Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1999, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1999, Blaðsíða 12
MÁNUDAGUR 19. APRÍL 1999 íþróttir iftr ÞY5KALAHD Siguróur Bjarnason skoraði 4 mörk fyrir Bad Schwartau sem vann Nett- elstedt, 25-24, í A-deildinni á laugar- dag. Eftir sex töp i röð hefur Bad Schwartau þar með nánast bjargað sér frá falli en liðið hefur 16 stig í næstneðsta sætinu. Schutterwald er neöst með 10 stig en fær tækifæri í aukaleikjum gegn fjórða liði B-deild- ar, tapliðinu í einvígi Hameln og Willstatt um sæti í A-deildinni. Niederwtirzbach fellur eitt liða úr A- deildinni vegna gjaldþrots. Valdimar Grimsson skoraöi 7 mörk, þrjú úr vítum, fyrir Wuppertal sem gerði jafntefli, 25-25, við Grosswail- stadt á útivelli í gær. Dagur Sigurðs- son skoraöi 3 mörk fyrir Wuppertal og fékk að líta rauða spjaldið og Geir Sveinsson gerði 1. Wuppertal er á lygnum sjó í 12. sæti deildarinnar. Slagsmál brutust út í lok leiks Gum- mersbach og Frankfurt sem skildu jöfn, 21-21, í gær. Á lokasekúndunum barði Marc Wiltberger, Frakkinn hjá Frankfurt, Kóreubúann Kyung- Shin Yoon hjá Gummersbach í and- litið og úr urðu mikil ólæti meöal áhorfenda sem ruddust inn á völlinn. Yoon geröi jöfnunarmark Gummers- bach í lokin og skoraði 7 mörk fyrir lið sitt. Nordhorn tryggði sér sæti i A-deild með sigri á Bielefeld, 32-21, á laugar- dag en Guómundur Hrafnkelsson verður í marki Nordhorn næsta vet- ur. Nordhom fékk 66 stig af 68 mögu- legum í norðurriðli B-deildar en Hameln, undir stjórn Alfreós Gisla- sonar, fékk 64. -VS Keflavík (52) 108 Njarðvík (43) 90 2-0, 10-5, 15-8, 22-8, 22-16, 28-21, 28-28, 36-32, 39-37, 48-37, 50-43, (52—43), 61-46, 66-46, 70-51, 75-55, 83-57, 85-62, 90-68, 95-68, 97-72, 101-74, 101-83, 108-90. *\ Stig Keflavíkur: Damon Johnson 27, Falur Harðarson 17, Guðjón Skúlason 16, Hjörtur Harðarson 15, Fannar Ólafsson 10, Gunnar Einars- son 9, Halldór Karlsson 4, Kristján Guðlaugsson 2. Stig Njarðvlkur: Brenton Birming- ham 31, Teitur Örlygsson 22, Her- mann Hauksson 11, Friðrik Stefánsson 9, Páll Kristinsson 7, Sævar Garðars- son 3, örvar Kristjánsson 3, Friðrik Ragnarsson 2, Ragnar Ragnarsson 2. Fráköst: Keflavík 49, Njarðvík 40. 3ja stiga körfur: Keflavík 34/15, Njarðvík 30/8. Vftanýting: Keflavík 34/26, Njarð- vik 27/20. Dómarar: Jón Bender og Kristinn Albertsson, ágætir, dæmdu kannski fullmikið. Áhorfendur: Fullt, um 1.000. Maður leiksins: Hjörtur Harð- arson, Keflavík. Sigurður Ingimundarson, þjálfari Keflvíkinga, segir sínum mönnum til. Damon Johnson, Fannar Ólafsson, Guðjón Skúlason og Kristján Guðlaugsson hlusta einbeittir á fyrirmælin. DV-mynd ÞÖK Einvígið um íslandsmeistaratitilinn í körfubolta: - Keflvíkingar stungu af, unnu 108-90 og eru 2-1 yfir Keflvíkingar náðu undirtökunum í einvíginu við Njarðvík i gærkvöldi með stórsigri á heimavelli, 108-90. Þeir eru þar með 2-1 yfir og geta tryggt sér meistaratitilinn með sigri í fjórða leiknum sem fram fer í Njarðvík annað kvöld. Að öðrum -kosti verður oddaleikur um titilinn í Keflavík á fímmtudagskvöldið. Keflvikingar komust aftur á flug eftir tvö töp á heimavelli í röð í úr- slitakeppninni. Þeir sýndu aftur sitt rétta andlit og Njarðvíkingar réðu einfaldlega ekkert við þá. Baráttan var í fyrirrúmi hjá Keflvíkingum -sem tóku 19 sóknarfráköst og hittu \ir 15 þriggja stiga skotum. „Það var ekkert hik, fum eða fát á okkur í þessum leik og vömin var mjög góð. Við vorum ferskir og gát- um spilað á fullu allan tímann. Við komum tilbúnir í leikinn í Njarðvík á þriðjudag, það skiptir ekki máli hvar við spilum, heldm- hvemig við spilum," sagði Sigurður Ingimund- arson, þjálfari Keflvíkinga, við DV eftir leikinn. „Við hittum mjög vel úr 3ja stiga skotunum og það skipti máli. Heimavöllur er ekki góður ef maður tapar þar, við höfum haft sterkan heimavöll og komum vitlausir í þennan leik til að vinna upp tapið frá fyrsta leiknum. Njarðvíkingar era komnir út í hom og verða ef- laust dýrvitlausir næst en við ætl- um að klára þá,“ sagði Hjörtur Harðarson Keflvíkingur. „Tapið á heimavelli í öðram leiknum sat ekki í okkur í kvöld. Við fengum sömu fríu skotin og þeir og hittum líka vel en það sem réð úrslitum var að þeir voru miklu grimmari í fráköstum og að ná i alla lausa bolta. Við eram með bakið upp við vegginn en ætlum að koma sterkir í næsta leik og vinna hann,“ sagði Friðrik Ingi Rúnarsson, þjálf- ari Njarðvíkinga. Falur Harðarson, lykilmaður Keflvíkinga, fór meiddur út af en sagði að það væri ekki alvarlegt. „Ég fékk slæmt högg á lærið og fékk strax kælingu og hvíld fyrir þennan eina leik sem eftir er. í síðustu tvo leiki komum við til að spila eftir að hafa ætlað að fara þægilega í gegn- um fyrsta leikinn," sagði Falur. Hjörtur átti mjög góðan leik með Keflavík en hann tók 9 fráköst og átti 8 stoðstendingar. Guðjón og Birgir Örn sýndu hve bekkur Kefla- víkur er sterkur og spiluðu mjög vel. Hjá Njarðvík sýndi Teitur aftur sitt rétt andlit. Miklu munaði að hvorki Friðrik Ragnarsson né Páll Kristinsson náðu sér á strik. -ÓÓJ/VS Norska knattspyrnan: Steinar úr axlarlið - eftir að hafa skorað Steinar Adolfsson skoraði fyrsta mark leiks- ins þegar lið hans, Kongsvinger, tap- aði, 2-3, fyrir Molde í norsku A-deildinni í gær. Markið kom á 13. mínútu, Steinar kastaði sér fram og skallaði glæsilega í netið eftir homspyrnu. Hann lenti hinsvegar mjög illa og fór úr axlarlið. Steinar var fluttur á sjúkrahús þar sem öxlinni var kippt í liðinn en hann verður frá í 7-10 daga og þar með er óvíst að hann spili með landsliðinu gegn Möltu í næstu viku. Stefán Þ. Þórðarson lék einnig með Kongsvinger í leiknum. Stórleikur Rúnars og sigur á Rosenborg Rúnar Kristinsson átti stór- leik á miðjunni hjá Lilleström sem vann óvænt- an en sanngjam- an sigur á meist- urum Rosenborg, 3-2. Hann skyggði alger- lega á hina sterku miðju- menn meistaranna og Nett- avisen gaf honum 8 i einkunn og valdi hann mann leiksins. Heiðar Helguson lagði upp eitt marka Lilleström en varð fyrir því óhappi að skora sjálfsmark. Ámi Gautur Arason lék ekki í marki Rosenborg en keppinaut- ur hans, Jöm Jamtfall, þótti slakur. Tryggvi skoraði og lagði upp mark Tryggvi Guðmundsson skor- aði eitt marka Tromsö og lagði annað upp þegar liðið burstaði Brann í gær, 5-0. Brann missti mann af velli eft- ir 20 mínútur, rétt eftir að Tryggvi gerði ann- að mark Tromsö. Bjarki Gunn- laugsson lék ekki með Brann. Auðun Helgason lék með Vik- ing sem vann Moss úti, 0-2. Rík- harður Daðason var hins vegar ekki með Viking. Valur og Stefán Gíslasynir léku báðir með Strömsgodset sem tapaði, 3-1, fyrir Bodö/ Glimt. Helgi Sigurðsson lék með Sta- bæk sem tapaði, 3-2, fyrir Odd Grenland, eftir að hafa komist í 0-2. Pétur H. Marteinsson var ekki með Stabæk. -VS Sænska knattspyman: Brynjar eins og klettur - annar sigur Örgryte Brynjar Björn Gunnarsson átti stórleik í vöm Örgryte í gær þeg- ar liðið vann góð- an útisigur á Norrköping, 0-2, og er komið með 6 stig eftir tvo leiki. „Brynjar var eins og klettur i vörninni og hann hefur staðið sig eins og hetja í tveimur fyrstu leikjunum," sagði Eric Hamrén, þjálfari Örgryte, við DV. Þórður Þórðarson lék í marki Norrköping og bjargaði tvisvar glæsilega í dauðafærum. Hann gat ekkert við mörkunum gert. Kalmar vann Trelleborg, 3-2, en aðeins tveir leikir vora í A- deildinni um helgina. -EH/VS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.