Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1999, Blaðsíða 10
M
32
MANUDAGUR 19. APRÍL 1999
íþróttir
r>v
i r
Bland í poka
Keppnistímabilið í torfæru fer senn að hefjast:
Háspenna í sumar
Gunnar Pálmi á fleygiferð í á
keppni á Hellu.
DV-mynd JAK
Gunnari Pálma Péturssyni
hefur gengiö vel i torfærunni.
Síðustu þrjú árin varð hann ís-
landsmeistari í flokki götujeppa
og heimsbikarmeistari 1996 og
1997.
Gunnar Pálmi keppir á jeppa
sem byggður er á Bronco-grind
með yfirbyggingu sem hefur ver-
ið óbreytt í tíu ár. í bílnum er
350 cid Chevrolet keppnisvél sem
hann keypti tilbúna frá Summit
í Bandaríkjunum.
Keppnisalmanak í Torfæru
1999 hefur litið dagsins ljós en
keppnir í sumar verða sjö tals-
ins. Tvær gefa stig til íslands-
meistara og tvær eru í heimsbik-
arnum.
Fyrsta keppni sumarsins á ís-
landsmótinu fer fram á Akureyri
og um hana sér Bílaklúbbur Ak-
ureyrar. Aðrar keppnir i sumar
verða þessar: 12. júní í Jósefsdal
í umsjón Jeppaklúbbs Reykja-
víkur. íslandsmót. 3. júli á EgUs-
stöðum. Umsjón hefur Start. ís-
landsmót. 17. júlí á Akranesi.
Umsjónaraðili er Akstursíþrótta-
klúbbur Vesturlands. íslands-
mót. 11. september á Hellu.
Flugbjörgunarsveitin á Hellu er
umsjónaraðili. íslandsmót.
Keppnir í heimsbikar verða
tvær. 7. ágúst á Akureyri. Um-
sjón hefur Bílaklúbbur Akur-
eyrar. 21. ágúst í Jósefsdal.
Jeppaklúbbur Reykjavíkur er
umsjónaraðili.
-JAK
Senn líður að því að torfærukeppnistímabilið
hefjist þetta árið því nú er einungis einn mán-
uður í fyrstu keppni.
Sú keppni verður haldin á Akureyri 22. maí
næstkomandi. Það er eitt elsta og virtasta akst-
ursíþróttafélag landsins, Bílaklúbbur Akureyr-
ar, sem heldur hana.
Eins og áður verða haldnar 7 torfæruakstur-
skeppnir hér á landi í sumar, fimm þeirra gefa
stig til íslandsmeistaratitils og tvær þeirra eru
Heimsbikarkeppnir.
Torfærukappar landsins eru í óðaönn að
vakna af vetrardvalanum og sumir farnir að
dusta rykið af tækjum sínum. Þá hefur frést af
öðrum sem hafa ekki haft mjög hægt um sig í
vetur og verið að smíða sér nýja bíla.
Útlit er fyrir spennnandi og skemmtilegt tor-
færusumar. Við DV-menn hyggjumst koma
sterkir inn í torfæruna í sumar með aukinni og
enn betri umfjöllun en áður.
Þar sem senn líður að fyrstu keppninni voru
tveir kappar teknir tali en það eru að sjálfsögðu
íslandsmeistararnir frá því í fyrra, þeir Gísli G.
Jónsson í opnum flokki og Gunnar Pálmi Pét-
ursson, íslandsmeistari í götubílaflokki.
-JAK
i
I
!
Gfsli G. Jónsson tryggði sér íslandsmeistaratitilinn í fyrra með glæsilegri frammistöðu. Á innfelldu
myndinni er Gísli ásamt eiginkonu sinni, Vigdísi Helgadóttur, en hún er jafnan í aðstoðarmannaliði hans.
DV-myndir JAK
»
Kveiki
*
mer
x;£. n * <• j r» -i t>"' i > ' i> u •¦-' r>* t /S GísliG.JÓnssoníkröppumdansií
- með þvi að horfa a ema torfæruspolu fra þvi 1 fyrra, segir Gisli G. ;;skeppni á ¦"Sí.SjS
Kókómjólkin hans Gísla G.
Jónssonar, íslandsmeistara í
opnum flokki torfærunnar,
fór nánast beint í geymslu
eftir síðustu keppnina í
fyrra.
„Ég lagaði yfirbygginguna
aðeins eftir Hellu-keppnina
og var með bílinn til sýnis
við opnun verslunar Netto í
Mjódd. Eftir það tók frændi
minn, Snæbjörn Magnússon,
við bílnum en hann hefur
geymt bílinn fyrir mig í slát-
urhúsinu á Iðufelli sem hann
breytti í Hótel."
Óvíst er þó að hótelgest-
irnir fái mikið að skoða
Kókómjólkina. „Ég stefni að
sjálfsógðu að því að vera með
í sumar en það veltur nokkuð
á því að mér takist að fá
kostendur til að standa undir
útgerö bílsins í sumar. Við
erum nú reyndar lítið farnir
að ræða sumarið en ég von-
ast til að fá sömu strákana í
þjónustuliðið mitt og voru í
fyrra. Þeir stóðu sig frábær-
lega vel, enda einvalalið. Það
væri ekki hægt að gera út
svona bíl ef ekki nyti við
óeigingjarnrar sjálfboða-
vinna þeirra," sagði Gísli.
Kókómjólkin er i grunninn
Jeepster sem Gísli endur-
byggði reyndar frá grunni
'97. í bílnum er 350 cid Chevr-
olet-vél og er áætlað að hún
skili 750 til 800 hestöflum þeg-
tfmabili.
ar Gísli dælir Nitrogasinu
inn í hana með bensíninu.
Við vélina er tengd tveggja
gíra Powerglide skipting en
undir bílnum eru Dana 60
hásingar.
Gísli er einn af sigursæl-
ustu torfæruakstursmönnum
landsins. Hann varð íslands-
meistari 1993, 1997 og 1998 en
DV-mynd JAK
lenti í öðru sæti íslands-
meistaramótsins 1994,1995 og
1996. Þá hampaði Gísli
Heimsbikarnum 1993, 1994 og
1995. Öðru sætinu í Heims-
bikarkeppninni náði hann
1996, 1997 og 1998. Það skyldi
því enginn velkjast i vafa um
á hvaða sæti Gísli G. Jónsson
stefnir í sumar. -JAK
„Kiloin eru eini ovinurinn"
- segir Gunnar Pálmi Pétursson, íslandsmeistari i götubílaflokki
Gunnar Pálmi Pétursson missir hér bílinn aftur fyrir sig í brattri
brekku á Egilsstöðum. Gunnar Pálmi er á innfelldu myndlnni.
DV-mynd JAK
Gunnar Pálmi Pétursson tryggði sér íslandsmeistaratitilinn í
flokki götujeppa í fyrra með fantagóðum akstri i fyrstu þremur
keppnunum.
„Ég lít á þunga bílsins sem helstu hindrun mína að meistaratitl-
unum næsta ár. Ég verð að sjálfsögðu með i sumar og stefni að því
að gera betur en í fyrra. Ég ætla mér að vinna báða titlana og vona
að sem flesti öflugir andstæðingar verði til að keppa við mig. Það
var grátlegt að missa af Heimsbikarmeistaratitlinum í fyrra, allt út
af smábilun. Tengihólkur milli skiptingar og miUikassa gaf sig en
hólkurinn hefur ekki látið á sjá í 9 ár. Þessi bilun kostaði mig tit-
ilinn," sagði Gunnar Pálmi við DV.
Gunnar Pálmi segir vélina hafa reynst vel, reyndar er 2. vélin
í bílnum núna því sú fyrri sprakk á Egilsstöðum 1989. Þá fékk
hann vélina bætta um hæl, nýja senda frá Summit í stað þeirrar
sem gaf upp öndina. Skiptingin í bílnum er 350 Turbo Hydramat-
ic, þriggja gíra. Að framan er Dana 44 hásing með 4.56:1 hlutfbllum
en að aftan er 9" Ford-hásing. í henni er 4.88:1 drifhlutfall. Á móti
þessum mismun á drifhlutföllum kemur að Gunnar Pálmi notar
aðeins minni dekk að framan. Þetta er engu að síður blanda sem
myndi vissulega ekki reynast vel á malbiki. Framhiólin snúast
hraðar en þau aftari og segir Gunnar Pálmi að þetta geri það að
verkum að auðveldara sé að stýra bilnum í lausum brekkum. Hins
vegar segir hann þessa uppsetningu vera til trafala þar sem hart
er undir og í vatai.
Jeppinn hefur staðið úti í vetur en Gunnar Pálmi ætlar að fara
að líta á hann og lagfæra það sem fór úrskeiðis i fyrra. Ætlar hann
að athuga fjöðrunarsvið jeppans, gera samslagið meira og lækka
bílinn. I fyrra var hann lækkaður um 10 cm og nú ætlar Gunnar
Pálmi að lækka hann enn meira, auk þess sem hann ætlar að
reyna að létta jeppann, henda óþarfa járnadrasli. -JAK
I
I