Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1999, Síða 9
MÁNUDAGUR 26. APRÍL 1999
9
DV
Utlönd
nóv.98
-i JorifsUi ú
ORUGGUR
í SPACE STAR er tryggilega séð fyrir öilu, sem snýr
að öryggi farþeganna. SPACE STAR uppfyllir
rúmlega allar kröfur um öryggi samkvæmt
stöðlum Evrópusambandsins og hefur staðist allar
árekstrarprófanir þvi samfara með stakri prýði.
RÚMGÓÐUR
Þessi fimm dyra hlaðbakur er með góða lofthæð
og veitir allt það rými, sem þörf er á fyrir 5 manns
ásamt nauðsynlegum farangri.
Mjög auðvelt er að breyta sætaskipan þannig að
hún hæfi aðstæðum hverju sinni.
Svona var umhorfs á Brick Lane í
London eftir sprengjutilræðið.
í Bretlandi slðan seint á áttunda
áratugnum.
„Við eigum í höggi við sérlega
harðskeytta glæpamenn og hryðju-
verkamenn. Þar til þeir nást er
hættan fyrir hendi,“ sagði Jack
Straw, innanríkisráðherra Bret-
lands.
Nýnasistasamtökin Combat 18
lýstu tilræðinu á laugardag á hend-
ur sér. Sprengjan sprakk á Brick
Lane, fjölfarinni markaðsgötu í
austurhluta London. Hópurinn
Þúsundir manna minntust þess f
gær að þrettán ár eru frá kjarnorku-
slysinu i'Tsjernobýl. Þar á meðal var
þessi fyrrum starfsmaður.
SPARNEYTINN
SPACE STAR er hagkvæmur i rekstri. Þrátt fyrir aö
86 hestafla hreyfillinn sé léttbyggdur og spar á
eldsneyti, gefur hann stærri hreyflum ekkert eftir
i afli og snerpu.
ÞÆGILEGUR
SPACE STAR er með afbrigðum auðveldur í akstri
og lipur i meðförum. Hann er alhliða bill
notagildis og þæginda. Sætabúnaður er þannig
gerður að allri fjölskyldunni á að liða vel á
ferðalögum.
HAGSTÆTT VERÐ
MITSUBISHI SPACE STAR, er rétti kosturinn fyrir
fjölskyldur sem vilja öruggan, rúmgóðan,
sparneytinn og þægilegan bil á hagkvæmu verði.
Sonia Gandhi
gefst upp á
stjórnarmyndun
Sonia Gandhi, leiðtogi stjómar-
andstöðunnar á Indlandi, viður-
kenndi í gær að henni tækist ekki
að mynda nýja ríkisstjóm. Stjóm-
arkreppa er þvi yfirvofandi og út-
lit fyrir að boðað verði til kosn-
inga á næstunni, hinna þriðju frá
árinu 1996. Allra augu beinast því
nú að forseta landsins, K.R. Nara-
yanan.
Skömmu eftir að Sonia Gandhi
kom af fundi með Narayanan var
Vajpayee forsætisráðherra kallað-
ur á forsetaskrifstofuna. Vajpayee
sagði af sér 17. apríl eftir að ind-
verska þingið samþykkti van-
traust á stjórn hans með eins at-
kvæðis meirihluta. Forsætisráð-
herrann sagði fréttamönnum í
gær að hann myndi kalla saman
starfsstjóm sína í dag, mánudag,
til að ræða stjórnmálakreppuna.
skv. könnun breska
Umaritsins What Cart
Stíil
- w~- sm
T-ppre STffí<
Sjö særöust í naglasprengjutilræði í London:
Lögreglan óttast fleiri
tilræöi kynþáttahatara
Lögregla og minnihlutahópar I
Bretlandi óttast nú mjög frekari
árásir kynþáttahatara eftir að
naglasprengja í hverfi Bangladessa í
London særði sjö á laugardag. Það
var annað slíkt tilræðið á einni
viku. Jafn alvarlegar árásir hafa
ekki verið gerðar á minnihlutahópa
hafði einnig lýst ábyrgð á sprengju-
tilræði í svertingjahverfinu Brixton
viku fyrr á hendur sér. í því tilræði
særðust 39.
Combat 18 dregur nafn sitt af röð
upphafsstafa Adolfs Hitlers í enska
stafrófinu.
Leiðtogar minnihlutahópa segja
að kynþáttahatarar vilji koma af
stað stríði miUi kynþáttanna þar
sem fylgi þeirra meðal þjóðarinnar
fer hríðminnkandi.
Elskhugi Díönu
vill selja söguna
James Hewitt, fyrram elskhugi
Diönu heitinnar prinsessu, reynir
nú að selja birtingarréttinn á end-
urminningum sínum um ástaræv-
intýrið til daghlaða fyrir litlar 60
milljónir króna.
Að sögn blaðsins Sunday Tele-
graph á Hewitt í samningavið-
ræðum við sunnudagsútgáfu
blaðsins Mail og einnig ku hann
vera að ræða við æsiblaðið News
of the World. Hewitt mun ekki
ætla að birta ástarbréf frá Díönu í
endurminningunum. Bréfunum
var stolið í haust en komust aftur
í réttar hendur.