Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1999, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1999, Side 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 13. APRÍL 1999 Spurmngin Hvað hræðist þú mest? María Skaftadóttir hjúkrunar- fræðingur: Ætli það séu ekki skor- dýr. Tara Sif Þrastardóttir, 12 ára: Ég er hræddust við drauma, en ég sá einn þegar ég var lítil. Sigurbjörg Bára Brynjarsdóttir, 6 ára: Ég er hræddust við martröð. Sæmundur Amór Sigurðsson, 15 ára: Ég er hræddastur við snáka, en ég hef séð snák. Anný Dögg Helgadóttir, 9 ára: Ég hræðist risaeðlur mest. Ég veit samt að þær era ekki til. Lesendur Húsnæðismál í Kópavogi Greinarhöfundur telur að skortur á félagslegum íbúðum i Kópavogi sé mikill. Guðjón Ólafsson skrifar: Mig langar að minnast á þann seinagang og óöryggi sem fólk í Kópavogi og öðrum sveitarfélögum býr við í dag eftir stofnun íbúðalánasjóðs. Ég og mín fjölskylda lentum í því í fyrra að þurfa að selja okkar íbúð einni milljón króna undir markaðsverði áður en viö misstum hana á uppboði vegna skulda. Við fengum eftir mikla leit mjög litla leiguíbúð í risi sem var alltof litil fyrir okkur við höfum búið þar frá 1. apríl á síðasta ári en nú hefur þessi ibúð verið seld og við þurfum að vera farin út 1. maí nk. Ég sótti um félagslega íbúð hjá Kópavogsbæ fyrir um hálfu öðru ári og lítið hefur gerst í þeim málum, að undanskildu því að ég fékk bréf um það að ekki væru til leigubúðir hjá bænum. Og ef ég spyr hvað ég eigi að gera ef ég er ekki búinn að fá leiguíbúð fyrir þennan tíma, þá er mér bent á Félagsmálastofnun þar sem mér er tjáð að það séu eng- in úrræði handa mér og minni fjöl- skyldu. Þá spyr ég: Ef Félagsmálastofnun hefur ekki úrræði handa mér, hver hefur þau þá? Ég ræddi við félagsmálastjóra Kópavogs sem sagði mér að leita til annarra sveitarfélaga eftir íbúðum. Finnast mér það hálfkuldaleg svör þar sem fjölskyldan er skattgreið- andi í Kópavogi. Ég hef sömuleiðis rætt við Sigurð Geirdal, bæjarstjóra í Kópavogi, sem bendir á sína undirmenn. Mér er tjáð að Kópavogsbær sé mjög illa staddur hvað félagslegar íbúðir varðar. Það stingur mikið í augun að á meðan fólk er að berjast fyrir að reyna fá íbúðir hjá Kópavogsbæ þá er bærinn að byggja glæsi- og menningarhöll eins og þetta nýja tónlistarhús. Og leiguverðið er kom- ið út fyrir allt velsæmi. Ég hef heyrt tölur allt upp í 90.000 krónur á mán- uði og allt að 12 mánuði fyrir fram. Hver hefur efni á þessu? Nú spyr ég. Verð ég að fara með konu og tvö börn á götuna eða í tjald, því það era engar bjargir leyfðar hjá mér? Hver hefur svör við því? Samfylkingin verður forystuafl Breiðhyltingur skrifar: Ég verð að segja að ég skil ekki þetta tal um að Samfylkingin hafi tapað svo og svo miklu fylgi. Þetta er nýtt stjómmálaafl sem er að mælast í skoðanakönnunum með um og yfir 30 prósenta fylgi í hverri könnuninni á fætur annarri. Svo kemur könnun, sem birt er á vefsíð- unni Vísi.is, og þar er Samfylkingin komin í 25 prósent. Það staðfestist svo í næstu könnun að þessi var ekki í neinum takti við það sem raunverulega var að gerast og Sam- fylkingin er þar sem hún hefur ver- ið, með fylgi um þriðjungs þjóðar- innar. Ég man það að hér áður fyrr var talað um skekkjumörk í svona könnunum og þau gætu jafnvel numið nokkram prósentustigum til og frá. Sérstaklega þegar talað er um svona stóra flokka, eins og Samfylk- ingin mun augljóslega verða. Á sama tíma er litið á það sem ein- hverja stórsókn að þessir græningj- ar bæta við sig einu prósentustigi og þeim er hampað eins og einhverj- um sigurveguram. Öðruvísi mér áður brá. Samkvæmt þvi sem hinn virti stjómmálafræðingur, Ólafur Þ. Harðarson, segir er á mörkunum að þeir nái manni á þing ef þetta yrðu úrslitin. Auðvitað eru tíðindin þau að hér er að verða til stjómmálaflokkur sem hefur fúlla burði til að keppa við Sjálfstæðisflokkinn um forystu í landsmálunum á nýrri öld. En það er ekki nema von að íhaldspressan hafi ekki áhuga á að auglýsa það. Bíleigendum til viðvörunar Birgir Sigurðsson, formaður samvinnufélagsins Hreyfils, skrifar: Það er ekki svo að Bílgreinasam- bandið sé stofnun sem bifreiðaeig- endur geta leitað til ef bifreiðaum- boð svíkja þá. Þessu til staðfesting- ar vil ég segja að fyrir rúmum tveimur mánuðum varð tengdason- ur minn fyrir því að bíllinn hans bilaði, glussatjakkur fór að leka. Bifreiðin er af gerðinni Citroén BX og er tjakkur þessi ein af lífæðum bifreiðarinnar. Strax var haft sam- band við Brimborg sem hefur um- boð fyrir bílinn. Þar var eiganda bif- reiðarinnar tjáð að því miður hefðu þeir degi áður verið að selja síðasta stykkið af þessari gerð en von væri á nýrri sendingu innan þriggja vikna. Nú líður og bíður og ekki er stykkið til eftir einn og hálfan mán- [Uil&flifflfM þjónusta allan sólarhringínn Aðelns 39,90 mínútan - eða hringið í síma 5000 '^rfíilli kl. 14 og 16 Bílar bíða afgreiðslu í Sundahöfn. - Bréfritari telur að allt of löng bið sé eft- ir varahlutum í bíla. uð. Tók ég þá að mér að tala við Bíl- greinasambambandið en þar var ætið símsvari fyrir svöram. Svo gerist það að eftir hálfs mánaöar bið að hringt er til mín og í símanum er maður sem segist vera fram- kvæmdastjóri sambandsins. Þegar ég bar fram kvörtun mína við hann sagði hann að Brimborg væri ekki innan þeirra vébanda og þó svo væri kæmi þetta ekki Bílgreinasam- bandinu við. Ég þakkaði manninum skýr og góð svör. Bifreiðaeigendum ætti því að vera til umhugsunar hvort ekki ætti að leggja svona stofnanir niður og það strax. Pólóið skiptir engu Gunnar hringdi: Ég get ekki orða bundist út af þeim áróðri sem er gegn forseta landsins, Ólafi Ragnari Grímssyni. Það virðist sem einhvers konar ófrægingai'herferð sé í gangi. í opinberri heimsókn forset- ans til Póllands hafði einhver sam- band við lesendasíðuna og furðaði sig á því hvor dóttir hans væri með hon- um í fór. Hvaða máli skiptir það? Og hvað er svona óeðlilegt við að dóttir forsetans sé með honum í opinberri heimsókn. En það sem fyllti mælinn voru fáránlegar athugasemdir tveggja lesenda hér i DV um afdrif súkkulaði- stykkja, sem forsetanum voru færð að gjöf í Póllandi. Átti hann að fara að senda alþingismönnum Prins Póló í pósti út um allt land? Smáþjóðin og stórfyrirtækiö Biuna hringdi: Ég sá það skrifað í Fókusi um dag- inn, að verið var að teija upp atriði sem gerðu ísland að smáþjóð. Eitt þein-a yar að „íslensk erfðagreining kom tO íslands". Hvemig í ósköpunum á maður að skilja þetta? Ég hélt að það væri hrós fyrir íslendinga ef stórfyrir- tæki settist að á landinu og hvað þá eiips og í þessu umrædda tilfelli. Fyrir- tækið hefur skapað tugum sérfræði- menntaðra islendinga störf sem ekki þekktust áður hér á landi. Sömuleiðis komu vel menntaðaðir íslendingar heim í hrönnum til að starfa hjá fyrir- tækinu. Yfirleitt fólk sem ekki fann vinnu við sitt hæfi áður. Svona eiga hlutimir að vera. Háskólakynning Sveinn Óskar skrifar: Um helgina fór fram kynning á námi á háskólastigi og var að sögn frekar vel sótt. Hef ég verið að velta því fyrir mér hvemig í ósköpunum standi á þvi að á íslandi skuli vera einn stór háskóli, sem sér um meiri- hluta af allri háskólamenntun í land- inu. Þessi stofnun er orðin svo stöðnuð og er nýleg stofnun Viðskiptaháskóla íslands gott dæmi um það. Þar komast færri að en vilja, enda boðið upp á fjöl- breytt og hagkvæmt nám. Viðskipta- deildin í Háskólanum hefur helst úr lestinni og er hugsanlega samkeppnis- hæf við Færeyjar og Grænland. Það er löngu kominn tími til að skipta háskól- anum upp i nokkrar deildir og reyna tryggja að þeir lúti ekki allir sömu yf- irstjóm eins og í dag. Það leiðir til betri háskólamenntunar. Bjóðum flótta- fólkinu störf Hilmar skrifar: Það var án efa hetjuskapur hjá ís- lendingum að bjóða flóttafólkið frá Kosovo til landsins. Það er erfltt að gera sér grein fyrir því hvemig þessu fólki líðui’, en það hefur gengið í gegn- um hörmungar sem engin orð fá lýst. Rauði kross íslands á skildar miklar þakkir fyrir gott starf, sem og aðrar hjálparstofnanir sem að komu þeirra stóöu. Nú hafa flóttamennimir sagt að þeir vilji vera hér eins lengi og islensk stjórnvöld vilja leyfa. Og ekki stóð á svarinu hjá utanríkisráðherra sem sagði að þeir gætu verið hér eins lengi og þeir vilja. Ég hvet alla atvinnurek- endur tfl að bjóða fólkinu störf. Hver sá sem býður flóttamanni starf hér á landi má treysta á mín viðskipti. Von- andi er náungakærleikurinn til staðar. Gæði handboltans Jóhann Ingi hringdi: Ég trúi því nú varla að FH-ingar ætli að komast í úrslitaleikinn í hand- bolta í ár með því að tefla fram leik- mönnum sem vom upp á sitt besta fyr- ir 5-7 árum síðan. í fyrri (fyrsta) leik liðanna, Fram-FH, voru það Guðjón Ámason, Kristján Arason og Gunnar Beinteinsson sem tryggðu FH-ingum sigurinn. Segir þetta ef tfl vOl mikið um gæði handboltans á íslandi, en ég tel ljóst að boltinn hafi verið betri fyr- ir nokkram áram. Flestir landsliðs- mennimir leika í útlöndum og það gengur hægar en áður að skOa góðum leikmönnum upp úr yngri flokkunum í meistaraflokk. Bregðumst við áður en það verður of seint.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.