Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1999, Side 26
26
ÞRIÐJUDAGUR 13. APRÍL 1999
Hringiðan
Bryndís Snæbjörnsdóttir
er einn þeirra listamanna
sem opnuðu sýningu í Ný-
listasafninu á laugardag-
inn. Hér er hún á milli list-
nemanna Særúnar Stef-
ánsdóttur og Hrafnhildar
Halldórsdóttur sem hjálp-
uðu til við uppsetningu
sýningarinnar.
Fræðslusýning á
vegum Waldorfskól-
anna á ísiandi var
opnuð í Ráðhúsinu
á laugardaginn. Auk
kynningar frá ís-
iensku skólunum er
þarna hluti sýningar
frá Þýskalandi líka.
Bergur Guðbergs-
son og Reynir Harð-
arson skoðuðu sig
um í Ráðhúsinu.
Það var langur laug-
ardagur á Laugaveg-
inum á laugardaginn.
Búðir voru að vanda
opnar lengur og margt
í gangi. Ragga og
Linda voru í óvissuferð
og komu við á Laugaveg-
inum á leið sinni á næsta
viðkomustað.
Rokkarinn Rúnar Júlíusson hef-
ur hreiðrað um sig á Pét-
urspöbb að undanförnu. Rúnni
var að vanda með bassann og
rokkaði feitt á laugardaginn.
Það er orðlnn árviss viðburður að
Sportkafarafélag íslands kynni íþrótt
sína í Sundhöll Reykjavíkur. Orri
Sævarsson og Orri Morthens kynntu
sér málin undir yfirborði Sundhallar-
innar á laugardaginn.
Viktor, Kristbjörn, Davíð, Aðalsteinn og Orri Páll skipa kvintettinn Brooklin fæv. Þeir sigruðu
í Söngkeppni framhaldsskólanna í fyrra og tóku af því tilefni lagið fyrir áhorfendur á keppn-
inni nú í ár. Svona rétt á meðan dómararnir báru saman bækur sínar. DV-myndir Hari
óa9w
G'vV
A laugardaginn borð-
ust 26 söngvarar og
sönghópar um hljóð-
nemann, hin eftir-
sóttu verðlaun Söng-
keppni framhalds-
skólanna. Birna Vig-
dís Sigurðsdóttir og
Hrund Scheving Sig-
urðardóttir voru með-
al áhorfenda á keppn-
Inni.
Sjö erlendir listamenn og
einn íslenskur, allir bú-
settir í Glasgow, opn-
uðu sýningu í Ný-
listasafninu á
laugardaginn.
Ross Sinclair,
einn hinna er-
lendu sýnenda,
sýnir landa sín-
um, Francis
Mckel, eitt verk-
anna á sýning-
unni.
Þrír meðlimir Gildrunnar, Birgir Haraldsson, Sigurgeir
Sigmundsson og Karl Tómasson, ásamt Jóhanni As-
mundssyni úr Mezzoforte mynda hljómsveitina
Gildrumezz. Sveitin spilaði fyrir Mosfellinga og sveit-
unga á Álafoss föt bezt á laugardaginn.