Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1999, Blaðsíða 8
8
MÁNUDAGUR 26. APRÍL 1999
Útlönd
Clinton hvatti Jeltsín til að vinna að lausn Kosovo-deilunnar:
NATO ætlar að auka
hernaðaraðgerðirnar
Leiðtogar ríkja Atlantshafsbanda-
lagsins (NATO) urðu sammála um
það á fundi sinum í Washington í
gær að herða á hernaðaraðgerðun-
um gegn Júgóslavíu. Á sama tíma
sagði Bill Clinton Bandaríkjaforseti
Borís Jeltsín Rússlandsforseta að
hann yrði að leita leiða til að binda
enda á átökin.
Frelsisher Kosovo (FHK) bauðst í
gær til að leiða landhernað NATO
gegn hersveitum Serba. Sögðu
Frelsishermenn að með því að nýta
þekkingu þeirra á staðháttum
mætti draga verulega úr mannfalli.
Einlægur stuöningur
Madeleine Albright, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, og Robin
Cook, breskur starfsbróðir hennar,
sögðu hins vegar að enn hefði ekk-
ert verið ákveðið um hvenær land-
hermenn yrðu sendir til Kosovo.
„Það sem ég tel að þessi leiðtoga-
Noregur:
Reknir vegna
160 milljarða
DV, Ósló:
Bæði stjórn og forstjóri
norska riksiolíufélagsins Statoil
urðu að taka pokana sina fyrir
helgi eftir að staðfest var að
kostnaður við byggingu olíu-
vinnsiuskipsins Ásgars hefur
farið 160 milljarða íslenskra
króna fram úr áætlun.
Forstjórinn, Harald Nordvik,
segir bjartsýni í áætlanagerð og
of flókinn tækibúnað um borð í
skipinu hafa ráðið úrslitum um
að skipið kostar helmingi meira
en áætlað var. Því er hins vegar
haldið fram af gagnrýnendum
verksins að engar áætlanir af
viti hafi verið gerðar. Þegar ráð-
ist var í smíðina var olíuverð
hátt og ekki hægt að fara á haus-
inn á olíuvinnslu.
Statoil er að öllu í eigu norska
ríksins. Meðal stjórnarmanna
þar voru forseti Alþýðusam-
bandsins norska og forstjóri
símafélagsins. -GK
ísland í annan
flokk í NATO
DV, Ósló:
ísland, Noregur og Tyrkland
eiga á hættu að enda sem áhrifa-
lausar annars flokks þjóðir innan
NATO, ef Evrópusambandsþjóð-
imar fá vilja sínum framgegnt.
Séra Kjell Magne Bondevik, for-
sætisráðherra Noregs, staðfesti í
gær að deilt hefði verið um skipu-
lag NATO á afmælisfundinum í
Washington.
Vandinn er að Evrópusamband-
ið, ESB, vill koma fram sameinað
innan NATO í nafni Vestur-Evr-
ópusambandins. ísland, Noregur
og Tyrkland hafa aðeins rétt til
áheyrnar innan Vestur-Evrópu-
sambandins og gætu orðið eins og
áheymaraðilar í NATO líka. -GK
Dópsali í haldi
eftir skotárás
Þýska lögreglan handtók í gær
flkniefnasala sem grunaður er
um að hafa skotið 46 ára gamlan
mann úr fíkniefnalögreglunni til
bana þegar laganna verðir gerðu
áhlaup á íbúð mannsins. Eftir
skotárásina lokaði dópsalinn sig
inni í íbúö nágranna síns í tutt-
ugu klukkustundir.
Ungur albanskur drengur frá
Kosovo fer klyfjaður brauði frá mat-
arskömmtunarstöð í flóttamanna-
búðum í Vlora í Albaníu.
fundur hafi haft í fór með sér er ein-
lægur stuðningur við aukinn
lofthernað," sagði Albright.
Reuters fréttastofan sá sérstaka
ástæðu til að geta stuðnings ís-
lensku ríkisstjórnarinnar við hern-
aðaraðgerðir NATO og sendi frá sér
viðtal við Davið Oddsson forsætis-
ráðherra.
Davíð minnti á að íslendingar
hefðu ekki her og því hefðu þeir sig
ekki mjög i frammi þegar viðkvæm
mál eins og landhernaður í Kosovo
væru rædd. Hann sagði að þau ríki
sem yrðu að bera þyngstar
byrðarnar i því sambandi yrðu að
bera mesta ábyrgð á þeirri
ákvörðun.
Loftárásir NATO á Júgóslavíu
héldu áfram í gær og leiðtogar
bandalagsríkjanna nítján voru á
einu máli um nauðsyn þess að
stöðva alla olíuflutninga til
Júgóslavíu. Ekki var þó gengið frá
því á fundi leiðtoganna hvaða skip
mætti stöðva þegar til hafnbanns
kæmi.
Förum aö lögum
Jacques Chirac Frakklandsforseti
sagði að í því sambandi yrðu ríki
NATO að fara að alþjóðalögum.
Wesley Clark, æðsti hershöfðingi
NATO, sagði í Tirana, höfuðborg
Albaníu, að loftárásirnar gengju
samkvæmt áætlun og að Slobodan
Milosevic Júgóslavíuforseti vissi að
hann væri að tapa stríðinu.
Clark sagði fréttamönnum, eftir
fund næö hermönnum NATO og
yfirmönnum þeirra, að Apache-
árásarþyrlur Bandaríkjahers yrðu
teknar í notkun á næstunni.
„Við erum að vinna. Milosevic er
að tapa og hann veit það,“ sagði
Clark á flugvellinum í Tirana þar
sem sjá mátti flugvélar með bæði
hergögn og hjálpargögn.
Tvær indíánakonur í Gvatemala kveikja á kertum í minningu biskupsins Juans Josés Gerardis, sem var myrtur fyr-
ir einu ári. Meira en tíu þúsund manns komu saman í dómkirkju Gvatemala til aö hlýöa á messu til heiöurs biskupin-
um. Saksóknarar vita ekki enn hver myrti biskup, en grunur beinist að öryggissveitum landsins.
Skotárásin á skólann í Kólóradó:
Foreldrar ódæðismanna
komnir undir smásjána
Foreldrar ódæðismannanna
tveggja sem myrtu tólf samnemend-
ur sína og einn kennara í fram-
haldsskóla í Littleton í Colorado í
síðustu viku gætu átt von á því að
verða sóttir til saka. Ríkisstjóri
Colorado sagði þetta í gær, eftir að
lögreglan fann órækar sannanir um
skipulagningu morðárásarinnar í
herbergi annars piltanna.
„Ég tel að foreldrarnir verði
kannski ákærðir og ættu svo sann-
arlega að verða ákærðir ef staðfest-
ing fæst á þessum sönnunum,"
sagði Bill Owens rikisstjóri í viðtali
við fréttaþátt Fox sjónvarpsstöðvar-
innar.
Owens tilgreindi ekki fyrir hvað
foreldrar piltanna kynnu að verða
ákærðir.
Janet Reno, dómsmálaráðherra
Kimmie Cornell og Brittney Pastine
voru viö útför vinkonu sinnar sem
lést í skotárásinni í Colorado.
Bandaríkjanna, sagði einnig í gær
að rannsakað yrði hveijir hafi látið
piltana hafa byssurnar sem þeir
notuðu við ódæðisverkið og einnig
„hvað foreldramir vissu og hvað
þeir hefðu átt að vita.“
Allt frá því þeir Eric Harris og
Dylan Klebold frömdu morðin hefur
bandaríska þjóðin velt því fyrir sér
hvemig 17 og 18 ára piltar hafi get-
að komist yfir jafn mikið af skot-
vopnum og sprengiefni og raun bar
vitni án þess að foreldrar þeirra
fengju veður af því.
Lögreglan hefur fundið dagbók
annars piltanna. Þar er að finna
margar tilvísanir í Þýskaland nas-
ista. Árásin í síðustu viku, sem mun
hafa verið eitt ár í skipulagningu,
var gerð á 110 ára afmælisdegi Ad-
olfs Hitlers.
Stuttar fréttir i>v
Trúaöir mótmæla
Meira en tíu þúsund stuðnings-
menn kínversks sértrúcirsöfnuðar
efndu til mótmælaaðgerða fyrir
utan stjómarskrifstofurnar í Pek-
ing í gær og kröfðust þess að fá
opinbera viðurkenningu.
Gere veitir stuðning
Hollywood-leikarinn Richard
Gere bauð í gær fram stuðning
sinn við Tíbeta
nokkum sem er
í hungurverk-
falli íyrir utan
bækistöðvar
Sameinuðu
þjóðanna í
borginni. Gere,
sem 'er kunnur
stuðningsmaður málstaðar Tíbet-
búa, veittist við það tækifæri að
kínverskum stjómvöldum fyrir
að koma sér hjá því að láta rann-
saka mannréttindabrot þeirra.
Kerlinga elst
Elsti núlifandi Frakkinn, Marie
Brémont, hélt upp á 113 ára af-
mæli sitt á elliheimili í borginni
Angers í gær. Aflýsa varð mót-
töku fyrir fréttamenn og fyrir-
menni þar sem afmælisbarnið var
of þreytt. Að öðru leyti amar ekk-
ert að Brémont.
Þrælar rokkara
Rokkarar, eða vélhjólabófar, í
dönskum fangelsum hafa það fyr-
ir sið að gera veikburða fanga að
þjónum sínum, segir í nýrri
skýrslu fangelsiseftirlitsmanns.
Auken boðið starf
Svend Auken, umhverfisráð-
herra Danmerkur, hefúr á ný ver-
ið spurður hvort hann hafi áhuga
á starfi Ritt Bjerregaard í fram-
kvæmdastjóm EvrópusambEmds-
ins, að sögn Jyllands-Posten.
Vilja Palestínuríki
Samtökin átta sem mynda
Frelsissamtök Palestinu hafa
hvatt Yasser
Arafat, forseta
Palestínu-
manna, til að
lýsa yfir stofh-
un sjálfstæðs
palestínsks rík-
is þann 4. maí
næstkomandi.
ísraelar em mjög andvígir slíkri
sjálfstæðisyfirlýsingu og leiðtogar
Vesturlanda hafa hvatt Arafat til
að fresta yfirlýsingunni.
Enginn klofningur
Uppreisnarforinginn Foday
Sankoh í Sierra Leone vísaði í
gær á bug að klofningur væri í
fylkingu hans eftir að tveir helstu
herforingjar hans mættu ekki á
skipulagsfund í Togo í gær.
Kosið í Venesúela
íbúar í Venesúela gengu til
þjóðaratkvæðagreiðslu í gær um
nýja stjórnarskrá sem mun heim-
ila forseta landsins að halda
áfram með „friðsamá byltingu“
sína fram á næstu öld. Næsta víst
þykir að forsetinn fái sínu fram-
gengt.
Breti handtekinn
Lögregla í Costa Rrica sagði í
gær að breskur ferðamaður hefði
verið handtekinn um borð í
skemmtiferðaskipi með 7,5 kíló af
kókaíni í fómm sínum.
Hægrimenn klofnir
Frönskum háegrimönnum tókst
ekki að jafna ágreining sinn
vegna komandi
kosninga til
Evrópuþingsins
og munu því
ganga klofnir til
leiks. Mið-
hægriflokkur-
inn UDF ítrek-
aði að hann
vildi ekki vera með á sama lista
og gaullistaflokkurinn RPR, sem
er enn í sáram eftir óvænta af-
sögn formanns sins, Philippes
Séguins, á dögunum. Margir
gaullistar gerðu sér vonir um að
sættir myndu takast.