Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1999, Síða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1999, Síða 13
ÞRIÐJUDAGUR 13. APRIL 1999 13 Frelsið kemur Ami Bergmann rithöfundur ritaði grein í DV þann 25. mars, þar sem hann fjallaði um viðtal sem tekið var við mig í Stúdentablað- inu fyrir skömmu. Virðist hann hafa misskilið eitt svar mitt, sem ég hefði sjálfsagt getað orðað skýrar. í viðtalinu sagði ég að þótt ég hefði skoðanir um að frelsi ætti að vera meginregla í öllum málum, þ.m.t. í fikniefnamálum, þá teldi ég að forystu- menn Sjálfstæðis- flokksins ættu að ■ velja mál á stefnu- skrána sem líklegt er Kjallarinn Gunnlaugur Jónsson stjórnarmaður í Heimdalli að hljóti ir við að betri hljómgrunn. Þessi orð má vissulega ekki skilja á þann hátt að ég vilji að Sjálfstæð- isflokkurinn setji hvaða mál sem er á stefnuskrána, sem lik- legt er að hljóti góðan hljómgrunn. Hann á að einbeita sér að þeim stefnumálum sínum sem raunhæft er að nái fram að ganga. Fullur hugur verður að fylgja máli. Vali baráttumála á stefnu- skrána á flokkurinn að haga þannig að sem mest frelsi náist á sem skemmstum tíma. Hins vegar held ég raunar að flokksmenn séu stundum of hrædd- boða frelsi. Þeir ættu oft Frá landsfundi Sjálfstæðisflokksins. „Þessi orð má vissulega ekki skilja á þann hátt að ég vilji að Sjálfstæðisflokkurinn setji hvaða mál sem er á stefnuskrána sem líklegt er að hljóti góðan hljómgrunn. Hann á að ein- beita sér að þeim stefnumálum sínum sem raunhæft er að nái fram að ganga.“ að ganga lengra, því máttur rök- semdanna fyrir frelsinu er mikill. Frelsið er betra en atkvæð- in Árni spyr hvort við ungliðamir í Sjálfstæðisflokknum séum að segja að frelsi sé að vísu gott, en atkvæðin betri. Svarið er nei. Frelsið er betra en atkvæðin. Mér er sama þótt við fáum engin at- kvæði, svo lengi sem við njótum frelsis. Eg veit það þó að þetta verður að fara saman. Til þess að auka frelsi þurfum við atkvæði. Atkvæðin má hins vegar ekki fá á fólskum forsendum og atkvæðin mega ekki fást með lýðskmmi heldur með því að útskýra hug- sjónir okkar svo að fólk skilji þær. Það hefur verið ágætis fyrir- komulag á frelsisbaráttu Sjálf- stæðisflokksins á síðustu áratug- um. Flokkurinn hefur náð miklum árangri. Þróun mála hefur gjaman verið þannig að fyrst boða unglið- arnir hugsjónir um frelsi á ein- hverju sviði, sem hljóma jafnvel framandi og stuðandi. Stuðningur við þær eykst smám saman í þjóð- félaginu. Sjálfstæðisflokkurinn tekur málið upp á arma sína og nær breytingum fram á Alþingi. Nokkrum ámm síðar em svo tek- in viðtöl við vinstri menn sem stóðu gegn breytingunum og þeir spurðir hvers vegna i ósköpunum þeir hafi verið á móti. Þeir svara þá yfirleitt þannig að þeir telji að breytingamar hafi ekki verið tímabærar, eða þá að þeir hafi bara verið á móti framkvæmdinni. Hægriróttæknin er ekki bara meinlaus Ámi telur að þessi hægriróttækni sé meinlaus. Ég er sammála honum um það. Hún er ekki bara meinlaus heldur er hún til þess fallin að bæta mjög hag manna. Hún hefur fært okkur mikið frelsi á síðustu áratug- um. Frelsi, sem nú þykir sjálfsagt, þótti áður fyrr vera öfgar, til dæmis þegar nú- verandi forystiunenn Sjálfstæðis- flokksins voru að boða frelsi í versl- un og viðskiptum á sínum yngri ámm. Árni vill samt sennilega meina að hægriróttæknin sé mein- laus vegna þess að hægriróttækling- ar muni aldrei hafa nein áhrif. Það held ég að hafi verið afsannað. Að lokum langar mig að spyrja Áma hvort hann vilji ekki senda mér eintak af sáttmála sem hann talaði um i greininni sinni og nefndi samfélagssáttmála. Vinstri menn nota gjarnan svona orð til að réttlæta margvísleg mannrétt- indabrot. Þeir telja þá væntanlega að borgaramir haft skuldbundið sig til þess að þola alls kyns frels- isskerðingu. Ég veit ekki hvenær undirritunin fór fram. Hún hefur alveg farið fram hjá mér. Kannski hef ég ekki verið fæddur. Gunnlaugur Jónsson „Árni spyr hvort við ungliðarnir í Sjálfstæðisflokknum séum að segja að frelsi sé að vísu gott, en atkvæðin betri. Svarið er nei. Frelsið er betra en atkvæðin.u Eðlileg útgjöld DV slær því fram í leiðara sl. föstudag að heilbrigðiskerfið sé í ógöngum, þar stjórni menn með smáskammta- lækningum að eigin geð- þótta, jafnvel eftir ábend- ingum fjölmiðla. Þessum vangaveltum ritstjóra er eðlilegt að svara. Framkvæmd og frasar Fyrst skal tekið fram að grandvallarbreyting- ar hafa verið gerðar á ís- lenskri heilbrigðisþjón- ustu á kjörtímabilinu. í fyrsta lagi hefur grunn- þjónustan, heilsugæslan, verið byggð enn frekar upp. í öðra lagi hefur forstjóri verið skipaður til að stjórna sjúkrahúsunum í Reykjavík, með það að markmiði að einfalda stjómun og auka samvinnu þessara mikilvægu stofnana, sem taka til sín dijúgan hluta heilbrigðis- útgjalda. í þriðja lagi hefur verið horf- ið frá stefnu fyrrverandi heilbrigðis- ráðherra að „auka kostnaðarvitund" sjúkra með þjónustugjöldum. í fjóröa lagi hefur verið ráðist í að byggja barnaspitala og í fimmta lagi hafa heilbrigðisstofnanir á landsbyggðinni verið sameinaðar undir eina stjórn tO einfóldunar, til að tryggja þjónustu og öryggi við íbúana á viðkomandi svæðum og tO að skapa starfsmönn- um viðunandi faglegt umhverfi. Hér era aðeins talin upp fimm atriði af stefnu framsóknarmanna í heObrigð- ismálum. Einföldun Ritstjóri DV setur fram í löngu máli einfaldan boðskap: „Mara sam- keppnisleysis" hrjáir íslenskt heO- brigðiskerfi. Þessar aðstæður „hækka kostnað og draga úr framleiðni", segir rit- stjórinn, og lausnarorð hans er „lögmál sam- keppninnar". Samkeppni er vissu- lega ríkjandi í heil- brigðisþjónustunni. Starfsfólk ber sig stöðugt og sína stofnun saman við aðrar, en einkum þó við útlönd. Ritstjóri áttar sig hins vegar ekki á að lögmál samkeppni þurfa ekki að skOa sömu hag- kvæmni og í ýmsum öðrum greinum. Sam- keppni getur nefnOega hækkað kostnað í heO- brigðisþjónustunni. Til dæmis ef við réð- umst í að byggja upp aðra vökudeOd - eða annan Barna- spítala. HlutfaO heObrigðisútgjalda af þjóð- arframleiðslu í Bandaríkjunum var 8,9% árið 1980. Árið 1998 var þetta tdutfaO komið í 13,7%, eða rúmlega 4000 doOara á hvern Bandaríkja- mann. Jafnframt þessu hafa 15% Bandaríkjamanna liOar heObrigðis- tryggingar og njóta lélegrar þjónustu. í buOandi samkeppni og einkareknu heObrigðiskerfi er kostnaðurinn á mann um 300 þúsund krónur á ári. Á íslandi er er kostnaðurinn á mann 150 þúsund á ári, eins og ritstjóri bendir réttOega á í leiðara sínum. Á íslandi vOja menn ekki þessa amer- ísku martröð, þar sem óheft sam- keppni ræður fór. Okkar frammistaða er enn betri þegar haft er í huga fá- mennið og hin dýra tækni sem íslend- ingar era manna fljótastir að tdeinka sér. Trúboð ..1980 námu útgjöldin á hvern mann 93 þúsund krónum á verðlagi síðasta árs. Kerfið kostar því 56 þús- und krónum meira á mann á síðasta ári en fyrir tæpum tuttugu árum.“ Þetta era óbreytt orð ritstjóra DV og þetta lítur svo sannarlega iOa út. Ef ég vissi ekki betur hefði ég hrokkið Ola við „ábendingu fjölmiðOsins". Ritstjórinn lætur þess ekki getið að hedbrigðisútgjöld á mann era jafn mikO nú og fyrir áratug, eða 1989. HeObrigðisútgjöld á mann eru nú svipuð og þau vora árið 1991; en hafa hækkað nokkuð frá 1995, mestan part fyrir þá sök að hlut- ur launa í sam- neyslu hedbrigðis- þjónustunnar hefur hækkað umtalsvert frá 1995 og gríðar- lega frá 1989. Út- gjöldin á mann hafa með öðram orðum fram undir það síðasta ekki hækkað í 14 ár. Því er hins vegar ekki að leyna að aðlögun- arkjarasamningamir sem gerðir vora á síðasta ári, hafa reynst miklum mun kostnaðarsamari en samninga- menn sáu fyrir. Kostnaður og þjónusta íslendingar hafa almennari, greið- ari og auðveldari aðgang að hedbrigð- iskerfinu en þeir sem njóta svipaðra lífsskOyrða í nálægum löndum. Þjón- ustan er hér fyrir ada aldurs- og þjóð- félagshópa. Þetta er aðalsmerki ís- lenskrar hedbrigðisþjónustu. Kostn- aður er hér ekki hærri en annars staðar, þjónustan er fyOOega sam- bærileg við það sem best gerist meðal miOjónaþjóða og þrátt fyrir „sam- keppnisleysið" hefur griðarleg fram- þróun orðið innan hedbrigðisþjónust- unnar. Þetta sýnir ekki hvað síst að heilbrigðisstarfsmenn eru hér vak- andi fyrir nýjungum og um leið gæta þeir fydstu hagkvæmni í störfum sín- um. Sú stefnumótun í heObrigðsmálum sem drepið var á í upphafi miðast við að halda kostnaði svipuðum og hann er í dag, án þess að skerða þjónustuna - eða láta sjúklinga greiða fyrir hana meira en þeir gera nú. Þetta hefur í stórum dráttum tekist frá 1995. Flókn- ari aðgerðir, dýrari lyf, uppbygging hedsugæslunnar og betri þjónusta hefur ekki leitt td aukinna útgjalda, umfram það sem eðldegt getur talist. Þessi stefna sem ríkisstjómin hefur fylgt á kjörtímabdinu og ég er sátt við, gengur að sumu leyti gegn hug- myndunum sem sjálfstæðismenn sumir halda nú fast fram með löngum greinum í Morgunblaðinu. Stefnan gengur í ílestum atriðum gegn hug- myndafræði fyrrverandi hedbrigðis- ráðherra um „kostnaðarvitund sjúk- linga“. Lögmál viðskiptalífsins og mark- aðslausnir hafa skdað okkur mjög langt, en reynslan kennir mér hins vegar að hedbrigðisþjónustan lýtur öðrum en umfram allt flóknari lög- málum. Þótt lögmálin séu flókin þá veit ég mætavel hvað það þýðir þegar menn segja: Það þarf að ná meira fé inn í hedbrigðisþjónustuna. Það þýð- ir einfaldlega það sama og „að auka kostnaðarvitundina", það þýðir að sjúklingamir eigi að greiða meira úr eigin vasa. Þvi er ég andvíg. Kjallarinn Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðisráðherra og fyrsti þingmaður Vestur- lands „Ritstjórinn [Óli Björn Kárason] lætur þess ekki getið að heilbrigðisútgjöld á mann eru jafn mikil nú og fyrir ára- tug, eða 1989... Útgjöldin á mann hafa með öðrum orðum fram undir það síðasta ekki hækkað í 14 ár.u Með og á móti Er fjármálastjórnun ríkis- stjórnarinnar eölileg? Orri Hauksson, að- stoöarmaöur for- sætisráöherra. Kosningabrella Samfylkingar „Erlendar lánastofnanir veita ís- lenska ríkinu sífedt betri lánskjör. Matsfyrirtæki gefa íslandi sífeOt hærri einkunn- ir fyrir efna- hags- og að- haldsstefhu sína. Verðlag hefur verið afar stöðugt um ára- bil. Kaupmátt- araukningin í landinu er sú mesta í íslands- sögunni og at- vinnuleysi er svo gott sem horfið. Skattar fara lækkandi og skuldir ríkisins era greiddar niður um 35 miOjarða á tveimur árum. Þá reynir Össur Skarphéðinsson að draga upp sér- lega dökka mynd af stööu mála! Vissulega hefur verið viðskipta- haOi eins og jafnan gerist eftir að kreppu lýkur. Fjárfestingar og við- hald höfðu setið lengi á hakanum. Fólk treystii' því að stöðugleikinr. verði ekki eyöilagður og byrjar að búa í haginn sem getur verið kostnaöarsamt í ákveðinn tíma. Rlkisstjómin hefur gætt vel að. Skuldir ríkisins lækka hratt, einkavæðingu hefur veriö hraðað sem slær á peningamagn í umferð og hvatar td hlutabréfakaupa og lö'eyrissparnaðar hafa verið aukn- ir. Enda fer viðskiptahallinn nú hratt minnkandi þótt áfram verði að hafa vakandi auga. Hins vegar eru sveitarfélögin áhyggjuefni, sér- staklega það stærsta, sem hækkar skatta og safnar skuldum í miðri uppsveiflunni. Reykjavíkurborg takmarkar jafnframt svo framboð lóða að fasteignaverð á höfuðborg- arsvæðinu pressast upp og ýtir undir lántökur. Össur ætti frekar að líta þangað en að fyOa fólk óör- yggi og þyrla upp kosningaryki." Viðskiptahallinn er tímasprengja „Ríkisstjómin hefur misst tökin á viðskiptahaOanum. Gagnstætt því sem Geir Haarde segir fer hann vaxandi. HaOinn grefur undan genginu og í framhaldi getur verðbólg- an farið úr böndum. í þessu efni hefur Stjórninni Orðið *°n alþlnglsmaaur. á röð mistaka. Ég get í fljótu bragði nefnt femt: Aðferðin sem notuð var til að einkavæða bankana var útlána- hvetjandi og jók því þensluna. Skattalækkun yfir línuna þegar hagkerfið er að ofhitna er einfald- lega heimskuleg og vegur að rótum stöðugleikans. Ríkisstjórnin náöi ekki afgangi á fjárlögum nema með því að selja eignir ríkisins, sem er afar slök frammistaða í góð- æri og ekki líkleg tO að draga úr þenslu. Síðast en ekki síst hafa yf- irlýsingar Davíðs Oddssonar og HaOdórs Ásgrímssonar fyrr í vetur vakið væntingar um miklu lengra góðæri en innstæða er fyrir eins og nú er komið í ljós. Þær leiddu hins vegar tO mikillar bjartsýni al- mennings og ýttu undir lántökur og neyslu sem örvar viðskiptahall- ann. í þessu efni hefur ríkisstjórn- in faOið á prófinu. Tökin á ríkisfjármálunum má svo meta út frá þeirri staðreynd að fjármálaráðherrann veit ekki einu sinni hve mikiO haOi var á ríkis- sjóði í fyrra. Varla er það tO marks um traust tök, eða hvað?“ -KJA Óssur Skarphóöins-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.