Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1999, Qupperneq 16

Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1999, Qupperneq 16
CYAN MAGENTA 16 ÞRIÐJUDAGUR 13. APRÍL 1999 ■^GÍfem m ■ o » Á mótorfáki Þegar sólin hækkar á lofti dusta mótorhjólaáhuga- menn rykið afmótorfák- unum, sem legið hafa í híði yfir vetrarmánuðina. Þetta sama fólk fer þá úr hefðbundnum vinnufötum en fer í staðinn í svarta leðurgalla og setur á sig fráum hjálm. Þá þekkir enginn þingmanninn, kaupmann- inn... Siv Friðleifsdóttir alþingismaður: Siv er glæsileg þegar hún er komin í leður- skrúðann, en hún segir leðrið lífsnauð- synlegt þegar ekið er á mótorhjóli. DV-mynd ÞÖK Það er alltaf gott þeg- ar vorið kemur og þaö styttist í að maður geti notað mótorhjólið. Ég fer af stað þegar það er orðið hlýtt í veðri. Mér finnst ekk- ert gamar. i vondu veðri og það er kaldara en margur heldur að þeysa um á mótorhjóli,“ sagði þingmað- urinn Siv Friðleifsdóttir þegar Til- veran heimsótti hana á dögunum. orhjólin eru eins konar fjöl- skyldusport hjá Siv, því systkinahópurinn, tveir bræður og tvær systur, eru öll með vélhjóla- próf. „Þetta er sennilega dálítið sér- stakt hjá okkur að vera fjögur systk- ini með mótorhjólapróf, en ég og Ingunn Mai systir mín eigum hjólið saman,“ segir Siv. Mótorhjólið er fyrst og fremst frí- stundagaman hjá Siv, en hún viður- kennir að hún hafi nokkrum sinn- Með blómvönd frá þing- flokknum í bakpoka segir leðrið lífsnauðsynlegt þegar ekið er á mótorhjóli. „Leðrið bjargar miklu; bæði hvað varðar kulda og ekki síst slysahættu. I starfi mínu sem sjúkraþjálfari hef ég í gegnum tíðina meðhöndlað marga eftir vélhjólaslys. Fólk verður að vera þess meðvitað að það getur verið hættulegt að ferð- ast á vélhjóli og ég reyni alltcif að fara varlega," segir Siv. Þegar Siv er beðin að rifja upp skemmtilega sögu í sambandi við mótorhjólið, segir hún fyrst koma upp í hugann atvik sem átti sér stað i fyrra. „Ögmundur Jónasson var að fagna fimmtugsafmælinu sínu og ég ákvað að fara á hjólinu í veisluna. Ég setti blómvönd frá þingflokki framsóknarmanna í bakpoka og lagði af stað. Það var svolítið fyndið að þegar ég tók af mér hjálminn og heilsaði afmælis- barninu, sem þekkti mig strax, tók ég eftir því að Ólafur G. Einars- son, forseti þingsins, sem stóð við hlið Ögmundar, horfði skringilega á mig. Hann virtist ekki þekkja mig í þessari múnderingu og það var ekki fyrr en ég sagði: Blessað- ur, þetta er Siv, að hann kveikti á perunni og fór að hlæja,“ segir Siv Friðleifsdóttir. -aþ um farið á hjólinu niöur í þing og í ráðuneytin á fundi - og auðvitað vakiö athygli kollega sinna. „Það sem heillar mig helst við mótor- hjólið er frelsið s e m þaö veitir manni og krafturinn sem maður finnur í tækinu. Ég hef gaman af því að ferð- ast á því á góðviðrisdögum. Það er allt önnur og skemmtilegri tilfinn- ing að sitja á hjóli miðað við það að vera inni í bíl. Maður sér hlutina í annarri vídd.“ Virtist ekki þekkja mig Siv er glæsileg þegar hún er komin í leðurskrúðann, en hún Þorsteinn Hjaltason fólkvangsvörður: Ekkert sem truflar orsteinn Hjaltason, fólk- vangsvörður í Bláfjöllum, þeysist um á snjósleðum og skíðum á vetuma. Á vorin dustar hann rykið af Suzuki Intruder mót- orhjólinu sínu sem hann keypti í fyrravor. „Draumurinn um að kaupa hjól hafði blundað lengi í mér,“ segir Þorsteinn. Hjólið, sem er svart og grænt, er 1500 cc. Hann segir að sérstök tilfinning vakni þegar hann þeysist um á vél- knúna mótorfáknum úti á landi. „Þetta er eithvert frjálsræði. Mað- ur er einn í sínum hugarheimi og það er ekkert sem truflar. Ég losna líka við spennu ef hún er fyrir hendi. Ef ég hjóla hins vegar í bænum er ég ákaflega upptekinn við umferðina því það má aldrei af henni líta.“ Þótt Þorsteinn hafi ekki keypt mótorhjól fyrr en í fyrravor hefur hann haft próf á slíkan farkost í um 40 ár. „Ég vann til margra ára á bílaverkstæði lögreglunnar og sá mikið um viðhald og viðgerðir á mótorhjólunum í flotanum. Þá lærði ég á mótorhjól." Þorsteinn hefur viðrað hjólið tvisvar sinnum á þessu vori. Lok- aö var í fjöllunum annan í páskum og þá notaði hann tækifærið og sýndi sig og hjólið í Reykjavík og nágrenni. Ferðimar eru þó stund- um lengri. í fyrrasumar fór hann hringinn í kringum landið auk þess að fara aðra ferðir á Snæfells- nes og út á Reykjanes. Hann býst við að fara aftur hringinn í sumar. Konan hans situr stundum aftan á og eru þau þá bæði í réttu göllun- um - í leðursamfestingum og með hjálma. „Ég hef afskaplega mikla ánægju af þessu.“ Þorsteinn kemst á eftirlaun eftir fjögur ár. „Ég vona að ég verði þá svo frískur að ég geti leikið mér meira. Ég á svo mörg áhugamál,“ segir fjallkóngurinn. Fyrir utan að sitja á mótorfákinum fer hann mikið í ferðalög og stundar fjall- göngm-. -SJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.