Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.1999, Page 28

Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.1999, Page 28
28 FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 1999 X>”V Serbum „Lotárásir NATO á Júgóslavíu er í stríðsglæpur hvernig sem á það er lit- ið.“ Ragnar Stef- ánsson jarð- skjálftafræð- ingur í Morgun- blaðinu. Mjög íj sniðugt „Við vorum búin að bíða í heil tíu ár með að láta gefa okkur saman vegna þess að við fengum aldrei nógu sniðuga hugmynd." Dagný Þrastardóttir í Morgunblaðinu eftir að hafa látið gifta sig á skíð- Full- mikið? „Það er varla opnuð sýn- ing nokkurs staðar eða hafm keppni í einhverri íþróttagein að forsetinn sjálfur þurfi ekki í eigin persónu að vera við- staddur og ávallt að gegna lykilhlut- verki ... Er þetta ekki full- mikið af því góða!?“ Víkverji í Morgunblaðinu. Hvað SVO? „Ég hlusta á fréttatíma Út- varpsins og svo fylgist ég | með sjónvarpsfréttunum, að- allega í Ríkissjónvarpinu." Einar Axelsson tæknifræð- ingur í Degi. Kulnun „Tilfinningar mínar breyt- ast hratt en ég þó sann- færð um að ég er ekki leng- ur ástfangin af forsetan- um.“ Monica Lewinsky á bókarkynn- ingu í Osló. Gunnar Pétursson, póstur og göngugarpur: Ofurmenni á skíöurn Það er líklega enginn ís- lendingur sem hefur tekið oftar þátt í íslandsmóti í skíðagöngu en Gunnar Pétursson, póstur á ísafirði. „Þau eru nú farin að nálgast fjörutíu landsmótin sem ég hef tekið þátt í,“ sagði Gunnar Pétursson, göngukappi og aldursforseti Skíðamóts ís- lands sem hald- ið var á á ísafirði fyrir pásk- ana. „Mótin eru lík- lega orðin fleiri en 40 ef íslandsgöng- umar em tald- ar með. Árið 1983 var ég búinn að fara í 35 lands- mót í röð og þau era orðin nokkur síð- an. Maður æfir töluvert og reynir að fara á skíði helst daglega ef maður getur. Að- staðan er eins góð hér í og hún getur verið. Annars eru svona stuttar göngur tiltölulega erfiðari fyrir okkur þessa eldri. Það þarf meiri snerpu en við æfum upp á það að Maður dagsins geta haldið út lengi á sama hraða. Lengri göngurnar koma því betur út,“ sagði Gunnar Pétursson sem vart blés úr nös eftir 10 km sprett þrátt fyrir að hann eigi 70 ár að baki 31. mars á næsta ári. Gunnar Pétursson er af mikilli skíðagöngufiölskyldu og sonur mikils göngugarps, Péturs heitins Péturssonar, sem gjaman var Gunnar Pétursson fæddur með skíði á fótum. kenndur við Grænagarð á ísafirði. Þá á Gunnar líka landsþekktan bróður á ísafirði sem einnig hefur stundað skíðagöngu 1 gegnum tíð- ina en það er Oddur Pétursson, snjóflóðaeftirlitsmaður. Sonur Gunnars, Sigurður, er einnig margfrægur skíðagöngugarpur. Sennilega er Gunnar þó ekki hvað sist þekktur frá þeim ámm er hann rak útgerð vöruflutningabíla með Ebenezer Þórarinssyni á ísa- firði undir nafninu Gunnar og Eb- enezer. Voru þeir einnig í jarðýtu- útgerð. Gunnar og Ebbi voru á þeim árum oftast nefndir í sömu andrá sem einn maður væri. Þeim sem ekki þekktu vel til varð þá oft á að feðra böm þeirra á þann hátt að þessi eða hinn væri sonur eða dóttir Gunnars og Ebba. -HKr. Jóhannes Nordal og peningarnir Peningar og sagnfræði renna saman í eitt í stofu 422 í Árnagarði í dag, klukkan 16.15. Þar stígur Jóhannes Nordal, fyrrver- andi seðlabankastjóri, í pontu og flytur fyrirlestur Fundir um nýskipan peningamála á þriðja áratugnum. Verður án efa forvitnilegt að hlýða á Jóhannes sem er hafsjór af fróðleik um peningamál og gengi mynta á öldinni allri. Fyrirlestur Jóhannes- ar Nordals er öllum opinn Jóhannes Nordal. og er haldinn á vegum hag- fræði- og sagnfræðiskorar Háskólans. Heimsklipör Myndgátan hér að ofan lýsir orðtaki. Kristján bjargvættur. Spælir Kristján Fram? Seinni leikurinn í undanúrslit- um karla í handknattleik fer fram í kvöld þegar Fram mætir FH í Framhúsinu. Leikurinn hefst klukkan 20.30. Annað hvort liðið þarf að sigra tvisvar til að komast í úrslitaleikinn sem verður við Aftureldingu eða Hauka eftir því hvort liðið sigrar þar. fþróttir Framarar era sterkir og spá þeim flestir sigri en menn skyldu bíða átekta. FH-liðið hefur verið á hraðri uppleið að undanfornu, sérstaklega eftir að Kristján Ara- son, þjálfari liðsins, sté af bekkn- um og fór í vömina. Hefur Krist- jáni tekist að binda vöm FH-liðs- ins vel saman og er allt annað að sjá til liðsins eftir að þjálfarinn kom inn á. Enginn skyldi því af- skrifa Hafnfirðingana fyrr en í fulla hnefana. Bridge Guðlaugur R. Jóhannsson og Öm Arnþórsson í sveit Holtakjúklings náðu laglegum lokasamningi í leik sínum gegn sveit íslandsmeistara Samvinnuferða í fyrstu umferð MasterCard mótsins í sveitakeppni. Kerfi Guðlaugs og Arnars er af- brigði af Bláa laufinu, þar sem há- litaopnanir lofa aðeins 4-lit. Sagnir gengu þannig í opnum sal, austur gjafari og NS á hættu: * D94 4* Á976 * D9 * Á1063 4 1073 «4 DG2 ♦ Á875 * 874 4 ÁG82 4» K10 4 104 * KD952 Austur Suður Þorlákur Öm pass 1 4 pass ' 34 pass 3 grönd p/h Vestur Norður Guðm.P. Guðl. pass 2 * * pass 3 4 pass 4 4 Tveggja laufa sögn Guðlaugs var geimkrafa og þrjú lauf sýndu lengri lauflit en spaða. Þannig fetuðu þeir félagarnir sig upp í ágætis loka- samning sem átti góðan möguleika á því að vinnast, á meðan 5 lauf hefðu verið illvinnanlegur samning- ur. Útspil Guðmundar Páls var hjartadrottning sem Örn drap á ásinn í blindum. Hann spilaði strax spaða- drottningunni, Þorlákur setti kónginn sem drepinn var á ás- inn heima. Nú kom lítill spaði á níuna i blindum og Guðmundm- gat lítið annaö en tekið slag á tíuna. Framhaldið var nú leikur einn fyrir sagnhafa í þessari legu og hefði einnig verið auðvelt ef vestur hefði átt tíuna aðra í trompinu. Sveit Holtakjúklings græddi 12 impa á þessu spili i leiknum. ísak Örn Sigurðsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.