Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1999, Síða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 13. APRÍL 1999
Viðskipti I>V
Þetta helst: .. . Lítið að gerast á Verðbréfaþingi, viðskipti aðeins 232 m.kr. ... Mest viðskipti með Granda sem
hækkar um 2,1 % .,. Eignarhaldsfélagið Alþýðubankinn selur 1 % í íslandsbanka ... Kílóið af þorski á 104,70 krónur
.,. Hlutabréf lækka í London ,,, Dollarinn enn sterkur og pundið heldur sínu gagnvart evrunni ...
Afkoma iönfyrirtækja:
Erfiðleikar fram undan
- raungengi krónunnar og vaxtamun um að kenna
Afkoma iðnfyrirtækja á Verð-
bréfaþingi islands veir siök á síðasta
ári og horfur eru á að starfsskilyrði
þeirra verði erfið á þessu ári. Á síð-
asta ári var samaniagður rekstrar-
hagnaður Marels, Járnblendifélags-
ins og Hampiðjunnar 436 milljónir,
en var 599 milijónir árið áður. Það
vekur athygli að stór hluti af rekstr-
arhagnaði fyrirtækjanna eru vegna
óreglulegra rekstrarliða. Eiginlegur
hagnaður fyrirtækjanna var aðeins
172 milljónir miðað við 605 milljón-
ir árið 1997. Það er mat sérfræðinga
Fjárfestingarbanka atvinnulífsins
að miðað við afkomu félaganna á
síðasta ári þá sé gengi bréfa í þess-
um félögum of hátt skráð. Til dæm-
is má nefna aö hagnaður Marels hf.
á síðasta ári var aðeins 9 milljónir,
en miðað við gengi bréfa í Marel hf.
hefði hagnaður þurft að vera
250-300 milljónir.
Samkeppnisstaða slæm
Það eru nokkrar ástæður fyrir
Lyfjafyrirtæki
standa vel
- horfur á harðnandi samkeppni
íslensk fyrirtæki í hátækniiðnaði
hafa staðið sig vel á undanfórnum
misserum. Lyfjafyrirtækin hér á
landi eru á meðal þeirra og er af-
koma þeirra góð. Hagnaður fyrir-
tækjanna Pharmaco og Lyfjaversl-
unar ísiands af reglulegri starfsemi
nam 87 milljónum króna á síðasta
ári. Þessi fyrirtæki gera enn fremur
ráð fyrir góðri afkomu á þessu ári.
Eftir að smásala á lyfjum á íslandi
var gefin frjáls hefur samkeppni á
þeim markaði aukist gífurlega. Þessi
þróun hefur skilað sér í lækkuðu
lyfjaverði en þetta getur haft slæmar
afleiðingar fyrir stóru íslensku lyfja-
fyrirtækin. Ástæðan er sú að margir
spá því að lyfjabúðir muni taka sig
saman og hefja sjálfstæðan innflutn-
ing á lyfjum. Þetta mun auka sam-
keppni og lækka verð á lyfjum frá
framleiðendum. Þetta getur minnk-
að hagnað fyrirtækja í lyfjaiðnaði
hér á landi. Hins vegar ber að geta
þess að ekki er loku fyrir það skotið
að samstarf geti náðst um slíkan
innflutning á milli lyijafyrirtækj-
anna og smásöluaöila. -BMG
Vaka-Helgafell kaup-
ir lceland Review
Vaka-Helgafeli hefur keypt Iceland
Review ehf. Kaupin fara þannig fram
að Haraldur J. Hamar, stofnandi og
aðaleigandi Iceland Review, verður
hluthafi í Vöku-Helgafelli. Þessi kaup
eru í samræmi við þá stefnu sem
kynnt var þegar Fjárfestingarbanki
atvinnulífsins keypi helmings hlut í
fyrirtækinu. Hún gengur út á að
breikka starfssvið félagsins í útgáfu-
starfssemi. Með þessum kaupum bæt-
ist við fjölbreytt og vönduð útgáfu-
starfsemi fyrir innlendan markað, en
megin viðbótin er fólgin í þjónustu
við erlandan markað. Vaka-Helgafell
hefur á undanfórnum árum breyst úr
bókaútgáfu í alhliða miðlunar- og út-
gáfufyrirtæki, sem sendir á markað
bækur, blöð, timarit, safnefni, geisla-
diska o.fl. Iceland Review hefur ein-
beitt sér að þjónustu við útlendinga
og meðal helstu verkefna þeirra er út-
gáfa flugtímaritanna Atlatica og Ský.
Einnig gefa þeir út daglega fréttir á
ensku á Intemetinu. Vonir standa til
að í sameiningu verði þessi fyrirtæki
enn öflugri.
-BMG
slæmum horfum í iðnaði. Fyrst ber
að telja að raungengi krónunnar er
hátt og kemur það illa niður á fyrir-
tækjum í útflutningi. Hátt raun-
gengi þýðir að færri krónur fást fyr-
ir hverja framleidda einingu. Miðað
við óbreytt ástand eru ekki horfur á
miklum breytingum á gengi krón-
unnar. Enn fremur hefur mikið
launaskrið verið meðal iðnaðar-
manna og vaxtamunurinn milli ís-
lands og samkeppnislanda okkar
eykur kostnað fyrirtækja. Allir
þessir þættir rýja samkeppnisstöðu
íslensks iðnaðar. Helsta hættan sem
fólgin er í þessari þróun er sú að
fyrirtæki mæti þessum kostnaðar-
auka með verðhækkunum og þá get-
ur verðbólgudraugurinn komist á
kreik. Fyrirtækin í landinu eru
uppspretta hagvaxtar og því ættu
stjórnvöld að beita sér fyrir því að
efla samkeppnishæfi íslenskra fyrir-
tækja og halda áfram að halda verð-
lagi í skefjum.
Góð afkoma Spari-
sjóðs vélstjóra
ji.nwæt:æran|]
Síðastliðið ár var eitt hið
besta í sögu Sparisjóðs Vélstjóra.
Hagnaður ársins var 114,3 millj-
ónir króna og arðsemi eigin fjár
var 10%. Sparisjóðurinn hefur
stækkað mikið og er nú orðinn
meðal öflugustu sparisjóða á
landinu. Eigið fé hans var í árs-
lok 1.138,3 milljónir og jókst um
13,6% á árinu. Helstu viðkiptavinir
Sparisjóðsins hafa verið einstaklingar
og meðalstór fyrirtæki, en með auk-
inni veltu og traustari eiginfjárstöðu
er nú hægt að sinna stærri verkefn-
um. Sparisjóðurinn á stóran hlut í
nokkrum öflugum fyrirtækjum. Þar
ber hæst hlutur í Kaupþingi hf.,
Kreditkorti hf. og Sparisjóðabankan-
um hf. Mikil áhersla hefur verið lögð
á bætta þjónustu og tók Sparisjóður-
inn í gagnið nýtt rafrænt afgreiðslu-
kerfi á árinu, sem eykur skilvirkni og
flýtir afgreiðslu. Horfur eru á áfram-
haldandi uppbyggingu og er framtíðin
björt. -BMG
Fáir gjaldmiðlar hafa hækkað...
en flestir hafa lækkað
frá áramótum
Norsk króna
SDR
Sœnsk króna
Sterllngspund
Bandarlkjadalur
Kanadadalur
'1,09%
ZZ67*
ZZ>*
Hollenskt gytfini -3,48%
rinnskt marit -3,47%
Franskur franki -3,47%
Be&skur franki -3,47%
Austumskur skðdingur -3,47%
(rsktpund -3,47%
Evra -3,47%
Þýsktmark -3,46%
ítölsk bra -3,46%
Portúgalskur skúti -3,46%
Spánskur peseti -3,46%
Dönskkróna -3,23%
Japansktjen -348%
Griskdrakma -2,99%
Svissneskur franki -2,41% 17
Islenska krónan sterk
íslenska krónan hefur verið sterk það sem af er ári og hefur gengi
annarra gjaldmiðla gagnvart henni yfirleitt lækkað. Þannig hefur hinn nýi
gjaldmiðill Evrópu, Evran lækkað gagnvart krónunni um 3,5% frá fyrstu
skráningu. Sterk staða Bandaríkjadollars á alþjóða mörkuðum endur-
speglast í hækkun hans gagnvart krónunni. Svipað er að segja um
Sterlingspundið.
Hlutabréfavísi-
tölur taka dýfu
Eftir lokun markaða á föstudag-
inn sendi bandaríski tölvufram-
leiðandinn Compaq frá sér af-
komuviðvörun. Hagnaður fyrir-
tækisins á fyrsta ársfjórðungi
þessa árs var meira en helmingi
minni en markaðurinn hafði bú-
ist við. Compaq er stærsti fram-
leiðandi PC tölva í heiminum og
búist er við að hlutabréfavísitölur
um allan heim taki dýfu við þess-
ar fréttir. Gengi bréfa í tæknifyr-
irtækjum lækkuðu strax á mánu-
dagsmorgun við þessar fréttir.
Ekki verður þó hægt að ráða al-
mennilega hvað þetta þýðir fyrr
en viðbrögð bandaríska markað-
arins verða ljós.
148 milljónir
í arð
Aðalfundur Granda samþykkti
sl. föstudag að greiða hluthöfum
10% arð, eða alls um 148 milljónir
króna. Á fundinum voru eftirtald-
ir kosnir í stjórn: Ámi Vilhjálms-
son, Ágúst Einarsson, Einar
Sveinsson, Grétar Br. Kristjáns-
son, Gunnar Svavarsson, Jón
Ingvarsson. Einar Sveinsson er
nýr í stjórn 1 stað bróður síns
Benedikts.
Sigurgeir hættir
Sigurgeiri Jónssyni, forstjóra
Lánasýslu ríkisins, hefur að eigin
ósk verið veitt lausn frá störfum
frá 1. maí næstkomandi. Pétri
Kristinssyni, framkvæmdastjóra
innlendra verðbréfaviðskipta, hef-
ur verið falið að veita Lánasýslu
ríkisins forstöðu þar til nýr for-
stjóri verður skipaður.
Umskipti
Hagnaður Sparisjóðsins í Kefla-
vík nam 80.3 milljónum króna,
samanborið við 55,2 milljóna tap
árið 1997.
Engar breytingar
Aðalfundur Sfldarvinnslunnar
á laugardaginn samþykkti að
greiða hluthöfum 7% arð. Stjóm
félagsins er óbreytt, en hana
skipa: Kristinn V. Jóhannsson
formaður, Guðmundur Bjarnason,
Kristinn ívarsson, Halldór Þor-
steinnsson og Þórður Þórðarson.
Varamenn: Smári Geirsson, Har-
aldur Jörgensen, Karl Jóhann
Birgisson, Hjörtur Arnfinnsson og
Viggó Sigfinnsson.
Grunnurinn aö öruggu upplýsingakerfi liggur í traustum netþjóni. Styrkleikar netþjúna
irá IBM eru áreiðanleiki, rekstraröryggi og nmr óendanlegir
etmkkunarmöguleikar. IBM hýöur fjölskyldu af netþjónum
sem henta stórum sem smáum fyrtrtækjum.
— ~ ~ — —• IBM netþjónar eru öruggir og vinna eins
ZZZ...— og hugur manns. NYHERJI
Skaftahllð 24 • Simi 569 7700
http://www.nyherji.is