Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1999, Blaðsíða 18
18
23
Bland í
oka
US Masters í golfi hófst í gær:
T
FÖSTUDAGUR 9. APRÍL 1999 FÖSTUDAGUR 9. APRÍL 1999
Iþróttir
Enn eiga nokkur lið Nissandeildar eftir að ráða þjálfara fyrir næstu leiktíð:
Óskar ræðir við Eyjamenn
Óskar Bjarni Óskarsson, unglingaþjálfari hjá Val, mun í dag
hitta forráöamenn 1. deildarliðs ÍBV í handknattleik á fundi í
Eyjum, en þeir vilja fá Óskar til aö taka viö þjálfun liösins af
Þorbergi Aöalsteinssyni, sem er hættur eftir þriggja ára starf.
Óskar hefur náð mjög góöum árangri meö unglingalið Vals
og hann var aðstoðarmaður Jóns Kristjánssonar, þjálfara Vals,
þegar Hlíðarendaliöiö vann tvöfalt á síðustu leiktið.
Geir vill fá Óskar sem aðstoðarmann
Óskar, sem er nýráðinn íþróttafulltrúi hjá Val, er með fleiri
tilboð á sinni könnu. Eitt þeirra er frá Geir Sveinssyni,
nýráðnum þjálfara Vals, sem viil fá Óskar sem aðstoöarmann
á næsta tímabili.
Úr herbúðum Vais er það að frétta að Guðmundur Hrafn-
kelsson markvörður er á fórum til útlanda og stööu hans mun
taka Sigurgeir Höskuldsson, sem lék meö Gróttu/KR í vetur.
Eins og fram hefur komiö snýr Júlíus Jónasson heim frá Sviss
og mun leika með Val næsta vetur en Geir Sveinsson mun ein-
göngu sjá um þjálfunina. Óvíst er hvað Erlingur Richardsson
gerir, en hann var einn besti leikmaður Vals í vetur. Þá renn-
ur samningur homamannsins Davíðs Ólafssonar út í maí.
Davíö hefur verið orðaður við lið Aftureldingar og samkvæmt
heimildum DV hafa forráðamenn Mofellsbæjarliðsins rætt við
Davíð.
Samningar útlendinganna hjá ÍBV ekki end-
urnýjaðir
Eyjamenn telja Óskar góðan kost, enda hafi hann sannaö sig
sem góður og metnaðafuilur þjálfari. Það er hugur í forráða-
mönnum ÍBV fyrir næstu leiktíð og þeir segjast ætla að tefla
fram sterkara liði en í vetur. Það er ljóst að „lundarnir" Guö-
finnur Kristmannsson, Sigurður Bragason, Svavar Vignisson
og Daði Pálsson verða allir með ÍBV á næstu leiktíð og Eyja-
menn binda vonir við að Sigmar Þröstur haldi áfram, þó svo
að hann segi á hveiju ári að hann sé hættur. Samningar út-
lendinganna tveggja sem léku með ÍBV í vetur verða ekki
framlengdir og eru Eyjamenn þegar farnir aö leita fyrir sér er-
lendis að leikmönnum til að fylla skörð þeirra.
Allt óráðið enn þá hjá Fram
Framarar eru eitt fárra liða sem eiga eftir að ganga frá ráðn-
ingu á þjálfara fyrir næsta tímabil, en Guðmundur Guðmunds-
son hættir með liðiö i lok timabils og tekur við þjáifun þýska
liðsins Dormagen.
Forráðamenn Fram sögðu við DV í gær að þeir væru að
skoða málin og ekkert væri komið á hreint hver yröi eftirmað-
ur Guðmundar. Samkvæmt heimildum DV er Þorbergur Aðal-
steinsson einn þeirra sem eru inni í myndinni og þá eru Fram-
arar einnig aö skoða sig um erlendis.
-GH
Fram (11) 22
FH (15) 25
0-1, 1-1, 1-5, 4-6, 5-10, 6-12, 7-12,
7-14, 9-14, 9-15 (11-15), 12-15, 14-15,
16-19, 17-20, 19-20, 21-21, 22-22, 22-23,
22-24, 22-25.
Mörk Fram: Guðmundur Helgi
Pálsson 8, Björgvin Björgvinsson 5,
Oleg Titov, 4/4, Njörður Ámason 3,
Kristján Þorsteinsson 1, Róbert
Gunnarsson 1.
Varin skot: Sebastian Alexanders-
son 18/2.
Mörk FH: Guðjón Ámason 8, Lár-
us Long 4, Knútur Sigurðsson 4/2,
Hálfdán Þórðarson 3, Valur Amarson
3, Kristján Arason 1, Gunnar Bein-
teinsson 1, Guðmundur Pedersen 1/1.
Varin skot: Magnús Ámason
15/1.
Brottvísanir: Fram 6 mín., FH 8
mín.
Dómarar: Einar Sveinsson og Þor-
lákur Kjartansson. Gerðu mörg mis-
tök sem bitnuðu jafnt á liðunum.
Áhorfendur: Fullt hús, um 600
manns.
Maður leiksins: Guðjón Árna-
son, FH.
íþróttir
„Ætlum aö klára
þetta í næsta leik“
„Við vorum betri og fyrri
hálfleikurin var frábær. Þar vorum
við að leika í beinu framhaldi af
Stjörnuleiknum. Við sýndum frá:
bæran leik, bæði í vörn og sókn. í
þetta sinn vorum við bara einfaldlega
betri og þó að þeir næðu að jafna
héldum við alltaf haus. Þeir fundu
það að þeir myndu aldrei hafa okkur
og við vorum bara sterkari. Ef þessi
framliggjandi vöm smellur saman er
mjög erfltt að leysa hana. Framliðið
hefur örugglega eitthvað unnið í
þessari vöm, en við gáfum bara
aldrei tækifæri á okkur. Við ælum að
klára þetta dæmi í næsta leik,“ sagði
Guðjón Ámason. -JKS
„Mínir menn voru
ekki tilbúnir"
„Mínir menn voru einfaldlega ekki
tilbúnir þegar flautað var til leiks.
Fyrri hálfleikurinn fór alveg með
okkur. Við komum til baka en það
kostaði mikla orku og það var ekki
nóg. Slakur varnarleikur í fyrri hálf-
leik verður okkur aö falli að minu
viti. Við erum að fá á okkur 15 mörk
sem segir sína sögu. Baráttan var
ekki til staðar í byrjun og það olli því
aö þeir náðu sex marka forystu. Við
vorum að vinna þetta upp allan
leikinn. Lánið lék ekki við okkur og
við misnotuðum víti á krítísku
augnabliki og því fór sem fór. Ég er
ekki hræddur um næsta leik og menn
verða tilbúnir i hann,“ sagði
Guðmundur Guðmundsson, þjálfari
Fram. -JKS
„Bjóst alltaf við
spennufalli"
„Þetta var mjög ánægjulegur sigur
en við komum mjög vel stemmdir til
þessa leiks. Við lékum sömu vörn og
gegn Stjörnunni og það virtist koma
Framliðinu í opna skjöldu og ég var
svolítið hissa á því. Þetta er
fantavörn sem við leikum og það
erfitt að leika á móti henni.
Framarar léku vel á hana og
leikurinn var í jafnvægi í síðari
hálfleik. Þeir þurftu að hafa mikið
fyrir þvi að jafna leikinn, þannig að
hver mistök hjá þeim voru mjög
dýrkeypt. Þegar vítakastið fór for-
görðum hjá Titov voru möguleikar
Framara úr sögunni. Þetta var kafla-
skiptur leikur og það var erfitt fyrir
okkur að halda dampi eftir gífurlega
keyrslu sem við vorum að sýna í
fyrri hálfleik, sem var frábær af
okkar hálfu. Ég bjóst alltaf við
einhverju spennufalli, en viö náðum
okkur aftur á strik og kláruðum
leikinn. Laugardagsleikurinn verður
erfiður en við stefhum að því að
klára hann,“ sagði Kristján Arason
þjálfari FH. .jks
„Sýnum klærnar í
Krikanum"
„Viö byrjuðum alltof seint - menn
voru ekki tilbúnir í byijun einhverra
hluta vegna. Við sáum það þegar við
byrjuöum að leika okkar leik að við
getum hvað sem er. Við lékum ekki
vörn fyrr en í sfðari hálfleik og
sóknarleikurinn var upp og ofan. Viö
eigum fullt inni og æflum aö sýna
klærnar í leiknum í Kaplakrika á
laugardag," sagði Guðmundur Helgi
Pálsson. -JKS
NBA-DEILDIN
Urslit leikja í nótt:
Toronto-Boston..............89-101
Carter 31, Willis 19, Christie 14 - Ander-
son 23, Walker 18, Mercer 18.
Cleveland-Orlando ...........69-73
Kemp 17, Knight 14 - Hardaway 23,
Harpring 14, Austin 8.
Houston-San Antonio .........83-92
Olajuwon 27, Dickerson 15, Mobley 12 -
Elliott 19, Duncan 18, Elie 14.
Utah-Golden State .......... 92-85
Malone 38, Russell 15, Anderson 12 -
Coles 20, Mills 18, Starks 14.
Seattle-Portland ............87-86
Payton 20, Schrempf 17, Baker 12 -
Wallace 14, Gran 112, Jackson 12.
LA Clippers-Minnesota...... 99-91
Taylor 20, Douglas 16, Murry 14 - Garr-
nett 15, Jackson 12, Hammonds 12.
-JKS
Bland i
oka
FH-ingar fagna sigrinum gegn Fram í Framhúsinu í gærkvöld. Lárus Long (11) fagnar góðum sigri með samherja sínum. Á innfelldu myndinni sést
Guðmundur Þ. Guðmundsson, þjálfari Fram, hvetja sína menn - greinilega óhress með gang mála. DV-mynd ÞÖK
FH komið með annan fótinn í úrslit Nissandeildarinnar:
- FH vann góðan útisigur á Fram og liðið er til alls líklegt
Chelsea náði aðeins jafhtefli
gegn Real Mallorca í fyrri
leik liðanna í undanúrslit-
um Evrópukeppni bikarhafa
á Stamford Bridge í gær-
kvöld. Lokatölur urðu 1-1 og
það var Norðmaðurinn Tore
Andre Flo sem jaihaði fyrir
Chelsea.
í hinum undanúrslitaleikn-
um iéku Lokomotiv Moskva
og Lazio og þeim leik
lyktaði einnig með jafntefli,
1-1.
Haukar og Afturelding
leika annan leik sinn í und-
anúrslitum Nissandeildar-
innar í handknattleik í
kvöld. Leikurinn fer fram i
Hafharflröi og hefst kl. 20.30.
Steinar Hoen, norski há-
stökkvarinn sem atti kappi
við Einar Karl Hjartarson
íslandsmeistara á stökkmóti
ÍR fyrir nokkru, hefur feng-
ið Svíann Patrick Sjöberg
til að þjálfa sig. Sjöberg til-
kynnti fyrir skömmu að
hann væri haettur keppni
vegna þrálátra meiðsla.
ÍS og KA leika til úrsliía á
morgun í bikarkeppninni í
blaki karla kl. 13.30 í Aust-
urbergi.
Peter Schmeichel, mark-
vörður Manchester United,
sem leikur sinn 35. Evrópu-
leik fyrir United í Torino og
jafiiar met Bills Foulkess,
segir að United eigi. enn
góða möguleika á að komast
í úrslitin. „Ég hef það á til-
finningunni að við munum
vinna síðari leikinn. Við
eigum miklu meira inni og
ég efast ekki um að Alex
Ferguson finnur einhver
ráð til að brjóta niður leik
Juventus,“ segir Sch-
meichel.
-GH/-SK
Frábær fyrri hálfleikur FH-
inga lagði grunninn að sigri
þeirra gegn Fram, 22-25, i
fyrsta leik liöanna í undanúr-
slitum Nissandeildarinnar í
handknatfleik í Framhúsinu í
gærkvöld. Að sama skapi voru
Framarar afspyrnuslakir í
fyrri hálfleik og segja má aö
þeir hafi aldrei farið í gang.
FH-ingar léku framliggjandi
vöm, sem átti í sjálfum sér,
ekki að koma Framliðinu á
óvart eftir að FH beitti henni
gegn Stjörnunni á dögunum.
Hafnfirðingar léku á als oddi
í fyrri hálfleik og þar fór
fremstur á meðal jafningja
Guðjón nokkur Ámason. Hann
skoraði sex mörk í hálfleiknum
og réðu Framarar ekkert við
hann. Varnarleikur FH-inga
var sterkur, en það sama verð-
ur ekki sagt um Framvörnina
sem hefur verið einn sterkasti
hlekkur liðsins í vetur. Það var
alveg ljóst frá upphafi að Fram-
arar voru ekki meö hugann við
efnið. Hvernig var leikur liðs-
ins lagður upp og hver voru
markmiðin? Þetta var spuming
sem margir veltu fyrir sér eftir
leikinn.
Framarar þreyttu þetta próf
en féllu á þvi með miklum
hvelli. Þegar flautað var til
leikhlés vom Framarar búnir
að minnka muninn i fiögur
mörk. 1 upphafi síðari hálfleiks
skomðu Framarar þijú mörk í
röð og allt í einu var munurinn
orðinn eitt mark. Það fór mikil
orka í þennan kafla hjá Fram
og þrátt fyrir að þeir jöfnuðu
metin í fyrsta sinn þegar átta
mínútur vom tfl leiksloka,
hafði maður einhvem veginn á
tilfmningunni að þeim tækist
aldrei að ná yfirhöndinni. FH-
ingar slepptu aldrei frumkvæð-
inu þrátt fyrir að hafa misst
leikinn frá sér um tíma. FH-
ingar mættu einfaldlega vel
stemmdir til leiksins en Fram-
arar ekki og þar liggur munur-
inn. FH-liðið vann sína heima-
vinnu en Framarar ekki.
Það gengur í sjálfu sér ekki
upp aö tveir af lykilmönnum
Framliðsins komist ekki á blað.
Þetta voru þeir Andrei Astafjev
og Gunnar Berg Viktorsson.
Þessir menn skora venjulega
samtals 6-8 mörk i leik en ekk-
ert í þessum leik. Þeir félagar
vilja örugglega gleyma þessum
leik sem fyrst. Það stóðu ein-
ungis þrír leikmenn upp úr í
Framliðinu, þeir Sebastian í
markinu, Guðmundur Helgi
Pálsson og Björgin Björgvins-
son. Oleg Titov tekur einungis
vítaköst liðsins og brást boga-
listinn í einu þeirra á mikil-
vægasta tímapunkti leiksins.
Ljóst er að Framliðið verður að
bretta upp ermamar fyrir leik-
inn í Hafnarfirði á morgun.
Flesta þætti liðsms þarf að taka
til rækilegrar endurskoðunar
og tímann fram að leik þarf að
nýta til hins ýtrasta.
FH-liðið lék við sinn hvem
fingur lengstum í þessum leik.
Vörnin var frábær og sóknar-
leikurinn fylgdi á eftir. Krist-
ján Arason batt vömina saman
og kórónaði síðan leik sinn
með marki úr hraðaupphlaupi.
Lárus Long vex með hverri
raun og Guðjón Ámason var
frábær í fyrri hálfleik. Liðs-
heildin sem slík skóp þennan
sigur og nú er það undir FH-
ingum komið að klára dæmið á
heimavelli í Kaplakrikanum á
morgun.
Magnús Árnason varði ágæt-
lega á mikilvægum augnablik-
um. Þaö hefur verið mikill upp-
gangur á liðinu síðustu vikurn-
ar og svo virðist sem liðið sé að
smella saman á réttu augnbliki.
-JKS
íþróttafréttir eru einnig á bls. 24
Gary Flitcroft, leikmaðurinn snjalli hjá
Blackbum Rovers, er orðinn heiU heilsu
eftir 6 mánaða fjarveru vegna meiðsla.
Óttast var að ferili hans væri á enda, en
hann er allur að braggast og reiknað er
með að hann verði með Blackbum á
lokasprettinum.
Englendingurinn Roy Hodgson gæti
orðið næsti landsliðsþjálfari Austurrik-
ismanna, en lið Austurríkis er þjálfara-
laust eftir að Herbert Prohaska sagði
starfi sínu lausu í kjölfar 9-0 ðsigurs
gegn Spánverjum. Otto Baric er þó á
undan í röðinni hjá forráðamönnum
austurríska landsliðsins, en hafni hann
tilboðinu verður Hodgson boðinn stað-
an. Það em fleiri sem vilja krækja í
Hodgson en félög í Þýskalandi og á
Spáni hafa borið víumar í hann.
Henning Berg, vamarmaður Manchest-
er United, meiddist á hné í leiknum gegn
Juventus í fyrrakvöld og varð að fara af
leikvelli í hálfleik. Það kemur ekki í ljós
fyrr en í dag hversu alvarleg meiðslin
eru, en líklegt má telja að Berg verði
ekki með í undanúrslitaleik bikarkeppn-
innar gegn Arsenal á sunnudaginn.
Júgóslvarnir Kristij-
an Djordevic og Sreto
Ritic, sem leika með
Stuttgart í þýsku A-
deildinni í knattspymu,
segjast reiðubúnir að
leika gegn Eyjólfi
Sverrissyni og félögum
hans í Hertha Berlin á
laugardaginn. Áður
höfðu þeir óskað eftir
því að fá frí vegna loft-
árása NATO á Júgó-
siavíu.
Bayern Múnchen á möguleika á að
verða fyrsta þýska félagið til að vinna
meistaradeildina, þýsku deildina og bik-
arkeppnina á einu og sama keppnistíma-
bilinu. „Ég vil vinna allt því við vitum
ekki hvenær við getum teflt svona
sterku liði fram aftur. Lítum á Real Ma-
drid. Liðið vann meistaradeildina í fyrra
en nú er liðið hvergi með í baráttunni
um sigur,“ segir Stefan Effenberg,
leikstjómandinn snjalli hjá Bæjumm.
Bœjarar eru komnir með aðra
höndina á þýska meistaratitil-
inn, en forysta þeirra er 15 stig.
Þá em þeir komnir í úrslit bik-
arkeppninnar, þar sem þeir
mæta Werder Bremen i úrslita-
leik í Berlin þann 12. júlí. Uli
Hoeness, stjóri Bayem, segir að
Bæjarar tefli nú fram sinu
sterkasta liði í yfir 20 ár og liðið i
dag sé jafnvel sterkara en liðið
sem varð Evrópumeistari þrjú ár i
röð, 1974-1976.
John Toshack, fyrrum leikmaöur
Liverpool og núverandi þjálfari Real
Madrid, sagði í viðtali við spænska
blaöið Ásinn í gær að hann hefði
hafnað tilboði frá Liverpool síðasta
sumar um að veröa aðstoðarmaður
Roy Evans.
Róöurinn verður þungur fyrir lið
Manchester United þegar það mæt-
ir Juventus i síðari leik liðanna
í undanúrslitum meistaradeild-
arinnar í knattspymu í Torinó
eftir hálfan mánuö. f 53
heimaleikjum í Evrópu-
keppninni hefur Juvent-
us aðeins tapað þriveg-
is. Manchester United
hefur aldreið unnið
leik gegn itölskum fé-
lögum á útivelli og tvö
undanfarin ár tapaði
United fyrir Juventus i
Torino með sömu marka-
tölu, 1-0. -GH
__________________________________
Þrumur og
eldingar
- allt í einum hnút eftir fyrsta daginn
Veður setti mjög mark sitt á fyrsta dag US
Masters stórmótsins í golfí, sem hófst á
Augusta National golfvellinum í Georgíu í
gær.
Þrír kylfmgar eru efstir og jafnir eftir
fyrsta hringinn á 69 höggum, þremur
höggum undir pari. Það eru þeir Davis
Love, Scott McCarron og Brandel Chamb-
lee en hann hefur aldrei leikið á þessu
stórmóti áður. Annars er allt í einum
hnút á toppnum. Mark O’Meara, sigur-
vegarinn frá í fyrra, er á 70 höggum,
tveimur höggum undir pari og sömu sögu
er að segja af Skotanum Colin Mont-
gomerie, að margra mati besta kylfmgi
sem ekki hefur enn unnið eitt af stóru mótun-
um fjórum.
Eins og áður sagði
setti slæmt
veð- .
ur strik í reikninginn. Um tíma varð að ffesta
keppninni um eina og hálfa klukkustund
vegna mikiflar rigningar og þrumuveðurs. Þá
áttu 33 kylfingar enn eftir að ljúka leik. Ekki
náðu allir kylfmgamir að klára fyrsta hring-
inn þegar keppnin var sett af stað aftur. Á
meðal tólf kylfinga sem verða að ljúka fyrsta
hringnum í dag, áður en annar hringurinn
hefst, er Bandaríkjamaðurinn David Duval.
Þegar keppnin í gær var blásin af vegna
myrkurs var Duval á einu höggi undir pari og
átti hann eftir eina holu þegar hætt var.
í gær náðu 20 kylfmgar að leika undir pari
og voru þeir flestir á ferðinni áður en veður
versnaði mjög. Tiger Woods lennti í miklu
basli um tíma og lék meðal annars par 5 holu
á 8 höggum. Woods kom inn á parinu og náði
að laga stöðu sina með góðum lokaspretti.
Keppendur höfðu á orði í gær að vöflurinn
vari jafn erfiður og hann væri fallegur. Flest-
ir voru sammála um að holustaðsetningar
væru mjög erfiðar mið-
B að við fyrsta dag og
minntu marga kylfmg-
ana á staðsetningar hol-
anna á lokadegi mótsins.
Þess má geta að í fyrra tókst
ekki heldur að ljúka keppni á
fyrsta degi vegna veðurs.
-SK
David Duval, besti kylfingur
heims, einbeittur á svip á fyrsta
hring í gær. Ðuval var einn
undir pari og átti eina holu
eftir, þegar keppninni var
frestað vegna myrkurs, og
verður því að leika 19
holur í dag.
' ”“ - Reuter