Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.1999, Blaðsíða 56
** tkvikmyndir
★
LAUGARDAGUR 24. APRÍL 1999 LlV
*l A UClARÁB- =5S^7S ALVfiRU BÍÓ! mpolbý
★ -.= =====: STflFRÆNT
★ ==r = = = HLJÓÐKEiTFI I I UY
★ ===== =—= ÖLLUM SQLUM! 1 1
ÆN
SIM! 551 6500
h 11 p: / « WjgöMagK í*4j o r n u b i o /
umi
CHOW YUN-FAT MÍRff WAHLBERG
Nvjasti spennuþriller
Chuw Yun Fat úr /,7
Replacement Killers oh\' ' ,
Mark Wahlberg úr A >
Boogie Nights.
Tvær heiðarlegar löggur í
blóðugri tiltekt í Clfnatown.
Sýnd kl. 4.50, 6.50, 9 og 11.10. THX Digital.
Þu getur ek
sannlei
Með Óskarsverðlaunaleikaranum, Nicolas
Cage ("Face/og", "The RocliQ,Jrá leikstjóra
"Falling Down",
frá hajuiritshöfuntii "Seven",
Tvær löggur í Kínahverfinu, Chow Yun-Fat og Mark Wa-
hlberg.
Laugarásbíó — The Corruptor:
A Átök í Kínahverfinu
** James Foley, leikstjóri
The Corruptor, hefur gert
góðar kvikmyndir. Má þar
nefna Glengarry Glen Ross og
At Close Range, myndir sem
metnaður er lagður í. Þessi
metnaður er ekki fyrir hendi
í The Corruptor og ef James
Foley hefur haft þá trú að
hann sé góður hasarmynda-
leikstjóri þá er sú trú á mis-
skilningi byggö.
Leikstjóri á borð við
John Woo, sem er
ábyrgur fyrir frægð
aðalleikarans, Chow
Yun-Fat, hefði getað
gert eitthvað fyrir
myndina en eins og hún kem-
ur fyrir sjónir þá stendur
maður sjáfan sig í að leita að
einhverju óvenjulegu sem
svo aldrei finnst.
Myndin gerist að öllu leyti
í Kínahverfinu í New York.
Þar er fyrir i lögregluliöinu
Nick Chen (Chow Yun-Fat)
sem þekkir alla innviði hverf-
isins og er sjálfur ekki við
eina fjölina felldur í starfi
sínu. Miklar væringar eru í
hverfinu og fær hann sér til
aðstoðar Danny Wallace
(Mark Wahlberg), nýgræðing
meö háleitar hugmyndir, sem
þó verða að víkja þegar hon-
um er stillt upp við vegg.
Samstarf þeirra er stirt í
byrjun en þegar þeir komast
að því að þeir eiga sameigin-
legt hagsmunamál standa
þeir saman.
Mikill vandræðagangur er
í söguþræðinum sem kemur
til vegna þess að okkar ágætu
löggur eru mannlegar og láta
freistast og þvi er erfitt að
skipa þeim á hetjustallinn
sem er yfirleitt heillavænleg-
ast í hasarmyndum þar sem
hið góöa berst gegn hinu illa.
Reynt er að bjarga þessu með
þvi að láta annan þeirra vera
ekki það sem hann sýnist
vera en það gengur ekki upp
og svo er vandræðagangur-
inn mikill í samskiptum fé-
laganna. Sérstaklega er erfitt
að átta sig á af hveiju hinn
Kvikmynda
GAGNRÝNI
kaldrifjaði lögreglumaður,
Nick Chen, fer að lita á
Danny sem sálufélaga og vin
sem nauðsynlega þarf að
vemda.
Chow Yun-Fat, sem
blómstraöi í Hong Kong
myndum Johns Woos, á í
vandræðum með sína per-
sónu enda mótsagnimar
margar. Hann er bestur þegar
hasarinn er mestur og Mark
Wahlberg, sem sló i gegn í
Boogie Nights, er enginn
hasarmyndaleikari og er þvi
aldrei sannfærandi. The
Corruptor er þegar á heildina
er litið eitt kraðak sem lítill
fengur er af.
Leikstjóri: James Foley.
Handrit: Robert Pucci.
Kvikmyndataka: Jean-
Ruiz Anchia. Tónlist:
Carter Burwelt. Aðal-
hlutverk: Chow Yun-
Fat, Mark Wahiberg,
Ric Young, Elizabeth
Lindsay og Brian Cox.
Hilmar Karlsson
Sýnd kl. 7, 9 og 11.
Sýnd kl. 3.
Brendan Fraser
leikur enn einn
furðufuglinn
Hinn stæðilegi leikari Brendan Fraser hefur orðið vinsæll af því
að leika furðufugla. Þessa dagana má sjá hann í Blást
from the Past þar sem hann leikur þrítugan mann sem
hefur verið lokaður inni í kjamorkuskýli alla ævi og er
því eins og áifur út úr hól þegar hann kemur upp á yf-
irborðið. Þá er skemmst að minnast leiks hans í Georg
of the Jungle,
þar sem hann
lék útgáfu af
Tarzan. Næsta
kvikmynd hans
verður The
Mummy sem er
endurgerð
frægrar hryll-
ingsmyndar og
þessa dagana er
hann að fara að
leika i Monkey
Bone þar sem
hann bætir enn
einum furðufugl-
inum við. Fjídlar
myndin um
myndasögu-
teiknara sem
lendir í slysi og
missir meðvit-
und í langan
tíma. Þegar
hann rankar við
sér heldur hann
sig vera teikni-
myndapersón-
una Monkey
Bone sem hann
skapaði. Mótleik-
arar hans eru
Bridget Fonda og Whoopi Goldberg.
Eftir nokkurt hlé birtist Arnold
Schwarzenegger á hvíta tjaldinu.
Schwarzenegger birtist á ný
Það hefur verið hljótt um Amold Schwarzenegger að undan-
fomu og hafa menn verið að velta vöngum yflr því hvort hans
tími sé liðinn. Sjálfsagt veltur mikið á því hvert gengi næstu
kvikmyndar hans, End of Days, verður. Um er að ræða rándýra
kvikmynd sem gerist í kringum áramótin og segir frá heimsókn
Satans til New York þar sem hann ætlar að næla sér í eigin-
konu. Það er komið tmdir fyrmm lögregluþjóni, Jericho
(Schwarzenegger), hvort honum tekst það. Gabriel Byme leikur
Satan. Leikstjóri End of Days er Peter Hyams (Timecop, 2010).
Það er annars af Hyams að frétta að nú er talið að valið standi á
milli hans og Michaels Bays um það hver leikstýrir endurgerð
Planet of Apes en ef af endurgerðinni verður, sem mikið er búið
að skrifa og ræða um, er talið að hún muni kosta minnst 150
milljónir dollara. Fyrst var rætt um að James Cameron mundi
Sími 551 9000
Sýnd kl. 4.30, 6.45, 9 og 11.25.
Sýnd M. 4.30,6.45,9 og 11.15.
Sýnd kl. 4.45, 6.45, 9 og 11.15. Sýnd kl. 5,7 og 11. Einnig sud. kl. 9.
Sýnd kl. 4.30.6.45,9 og 11.15.
Sýndkl. 5 og 9. B.i. 16 ára.
leikstýra Apaplánetunni
en hann hefur nú dregið
sig til baka.
Geimverur
hreiðra um sig í
smábæ
Carl Franklin, sem fengið
hefur mikið hrós fyrir
leikstjórn á One True
Thing sem Bíóborgin sýn-
ir, ætlar að reyna sig við
framtíðarspennumynd
næst. Um er að ræða The
Mothman Prophecies, þar
Keanu boðnar 15 milljónir dollara
Keanu Reeves leikur aðalhlutverkiö í Matrix sem er ein vin-
sælasta kvikmyndin vestan hafs um þessar mundir. Reeves, sem
yfirleitt gefur lítið fyrir vinsældir og fer eigin leiðir, tók sér
tveggja ára hvíld frá kvikmyndaleik og var meira og minna á
ferðalagi með rokkhljómsveit sinni, Dogstar, síðasta mynd hans
var The Devil’s Advocate. Ekki verður mikið um frí hjá honum á
næstu misserum því
hann hefur þegar sam-
þykkt að leika í The
Replacement þar sem
amerískur fótbolti kem-
ur mikið við sögu. Þá
er líklegt að hann muni
leika í The Driven, sem
leikstýrt verður af Joe
Charbanic en hann hef-
ur gert tónlistarmynd-
bönd, Dogstar. Þá birti
Variety þá frétt að búið
væri að bjóða Keanu
Reeves 15 miUjónir doll-
ara fyrir að leika í
Shotter þar sem hann á
að leika fyrrum at-
vinnuhermann sem
reynir að koma í veg
fyrir morð en lendir
óvænt í hringiðu at-
burða sem leiða til þess
að hann er ákærður
Ftichard Gere verður á höttunum eftir íyrir morð.
geimverum í næstu mynd sinni. -HK
Brendan Franes í sínu
frægasta hlutverki, Ge-
orge of The Jungle.
Keanu Reeves er aftur kominn á topp-
inn. Hér hann í Devil’s Advocate.
sem Franklin og Ric-
hard Gere snúa bökum
saman í mynd sem sæk-
ir mikið í sjónvarpsserí-
una X-files. Segir mynd-
in frá virtum blaðamanni í stórborg sem missir áhugann á stór-
borgarlífinu þegar eiginkona hans deyr og flytur í afskekktan
smábæ. Verður hann fljótt var við að fólk hagar sér einkennilega
og þegar hann fer að rannsaka hlutina kemst hann á slóð geim-
vera sem hafa hreiðrað um sig í bænum.
„Frá leikstjóra Desperado og From Dusk
till Dawn og handritshöfundi Scream 1 og
2 kemur spðnnutryllirinn.”
Sýnd Id. 5,7,9 og 11. B.i. 16 ára.
l-btyilllKABI
-besta