Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.1999, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.1999, Blaðsíða 16
16 íþróttir M Jón Þór Andrésson hefur tekiö fram knattspymu- skóna á ný og er genginn til liös við Valsmenn. Jón Þór var markahæsti leik- maður Leifturs í efstu deild áriö 1995, en hefur ekki spilað vegna meiðsla. Hann skipti úr Leiftri í Val fyrir páskana og fór með Hlíðarendaliðinu i æfingabúöir í Portúgal á dögunum. Þorvaldur Þorsteinsson, varamark- vörður Leifturs á Ólafsfirði, handar- brotnaði fyrir skömmu í annað skipt- ið á þessu ári. Hann verður því fjarri góðu gamni þegar úrvalsdeildin hefst. Opnunarleik Islandsmótsins í knatt- spymu, milli KR og ÍA, hefur verið fljdt um einn dag. Hann fer fram 18. maí, en tveimur dögum síðar fara fram aðrir leikir í fyrstu umferðinni. íslands- og bikarmeistarar ÍBV i knattspyrnu hafa þegið boð færeysku meistaranna í HB um að mæta þeim í Þórshöfn á sumardaginn fyrsta, 22. april. Alþjóöa handknattleikssambandiö hefur tilkynnt að Júgóslavar verði með á HM í Egyptalandi í sumar, að öllu óbreyttu, þrátt fyrir stríðsástand- ið i landinu. Frank Birkefeld, fram- kvæmdastjóri IHF, segir að samband- ið grípi ekki til neinna aðgerða gegn Júgóslövum upp á eigin spýtur. Þá er Ijóst að úrslitaleikir í Evrópu- mótunum í handknattleik, þar sem lið frá Júgóslaviu eiga í hlut, munu fara fram um næstu helgi. Tvö kvennalið þaðan em komin í úrslit og serbneska liðið Krusevac mun leika sinn heimaleik i úrslitunum í Búlgaríu og lið Podgorica, sem kem- ur frá Svartfjallalandi, spilar heima- leikinn í Sarajevo, höfuðborg Bosníu. Willem II komst í gærkvöld í þriðja sætið í hollensku A-deildinni í knatt- spymu með 1-2 sigri á Fortuna Sitt- ard. Feyenoord er efst með 63 stig, Vitesse er með 53, Willem II 50 og PSV Eindhoven er með 49 stig. Guöni Bergsson kemur liklega inn í byrjunarlið Bol- ton á laugardag- inn þegar liðið mætir Watford í ensku B-deild- inni í knatt- spymu. Guðni hefur verið að ná sér eftir meiðsli og hefur aðeins spilað einn deildarleik siðan I nóvember. Mark Fish verður fjarverandi vegna lands- leiks hjá Suður-Afríku og Guðni tek- ur líklega stöðu hans. Fanney Rúnarsdóttir og stöllur hennar í Tertnes burstuðu Fjell- hammer, 42-21, á útivelli í norsku A- deildinni i handbolta í gærkvöld. Staðan var 22-8 í hálfleik. -VS oka Bland i Aftureld. (15)32 Haukar (14) 30 2-0, 5-2, 7-4, 7-6, 9-6, 12-7, 13-8, 13-11, (15-14), 15-15, 18-18, 20-18, 24-21, 24-24, 26-25, 28-27, 29-29, 32-29, 32-30. Mörk Aftureldingar: Bjarki Sig- urösson 11/2, Einar Gunnar Sigurðs- son 5, Sigurður Sveinsson 5, Jón Andri Finnsson 5/3, Magnús Már Þórðarson 4, Gintaras Savukynas 2. Varin skot: Bergsveinn Berg- sveinsson 20/1 Mörk Hauka: Óskar Ármannsson 9/3, Halldór Ingólfsson 6, Einar Gunnarsson 4, Jón Karl Björnsson 4/4, Þorkell Magnússon 3, Jón Freyr Egilsson 2, Petr Baummk 1, Einar Jónsson 1. Varin skot: Magnús Sigmundsson 5, Jónas Stefánsson 8/2. Brottvfsanir: Afturelding 6 mín., Haukar 10 mín. Dómarar: Gunnlaugur Hjálmars- son og Amar Kristinsson. Leyfðu fullmikla hörku en stóðu sig vel. Áhorfendur: Ekki fullt.um 400. Maður leiksins: Einar Gunnar Sigurðsson Aftureldingu Afturelding skoraöi 12 mörk fyrir utan í leiknum, þar af 9 i seinni hálfleik úr 13 skotum. Magnús Már Þóröarson fiskaði 5 víti fyrir Aftureldingu í leiknum. Tvö af þeim vom varin, en Magnús nýtti auk þess öll 5 skotin sín. -ÓÓJ + en snjóalög hafa verið mjög mikil í Ólafsfirði í vetur. Völlurinn birtist eflaust fljótlega eins og græn vin i hvítri eyðimörkinni og ekki er við öðru að búast en að á honum verði leikið þegar Leiftur spilar sinn fyrsta heima- leik, sem er gegn KR í 2. umferð úrvalsdeildarinnar þann 24. maí. Auk Brasilíumannanna er Finn- inn Max Peltunen löngu kominn til Ólafsfjarðar. Hinir fjórir útlending- amir eru væntanlegir siðai' í þess- um mánuði en það eru Færeying- amir Jens Martin Knudsen, Uni Arge og Sámal Joensen og Skot- inn Paul Kinnaird. -HJ/VS Antomo Conte fagnar marki sínu fyrir Juv- entus gegn Manchester United í gærkvöld. Það kann að reynast ítölunum dýrmætt í baráttu iiðanna um að komast í úrslitaleik meistaradeildarinnar. Reuter FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 1999 FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 1999 Meistaradeild Evrópu: Juventus og Bayern - standa mjög vel að vígi Þriðji brasilíski knattspyrnu- maðurinn hefur bæst í raðir Leift- ursmanna á Ólafsfirði fyrir barátt- una í úrvalsdeildinni i sumar. Hann heitir Alex Da Silva og er 27 ára miðjumaður. Hann kom til móts við Ólafsfirðinga þegar þeir dvöldu í æfingabúðum í Portúgal á dögunum og kom með þeim heim. Fyrir em landar hans, þeir Alex- andre og Sergio, sem komu til Ólafsfjarðar strax í febrúar og hafa staðið sig mjög vel í leikjum með Leiftri á undirbúningstímabilinu. Með Da Silva em útlendingamir í leikmannahópi Leifturs orðnir átta talsins. Að auki em Peter Ogaba og Rastislav Lazorik enn samnings- bundnir Leiftri, en Ijóst aö þeir spila ekki með liðinu í sumar. Aðstæður til knattspyrnuæfinga í Ólafsfirði eru ekki þær sem þeir brasilísku era vanir úr heimalandi sínu. Leiftursliðið hefur orðið að æfa í svokallaðri Löngufiöru við Ósinn í Ólafsfirði, á svæði sem er á stærð við tvo vítateiga. Brasiliu- mennimir hafa ekki látið þetta á sig fá og virðast hinir ánægðustu með lífið á norðurhjara. Hitinn settur á um páskana Knattspyrnuvöllurinn í Ólafs- firði er upphitaður og var hitinn settur á um páskana. Samt er enn hálfm- annar metri niður á völlinn, Afturelding 1-0 yfir gegn Haukum: „Við verð- um að bíta á jaxlinn" Juventus og Bay- ern Munchen standa vel að vígi í undanúrslitum meistaradeildar Evrópu í knatt- spymu, eftir jafntefli og mörk á erfiðum útivöllum í gærkvöld. Juventus gerði jafntefli við Manchester United, 1-1, og Bayem við Dynamo í Kiev, 3-3. Juventus hafði undirtökin ffaman af á Old Trafford og Antonio Conte kom liðinu verðskuldað yfir eftir 25 mínútur. ítalimir virtust ætla að halda fengnum hlut en United sótti af krafti undir lokin, og hefði átt að fá vítaspymu, auk þess sem mark var dæmt af liðinu. Á lokamín- útunni tókst loks Ryan Giggs að jafna met- in, 1-1. „Juventus náði góðum úrslitum í kvöld en ítalirnir eiga eftir að naga sig í handarbökin fyrir markið sem við gerðum í lokin. Eftir að hafa náð að iafna í svona leik er ée viss um að við klárum dæmið í Torino og förum áfram,“ sagði Alex Ferguson, framkvæmdastjóri Man- chester United. „Það er ekki hægt annað en að viðurkenna að United verðskuldaði að jafna eftir hinn mikla sóknarþunga siöustu 20 mínútumar. En ég hef ekki trú á að United standist okkur snúning á Ítalíu,“ sagði Zinedine Zidane, sem sýndi snilld- artcikta á miðjunni hjá Juventus í fyrri hálfleik. Dynamo Kiev stefhdi í ömggan sigur á Bay- em því liðið komst í 2-0 og síðan 3-1. En þýska seiglan var söm við sig því Stefan Effenberg minnkaði muninn á 78. mínútu og Carsten Jancker náði að jafna á lokasekúndunum, 3-3. Andriy Shevchenko og Kakhi Kaladze komu Kiev i 2-0 áður en Michael Tamat minnkaði muninn fyrir Bayem á lokasekúndu fyrri hálf- leiks. Vitaliy Kosovskyi kom Kiev í 3-1 á 50. mínútu og Úkraínumennimir hefðu getað bætt við mörkum áður en Bayem kom með sinn endasprett. „Við lékum afar illa og vomm mjög heppnir aö ná þessu jafntefli," sagði Franz Beckenbauer, forseti Bayern, óhress með sína menn. -VS Undanúrslit handboltans byrjuðu með mikilli markasúpu i Mosfells- bænum í gær, er heimamenn í Aft- ureldingu unnu Hauka, 32-30, og leiða því í einvíginu. 62 mörk í 99 sóknum, eða 63% nýting, lýsir betur litlum vamarleik frekar en góðum sóknarleik liðanna. Heimamenn byrjuðu leikinn sterkt, vom komnir í 13-8 eftir fyrstu 16 sóknir sínar og virtust vera að klára leikinn. Þá kom Jónas Stefánsson í Haukamarkið, varði 6 af næstu 8 skotum, þar af 2 víti, og Haukar gerðu 6 mörk gegn tveimur síðustu 9 mínútur hálfleiksins. Eftir það stóð á hnífjöfnu út leik- inn, allt þar til að Mosfellingar sigu fram úr i lokin. Þar munaði mestu um að stórskytturnar Bjarki Sig- urðsson og Einar Gunnar Sigurðs- son snögghittnuðu og Litháinn smái en knái, Gintaras, var duglegur að finna þá félaga, en Gintaras átti 10 stoðsendingar í leiknum. Einar er bjargvættur Einar Gunnar Sigurðsson á ör- ugglega endurkomu ársins í hand- boltanum í vetur. Kappinn er bjarg- vættur Mosfellinga í hverjum leikn- um á fætur öðram og 5 mörk með þrumuskotum í seinni hálfleik í gær vora rosalega dýrmæt fyrir heimamenn. Einar Gunnar varði auk þess 4 skot og stal 2 boltum. Hjá Haukum voru þeir Óskar Ár- mannsson og Halldór Ingólfsson allt í öllu í sókninni. Þar em ömgglega mestu smugumenn deildarinnar, einstaklega lagnir við að finna gluf- ur þrátt fyrir að vera ekki háir í loftinu miðað við hávaxna vamar- menn Aftureldingar. 15 mörk og 11 stoðsendingar komu frá þeim félög- um en Óskar nýtti 9 af 11 skotum sínum í leiknum. Haukamir gefa allt í leikina, þeir spila á öllu liðinu, sem ætti að koma þeim til góða nái þeir að tryggja sér oddaleikinn í Strandgötunni á fostudag. Bjarki Sigurðsson, fyrirliði Aftur- eldingar, var ánægður með mikl- vægan sigur. „Hver leikur er úr- slitaleikur og þessi sigur er liður í því að komast alla leið. Það virðist ennþá há okkur að við höldum bara út í 45 mínútur en missum alltaf einbeitinguna í 15 mínútur. Við verðum að bíta á jaxlinn, laga þetta og keyra í 60 mínútur. Það verður öragglega allt annar leikur í Strand- götunni þar sem við forum með fullri hörku og ætlum áfram". Skúli Gunnsteinsson, þjálfari Mosfellinga, var feginn. „Þetta eru búnir að vera erfiðir leikir en ég er mjög ánægður með að klára þetta. Við einblíndum mikið á sóknarleik- inn á æfingum eftir HK-leikina en þufum nú að hugsa um vörnina og fækka mörkunum hjá þeim“. Guðmundur Karlsson þjáifari Hauka tók áhættu með aö skipta lengstum á þremur mönnum milli vamar og sóknar. „Við vorum ekki að spila nógu góða vörn til að vinna Aftureldingu. Ég lofa meiri vinnslu þar á fóstudaginn. Við spilum ágæt- an sóknarleik og ef við lögum vöm- ina þá hef ég trú á að við komum aftur hingað upp eftir á sunnudag- inn. Við erum ekki með neitt stjörnulið, þufum að spila á okkar getu, sem er liðsheildin. Ég er með það jafnt lið að ég verð að hreyfa mannskapinn og sjá hver er heitur en ég fann bara ailtof fáa í kvöld“. Miðað við þennan leik er ljóst að hart verður barist í öðmm leiknum á fóstudag. Haukar sneru við ein- viginu við ÍBV og eru því enn til alls vísir. -ÓÓJ Þýski handboltinn: Ólafur gerði 11 Ólafur Stefánsson skoraði 11 mörk, 8 þeirra úr vítaköstum, þegar Magde- burg vann góð- an sigur á Lemgo, 25-21, í þýsku A-deild- inni í hand- knattleik í fyrrakvöld. Magdeburg gerði þama Lemgo slæman grikk, en Lemgo hefði komist í toppsætið með sigri. í staðinn náði Flensburg þriggja stiga forystu með því að rótbursta Sigurð Bjamason og félaga í Bad Schwartau í gær- kvöld, 30-17. Sigurður skoraði 3 mörk í leiknum. Úrslitin í gærkvöld og fyrra- kvöid: Magdeburg-Lemgo.....25-21 Ólafur Stefánsson 11/8, Kretzschmar 6 - Stephan 7/2, Schúrmann 4. Flensburg-Bad Schwartau . 30-17 Klimovets 5, Hjermind 5 - Zehe 5, Sigurður Bjamason 3. Frankfurt-Minden ...25-23 Steinke 7/1, Immel 6 - Kusilev 5, Dusjebaev 5/1. Flensburg 26 19 Kiel 25 18 Lemgo 26 19 Grosswallst.25 14 Niederw. 26 13 Magdeburg 26 11 Minden 27 12 Essen 26 12 Frankfurt 26 10 Nettelstedt 25 10 Gummersb. 25 10 Eisenach 25 10 Wuppertal 25 10 Dutenhofen 26 7 B.Schwartau26 7 Schutterw. 25 5 729-579 41 703-574 38 652-576 38 661-625 30 655-661 29 633-593 27 642-646 27 610-617 27 631-634 24 597-629 24 612-665 23 572-629 22 585-629 21 596-641 15 601-659 14 550-672 10 -VS Einar Gunnar Sigurðsson skorar fyrir Aftureldingu í gærkvöld þrátt fyrir að Kjetil Ellertsen reyni að halda aftur af tröllinu. Á minni myndinni fagna Magnús Már Þórð- arson, Bergsveinn Bergsveinsson og Gintaras Savukynas sigri Mos- fellinga. DV-myndir ÞÖK Bjarki markahæstur Bjarki Sigurðsson átti góðan leik fyrir Aftureldingu og gerði 11 mörk úr 16 skotum. Þegar Bjarki skoraöi 8. markið sitt, með þramuskoti í upphafi seinni hálfleiks, fór hann fram úr Valdimari Grimssyni til aö verða markahæsti leikmaður úrslitakeppninnar frá upphafi. Bjarki hefur nú gert 24 mörk í keppninni í ár og aÚs 218 mörk fyrir Víking og Aftureldingu en Valdimar er með 214 mörk fyrir Val, KA, Selfoss og Stjömuna. -ÓÓJ Þriðji Brasiliumaðurinn til ÓlafsQarðar: Æfa í fjörunni - hálfur annar metri niður á upphitaðan völlinn Iþróttir Carsten Jancker fagnar jöfnunarmarki sínu fyrir Bayern á lokamínútunni f Kiev og Hasan Salihamidzic reynir að taka þátt í gleðinni. Reuter Daði leigður til Jackson Daði Lárusson mun ekki standa í marki 1. deildarliðs FH í knattspymu í sumar eins og hann hefur gert undanfarin ár. Daði er kominn til Bandaríkj- anna, en B-deildarliðiö Jackson Jaguar vill fá hann til liðs við sig. Daði er samningsbundinn FH-ingum en félagið hefur náð samkomulagi við bandaríska lið- ið um að það leigi hann út þetta ár. FH-ingar eru famir að leita fyrir sér að markverði til að fylla skarð Daða og það ætti að skýr- ast á næstu dögum hver það verður. -GH „Ég var að skrifa undir og get ekki sagt annað en að þetta sé spennandi verkefni. Það verður gaman að takast á við þjáifun eingöngu en það hef ég aldrei gert áður. Þetta verður góð tilhreyting," sagði Sigurður Valur Sveinsson í samtali við DV í gærkvöld. Sigurður skrifaði undir eins árs samning við hand- knattleiksdeild HK og verður þjálfari liðsins á næstu leik- tíð en spilar ekki meira. Hann hefur verið spilandi þjálfari HK undanfarin fjögur ár. „Skómir era komnir á snagann og verða þar. Ég hef leikið minn síðasta leik. Þetta er eins árs samningur og mjög sanngjam held ég. Þetta er verulega skemmtilegt verkefni og við ætlum okkur að gera enn betri hluti en á þessu leiktímabili. Til þess að það takmark náist verðum við að styrkja hópinn eitthvað og munum til að byrja með leita fyrir okkur hér innan- lands og sjá hvernig það gengur,“ sagði Siggi Sveins. -SK Ríkharður vill ekki semja Ríkharður Daðason, landsliðsmaður í knattspyrnu, mun ekki skrifa undir nýjan samning við norska A- deildarliðið Viking Stavanger, en samningur hans við félagið rennur út 1. nóvember. Forráðamenn Vikings segja að þar sem Ríkharður vilji ekki gera nýjan samning sé ekki annað að gera en að reyna aö selja hann. Haft er eftir forráðamanni Vik- ings í norska blaðinu Stavanger Aftenblad í gær að ekkert lið haíl haft samband við félagið um hugsanleg kaup á Ríkharði. -GH Leó er hættur í KA Leó Öm Þorleifsson, línumaðurinn sterki sem leikið hefur með KA allan sinn feril, hefur tilkynnt forráðamönnum félagsins að hann sé á förum. Leó sem leikið hefur um 300 leiki með meistara- flokki KA, hyggst flytja suður og hefja nám við Háskólann í haust. Þetta er mikil blóðtaka fyrir KA enda hefur Leó leikið stórt hlut- verk með liðinu í sókn og vörn undanfarin ár. Hann er annar lyk- illeikmaðurinn sem KA missir, en Sverrir Bjömsson er einnig á suðurleið. Erlingur Richardsson hefur verið orðaður við KA-menn til að fylla skarð Leós, en hann lék með Valsmönnum í vetur. -GH Arnar meiddist Amar Gunnlaugsson, landsliðsmaður í knattspymu, meiddist á ökkla í leik Leic- ester gegn Aston Villa í ensku A-deildinni í fyrrakvöld. Amar haltraði af velli eftir klukkutíma leik og óvíst er að hann geti leikið með gegn West Ham á laugardaginn. Leicester er í nokkrum vandræðum vegna meiðsla þessa dagana, en Amar kom einmitt inn í byrjunarliðið fyrir einn lykil- manna liðsins, Muzzy Izzet, sem verður frá keppni út þennan mánuð, jafnvel tO loka tímabilsins. -VS Stórsigur KR-stúlkna KR er með Reykjavíkurmeist- aratitil kvenna í knattspymu í höndunum eftir 4-0 sigur á Val í gærkvöld. Olga Færseth 2, Inga Dóra Magnúsdóttir og Helena Ólafsdóttir skoraðu fyrir KR. Þar með dugar KRjafntefli gegn Fjölni til að tryggja sér titil- inn. Það verður varla fyrirstaða því Fjölnir tapaði 13-0 fyrir Val í fyrsta leik mótsins á dögunum. -VS Slóvak- inn var sendur heim Miroslav Matulaj, slóvakíski leikmaðurinn sem úrvalsdeildarlið Breiðabliks fékk til reynslu á dögunum, hef- ur verið sendur til síns heima. Matulaj lék nokkra leiki með Blikum í æf- ingaferð félagsins til Portúgals um páskana og að sögn Sverris Haukssonar, formanns knattspyrnudeildar Breiðabliks, þótti hann ekki standa sig nægilega vel til að samningur yrði gerður við hann. Bunce kemur aftur Blikar hafa hinsvegar gert nýjan samning til eins árs við nýsjálenska varnarmanninn Che Bunce sem lék með þeim í fyrra. Hann hefur leik- ið í heimalandi sínu í vetur og er kominn í landslið Nýja-Sjálands. Bunce leikur væntan- lega með því í álfukeppn- inni í Mexíkó i sumar og þá gætu Blikar misst hann í einhvem tíma. -GH/VS t

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.