Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1999, Side 4
4
MÁNUDAGUR 26. APRÍL 1999
Fréttir
Stuttar fréttir i>v
Skoðanakönnun DV um afstöðuna til loftárása NATO á Júgóslavíu:
Þjóðin klofin í afstöðu
til loftárásanna
Þjóðin er klofin í afstöðu sinni til
loftárása NATO á Júgóslavíu. Þetta
kemur fram í skoðanakönnun sem
DV framkvæmdi síðasta vetrardag.
Spurt var: Ertu fylgjandi eða and-
víg(ur) loftárásum NATO á
Júgóslavíu? Úrtakið var 600 manns,
jafnt skipt milli höfuðborgarsvæðis
og landsbyggðar, sem og kynja.
Þegar afstaða allra í könnuninni
er skoðuð kemur í ljós að 46,3%
voru fylgjandi loftárásunum, 40% á
móti, 10% óákveðin og 3,7% neituðu
að svara. Þannig tóku 86,3% að-
spurðra í könnun DV afstöðu til
loftárása NATO.
Sé einungis litið til þeirra sem af-
stöðu tóku voru 53,6% fylgjandi loft-
árásunum en 46,4% á móti. Munur-
inn er vart marktækur.
Loftárásirnar nutu meira fylgis
meðal karla en kvenna. 59,5% karla
voru fylgjandi loftárásunum en
40,5% á móti. Hins vegar voru 47,6%
kvenna fylgjandi loftárásunum en
52,4% á móti.
Fylgi við loftárásirnar mælist
mest þegar afstaða íbúa höfúðborg-
arsvæðisins er skoðuð. 58,7% íbúa
þar voru fylgjandi loftárásum
NATO en 41,3% á móti. Meðal lands-
byggðarbúa voru 48,4% fylgjandi en
51,6% á móti loftárásum NATO á
Júgóslavíu. -hlh
Rannsókn á Lindarmálinu:
Tröllaukin málsgögn
„Ég vil nú ekkert láta hafa eftir
mér núna,“ sagði Jón Snorrason,
deildarstjóri hjá Ríkislögreglunni, í
gær þegar hann var spurður um
framvindu rannsóknar svokallaðs
Lindarmáls. Þar var um að ræða 700
milljóna króna fjárþurrð hjá eigna-
leigufyrirtæki sem framsóknar-
menn stofnuðu til og Landshanki ís-
lands eignaðist síðan.
Jón sagði að töluverður þrýsting-
ur væri á að málinu lyki sem fyrst,
en það væri meira en að segja það
að ná landi í málinu. Gögn málsins
væru tröllaukin.
Yfirheyrslur í málinu fóru fram í
desember síðastliðnum. Allmargir
aðilar málsins voru kallaðir fyrir.
Síðan hefur tíminn liðið og rann-
sóknin ekki til lykta leidd. Að rann-
sókn hafa staðið starfsmenn ríkis-
lögreglunnar og aðkeyptir endur-
skoðendur.
Jón sagðist ekki geta sagt hvenær
rannsókn lyki né heldur hvort bú-
ast mætti við ákæru í málinu.
Heimildir sem DV hefur segja að
búast megi við niðurstöðu i næstu
viku.
-JBP
íslandspóstur:
Útibú sameinuð
íslandspóstur stefnir að samein-
ingu pósthúsa í sumar. Pósthúsun-
um í Ármúla og á Kleppsvegi verð-
ur lokað og starfsemin flutt í hús-
næði Sölu vamarliðseigna á Grens-
ásvegi. Þá verður öll bréfbera-
vinnsla í Ármúla, á Kleppsvegi og
Rauðarárstíg einnig flutt á Grensás-
veg. Pósthúsið á Rauðarárstíg verð-
ur flutt i Skipholt. Ekki er gert ráð
fyrir fækkun starfsfólks vegna þess-
ara tilfærslna.
Einar Þorsteinsson, forstjóri ís-
landspósts, sagði að íslandspóstur
hefði orðið að fara úr Ármúlanum
þar sem Síminn ætti það húsnæði.
Hvað varðar frekari breytingar
sagði Einar að einnig væri verið að
athuga möguleika á því að póstúti-
búið í Breiðholti myndi sinna að
einhverju leyti austurhluta Kópa-
vogs. „Kópavogurinn er að breiðast
mjög út og nálgast Breiðholtið,
þannig að þetta kæmi til greina. En
þetta eru bara hugmyndir enn sem
komið er.“ -JSS
Loftárásir NATO í Júgóslavíu
Þeir sem tóku afstöðu
46,4%
53,6%
, V
áKgglgllpPÍP^
Karlar
40,5%
59,5%
Konur
47,6%
Andvígir
Fylgjandi
52,4%
Höfuðborgarsvæðið
58,7%
Landsbyggðin
48,4%
Á fimmta tímanum á laugardag varð vélhjólaslys á mótum Holtavegar og Sæbraut-
ar. Ökumaður vélhjólsins hafði „prjónað yfir sig“ og fallið á götuna með þeim af-
leiðingum að hann meiddist á fæti og öxl. Sjúkrabifreið flutti manninn á slysadeild
þar sem gert var að sárum hans, sem ekki eru talin alvarleg. DV-mynd S.
i *
Þessir krakkar í Réttarholtsskóla sátu sveittir yfir íslenskunni þegar Ijósmyndari DV truflaði þá í fyrsta samræmda prófinu á miðvikudaginn. I dag þreyta
tfundubekkingar stærðfræðiprófið, en þeir geta fyrst andað léttar á þriðjudaginn. Þá verður enskuprófið, sem jafnframt er síðasta samræmda prófið í
ár. DV-mynd Hiimar Þór.
Halldór á BBC
Eftir ræðu Halldórs Ásgríms-
sonar í National Press Club í
Washington var
honum boðið að
taka þátt í
beinni sjón-
varpsútsend-
ingu um mál-
efni Atlants-
hafshandalags-
ins á BBC
World Service. Útsendingin náði
til 70 landa.
Fuglafri&land
Tekist hefur samstarf milli
sveitarfélagsins Árborgar og
Fuglaverndunarfélags íslands
með það fyrir augum að vernda
stórt friðland fugla vestan við
Eyrarbakka, upp með Ölfusá.
Gera á svæðið að útivistarsvæði
fyrir áhugafólk um fuglalíf. Mbl
greindi frá.
Litiö vitaö um skotvopn
Tölur liggja ekki fyrir um
fiölda skotvopna á íslandi. Dagur
greinir frá því að til standi þó að
breyta þessu, en grunur er um að
raunveruleg skotvopnaeign sé
mun meiri en skráð.
Krabbameinsfélag 50 ára
Krabbameinsfélag Hafnarfjarö-
ar átti 50 ára afmæli fyrir
skömmu. Á fundi stjórnar félags-
ins á afmælisdeginum var Jak-
obína Mathiesen kjörin fyrsti
heiðursfélagi félagsins, en hún
var meðal stofnenda þess og sat í
fyrstu stjóminni.
Umhverfisáætlun
Samtökin Sól í Hvalfirði, Norð-
urál, íslenska jámblendifélagið
og sveitarfélögin við Hvalfjörð
ganga bráðlega frá umhverfis-
áætlun til fimm ára. Þar taka
verksmiðjurnar tvær í Hvaifirði
á sig ýmsar skuldbindingar utan
starfsleyfis þeirra. Morgunblaðið
sagði frá.
Ingibjörg í stjórn
Ný stjóm Landsvirkjunar var
kosin á fostudag. Hún er að
mestu óbreytt
fyrir utan að
Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir
borgarstjóri
tekur sæti
Kristínar Ein-
arsdóttur og
Kristján Þór
Júlíusson, bæjarstjóri á Akur-
eyri, tekur við af Jakobi Bjöms-
syni, fyrrverandi bæjarstjóra.
Dagur sagði frá.
Makaskipti á kvóta
Dæmi era um að sjávarútvegs-
fyrirtæki hafi makaskipti á
kvóta, í þeim eina tilgangi að
sýna betri fjárhagsstööu í bók-
haldi. Þetta er gert annars vegar
til að sýna betri stöðu á efnahags-
reikningi og hins vegar að nýta
skattalegt tap. Mbl. greindi frá
þessu.
UVS ræöur starfsfólk
Liftæknifyrirtækið Urður
Verðandi Skuld hefur fundið hús-
næði og ráðið tvo starfsmenn.
Forráðamenn fyrirtækisins segj-
ast stefna á að starfmönnum
fjölgi í 10 til 12 á þessu ári. Dag-
ur sagði frá.
Stjórnar sér sjálf
Margrét Frímannsdóttir og
Sighvatur Björgvinsson segja
fullyrðingar
Davíðs Odds-
sonar um að
auglýsinga-
stofa ráði því
hvað Samfylk-
ingin segi og
geri opinber-
lega rangar.
Þau segjast sjá um þessi mál
sjálf. Dagur sagði frá þessu.
Skólaþjónusta á Dalvík
Akureyringar hafa dregið sig
út úr Skólaþjónustu Eyþings og
því verður skólaþjónusta fyrir
fjögur sveitarfélög á Norðurlandi
staðsett á Dalvík. Þessi sveitarfé-
lög eru Dalvíkurbyggð, Ólafsfjörð-
ur, Hrísey og væntanlega Grims-
ey. Dagur greindi frá. -KJA