framkvæmda, þar af um 20 millj-
örðum til íbúðarbygginga. Miklu
skiptir því að vel tákist til við
byggingarframkvæmdir og þær
séu undirbúnar vel og vandlega.
Fjölmargir húseigendur, ráð-
gjafar og byggingaraðilar huga
jafnt að viðhalds- og rekstrar-
kostnaði mannvirkja sem og stofn-
kostnaði. Reynslan hefur kennt
Þá leituðu sumir húsbyggendur til
aðila s'em seldu ódýrar teikningar
til þess að spara sér „blóðpeninga"
í hönnun. Síðar hefur komið í ljós
að þessi upphaflegi sparnaður var
lítiU, enda oft miklum ijármunum
varið til viðhalds á vanhugsuðum
steypuvirkjum og illa hönnuðum
húshlutum.
Samband undirbúnings
og viðhalds
í nýjum lögum um byggingar og
skipulagsmál eru miklar skyldur
lagðar á hönnuði
„77/ þess að auka gæði húsnæðis
á íslandi þarf samstitit átak atira
þeirra aðila sem koma að bygg-
ingarframkvæmdum. íslenskir
arkitektar vilja stuðla að framþró-
un á byggingarmarkaði sem skilar
fólkinu í landinu betra og vand-
aðra húsnæði til framtíðar.u
þeim að vanda þarf jafnt til undir-
búnings og framkvæmda því
þannig er hægt að spara umtals-
verðar fjárhæðir á líftíma mann-
virkjanna.
Þessi hugsun var ekki ríkjandi
hér á árum áður þegar mikið var
byggt af stórum „villum” með bog-
um, súlum og öðrum krúsidúllum.
mannvirkja.
Skýrt er kveðið á
um að ekki megi
reisa neinar
byggingar án
þess að lögð hafi
verið umtalsverð
vinna í hönnun
og hönnunar-
gögnin lögð fyrir
byggingaryfir-
völd til sam-
þykktar. Það er
ekki að ástæðu-
lausu að löggjafinn setur jafnskýr-
ar og afdráttarlausar reglur um
mannvirkjagerð og raun ber vitni.
Það er nefnilega þannig að reynsla
sýnir að það borgar sig að undir-
búa sig vel áður en hafist er handa
við húsbyggingar. I þessu felst
einnig mikO neytendavemd.
Samkvæmt upplýsingum frá
norskum arkitektum
hafa menn þar í
landi unnið mikið að
þvi að kanna samspil
undirbúningskostn-
aðar og kostnaðar
vegna mistaka og
viðhalds. Settar hafa
verið fram rökstudd-
ar kenningar um að
beint samband sé á
milli þeirra fjármuna
sem varið sé til und-
irbúningsvinnu við
mannvirki og við-
haldskostnaðar
þeirra síðar meir.
Þegar rætt er um
undirbúningsvinnu
er átt við ákvarðanir
verkaupa, hönnunar-
gögn arkitekta, verk-
fræðinga og annarra tæknimanna,
eftirlit og umsjón með fram-
kvæmdunum. Þegar kostnaður
vegna alls þessa er lagður við
kostnað vegna mistaka í bygging-
arframkvæmdinni fæst út hvað
gæðin hafa kostað.
í Noregi er áætlað að saman-
lagður kostnaður vegna undirbún-
ings og mistaka sé að meðaltali
um 14% af byggingarkostnaði. Ef
4% fara I hönnun má gera ráð fyr-
ir að mistakakostnaður verði um
10% af byggingarkostnaði. En ef
10% fara í hönnun þá verður mis-
takakostnaðurinn 4%. í fyrra til-
Kjallarinn
Ævar Harðarson
arkitekt FAÍ/FSSA, rekur
teiknistofu í Reykjavík.
kvikinu sitja aðilar
uppi með illa hannað
mannvirki sem veldur
vandamálum um
ókomna tíð en í
seinna tilvikinu hefur
húsbyggjandi fengið
mannvirki sem upp-
fyllir kröfur hans um
gæði og þægindi og
byggingarkostnaður
er í samræmi við upp-
haflegar áætlanir.
Framþróun bygg-
ingarmarkaðar
Sagt er að Japanir
leggi hvað mest allra
þjóða í vandaðan und-
___^_ irbúning enda er
””™"“" japönsk gæði víðfræg
um allan heim. Þar
græða allir á því að viðhafa vönd-
uð og fagleg vinnubrögð.
Til þess að auka gæði húsnæðis
á íslandi þarf samstillt átak allra
þeirra aðila sem koma að bygging-
arframkvæmdum. íslenskir arki-
tektar vilja stuðla að framþróun á
byggingarmarkaði sem skilar fólk-
inu í landinu betra og vandaðra
húsnæði til framtíðar. Við viljum
því bjóða fólk velkomið á A-daga,
fræðsluátak íslenskra arkitekta
sem haldið er 8. til 10. apríl, m.a. í
Kringlunni. Slagorð fræðsluátaks-
ins er: Góð hönnun borgar sig.
Ævar Harðarson
Þorbjörn Jensson,
landsliðsþjálfari
karla í
handknattleik.
Með og
á móti
Verður nýtt nafn grafið I
bikarinn um íslandsmeist-
aratitilinn í handknattleik?
Styrkur Aftur-
eldingar
er mikill
„Ég er eiginlega inni á því að
svo verði. Afturelding er búið að
leika hvað jafnast í vetur og því
hef ég mesta trú á liðinu af þeim
sem eftir eru.
Það er þó með
þeim formerkj-
um að mann-
skapur Mosfell-
inga sleppi við
meiðsl í þeim
erfiðu leikjum
sem eftir eru.
Þegar á reynir
held ég að
styrkur Aftur-
eldingar eigi
eftir að koma
enn meir í ljós. íslandsmeistara-
titillinn er jú tvímælalaust eftir-
sóttasti titillinn sem keppt er um
og því er allt lagt undir. Það er
spá mín að Afturelding og Fram
eigi eftir að slást um titilinn í úr-
slitaleiknum og ekki yrðí ég hissa
þótt viöureignirnar yrðu fimm
talsins. Þarna eru á ferð mjög jöfn
liö en Afturelding mun hafa það af
á endanum. Heimavöllurinn á ör-
ugglega eítir að vega þungt eins
og alltaf. Á leið liðanna í úrslitin
á Afturelding eftir að vinna
Hauka, 2-1, og Fram lið FH, 2-1.
Spá min getur svo auðvitað hrun-
ið en ég hélt því fram fyrir
nokkrum vikum að Stjarnan
myndi leika til úrslita við Aftur-
eldingu en ekki gekk það eftir.
Framganga FH-inga gegn Stjöm-
unni kom verulega á óvart. FH
sýndi þá snilldarvarnarmennsku
og verða Framarar að eiga
svar við henni þegar út í slaginn
við FH er komið.”
Það eru vissar
blikur á lofti
„í fyrstu atrennu hef ég trú á
að því að Afturelding og Fram
komi til með að berjast um ís-
landsmeistaratitilinn þetta árið.
Það má þó alls
ekki vanmeta
Hauka og FH.
Þeir siðar-
nefndu sýndu
það gegn
Stjörnunni að
þeir eru til alls
líklegir. Það
var auðvitað
bara aumingja-
skapur af hálfu
Garðbæinga að
komast ekki í gegnum leikina við
FH vegna þess að þeir virtust
koma mjög illa undirbúnir fyrir
þessa vörn sem þeir fengu á móti
sér. Með þennan mannskap hefði
þeirn verið í lófa lagið að klára
dæmiö gegn FH því það var lík-
legasta liðiö fyrir utan Aftureld-
ingu til að vinna titilinn. Rimman
um íslandsmeistaratitilinn verð-
ur mjög hörð og auðvitað eru
blikur á lofti. Það munaði litlu að
HK tækist að draga vígtennurnar
úr Aftúreldingu með fóstum leik
og það eru veikleikamerki að ein-
hverju leyti. Á móti kemur að Aft-
urelding er með bestu vörnina og
besta markvörðinn og það skilar
liðum yfirleitt alla leið.“ -JKS
Guðjón
Guðmundsson,
íþróttafróttamaður
á Stöð 2.
Kjallarahöfundar
Athygli kjallarahöfunda er
vakin á því að ekki er tekið við
greinum í blaðið nema þær ber-
ist á stafrænu formi, þ.e. á tölvu-
diski eða á Netinu. DV áskilur
sér rétt til að birta aðsent efni á
stafrænu formi og i gagnabönk-
um.
Netfang ritstjómar er:
dvritst@ff.is