Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.1999, Blaðsíða 51
LAUGARDAGUR 17. APRÍL 1999
#na?// «*■-
Til hamingju
með afmælið
18. apríl
85 ára
Lára Guðmundsdóttir,
Austurbrún 6, Reykjavík.
Margrét Bjarnadóttir,
Sogavegi 130, Reykjavík.
Guðný Baldvinsdóttir,
Böðvarsgötu 1, Borgarnesi.
80 ára
Ingveldur Magnúsdóttir,
Hjallabraut 33, Hafnarfirði.
75 ára
Guðmunda
Guðmundsdóttir,
Sigtúni 33, Reykjavík.
Brynhild Larsen,
Lönguhlíð 11, Akureyri.
Ragna Jóhannsdóttir,
Keilusíðu 6 B, Akureyri.
70 ára
Magnús Jónsson,
Safamýri 44, Reykjavík.
Boghild Inger
Steingrímsdóttir,
Árskógum 8, Reykjavík.
Sveinn Jóhannesson,
Gunnólfsgötu 16, Ólafsfirði.
60 ára
Svavar Sigurðsson,
Dvergholti 12, Mosfellsbæ.
Ragnheiður Garðarsdóttir,
Hafnarstræti 47, Akureyri.
Sigurður Svavar
Þórarinsson,
Baughóli 20, Húsavík.
Páll Jónsson,
Hemlu, Vestur-Landeyjum.
50 ára
Elisabet Kolbeinsdóttir,
Stórholti 18, Reykjavík.
Sigurður Ingi Ólafsson,
Birkigrund 29, Kópavogi.
Margrét Guðmundsdóttir,
Borgarbraut 14, Grindavik.
40 ára
Gunnar Þór
Hjaltason,
Bjarnastöðum,
Ölfushreppi.
Hann er að
heiman.
Magnús Ármann
Sigurðsson,
Hverfisgötu 39, Reykjavík.
Guðrún Ásbjörnsdóttir,
Sæviðarsundi 17, Reykjavík.
Ingibjörg Jónsdóttir,
Kúrlandi 29, Reykjavik.
Ása Magnúsdóttir,
Hraunbæ 164, Reykjavík.
Kolbrún Bjömsdóttir,
Sæbólsbraut 8, Kópavogi.
Ingibjörg Óskarsdóttir,
Melteigi 21, Keflavík.
Sverrir Ágústsson,
Álftarima 1, Selfossi.
Garðar Þórhallsson
Garðar Þórhallsson, laxveiðmað-
ur og fyrrv. aðalféhirðir, Karfavogi
46, Reykjavík, verður áttatíu og
fimm ára á morgun.
Starfsferill
Garðar fæddist á Djúpavogi og
ólst þar upp. Hann stundaði nám
við Alþýðuskólann á Eiðum og síð-
ar við Samvinnuskólann og lauk
þaðan prófi árið 1934.
Garðar var við verslunarstörf á
Djúpavogi til 1936 en flutti þá til
Reykjavíkur og réð sig sem sölu-
maður.hjá heildverslun G. Helga-
son og Melsted hf.
Garðar var starfsmaður Búnaðar-
banka íslands 1941-84 eða í ijörutíu
og þrjú ár, þar af aðalféhirðir í tutt-
ugu og þrjú ár.
Garðar sat á stundum í stjórn
starfsmannafélags Búnaðarbankans
og var tvívegis formaður þess.
Hann sat í stjórn Oddfellow-
stúkunnar Þormóðs goða, var for-
maður Elliðaárnefndar Stangveiði-
félags Reykjavíkur um árabil og
hefur verið sæmdur silfur- og gull-
merki félagsins. Þá sat hann í
Veiði- og fiskiræktarráði Reykja-
víkur og er heiðursfélagi Fram-
sóknarfélags Reykjavíkur.
Fjölskylda
Garðar kvæntist 9.10.
1937, Kristínu Jóhönnu, f.
1.7.1912, d. 12.11.1981, hús-
móður. Hún var dóttir
Sölva Jónssonar, bóksala í
Reykjavík, og k.h., Jónínu
Gunnlaugsdóttur húsmóð-
ur.
Böm Garðars og Krist-
ínar eru Erla Kristbjörg, f.
26.7. 1939, starfsmaður ís-
lenskra matvæla hf., gift
Ágústi Karlssyni tæknifræðingi og
eiga þau þrjú börn; Silvía Jónína, f.
27.7. 1939, bankamaður, gift Gunn-
ari Dyrset tannlækni og eiga þau
hvort um sig þrjú böm frá fyrri
hjónaböndum; Garðar Þórhallur, f.
5.11. 1944, hrl., kvæntur Sölvínu
Konráðs sálfræðingi og eiga þau tvö
böm; Sigrún Hulda, f. 28.2. 1948,
hjúkrunarfræðingur í Kanada, og á
hún tvö börn með fyrrverandi
maka sínum, Guðmundi Magnasyni
endurskoðanda; Anna Sigríður, f.
5.9. 1954, heildsali í Reykjavík, gift
Skúla Björnssyni heildsala og eiga
þau fjögur börn. Langafaböm
Garðars eru nú fjögur talsins.
Foreldrar Garðars eignuðust átta
börn sem lifðu. Þau eru auk Garð-
ars: Anna Sigríður, f.
14.12. 1910, fyrrv. stjórn-
arráðsfulltrúi í Reykja-
vík; Leifur Sveinbjörn f.
14.4. 1912, d. 25.7. 1975,
deildarstjóri hjá SÍS;
Baldur, f. 8.5. 1915, d.
10.11. 1987, húsasmíða-
meistari í Reykjavík;
Sigtryggur, f. 2.3. 1917,
bókari í Reykjavík; Þor-
björg, f. 2.6. 1919, d. 15.5.
1992, húsmóðir á Húsa-
vik, Patreksfirði og síðast
í Reykjavík; Hulda, f. 11.7. 1921,
húsmóðir á Húsavík; Nanna, f. 16.6.
1924, fyrrv. sölumaður hjá SÍS.
Garðar er sonur Þórhalls Sig-
tryggssonar, f. 4.1.1885, d. 11.9.1959,
kaupfélagsstjóra á Djúpavogi og síð-
ar á Húsavík, og k.h., Kristbjargar
Sveinsdóttur, f. 7.4. 1886, d. 23.11.
1965, húsmóður.
Ætt
Þórhallur var sonur Sigtryggs,
verslunarmanns á Húsavík, Sig-
tryggssonar, verslunarmanns á
Húsavík, Sigurðssonar, b. á Neðsta-
landi í Öxnadal, Jónssonar. Móðir
Sigtryggs Sigurðssonar var Ingi-
björg Beneditksdóttir. Móðir Sig-
tryggs Sigtryggssonar var Sigríður
Sigurðardóttir, b. á Hömrum í Eyja-
firði, Jónssonar, og Guðrúnar Jóns-
dóttur.
Móðir Þórhalls var Anna Jak-
obína Vigfúsdóttir, b. og smiðs á
Hóli og viðar á Tjörnesi, Kristjáns-
sonar, b. á Torfunesi í Kinn, Vigfús-
sonar. Móðir Vigfúsar smiðs var
Helga Rafnsdóttir. Móðir Önnu var
Vilhelmína Jakobína Nielsen, síð-
ast á Stóruvöllum, dóttir Niels Niel-
sens, faktors á Siglufirði, og Guð-
rúnar Jónsdóttur.
Kristbjörg var dóttir Sveins, b. í
Fagradal í Vopnafirði, Jónssonar, b.
í Gerði í Suðursveit, Steingrímsson-
ar, b. í Gerði, Jónssonar. Móðir
Jóns í Gerði var Gróa Eyjólfsdóttir.
Móðir Sveins var Oddný ljósmóðir
Sveinsdóttir, b. á Hofi í Öræfum,
Sveinssonar, og Sigríðar Bjama-
dóttur.
Móðir Kristbjargar var Ingileif
Jónsdóttir, b., siðast á Ba'kka á
Strönd, Jónssonar, b. á Kúðá og víð-
ar í Þistilfirði, Andréssonar. Móðir
Jóns Jónssonar var Guðbjörg Sig-
urðardóttir. Móðir Ingileifar var
Kristbjörg Jónsdóttir, b. í Brekkna-
koti í Þistilfirði, Gíslasonar, og
Rósu Einarsdóttur.
Garðar verður að heiman á af- V
mælisdaginn.
Garðar Þórhailsson.
Hjalti Ásgeirsson öryggisfulltrúi,
Logafold 24, Reykjavik, verður sex-
tugur á morgun.
Starfsferill
Hjalti fæddist í Neskaupstað og
ólst þar upp. Hann gekk í barna- og
gagnfræðaskóla í Neskaupstað,
stundaði nám við Iðnskólann í Nes-
kaupstað, lauk prófum þaðan 1960,
tók meira mótorvélstjórapróf 1962,
vélstjórapróf við Vélskólann í
Reykjavik 1964 og próf frá raf-
magnsdeild skólans 1965.
Hjalti var annar vélstjóri á Bergi
r
Hjalti Asgeirsson
NK 46 og Hafrúnu NK 80 1960 og á
Pálínu SK 2 1960-61 en síðan á ýms-
um fiskiskipum og farskipum. Hann
var yfirvélstjóri á Kyndli 1968-74 og
fyrsti yfirvélstjóri hjá Skipaútgerð
ríkisins á ms. Heklu, ms. Öskju, ms.
Esju og ms. Herjólfi 1974-88.
Hjalti kom þá í land og var lengst
af tæknifulltrúi hjá Vinnueftirliti
ríkisins en er nú öryggisfulltrúi.
Fjölskylda
Hjalti kvæntist 22.8. 1991 Sesselju
Eiríksdóttnr, f. 22.8. 1941, deildar-
stjóra. Hún er dóttir Eiríks Helga-
sonar, f. 14.12.1907, d. 24.10.
1983, rafvirkjameistara í
Stykkishólmi, og k.h., Unn-
ar Jónsdóttur, f. 10.8. 1912,
d. 19.6. 1984, húsmóður.
Foreldrar Hjalta: Ásgeir
Luvís Bergsson, f. 31.10.
1909, d. 8.10. 1966, útgerðar-
maður í Neskaupstað, og
k.h., Una Raghheiður
Sverrisdóttir, f. 16.1. 1909,
d. 14.6. 1993, húsmóðir.
Ætt Hjalti Ásgeirsson.
Ásgeir var sonur Bergs Eiríks-
sonar, húsasmiðs í Nes-
kaupstað, og k.h., Önnu
Sigríðar Guðjónsdóttur.
Una Ragnheiður var#-
dóttir Sverris Sverrisson-
ar, formanns og útgerðar-
manns í Neskaupstað, og
k.h., Mekkinar Ámadótt-
ur.
Hjalti og Sesselja eru á
Hotel Royal Play De
Palma á Mallorca á af-
mælisdaginn.
Kristnihátíð sett í Akureyrarkirkju
DV, Akureyri:______________________
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti
íslands, mun setja Kristnihátíð við
hátíðarguðþjónustu í Akureyrar-
kirkju sunnudaginn 25. apríl að við-
staddri ríkisstjórn íslands, forsetum
Alþingis, vígslubiskupum, prófóst-
um, þingmönnum kjördæmisins,
bæjarstjóm Akureyrar auk gesta.
Jafnhliða setningu Kristnihátíðar
hefst kirkjulistavika á Akureyri.
Ríkisstjórnin skipaði kristnihá-
tíðarnefnd og hefur nefndin haft yf-
irumsjón með undirbúningi og
framkvæmd 1000 ára kristniafmælis
íslendinga árið 2000. í nefndinni eru
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti ís-
lands, Davíð Oddsson forsætisráð-
herra, Ólafur G. Einarsson, forseti
Alþingis, Pétur Hafstein, forseti
Hæstaréttar og Karl Sigurbjörns-
son, biskup íslands.
Hápunktur hátíðahaldanna
vegna þúsund ára kristni verður á
Þingvöllum 1. og 2. júlí árið 2000. í
Ólafur Ragnar Grímsson.
öllum 16 prófastdæmum landsins
verða flölmargir viðburðir til að
fagna þessum tímamótum. Kristni-
hátíð lýkur á páskum árið 2001 og
verður dagskrá hátíðarinnar í heild
sinni kynnt í næsta mánuði. -gk
Til sölu
jörðin Burstarbrekka,
Ólafsfirði.
^ Góður húsakostur, aðgangur að
ÓlafsjQarðarvatni, vísir að æðarvarpi.
Upplýsingar í síma 466 2550.
/ /
UPPBOÐ A OSKILAMFIM
Að beiðni Lögreglustjórans í Reykjavík fer fram
uppboð á ýmsum óskilamunum, m.a. reiðhjólum,
kerrum, úrum, fatnaði og fleiri munum.
Uppboðið fer fram í uppboðssal Vöku hf. að Eldshöfða
4, Reykjavík, laugardaginn 24. apríl 1999 og hefst
það kl. 13.30.
Eigendum glataðra muna er bent á að hafa samband
við skrifstofu óskilamuna hjá Lögreglustjóranum í
Reykjavík, Borgartúni 33, kl. 10-12 og 14—16 virka
daga fram að uppboði.
Greiðsla við hamarshögg.
Sýslumaðurinn í Reykjavík