Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.1999, Qupperneq 29

Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.1999, Qupperneq 29
TXSr FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 1999 29 Rauða ljónið í kvöld: I fóstri hjá snillingum „Fyrst var ég með dálitla minnimáttarkennd en það hefur lagast. Ég fæ gríðarlega reynslu og þetta er besti skóli sem maður getur komist í,“ segir Geir Ólafsson, söngvari Furstanna, sem hefur upp raust sína á Rauða ljóninu í kvöld ásamt félögum sínum sem eru engir kjánar: Ámi Scheving, Guð- mundur Steingrímsson, Ólafur Gaukur og Carl Möller. Geir er aðeins 24 ára gamall og var í slagverks- námi hjá Guðmundi Steingrímssyni þegar hug- myndin að Furstunum varð til. Hann var ekki að tvínóna við neitt heldur sópaði saman þessum helstu tónlistarsnillingum samtímans og syngur nú' með þeim: „Við erum á Sinatra-línunni og tökum síðan nokkrar sömbur og aðrar suðrænar sveiflur,“ seg- ir Geir sem ætlar ekki að láta staðar numið með- al innlendra snillinga heldur hleypa heimdragan- um og syngja í New York. Skemmtanir „Ég þræddi allar helstu búllurnar á Manhattan þegar ég var þar staddur fyrir skemmstu og tók lagið með ýmsum. Að lokum var ég ráðinn í djass- hljómsveit sem heitir Perfect Squire og fer til þeirra í vor. Við erum bókaðir þrjú kvöld í viku langt fram á sumar.“ Geir og Furstamir byrja á „New York New York“ á Rauða ljóninu í kvöld klukkan 22.00. Geir ungi lofar sveiflu á heimsmælikvarða með ridd- araliðið á bak við sig. Geir Óiafsson: Af Rauða Ijóninu til New York. Ilmur á Mokka í kaffiilminum á Mokka við Skólavörðustíg sýnir Ilmur María Stefánsdóttir nú sex lágmyndir eða þrivíðar veggmyndir sem all- ar eru unnar út frá starfsemi mannslíkamans. Myndirnar eru gerðar úr ýmsum efnum, svo sem gúmmíi, ljósleiðurum, matarlími og vír, svo eitthvað sé nefnt. Myndlist Ilmur María er þrítug að aldri og hefur lokið námi úr textíldeild Myndlista- og handíðaskólans. Hún sækir heiti verka sinna í gömlu heilsufræðina: „Hvít blóð- kom“ er gert úr matarlími og lyfjahylki, „Heili“ er gerður úr ljósleiðara og matarlími og „Nef- hár“ er úr gúmmíi og bindivír - og svo mætti lengi telja. Sýning Ilmar er opin á meðan kaffið er heitt á Mokka. Guðmundur Andri Thorsson veröur á Kaffi Reykjavík í kvöld. Bókmenntir á Kaffi Reykjavík Spurningunni um hvað sé að ger- ast í íslenskum bókmenntum verð- ur reynt að svara á Kaffi Reykjavík í dag klukkan 17. Þar mun Guð- mundur Andri Thorsson rithöfund- ur leggja út af hinni frægu setningu Steins Steinars um að hið hefð- bundna ljóðform sé nú loksins dautt og ennfremur huga að stöðu skáld- sögunnar svona yfírleitt. Þá mun Dagný Kristjánsdóttir fjalla um ný- liðun í íslenskum bókmenntum og ýmsa þá höfunda sem komið hafa fram á sjónarsviðið að undanfömu. Sérstaklega ætlar Dagný að velta því fyrir sér hvers vegna þeir skrifi öðruvísi en tíðkast hafi og á hvem hátt þeir séu frábrugðnir fyrirrenn- umm sínum. Samkomur Búast má við líflegum umræðum við barinn á Kaffi Reykjavík en gestir verða sjálfir að kaupa sér veitingar. Fundurinn mun standa í tvær stundir eða svo og em allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir. Fundarstjóri er Pétur Már Ólafsson bókmenntafræðingur. Hanner Veðurspáin í dag gerir ráð fyrir norðan- og norðvestangolu eða kalda og éljum á norðanverðu Veðrið í dag landinu. Sunnan til verður vestan- og siðar norðangola eða kaldi og að kólna él, einkum fyrri part dags. Hiti rétt hangir yfir frostmarki, verður þetta 1 til 4 stig en annars vægt frost. Sólarlag í Reykjavík 20.39 Sólarupprás á morgirn 6.19 Síðdegisflóð í Reykjavík 23.41 Árdegisflóð á morgun 12.17 Veðrið kl. 6 í morgun: Akureyri skýjað 7 Bergsstaðir hálfskýjað 5 Bolungarvík skúr á síð. kls. 5 Egilsstaðir 4 Kirkjubœjarkl. léttskýjað 4 Keflavíkurflv. slydduél 4 Raufarhöfn hálfskýjað 4 Reykjavík skúr á síð. kls. 3 Stórhöfói skúr 4 Bergen lágþokublettir 3 Helsinki skýjað 2 Kaupmhöfn skýjaó 7 Ósló skýjað 4 Stokkhólmur 5 Þórshöfn rigning 8 Þrándheimur úrkoma í grennd 4 Algarve skýjað 19 Amsterdam súld á síö. kls. 8 Barcelona léttskýjað 10 Berlín skúr á síó. kls. 7 Chicago heiöskírt 16 Dublin súld 10 Halifax skýjaó 5 Frankfurt skýjað 8 Glasgow rign. á síó. kls. 9 Hamborg alskýjað 8 Jan Mayen alskýjað -5 London léttskýjað 5 Lúxemborg skýjaó 6 Mallorca léttskýjaó 11 Montreal alskýjað 7 Narssarssuaq snjókoma -3 New York skýjaö 12 Orlando heiöskírt 17 París léttskýjaó 8 Róm rigning 10 Vín skýjaö 9 Washington skýjað 7 Winnipeg heiöskírt 5 Aurbleyta Þó vel sé greiðfært um alla aðalþjóðvegi lands- ins er aurbleytu farið að gæta víða. Þungatak- markanir hafa verið settar af þessu tilefni og aug- lýstar sérstaklega samkvæmt venju. Þá er hálka Ástand vega , ■ x r\ r&k f !° \ W ■ 4^-Skafrenningur 0 Steinkast O Hálka 0 Vegavinna-aögát 0 Öxulþungatakmarkanir (3^) ófært tH Þungfært © Fært fjallabílum Færð á vegum og hálkublettir á fjallvegum eins og eðlilegt má teljast á þessum árstíma. Eru ferðalangar beðnir að hafa þetta í huga. Hálfsystir Evu Þetta fallega stúlkubam Þór Þórisson. Stúlkan vó fæddist á Landspítalanum rúm 4 kíló og var 54 sentí- 17. mars foreldrum sínum metrar aö lengd. Háifsyst- til mikillar ánægju, en ir hennar, hún Eva Lind þeir eru Hanna Fanney sem er 11 ára, sendi okkur Steinarsdóttir og Magnús þessa mynd með bros á vör. Þær systurnar búa Barn dagsins ”vkFellsmúlanura 1 Hláturinn læknar Saga bíó hefur að undanförnu sýnt myndina Patch Adams með Robin Williams í aðalhlutverki. í myndinni er sannsögulegur tónn þar sem segir frá lækna- nema sem stefhir framtíð sinni í hættu með ofurtrú á lækninga- mætti hlátursins. Kennarar hans benda honum á að ganga í sirkus vilji hann vera trúöur. En hann er á öðru máli. Þetta er ekki í fyrsta né síð- asta sinn sem Robin Williams leikur trúð í kvikmynd. Sjálfur hefur hann ,, tekið ýmis hliðar- ?'//////// Kvikmyndir vuiiiik ■ /■" spor trúðsins í lífi sínu en hann er fæddur í Chicago 21. júli 1952. Stjömuspekingar segja að Robin Williams sé með sól í krabba- merkinu og tungl í ljóni. Hann er tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Valeri Velardi en nú býr hann með Marsha Garces. Robin Williams á þrjú böm: Zachary, Zeldu og Cody. Þeir sem kynnu að vilja skrifa leikaranum eftir að hafa séð kvikmyndina Patch Adams geta stílað bréfin til Robins Williams c/o Creative Artists Agency, 9830 Wilshire Blvd, Beverly HOls, CA, 90212 USA. tj! * Krossgátan 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 Lárétt: 1 löngun, 4 hím, 7 garði, 8 skaut, 10 mynni, 11 munnbiti, 12 kasta, 14 elskaði, 16 smámunur, 18 faðmur, 20 fersk, 21 bók, 22 karl- mannsnafn. Lóðrétt: 1 rass, 2 umrót, 3 spil, 4 tarfarnir, 5 gat, 6 gabb, 9 skaða, 12 skýr, 13 bjartur, 15 þjálfi, 17 ferskur, 19 bardagi. Lausn á síðustu krossgátu: Lárétt: 1 kvelja, 8 riða, 9 amt, 10 án, 11 angar, 12 kulda, 14 má, 15 Ari, 16 ósar, 18 nota, 20 tré, 21 skari, 22 að. Lóðrétt: 1 krákan, 2 vinur, 3 eða, 4 land, 5 jagast, 6 ama, 7 strá, 13 lita, 14 mara, 16 óar, 17 réð, 19 ok. Gengið Almennt gengi LÍ 08. 04. 1999 kl. 9.15 Eininn Kaup Sala Tollgenqi Doilar 72,750 73,130 72,800 Pund 116,730 117,320 117,920 Kan. dollar 48,510 48,810 48,090 Dönsk kr. 10,5800 10,6380 10,5400 Norsk kr 9,3410 9,3920 9,3480 Sænsk kr. 8,7830 8,8310 8,7470 Fi. mark 13,2140 13,2940 13,1678 Fra. franki 11,9780 12,0500 11,9355 Belg. franki 1,9477 1,9594 1,9408 Sviss. franki 49,2300 49,5000 49,0400 Holl. gyllini 35,6500 35,8700 35,5274 Þýskt mark 40,1700 40,4100 40,0302 it. líra 0,040580 0,04082 0,040440 Aust. sch. 5,7100 5,7440 5,6897 Port. escudo 0,3919 0,3943 0,3905 Spá. peseti 0,4722 0,4750 0,4706 Jap. yen 0,602300 0,60590 0,607200 írskt pund 99,760 100,360 99,410 SDR 98,610000 99,21000 98,840000 ECU 78,5700 79,0400 78,2900 Símsvari vegna gengisskrðningar 5623270

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.