Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1999, Page 18
18
Fréttir
MÁNUDAGUR 26. APRÍL 1999
Ný og breytt útgáfa
tðivui téckni 09 visinda
Heimasíður stjórnmálaflokkanna:
Góðar eða slæmar?
Óttast íslendingar
2000-vandann?
Getnaðarvarnir karlmanna
Landbúnaður
20 síðna aukablað um landbúnaðinn
- Borgarbarn tekið tali í sveitinni
- Innviðir Hvanneyrar skoðaðir
- Forvitnilegt viðtal við 3 kynslóðir
sem búa undir sama þaki
- Lífrænir bændur
f ókus
- Könnun á bestu hljómsveit allra tíma
- Hverjir eru hvernig á Gand Rokk?
- Lífið eftir vinnu
Kennsla á námskeiðinu.
DV-mynd G
Raufarhöfn:
Rúmlega 60 á
tölvunámskeiði
DV, Raufarhö&i:
Fyrirtækið íslensk miðlun ehf.
hefur stofnað hlutafélag um síma-
þjónustufyrirtæki, í samvinnu við
Raufarhafnarhrepp. Stefnt er að
opnun fyrirtækisins um miðjan apr-
íl og munu allt að 13 manns fá
vinnu viö fyrirtækið. í tengslum við
undirbúning þess bauð Islensk
miðlun öllum sem vildu upp á nám-
skeið í meðferð á tölvum.
Rúmlega 60 manns skráðu sig á
námskeiðið. Kennt hefur verið í fé-
lagsheimilinu frá morgni til kvölds
undanfarna daga og hefur áhugi
verið mikill. í sambandi við nám-
skeiðið bauð fyrirtækið einnig upp
á hagstæð kaup á tölvum, þannig að
búast má við að tölvunotkun meðal
almennings vaxi verulega við þetta
átak, sem hefur mælst vel fyrir og
hlotið góðar undirtektir.
G.
Raufarhöfn:
íþróttamaður
ársins 10 ára
DV, Raufarhöfn:
Ungmennafélagið Austri á Rauf-
arhöfn hélt fyrir skömmu fjöl-
skyldudag þar sem veittar voru við-
urkenningar fyrir starf liðins árs. Á
þessum degi er kynnt val á íþrótta-
manni ársins. Að þessu sinni var
Jóhann Reynir Gunnlaugsson fyrir
valinu.
Hann er 10 ára gamall og stund-
ar þær íþróttir sem boðið er upp á
á staðnum af miklum áhuga. Hann
er vel liðtækur bæði í knattspymu
og körfuknattleik. Einnig hefur
hann tekið þátt í frjálsum íþróttum
og stóð sig meðal annars mjög vel
á Gogga-mótinu i Mosfellsbæ sl.
vor. Þá er hann efnilegur lang-
hlaupari og tók meðal annars þátt
í gamlárshlaupi ÍR um áramótin
og hljóp þá 10 km, einungis 9 ára
gamall. G.
Jóhann Reynir Gunnlaugsson með
verðlaunagripinn. DV-mynd G
Akranes:
Höfði fær 11 milljónir
- úr Framkvæmdasjóði aldraðra
DV Akranesi:
Á fundi stjórnar Dvalarheimilis-
ins Höfða á Akranesi nýverið var
lagt fram bréf frá heilbrigðisráð-
herra, Ingibjörgu Pálmadóttur,
vegna samstarfsnefndar um málefni
aldraðra. í bréfinu kemur fram að
ákveðið hefur verið að veita Höfða
úr Framkvæmdasjóði aldraðra
11.085.000 krónur á árinu 1999, sem
skiptast þannig: Vegna endurbóta
hjúkrunarrýma er framlagið
1.675.000 krónur; 1.910.000 krónur
vegna anddyris á Höfðahúsinu;
2.500.000 krónur vegna lóðarfram-
kvæmda og 5.000.000 krónur vegna
endurbóta á þaki. -DVÓ
Þelr Ilska sem róa.. Þelr Ilska sem róa... Þelr ílska sem róa.. Þelr
www.visir.is
FYRíTUáí. M.S9 FSÉTTI8HIASÍ.
J
\
i
i