Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1999, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1999, Page 2
24 MÁNUDAGUR 19. APRÍL 1999 íþróttir DV Hvaö finnst þér? Hvaða lið verður íslands- meistari í hand- knattleik kvenna? Ragnheiður Karlsdóttir „Ég spái því að það fari 3-1 fyrir Stjörnuna. Reynslan veg- ur þar þungt, þær hafa náð að leysa vandann þegar Ragnheið- ur Stephensen er tekin úr um- ferð.“ Kolbeinn Finnsson: „Stjarnan vinnur þetta, 3-1. Þær eru með mikið heilsteypt- ara lið, hafa reynsluna og hefð- ina á bak við sig og eru ein- faldlega með sterkara lið.“ Sveinbjörg Halldórsdóttir „Þetta verður mjög erfitt en ég vona það samt að FH hafi það. Stjarnan er búin að vera svo oft íslandsmeistari og ég vona að FH vinni.“ Ásta Eyjólfsdóttir „FH vinnur að sjálfsögðu. Þær hafa sýnt það að þær munu standa sig, þær hafa vilj- ann og eru bara betri.“ Ómar fór til Lokeren Ómar Pálsson, sonur Páls Guðlaugssonar, þjálfara Leifturs í knatt- spymu, fór í dag til belgíska A-deildar liðsins Lokeren en þar verður hann til reynslu næstu 2 mánuðina. Ómar er 18 ára gamall. Hann leikur með meistaraflokki Götu í Færeyjum og hefur átt fast sæti í drengja- og unglingalandsliði Færeyja. Njósnarar irá Lokeren komu auga á Ómar í leik meö unglingalandsliðinu og eru spenntir að gera við hann samning, standi hann sig vel hjá félaginu. -GH Jakob er á heimleið Jakob Már Jónharðsson knattspymumaður er hættur hjá Helsingborg í Svíþjóð og er á leið heim eftir eins árs dvöl hjá félaginu. Jakob missti af nær öllu síðasta tímabili vegna meiðsla og sér ekki fyrir endann á þeim. „Það hefur verið sagt að ég sé að fara að spila með Keflavík á ný en það er tæplega raunhæft. Ég á langt í land með að fá mig góðan og leik ekki knattspymu á næstunni," sagði Jakob Már sem var fyrirliði Keflvíkinga þegar þeir urðu bikarmeistarar 1997. -EH/VS Ólafur Stefánsson, lengst til hægri í gulu og rauðu, fagnar Evrópu- meistaratitlinum ásamt féiögum sínum í búningsklefanum eftir leikinn í gær. í m ; , 1*21 JjL ?a 'NSj|Av P If Æá J# ' MBgfl' Æm i *t ^ DV-mynd Johannes Wolf Ólafur Stefánsson handknattleiksmaður Evrópumeistari með Magdeburg: - Magdeburg burstaði Valladolid í seinni leiknum, 33-22 Ólafur Stefánsson fagnaði Evrópumeistaratitli i gær þegar lið hans, Magdeburg, vann stórsigur á Valladolid, 33-22, í seinni úrslitaleik liöanna í EHF-bikamum sem fram fór í Magdeburg í gær. Spánverjarnir höfðu unnið fyrri leikinn, 25-21. Ólafur skoraði 5 mörk í leiknum, öll í fyrri háif- leik. Magdeburg vann þama sinn fyrsta stóra titil í 18 ár en félagið varð Evrópumeistari 1978 og 1981, þá fyrir hönd Austur-Þýskalands. „Þetta er ólýsanleg tilfmning, alveg geðveikt! Nú er maður kominn í hóp með góðum hand- boltamönnum sem hafa unnið stóra titla,“ sagði Ólafur í mikilli sigurvímu þegar DV ræddi við hann eftir leikinn í gær. - Var ekki gífurleg stemning í höllinni í Magdeburg? „Jú, það var allt vitlaust. Það voru 9.000 manns í höllinni, troðfullt og uppselt, og það heyrðist varla mannsins mál. Fögnuðurinn í lokin var ótrúlegur og það er frábært að taka þátt í svona sigri. Mér gekk vel, skoraði þessi mörk í fyrri hálfleiknum en var mikið tekinn úr umferð eftir það, auk þess sem ég fékk tvær brottvísanir. En þetta var ekki eins ömggt og lokatölurnar gefa til kynna. Við vomm aðeins með flmm marka for- ystu þegar 7 mínútur voru eftir og þá gat brugð- ið til beggja vona. En það gekk allt upp hjá okk- ur á lokamínútunum og við stungum þá hrein- lega af.“ - Var fyrri leikurinn á Spáni öðruvísi? „Já, hann var slakur af okkar hálfu og við náð- um okkur ekki á strik. Við vorum í raun heppn- ir að sleppa heim með fjögurra marka tap því við voram 7 mörkum undir þegar 10 mínútur vom eftir. Það gat farið miklu verr. Spánverjamir era sterkir, fljótir og erfiðir við að eiga og því er mjög sætt að hafa náð að sigra þá og hampa Evrópu- bikamum." - Þú hefur skorað grimmt seinni hluta vetr- ar eftir rólegheit framan af, oft 9 til 12 mörk í leik. Hvað breyttist hjá þér? „Ég átti í vandræðum framan af í vetur. Það voru meiðsli að angra mig og svo var þjálfarinn, Lothar Döring, mjög erfiður og stundum tómt rugl sem hann var að gera. En eftir að hann var látinn hætta og aðstoðarmaður hans, Peter Rost, tók við, breyttust hlutimir mikið. Rost sá hvað ég gat og lét mig spila samkvæmt því. Því miður verður hann ekki hjá félaginu nema til vorsins. Þá tekur Alfreð Gíslason við og tekur með sér sinn eigin aðstoðarþjálfara sem er rúmenskur, pabbi Roberts Licu, sem margir þekkja. Það er ekkert að því að fá Alfreð en slæmt að missa Rost sem er með hjartað hjá félaginu og varð ólympíu- meistari með Austur-Þjóðverjum árið 1980.“ - Ykkur hefur gengið misjafnlega í deild- inni í vetur. Eru menn óánægðir með gengið þar? „Við erum í fimmta sætinu núna og það er ágætt ef okkur tekst að halda því í lokaumferðun- um. En það era gerðar geysilega miklar kröfur héma, Magdeburg er mikil handboltaborg og það verður ailt vitlaust ef illa gengur. Fótboltaliðið héma er í 3. deild og handboltinn er þess vegna allsráðandi. Pressan er mikil og ef við hefðum klikkað í þessum úrslitaleik hefði maður alveg eins getað pakkað niður og farið heim. Það eru sérstaklega miklar væntingar í garð okkar út- lendinganna í liðinu. En það er svona pressa sem á að gera mann að betri leikmanni og ég vona að það nýtist íslenska landsliðinu. Ekki veitir af á næstunni, við þurfum þar að rífa okkur aftur upp úr skítnum." - Ertu ánægður í Magdeburg? „Okkur líður ágætlega héma. Magdeburg er orðin mjög vestræn borg, það hefur margt breyst á þeim tíu áram sem liðin era frá sameiningu þýsku ríkjanna, þó það séu ennþá einhverjar leif- ar frá gamla, austur-þýska tímanum. En fyrst og fremst er fólkið héma gott og þægilegt í alla staði. Ég samdi til tveggja ára í fyrra, vildi ekki binda mig í þrjú ár eins og Magdeburg bauð, þannig að ég spila alla vega í eitt ár til viðbótar hér,“ sagði Ólafur Stefánsson, Evrópumeistari í handknattleik, og fór síðan til að fagna enn frek- ar með félögum sínum í liði Magdeburg. -VS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.