Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1999, Page 6
6
MÁNUDAGUR 26. APRÍL 1999
Fréttir
Neta- og togararallið veldur vonbrigðum:
Viðvörunarbjöllur
hringja á Hafró
- fiskifræðingar tvístígandi
„Ef þetta heldur áfram svona
forum við að hafa áhyggjur," sagði
Vilhjálmur Þorsteinsson, fiski-
fræðingur á Hafrannsóknastofnun,
um nýlokið netarall stofnunarinn-
ar. „Þetta var dapurt og okkur
mikil vonbrigði. Það virðist vera
minna af fiski í sjónum en menn
töldu.“
Vilhjálmur varar þó við of mik-
illi svartsýni. Niðurstöður neta-
rallsins hyggi á mörgum þáttum og
ekki sé rétt að álykta út frá þeim
gögnum einum sem liggja nú fyrir.
Samkvæmt heimildum DV eru nið-
urstöður úr togararalli Hafrann-
sóknastofnunar á sömu nótum og
úr netarallinu og velta menn þvi
alvarlega fyrir sér hvort fiskistofn-
arnir séu í sögulegu lágmarki,
þrátt fyrir yfirlýsingar stjómmála-
manna um annað:
„Við getum ekki svarað því með
þessi gögn í höndunum. Þama get-
D og B
jafnir á
Hrauninu
Samkvæmt skoðanakönnun
sem starfsfólk fangelsisins á
Litla-Hrauni gerði innan sinna
vébanda á fylgi flokkanna í Suð-
urlandskjördæmi fyrir helgi, eru
Sjálfstæðisflokkur og Framsókn-
arflokkur hnífjafnir í kjördæm-
inu. Könnunin fór fram eins og
um kosningar væri að ræða og
fengu D- og B-listar 19 atkvæði
hvor.
58 manns kusu og niöurstöður
urðu þær að Framsóknarflokkur-
inn fékk 19 atkvæði og tvo þing-
menn, Sjálfstæðisflokkurinn
einnig 19 atkvæði og tvo þing-
menn, Samfylkingin 11 atkvæði
og einn þingmann, Frjálslyndi
flokkurinn 3 atkvæði, Húman-
istaflokkurinn tvö og Vinstri-
hreyfingin - grænt framboð tvö.
Tveir seðlar vom ógildir. -SÁ
ur svo margt spilað inn í, ekki síst
veðurfar. En þetta er dapurlegt,"
sagði Vilhjálmur Þorsteinsson.
Sólmundur Einarsson fiskifræð-
ingur hafði umsjón með togararall-
inu. Hann vildi ekkert tjá sig um
niðurstöðumar þar sem hann var
staddur við rannsóknarstörf um
borð í Dröfninni á Breiðafirði.
Hann ætti eftir að vinna betur í
gögnunum en játti því þó aðspurð-
ur að niðurstöðurnar væru langt
frá því að vera glæsilegar.
Fimm bátar tóku þátt í netarall-
inu, sem hófst 5. apríl og lauk 20.
Þrátt fyrir viðvörunarbjöllur á Hafrannsóknastofnun er engu líkara en þorskurinn gangi á land í nágrenni Reykjavík-
ur. Þessi sjómaður var ekki að örvænta eftir að hafa lagt 18 net í Kollafirði alveg upp við landsteina. Úr netunum kom
hálft annað tonn af fallegum þorski. _____________________________________ DV-mynd S.
Kleifabergið, skip Þormóðs ramma - Sæbergs, gerði stuttan stans í Hafnarfirði í gær. Nokkur styrr hefur staðið um kaup
á kosti í skipið, en fyrrum kokkur á Kleifaberginu hefur sagt að útgerðin banni kaup á kosti annars staðar en í Valbergi,
sem er verslun Þormóðs ramma - Sæbergs á Ólafsfirði. Þar mun verðlagið vera 30% hærra en í þeim verslunum sem
áhöfnin kýs að skipta við, að sögn kokksins. Gunnar Sigvaldason, framkvæmdastjóri Þormóðs ramma - Sæbergs, hefur
sagt kokkinn Ijúga þessu og það sé skýrt í kjarasamningum að áhöfnin ráði hvar hún kaupi sinn kost. DV-mynd S.
Akranes
Ný Uppgrips-
verslun hjá Olís
DV Akranesi:
Olls opnaði
15. apríl sína
14. Uppgrips-
verslun að
Suðurgötu 10
á Akranesi í
140 fermetra
húsnæði. Með
tilknmu Unn- Gunnar Sigurðsson, um-
tiiKomu upp boðsmaður 0|ís á Vest.
gripsverslun- urlandi og fyrrum forseti
arinnar rekur bæjarstjórnar Akraness, í
Olís á sama nýju Uppgripsverslun-
stað umboð, inni- DV-mynd Daníel
Uppgripsverslun og sölutum og er opið
alla daga.
„Með tilkomu Uppgripsverslunar-
innar vonumst við til þess að geta þjón-
ustað Neðri-Skagann mun betur en
verið hefúr. Áfram verður um að ræða
sjálfsafgreiðslu á olíu og bensíni enda
hefur það verið vinsælt. Fólk fær 2
króna afslátt fyrir að setja bensín eða
olíu sjálft á bílinn," sagði Guimar Sig-
urðsson , umboðsmaður Olís á Vestur-
landi, við DV. -DVÓ
sandkorn
Ekið á Johnsen
Nýjasti baráttumaður launafólks,
Ámi Johnsen, sem kastaði því
fram í ræðu á framboðsfundi að
hækka mætti tekjur launafólks á
landinu um 40-50%, var viðstaddur
opnun hjólbarðaverk-
smiðju í sódómu
íhaldsins á Suður-
landi, Hveragerði, á
dögunum. Þar er
hafín framleiðsla á
dekkjum sem eiga
eftir að fleyta ís-
lenskum bifreið-
um inn í 21. öld-
ina. Sagan segir að
fyrsti gangurinn sem Johnsen þing-
maður framleiddi hafi tekið mið af
vaxtarlagi þingmannsins og verði
nefhdur eftir honum. Nú geta menn
ekið á Johnsen...
Nafnarugl
Ýmis framboö hafa fengið á sig
nöfn af andstæðingum þeirra sem
höfða til fortíðar eða einhverra ein-
kenna. íhaldsmenn
eru gjamir á að
kaila samfylk-
inguna fylkinguna
og vísa til hins
gamla rauða fé-
lagsskapar • sen
Bima Þórðar-
dóttir og Ragnar
Stefánsson
skjálfti stóðu í
bijóstvöm fyrir á árum áður. Sam-
kvæmt þessu er Ný framsókn Nýtt
vín á gömlum belgjum. Græningjar
era Græneygðir og Frjálslyndi
flokkurinn er Siðblindi flokkur-
inn...
Akraborgarbyggð
Gísli Gíslason, bæjarstjóri á
Akranesi, og bæjarstjóm Akraness
hafa gert ítrekaðar tilraunir til að
sameina nágrannasveitarfélögin en
ekkert gengið þar sem einn af hrepp-
unum í nágrenni Akraness, Skil-
mannahreppur, ágim-
ist ekki sérstaklega
miklar skuldir Akra-
neskaupstaðar. Vilja
menn þar í hreppi
halda í bankabók-
ina sem ku vera
ansi stór. Nú hafa
Akurnesingar leit-
að til sveitarfélaga
í Mýra- og Borgar-
fjarðarsýslu og vilja ræða samein-
ingu alira sveitarfélaga í sýslunum.
Þykja menn bjartsýnir um að á
næstu áram verði byggð með 10 þús-
und íbúa sameinuð. Gárungarnir
era þegar komnir með nafn á nýja
sveitarfélagið, Akraborgarbyggð.
Segjast þeir vissir um að Ömefna-
nefnd muni hreinlega ekki geta
hafnað því nafhi...
Söðluðu um
Samfylkingin skiptir ekki við
GSP almannatengsl varðandi aug-
lýsingar sínar, eins og flestallir
munu hafa haldið, heldur lætur
Máttinn og dýrðina um þau mál.
Heimildir Sand-
koms herma að
samíylkingarmenn
hafi verið allt ann-
að en kátir með
auglýsingaherferð
GSP fyrir LÍÚ i
fyrra þar sem sí-
fellt var verið að
segja þjóðinni
hver ætti kvótann og m.a. birtar
myndir af hyítklæddum konum.
Auglýsingar LÍÚ hafa verið auglýs-
ingameisturum Samfylkingar til-
efni til innblásturs. Nýlega kom í
umferð kort þar sem umrædd aug-
lýsing fær samfylkingarmeðferð. Á
kortinu era myndir af Davið Odds-
syni, Kristjáni Ragnarssyni, Hail-
dóri Ásgrímssyni og Þorsteini
Pálssyni íklæddum hvítum bolum
eins og stúlkur LÍÚ í fyrra. Yfir
höfðum þeirra stendur: Hverjir eiga
kvótann?
Umsjón Haukur L. Hauksson
Netfang: sandkom @ff. is