Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1999, Page 25
ÞRIÐJUDAGUR 13. APRÍL 1999
25
DV
r
Iþróttir unglinga
Islandsmeistararnir
Efri röð frá vinstri: Ólafur
Már Þórisson, Baldvin Þor-
steinsson, Einar Logi Frið-
jónsson, Egill Ó. Thorodd-
sen, Arnar Sæþórsson,
Birkir Baldvinsson, Jó-
hannes Bjamason þjálfari.
Neðri röð frá vinstri: Bjami
Þórisson, Haukur Stein-
dórsson, Egill Daði Angan-
týsson, Ingólfur Ragnar
Axelsson, Gísli Grétars-
son, Helgi Jónasson og
Jóhann Valdimarsson.
Islandsmeistarar KA i 4. flokki 1999
Kristinn Jónataní
Varði 23 skol
Kristinn átti frábæran leik f úrslitaleiknum gegn KA en það
dugði þó ekki til sigurs í þetta skiptið.
Það var mikil dramatík i Mosfellsbænum á laugardaginn
þegar úrslitaleikur 4. flokks karla í handbolta fór fram. Leik-
urinn, milli KA og ÍBV, fór í framlengingu og á endanum
vann KA 18-17 með sigurmarki á lokasekúndu leiksins.
Leikurinn var frábær skemmtun og hafði allt til að bera;
bæði liðin spiluðu mjög vel og sýndu góð tilþrif. KA byrjaði
leikinn mun betur, var yfir, 8-5, í hálfleik og 13-10 yfir þegar
lítið var eftir. Kristinn Jónatansson, markvörður
ÍBV, sem hafði varið frábærlega í leiknum, lokaði þá
markinu, varði 5 síðustu skot KA og Eyjamenn jöfn-
uðu leikinn og tryggðu sér framlengingu.
í framlengingunni voru Eyjamenn komnir í lykil-
stöðu en KA gerði þá tvö síðustu mörkin og
tryggði sér sigurinn. Egill Ó. Thoroddsen
gerði sigurmarkið úr hraðaupphlaupi á
síðustu sekúndu leiksins. Egill byrj-
aði á bekknum en kom sterkur inn,
sannkallað leynivopn, skoraði 5
mörk og gaf 5 stoðsendingar.
Hann átti því þátt í 10 af 14 mörk-
um sem liðið skoraði þegar hann
var inni.
Að ofan Haukar sem tryggðu sér 3. sætið á dramatískan hátt Ifkt og
KA með sigurmarki gegn HK á síðustu sekúndu leiksins.
Að neðan Eyjamenn sem stóðu sig frábærlega í úrslitaleiknum og
voru hreinlega óheppnir að missa af titlinum í þetta skiptið.
Hungraðir í titil
Þeir Egill og Ingólfur Ragnar
Axelsson, fyrirliði KA, voru
ánægðir í leikslok. Þeir voru
að verða íslandsmeistarar í 3.
sinn en rétt misstu af titlinum
í úrslitaleik 4. flokks í
fyrra. Þeir segjast vera
með frábæran þjálfara
og góðan og breiðan
hóp þannig að framtíð-
in er björt. Þetta var
kveðjuleikur Ingólfs
með liðinu því hann er að
fara suður en hann var tek-
inn úr umferð mestallan tímann.
Mörk KA: Egill Thoroddsen 5, Ingólfur
elsson 4/3, Baldvin Þorsteinsson 4, Einar
Friðjónsson 3, Ólaftir Þórisson 1 og Amar
Sæþórsson 1.
Mörk ÍBV: Bjami Einarsson 5, Davið Ósk-
arsson 4, Magni Jóhannsson 3, Einar H.
Sigurðsson 2, Kári Kristjánsson 1, Sigþór
Friðriksson 1, Sindri Ólafsson 1.
Islandsmót 4. flokks
karla í handbolta
Egill Ó. Thorodd-
sen, hetja KA, og
Ingólfur Ragnar
Axelsson, fyrir-
liði KA. Egill
skoraði sigur-
markið f blálok
leiksins og sam-
tals skoruðu þeir
félagar 9 af 18
mörkum
liðsins.
Sigurmarkið á
lokasekúndunni